Tíminn - 22.10.1970, Side 7

Tíminn - 22.10.1970, Side 7
ÍTMMTUDAGUR 22. október 1970. TIMiNN 7 Börn í ,-Malehuset" ’ítill og hafizt er handa á nýjum barnaskóla. Leikvöllur skólans er eitt völundarhús ómálaðra viðarborða. Þar eru stigar með lóðréttum tröppum, myrk göng og skúmaskot, frumleg smáhýsi, bátar o.fl. Okkur er sagt, að hér séu stympingar og striðni óþekkt fyrirbrigði í frímínút- um. Hér geta börnin hvílt húg ann, klifrað og reynt á sig og saf.nalð k'röftum fyrir næsto kennslustund. í skólanum er allgott bóka- safn, matsalur fyrir e.’dri nem- endur, handavinnu- og föndur- salir, tónlistarstofa og sérstök deild fyrir 6 ára börn. Kennslu- konurnar þar eru fóstrur og börnin leika sér, mála, syngja, dansa og föndra. Frá 6 — 14 ára aldurs fylgjast sömu börnin að í bekk. Þroskanróf eru eng- in, próf og e’inkunnir áfnumin Með þessu er reynt að sporna við óheillavænlegum metnaði hjá foreldrum og nemendum og minnimáttarkennd þeirra er yerr standa sig á ménntabraut- inni. Þetta fyrirkomulag reynir mjög á kennarana og hæfni þeirra, og í vetur er bekkjunum t. d. tvískipt í dönsku og stærð- fræðitímum (12 nem. í hvorum helm.) svo kennarinn geti sinnt hverjum nemanda betur. Einu sinni í mánuði er opið húí' Og þá mega foreldrar koma ogj'ifyfgjast með kennslunni í öllum tímum. Það er svo ótal margt fleira í Holstebro sem gaman er að Framhald á bls. 14. LÆKKIÐ ÚTSVÖRIN! PLASTSEKKIR í grindum ryðja sorptunnum og pappírspokum hvarvetna úr vegi, végna þess að PLASTSEKKIR gera sama gagn og eru ÓDÝRARI. Sorphreinsun kostar sveitarfélög og útsvarsgreiðendur stórfé. Hvers vegna ekki að lækka þá upphæð? PLASTPRENT h.f. GRENSÁSVEGI 7 SlMAR 38760/61 r arar frá mörgum löndum. Dario Fo er árlegur og kærkominn gestur hjá leikhúsinu. Þessi stuðningur okkar við Óðins’eikhúsið og' aðra lista- starfsemi í Holstebro vakti mikla andúð hjá þorra íbúanna fyrst í stað. Flestum þótti, sem þessu fé væri illa varið. Ágóð- ann er kannski ekki hægt a'ð mæla í krónum og aurum, en þetta h-efur vakið athygli á Holstebro innan lands og utan. Það er rætt um staðinn og menningarpólitíkina, ferðamenn leggja leið sína hingað og síð- ustu árin hefur mikill fjöldi urrgs fólks sezt hér að og bær- hm er í örum vexti. Á atvinnuieysisárum Ifolste- bro var rætt um að flytja nokkrar verksmifðjur hingað, en það framtak strandaði á starfs- fólkimi, sem nauðsynlegt var að flytja með hingað. Fólkið neit- aði að láta flytja sig í útlegfð til Holstebro. Þessháttar við- bárur heyrast ekki lengur og hér eru nú mörg ný fyrirtæki. Bæjarbúar starfa flestir við handverk og iðnað eða um 45% þar næst kemur allskonar þjón usta og svo verzlun í þriðja sæti. Verzlunin var fram eftir öfdum aðalatvinnugreinin hér. Bærinn er frá 12. öld og byggfð ist upp við vaðið hér á Stóránni. Seinna var byggð brú yfir ána og eftir það lá þjóðbrautin um Vestur-Jótland í gegnum Holste bro og staðurinn varð blómleg- ur verzlunarbær. Með breyttum samgönguháttum og lífsviðhorf- um í byrjun þessarar aldar fór alð síga á ógæfuhliðina fyrir Holstebro og strjálbyggðar sveitirnar hér í kring. Ég má ekki gleyma að geta um tæknilegu hliðina á skipu- lagningu bæjarins- Ný.'okið er við endurskipulagningu gamla bæjarhlutans. Miðbæjarkjarn- inn með verzlunarhverfinu verð ur net göngugatna. Þar um- hverfis er hringakstur og bíla- stæði. Út frá þeim hring byggj- ast íbúðahverfin og skólarnir í norfð-vestur en iðnaðarhverfin í norð-austur. Frá Suðri itil norðurs umlykur hálfhringlaga hraðbraut Holstebro og beinir þjóðvegaumferðinni fram hjá bænum. Á íslandi hafa þeir víst heyrt okkar getið, því ég fékk fyrirspurn frá íslenzkum verkfræðingi nú á dögunum. Hann hafði áhuga á skipulagi Holstebro og ég er nýbúinn að senda honum upp.'ýsingar um nýskipulagninguna. Þetta er nú það helzta, sem gerzt hefur hér síðustu árin. Við munum halda áfram á sömu braut. Beyna að vera opin fyrir nýjum áhrifum og kröfum og 'gera bæinn okkar eins góðan til búsetu og mögulegt er. Þar ræð ur mestu að fjölskyldan sem heild sé ánægð hér. Eftir þessa fróðlegu kynningu Kai K. Nielsen á Holstebro förum við í skoðunarferö um bæinn. Frá bæjarstjórnarskrif- stofunni höldum við upp á Strik ið. Það er lagt hvíturu og svört um hellusteinum og niðurinn af fótataki bergmálar mi.li hús- veggjanna. Hér eru verzlanirn- ar skreyttar fánum og skraut- spjöldum allt sumarið og sífelld þröng á götunni. í eyrum hljóm ar þýzka og aftur þýzka, suður- józka og Kaupmannahafnar- danska. Kaupmennirnir laða ferðafólkið að með lægra vöru- verði en á nokkrum öðrum stað í Danmörku. Frá Strikinu leggjum við leið okkar um aðra göngugötu og höldum í Listasafnið. Það er til húsa í gömlu og virðu.’egu ibúðarhúsi. Þar getur að líta verk eftir þekkta nútíma lista- menn danska, auk Picasso og annarra meistara. Tveir salir Listasafnsins eru eingöngu helg aðir afríkanskri list. Inn á milli hárra trjánna í garði listasafnsins er einlyft, hvítt hús og á því er stórt skilti er gefur til kýnna, að hér sé Malehuset. Börn á öllum a.'dri ganga þar inn og út og við skyggnumst inn fyrir dyrnar. Hér sitja börn með svuntur og handleika volduga pensla. A borðunum eru stórar krukk- ur fullar af málningu í öllum regnbogans litum og staflar af pappír. Við önnur borð sitja börn og móta úr jarðleir alls kyns undar.’egar verur og hluti. Utan úr garðinum berast hamarshögg. Þar standa drengir og stúlkur hli® við hlið og smíða af fullum krafti. Húskofi, harla merkilegt fyrirbæri er í smíðum og engu líkara en unnið sé að honum í ákvæðisvinnu. Á að gizka 50 ferm. sandkassi er í miðjum garðinum og þar er líka starfað af miklum áhuga og dugnaði. ,,Malehuset“ er hugmynd skólastjóra fóstruskólans, Toru Raknes, norskrar fóstru, er ráð 'n var til að veita skólanum for- stoðu við stofnun hans, og hef- ur síðan haft hönd i bagga með flest það er að börn m .’ýtur hér í Holstebro. Öll börn mega koma í „Male- huset“ án endurgjalds. Þar er starfsfólk til eftirlits og leið- beininga. en ekki gæzlu. Húsi'ð er ekki barnageymsla fyrir for- eldrana, heldur staður, þar sem börnin geta gefið sköpunargleði sinni lausan tauminn, án þess að hugsa um hávaða, s.’ettur á veggjum og gólfum o.þ.h. Bær- inn sér um kostnaðarhliðina en samtök foreldra hafa umsjón með daglegum rekstri. Frá þessari barnaparadís höldum við yfir að Holstebro- hallen, sem er bæði sýnuingar- höll, leikhús og miðstöð félags- lífs í bænum. Leiksýningar á vegum Leikhússambandsins ei'U haldnar hér, tónleikar og dans- sýningar og vörusýningar. Þaðan höldum við að Svæðis- sjúkrahúsinu. Byggingar þess ber hæst í Ho’stebro. Elzti hluti sjúkrahússins er frá því seint á 19. öld. Sjúkrahúsbyggingarn ar eru .iú m.argar og -.an 3ja ára mun sjúkrahúsið rúrna 700 sjúklinga avk stórrar slysavarð stofu með legurými. A bökkum Stóránnar, við hliðina á sjúkrahúsinu, er skrúð garðurinn. Graanar grasflatir, bekkir . skugga trjánna. iit- skrúðug blómabeð og eins og alls staðar í þessum bæ er hugs að fyrir börnunum. Stór leik- völlur búiun ölium nýjustu leik tækjum er i einu horni garðs- ins. Hingað ,’eggja ITolstebrobú- ar gjarnan leið sína um helgar. Börnin hlaupa um óg leika sér og foreldrarnir sitja á bekkjum og grasbölum og gæða sér á nestinu, lesa í bók eða s jalla við náungann. Vi'ð höldum frá sjúkrahúsinu og skemmtigarðinum og komum í nýju íbúðahverfin. í Sct Jörg- ens skóla eru frímínútui. og hlátrasköll og-hróp hl.jóma um nágrennið. Skólinn er aðeins 3ja ára en þó þegax orðinn jf Kai K. Nielsen, bæjarstjóri nýtur hvíldarinnar að afloknum starfsdegi og les „Kulturens veje". Fru Nielsen sér um veitingarnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.