Tíminn - 18.10.1970, Side 1
- rZT~— ~ HRYSTIKISTUR
-vj » FRYSTISKAPAR
■3P/t« /atn/iAféJLctSi' h..£
RAFTÆKJADEtLD, HAFNARSTRÆTt 23, SfMI 1*Mi
236. tbl. — Sunnudagur 18. okt. 1970. — 54. árg.
Löggjöf verði sett
um varnir gegn mengun
EB_—Reykjavík, laugardag.
Olafur Jóhannesson endurflytur
nú á Alþingi tillögu til þingsálykt
tmar nni ráðstafanir til varnar
gegn skaölcgri mengun í lofti og
í vatni. — Tillagan er svohljóð-
andi: Alþingi ályktar að fela ríkis
stjóminni að láta undirbúa lög-
gjöf um ráðstafanir til varnar
gegn skaðlegri mengun | lofti og
vatni. Greinargerð með þingsálykt
unartillögunni fer hér á eftir:
Mengun í lofti og vatni er otrðið
eitt mesta vandamál í þéttbýlum
og iðnvæddum löndum. Eitrun
lofts og vatns er orðið alvarlegt
böl hjá iðnaðarþjóðuim. Andrúms
loft sumra stórborga er orðið svo
mengáð, að til vandræða horfir.
Fiskur drepst víða í ám og vötn-
um vegna mengunar. Særinn við
strendur landa er sums staðar orð
Ólafor Jóhannesson
Ræddi yfir veginn
undir Elliðaárbrúnni
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Lögreglunni var í gærkvöldi
tilkynnt að bíll væri í hættu
nndir nýju Elliðaárbrúnni á
Rafstöðvarvegi. Lenti bíflinn í
djúpu vatni, en áin rann yfir
veginn.
Mi'kill vöxtur var í Elliðaán
um vegna rigninganna og var
vatnið svo djúpt á Rafstöðvar
veginum sém liggur undir
brúna að bfllinn stöðvaðist. Bíl
stjórinn óð á þurrt og lögregl
an var beðin um aðstoð. Tókst
fljótlega að ná bflnum. í>essi
vegarspotti er enn ekki full-
gerður og á sjálfsagt eftir að
hækka, svo að ekki verði hætta
á að flæði yfir hann þegar vöxt
ur er í ánum.
Mikil úrkoma en
litlar vegaskemmdir
KJ—Reykjavík, laugardag.
Þrátt fyrir hina íniklu úrkomu
á Suður- og Vesturlandi, var Vega
málaskrifstofunni ekki kunnugt
um neinar alvarlegar vegaskemmd
ir er Tíminn spurðist fyrir um
það í morgun.
Geldingadragi varð að vísu ófær
Fnaimihald á bls. 11
inn hættulega mengaður. Kunnáttu
menn spá því, að í sumum stór
borgum verði orðið nær ólrft eft-
ir nokkur ár, ef svo hel'dur fram
sem nú horfir. Þessi sívaxandi
mengunarhætta er að verða einn
mesti ógnvaldur mannkynsins.
Þetta böl hefur enn að mestu
leyti sneitt hér hjá garði. Þó hef-
ur þegatr orðið vart nokikurrar
mengunar hér. Það eru þó smá
munir hjá því, sem annars stað-
ar er. Enn er loftið hér hreint oig
tært, landið tiitölulega hireint og
vötn og sjór að mestu laus við
mengun. En hættan er hér aug
ljós og vaxandi, eftir því sem
verksmiðjum fjölgar og iðnvæðing
færist í aukana. Hér þarf því að
vera vel á verði og gera í tæka tfð
viðeigandi varnarráðstafanir. Það
er of seint að byrgja brunninn,
þegar barnið er dottið ofan í. Við
megum ekki giata þeim auði, sem
við eigum í óspilltri nátttiru. Við
megum ekkj láta mengun spilla
lífinu í sjónum við slrendur lands
ins. Við megum ekki láta spilla
hinu hreina andrúmslofti. Við meg
um ekki láta óhreinindi og meng
un eyðileggja hinar dýimætu ár
okkar og fiskiviitn. Hér má ekki
sofa á verðinum. Það þarf þegar
að rannsaka, hvernig ástatt er.
Það þarf að athuga löggjöf aDa,
sein að þessu lýtur. Og það þarf
að hefjast handa nm setningu
nauðsynlegrar löggjafar um við-
eigandi varnarráðstafanir. Þeirri
löggjöf þarf síðan að fylgja fram
án allra nndanbragða. Það þarf
að vekja menn tfl skilnings á
þeirri miklu og vaxandi hættu,
sem hér er á ferð. Og það þarf
Fratnhald á bls. 1<L
Rifbjerg
Fjaðrafok í Danmörku:
Palme og Margrét
prínsessa í eina
sæng hjá Rifbjerg
Sjá frétt á baksíðu
Stjórn S.U.F. vill
formiegar viðræður
EJ-—Reykjavík, laugardag.
Á fundi í stjórn Sambands
ungra Framsóknanmanna í gær-
kvöldi, var gerð eftirfarandi sam
þykkt:
í samræmi við þá samþykkt síð
asta þings Sambands ungra Fram
sóknarmanna, að Framsóknarflokk
nrinn eigi að beita sér fyrir mynd
un víðtækrar vinstri hreyfingar
og rækja kröftuglega það hlutverk
sitt að vera höfuðandstæðingur
íhaldsaflanna í landinu, og í til-
efni af tillögu frá Miðstjórn Al-
þýðuflokksins um að hafnar verði
sameiiginlegir fundir þriggja
vinstri flokka um stöðu vinstri
hreyfingar á íslandi og ennfrem
ur í tilefni af samþykki aðalfund-
air Samtaka frjálslyndra í Reykja
77 ARA PILTUR FORST
Á KÍFLA VÍKURFLUGVELLI
KJ—Reykjavík, laugardag.
Á miðvikudagskvöldið varð það
slys á Keflavíkurflugvelli, að 11
ára gamall sonur varnarliðsmanns,
lézt af meiðslum er hann hlaut í
leik með fallhlíf. Dró fallhlifin
drenginn langan veg yfir óslétt
land, og sneri höfuðið niður. stöðv
aðist fallhlífin ekki fyrr drengur
inn lenti á húsgafli og mun hann
þá hafa verið látinn.
Drengurinn hét Kenneth Garvin
og fóru foreldrar hans af landi
brott í gær vegna slyssins.
Fallhlífin sem drengurinn var
að Ieika sér með, var um 12 fet
í þvermál eða nálægt fjórum metr
um, og mun annaö hvort vera
fallhlíf sem þotur nota við lend-
ingu, eða varafallhlíf sem fall-
hlífastökkvarar nota í stökkum sín
um. Ekki er vitað hvar drengur
inn komst yfir falihlífina, en hann
var að lejka sér með hana, og
hafði fyrst bundið stein í hana,
og látið hana draga steininn. Síð
an batt hann fallhlífina um mittið
á sér, með þessum hörmulegu af-
leiðingum. Mun líkami drengsins
hafa verið mjög skaddaður er
hann lenti á húsveggnum. Vairnar
liðið hefur með höndum rannsókn
á máli þessu, og mun síðar seníla
embætti lögreglustjórans á Kefla
víkurfluigvelli skýrslu sína, en að
öðru Ieyti hafa íslenzk yfirvöld
ekki afskipti af slysum sem þess
um er verða hjá Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli, að hví er Ólaf
ur Hannesson fulitrúi lögreglu-
stjórans á Keflavíkurfilugvelli
sagði Tímanum í morgun.
Enn hækkar verð
á bensíni og olíu
þótt álagningarprósentan lækk
KJ—Reykjavík, laugardag.
Benzínlítrinn hækkaði í gær úr
kr- 13,00 í kr. 13,30 og ennfremur
hækkaði í gær olía til húskynding
ar og á dieselbila úr 3.67 í 4.39,
sem er lilutfallslega miklu meiri
hækkun en á bensíninu.
Hækkun þessi er tilkomin vegna
hækkunar á innkaups’ærði sam-
kvæmt nýjum samningum við
Rússa, og einnig vegna hækkun
ar á flutningsgjöldum, en sem
kunnugt er, þá flytja Rússar sjálf
ir nær alia þá olíu, sem þeir
selja hingað.
Vegna hækkunar á rekstrar-
kostnaði olíustöðvanna, hækkun
flutningskostnaðar á stæöndina inn
anlands og hækkun á fleiri kostn
Framhalo á bls. li
vík um að hafin verði könnun á
möguleifcuim á samstarfi vinstri
sinnaðra flokfca og samtaka með
vinstra samstarf að loknum kosn
ingum að marfcmiði, felur stjórn
SUF formanni sínum að flytja á
næsta fundi Framkvæmdastjórnar
Framsóknarfiofcksins eftiirfarandi
tillögu:
„Framkvæmdastjórn Franisókn
arflokksins samþykkir að óska nú
þegar eftir viðræðum við Alþýðu-
flokkinn, Alþýðubandalagið og
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna um framtjð íslenzkrar
vinstri hreyfingar og möguleika á
vinstra samstarfi mn stjórn lands
ins. Viðræðurnar verði formlegar
og verði niðurstöður þeirra birtar
opinberlega“.
Iðnnemasambandið
tilnefni þrjá fulltrúa
í iðnfræðsluráð
EB—Reykjavík, föstudag.
Þórarhin Þórarinsson og
Ingvar Gíslason hafa lagt fyrir
Alþingi frumvarp til laga nm
brcytingu á lögum nr. 68 frá
11. maí 1966, um iðnfræðsln.
— f frumvarpinu er kveðið svo
á, að 5. gr. laganna orðist svo:
„r Vðherra skipar iðnfræðslu-
ráð til fjögurra ára í senn. Það
skal skipað 11 mönnum. Skulu
tveir þeirra vera iðnmeistarar
tilnefndir af Landssambandi
iðnaðarmanna, tveir iðnsveinar
og einn fulltrúi iðnverkafólks
tilnefndir af ASf, þrír tilnefnd-
ir af Iðnnemasambandi fs-
lands, einn tilnefndur af Félagi
ísl. iðnrekenda og einn tilnefnd
nr af Sambandi iðnskóla á fs-
landi. Formaon skipar ráð-
herra án tilnefningar. — Iðn-
fræðsluráð fer með mál, sem
greinir í lögnm þessum og
reglugerð, er ráðherra setur.“
f greinargerð með frumvarp
imi segja flntningsmenn:
„Iðnfræðsluráð sér um fram
kvæmd tnála, er varða iðn-
fræðslu og iðnfræðsluskóla.
Það sér um, að fyrirmælum um
iðnfræðsiu sé hlýtt, t.d. varð-
andi skólahald og verknám.
Það er eflaust, að það skiptir
enga mejra en iðnnema,
hvernig iðnfræðsian er fram-
kvætnd. Þelta sjónarmið viður
kenndi Alþingi 1965 að nokkrn,
þegar það samþykkti, að eiun
fulltrúi frá Iðnnemasambandi
fsiands skyldi eiga sæti í iðn-
fræðsluráði. Það var spor í
rétta átt. En erfitt getur reynzt
einum fulltrúa að halda fram
rétti umbjóðenda sinna í nfu
manna ráði. Þess vegna er lagt;
til í þessu frv., að Iðnnemasam
bandið tilnefni þrjá fulltrúa í
iðnfræðsluráð og fjölgi fulltrú-
um í ráðiuu samkvæmt því.
Þetta er í samræmi við þá
stefnu, sem nú ryður sér hvar-
vetna til rúms, að tryggja auk-
inn hlut nemenda til áhrifa á
kennsluhætti og fræðsiuaiál.“