Tíminn - 22.10.1970, Page 9

Tíminn - 22.10.1970, Page 9
\i ' > i OTfMTUDAGUR 22. október 1970. Útgefan'' -7AMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjón. r.. íslján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas Karsason. Augiýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstjórnar- skrifstofur í Edduhúsinu, símar 18300—18306. Skrifstofur Bankastræti 7 — AfgreiSslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuöi, innaniands — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf. Varnir gegn mengun Ólafur Jóhannesson hefur nú endurflutt tillögu, sem hann flutti á síðasta þingi, um varnir gegn mengun. Samkvæmt henni er ríkisstjórninni falið að láta undir- búa löggjöf um ráðstafanir til varnar gegn skaðlegri mengun í lofti og vatni. í greinargerð tillögunnar er það rakið, að mengun 1 lofti og vatni sé orðið alvarlegt böl hjá iðnaðarþjóðum. Andrúmsloft sumra stórborga er orðið svo mengað, að til vandræða horfir. Fiskur drepst víða í ám og vötnum vegna mengunar. Særinn við strendur landa er sums staðar orðinn hættulega mengaður. Kunnáttumenn spá því, að í sumum stórborgum verði orðið nær ólíft eftir nokkur ár, ef svo heldur fram sem nú horfir. Þessi sí- vaxandi mengunarhætta er að verða einn mesti ógn- valdur mannkyiisins. Þetta böl hefur enn að mestu leyti sneitt hér hjá garði. Þó hefur orðið vart nokkurrar mengunar hér. Það eru þó smámunir hjá því, sem annars staðar er. Enn er loftið hér hreint og tært, landið tiltölulega hreint og vötn og sjór að mestu laus við mengun. En hættan er hér augljós og vaxandi, eftir því sem verksmiðjum fjölgar og iðnvæðing færist í aukana. Hér þarf því að vera vel á verði og gera í tæka tíð viðeigandi varnár- ráðstafanir. Það er of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í. Við megum ekki glata þeim auði, sem við eigum í óspilltri náttúru. Við megum ekki láta mengun spilla lífinu í sjónum við strendur landsins. Við megum ekki láta spilla hinu hreina andrúmslofti. Við megum ekki láta óhreinindi og mengun eyðileggja hinar dýrmætu ár okkar og fiskivötn. Hér má ekki sofa á verð- inum. Það þarf þegar að rannsaka, hvernig ástatt er. Það þarf að athuga löggjöf alla, sem að þessu lýtur. Og það þarf að hefjast handa um setningu nauðsynlegrar lög- gjafar um viðeigandi varnarráðstafanir. Þeirri löggjöf þarf síðan að fylgja fram án allra undanbragða. Það þarf að vekja menn til skilnings á þeirri miklu og vaxandi hættu, sem hér er á ferð. Og það þarf að hefja nauðsyn- legar aðgerðir, áður en það er um seinan. Eins og áður segir, flutti Ólafur Jóhannesson sams- konar tillögu á síðasta þingi. Vonandi verða undirtekt- irnar nú þær á þingi, að ekki þurfi að flytja tillöguna í þiiðja sinn. Gæzluvistarsjóður Einar Ágústsson og Björn Fr. Björnsson hafa lagt fram frv. í efri deild um að 2Vz% af tekjum Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins renni í gæzluvistarsjóð, en fé úr honum á að verja til drykkjumannahæla og sjúkra- deilda fyrir drykkjusjúklinga. Nú fer árlega 7V2 milljón króna af tekjum Áfengis- og tóbaksverzlunarinnar í gæzlu vistarsjóð, og hrekkur það allt of skammt. enda ríkir nú fullkomnasta vandræðaástand í þeim efnum Borgarstjórn Reykjavíkur hefur nýlega skorað einróma á Alþingi að tvöfalda framlagið. Samkvæmt frv. Einars og Björns myndi það hafa orðið um 18,2 millj. kr á síðastl. ári. í greinargerð frv. segja flutningsmenn, að það sé réttara og meira til frambúðar að verja ákveðnum hundraðshluta af tekjum þessum. en að ákveða fjárhæð, sem rýrnar í verði af völdum verðbólgunnar, eins og átt hefur sér stað á undanförnum árum Þ.Þ. TÍMINN RICHARD H. NOLTE, New York Times: Palestínu-Arabar eiga að fá að stofna sjálfstætt ríki Hið nýja ríki á að ná til héraðanna, sem ísrael hefur hertekið. BANDARÍKJAMENN ættu að lýsa yfir fylgi sínu viS þá hugmynd, að Palestínu-Arabar stofni sjálfstætt ríki í Pale- stínu. Þeir ættu að lýsa yfir, að þeir ætli að fá önnur riki til samvinnu um þetta atriði, sér í lagi Jórdaníu og ísrael, og jafnframt að þeir séu stað- ráðnir í að veita hinu nýja ríki mikla aðstoð. Yfirlýsingin ætti aðeins að hljóða sem viðurkenning á rétti Palestínumanna og ekki að vera háð neinum skilyrðum, sem drægju úr gildi hennar. Lýsa ætti yfir, að hið nýja ríki eigi að ná yfir Gaza-svæð- ið, vesturbakka Jordan og hinn arabiska hluta Jerusalem, en um allar landamærabreytingar verði að semja við Palestínu- menn sjálfa. Mikilvægast er þó, að yfir- lýsingin viðurkenni^ afdráttar- laust, að stofnun Ísraelsríkis, sem Bandaríkjamenn studdu heils hugar og af mannúðar- ástæðum, hafi valdið Palestínu Aröbum varanlegum órétti. — Yfirlýsingin á að gera öllum ljóst, að Bandaríkjamenn ætli nú — einnig af mannúðarástæð úm — að leggja siþ' ulla'íYdái 1 um að bæta fyrri misgerðir á allan hátt, svo fremi að aðrar þjóðir verði ekki rangindum beittar, ekki hvað sízt ísraels- menn. Arafat, foringi skæruliða. MISGERÐIRNAR verður að bæta. Saga Zionismans og ísraels er kunn meðal vest- rænna manna. En þessi saga gerðist ekki í lofttómu rúmi, heldur var hafizt handa án minnsta tillits til Araba í Palestínu og raunar fyrst og fremst á kostnað þeirra. Sagan er meitluð í vitund tveggja milljóna og tvö hundr- uð þúsund Palestínu-Araba. Hún hefst í lok fyrri heims- styrjaldarinar á sviknu loforði Breta um sjálfstæði Palestínu til handa og framkvæmd Bal- four-áætlunarinnar um innflutn ing fólks gegn áköfum andmæl um arabiska meirihlutans í Palestínu, en tíu af hverjum ellefu íbúum landsins voru Arabar. Þróunin hélt áfram næsta aldarfjórðung. Gyðingum í land inu fjölgaði úr einum tíunda í einn þriðja, en heimamönnum í Palestínu var synjað um vernd einhvers konar sjálf- stjórnar. Þróunin nær hámarki að lokinni síðari heimsstyrjöld inni, heimamenn bíða ósigur og verða að þoka fyrir fram- andi mönnum, sem flestir eru komnir langt að, — og þetta gerist með góðu samþykki hinna vestrænu þjóða og Sovét menn fylgja þeim að málum. ' HLUTSKIPTI Palestinu- Araba hefur ekki batnað síðan. Þeir hafa orðið að búa við ruttugu ár: útlegð í óþrifaleg- um flóttamannabúðum og sætta' sig við vanvirðandi framfæri nwuwnWRp: WBMM Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafa beðið árangurslaust eftir að hafizt yrði handa um að fylgja fram árlegri samþykkt Samein- uðu þjóðanna um rétt þeirra til að hverfa til fyrri heim- kynna og hijóta skaðabætur. Palestínu-Arabar komust loks að þeirri niðurstöðu, að úr- bóta væri ekki að vænta nema fyrir eigin atbeina og frum- kvæði. Þeir öðluðust nýja von, sem bundin var við uppreisn- arsveitir, sem fylktu liði undir arabiskri útgáfu af hinni fornu krtifu „Aftur til Zion“. Þessar baráttusveitir sóru þess eið að afmá Ísraelsríki og ganga milli bols og höfuðs á sérhverri, ara- biskri ríkisstjórn, sem snerist gegn þeim. Og nú biðu þeir nýjan ósigur, sem kostaði meiri blóðsúthellingar að minnsta kosti, en allir fyrri ósigrarnir til samans. Þennan ósigur biðu þeir í viðureign við aðra ara- biska þjóð undir „forustu „brúðu“-kóngs, sem átti vísa opinbera aðstoð bæði ísra- elskra og bandarískra hersveita ef á hefði þurft að halda. PALESTINU-ARABAR draga þá ályktun af þessari bitru reynslu, að þeir hafi orðið fyrir hróplegu, óumræðilegu ranglæti og vestrænir menn telji þá ekki verða minnsta til- lits, ef kröfur þeirra stangist á við hagsmuni einhverra ann- an-a, Engum parf að koma á óvart þó að þeir, sem verða fyrir slíkri sviftingu aðstöðu og sjálfsvirðingar af hálfu þeirra, sem lýsa yfir fylgi við óum- deilanlegt jafnrétti og sjálf- ákvörðuuarrétt allra þjóða, snúist til heiftúðugrar and- stöðu og miskunnarlausrar bar- áttu fyrir eigin rétti og mark- miðum. Niðurstaðan verður óhjá- kvæmilega þessi: Fyrsta skil- yrðið til að öðlast frið og fá sínu framgengt verður að sýna Palestínu-Aröbum sjálfum svart á hvítu að þeir hafi vakið athygli vestrænna þjóða, fsra- elsmanna ekki síður en ann- arra, og færa þeim heim sann inu um jafnrétti við aðra, sem er frumskilyrði festu og sjálfs- virðingar. BANDARÍKJAMENN hefðu fyrir löngu átt að beita sér fyrir slíkum umbótum af ákefð og skynsemi. Þetta er nú brýnna en nokkru sinni fyrr, þar sem komið hefur í ljós, að öryggi Bandaríkjanna er í voða og yfir vofir hernaðar- árekstur við Sovétríkin. Ef til vill er þegar of langt gengið til þess að unnt sé að ætlast til að Palestínu-Arabar treysti nokkru, sem Bandaríkjamenn segja eða gera, en tilraunina á tvímælalaust að gera. Mikill meirihJuti Palestínu- Araba óskar einskis frekar en að fá að lifa í friði og hafa aðstöðu til að uppfylla lág- markskröfur öryggis Og sjálfs- virðingar. Ef orðið væri við þessum krbfum þeirra, hlyti hinn fámenni minnihluti öfga- fullra ofstækismanna að verða af stuðningi almennings.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.