Tíminn - 22.10.1970, Síða 14
FIMMTUDAGUR 22. október 1970.
TÍMINN
f'ramnald at ois 16
gangbraut, sem er barna yfir Hring
brautina. Til skamms tíma voru
strætisvagnaskýli sitt hvoru meg
in viS Hringbrautina, rétt á móts
við gangbrautina. Nú eru strætis
vagnaskýlin nokkru fjær gang-
brautinni, en við hana eru að-
vörunarskilti, sem eru upplýst
í myrkri og einnig varpa ljóskast
arar birtu á gangbrautina. Þessar
ráðstafanir virðast ekki nægar.
Einhverjar ástæður hljóta að vera
fyrir því að þessi staður er hættu
legri fyrir fótgangandi fólk en
aðrir. Ekki er því til að dreifa að
fitsýni sé ekki nægjanlegt, en sjálf
aagt fara hvorki gangandi vegfar
endur né ökumenn nægilega var
lega þarna. Þeir sem aka, hægja
ekki nægilega ferðina þegar þeir
nálgast gangbrautina, ogberaþeir,
sem verða fyrir því óláni að aka
á fólk, því oftast fyrir sig að þeir
sjái ekki fólkið fyrr en um sein
an, eða rétt um það bii er bað
birtist rétt framan við bílinn. Og
þeir sem fótgangandi eru van-
aneta hraða bíianna á þessum
beina og breiða vegi. En langflest
slysanna sem þarna hafa orðið
verða í myrkri.
Þetta er ekki eina hættusvæðið
á þessum slóðum, því kaflinn frá
Miklatorgi að Sóleyjargötu er mik
ið hættusvæði, eins og alltof mörg
dæmi sanna, en gangbrautin á
móts við gamla kennaraskólann
og svæðið næst henni er langtum
hættulegast.
Húsam.embættið
Framhald af bls. 1
málaráðherra og dómsmálaráð
herra, svo sem fram kemur í
aths. við ríkisreikninginn 1969.
En niðurstaðan gilti þrátt fyrir
úrskurð ríkisendurskoðunarinn
ar og bréf fjármálaráðherra.
Ég ætla mér ekki dómarastarf
í þessu máli frekar en öðrutn.
En vel má vera, að rétt sé, er
fyrrv. gjaldkeri stofnunarinnar
hélt fram í Morgunblaðinu fyr
ir stuttu síðan, að hann hefði
haft samþykki forstjóra stofn
unarinnar til að inna af hendi
greiðslur til sjálfs sín fyrir
yfirvinnu og aukastörf. En ég
spyr, af hverju var þá ekki
gengið frá þessu máli fyrr pii
eftir að það var búið að
vera til umræðu á Alþingi og
í blöðum, þegar farið var 3
ár aftur í tímann? Er hægt að
viðhafa slík vinnubrögð. Ég
spyr einnig, hvernig er farið
með skattgreiðslu af slíkum
tekjum, sem samþykktar eru
2—3 árum eftir að viðkomandi
aðilj hefur unnið fyrir þeim.
Hvað sem um þetta mál má
segja, er framkvæmdin og enda
lok þess með bcim hætti, að
slíkt má ekki og á ekki að
koma fyrir í opinberum
rekstri".
Þá minnti Halldór ennfrem
ur á það, að ríkisstiórnin hef
ur ekki enn skilað greinargerð
um tölu nefnda, sem störfuðu
á vegum ríkisins árið 1969 eða
launagreiðslum til þeirra.
Alþingi
Framhalo af bls. 8
yrðu þær einnig Hl að auka umsvif
og athafnir í Þorjákshöfn, en að
hvoru tveggja er rík ástæða til að
stuðla.
Ingólfur Jónsson samgöngumála-
ráðherra (S) sagði, að þetta mál
væri á sérstakri athugun hjá sam-
göngumálaráðuineytinu og hjá fram
kvæmdastjórn Skipaútgerðar rík-
isins. Sagði hann mögulegt að 1 ’ ca
Herjólf þjóna íbúum Vestmanna-
eyja eingöngu, þegar nýju skipin
tvö bættust við flota Skipaútgerð-
arinnar. Kvaðst hann geta teki'ð
undir flest sem sagt væri í grein-
argerðinni með tillögu Helga
Bergs.
Helgi Bergs sagði ekki annað
viðunandi en að ferðir ynðu. dag-
lega milli lands og Eyja, og að
sem minnstar truflanir yrðu á flug
samgöngum til Vestmannaeyja.
Lagði hann áherzlu á, að þingsá-
lyktunartillagan yrði hvatning til
þess, að niðurstöður fengjust sem
fyrst í þessu mikilvæga máli hjá
samgöngumálaráðuneylinu og
Skipaútgerð ríkisins. Þá sagði
Helgi ennfremur, að hann hefði
fyrir nokkru átt tal við annan
stjórnarnefndarmann Skipaútgerð-
ar ríkisins, og hafi það viðtal ekki
dregið úr því, að hann flytti þessa
tillögu nú á Alþingi.
Aðrir, sem til máls tóku í um-
ræðunum, voru þeir Guðlaugur
Gíslason (S) og Karl Guðjónsson
(Ab). Umræðum um málið var síð-
an frestað.
Menningarpólitík
Framhald aí bls. 7
kynnast og vandséð, hvað á að
velja og hverju að hafna.
Bærinn er stór á ísl. mæli-
kvarfða. Taldi sl. ár 24 þús.
íbúa, en við sameiningu sveit-
arfélaga sl. vor fjölgaði íbúum
um io þús.
Landið umhverfis hann var
til skamms tíma uppblásnar
heiðar og óræktarlönd. Trjágróð
ur var ,’ítill og þá eingöngu
barrtré og eitt helzta einkenni
þeirra að þau hneigja höfuð í
austurátt. Það er þó ekki til
að auðsýna frjósömum og marg
mennum sveitum í austurátt
lotningu, heldur hefur stöðr.g
vestanáttin beygt krónur þeirra.
Nú er lítið eftir af józku
heiðunum, trjábelti mynda
skjólgarða umhverfis grózku-
mikla akra og engi. Stór svæði
hafa verið tekin til skógræktar.
Allt ber -t um framtak, skipu
lag, dugnað og trú á landið og
Hólstaðarbrú sendir strauma
nýrra tíma um byggðina og gef-
ur fyrirheit um áframhaldandi
vöxt og viðgang.
Dóra Skúladóttir.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
stefna sem olía á verðbólgu-
bálið. Ég lief áður lýst þeirri
skiðun Framsóknarmanna við
hliðstæðar umræður og endur-
tek það nú, að ekki er unnt að
lialda áfram á þeirri braut, sem
nú er farin um fjármál ríkisins.
Þetta fjárlagafrumvarp og verð
bólgan í þjóðfélaginu sanna
það.“ — TK
Fasteignir í Rvík
Framhald af bls. 1
störfum hennar, fyrir ánægjulegt
samstarf og ómetanlegan stuðning
á undanförnum árum. Jafnframt
fyrrnefndri gagnasöfnun var und
irbúin kerfisbundin skoðun allra
fasteigna { borginni.
Það kom fljótlega í ljós að hin
mikla gagnasöfnun myndi eigi
nýtast ef við yrðu hafðar þær
vinnuaðferðir sem tíðkazt hafa við
fasteignaskráningu og mat til
þessa. Að ofan töldum ástæðum
var ákveðið að nota tölvur við
úrvinnslu gagnanna, en til þess
að það væri mögulegt þurfti mikla
skipulagningarvinnu áður en skoð
un eigna gæti hafizt. Til dæmis
má geta þess að eitt af viðfangs
efnunum var gerð Tandfræðilegs
númerakerfis (staðgreinis) fyrir
fasteignir. Staðgreinikerfið gerði
kleift að aðgreina og auðkenna all
ar lóðir, hús og einstakar einingar
þess, svo sem hverja einsta'ka
íbúð. Gerð staðgreinikerfisins var
unnin í samvinnu við Forverk h.
f. og síðar Mælingadeild Borgar
verkfræðings.
Skoðun hófsi árið 1966
Allt þetta skipulagningarstairf
stóð yfir þar til fyrrihluta árs
1966 og þá fyrst gat skoðun fast
eigna hafizt fyrir alvöru og hef-
ur síðan staðið látlaust yfitr, fram
til þessa.
Allar meginforsendur matsins
þ.e.a.s lýsing mannvirkja og lóða
ásamt matsniðurstöðum eru geymd
ar í „véltæku“ formi hjá Skýrslu
vélum ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, en slíkt geymsluform auð-
veldar mjög allt viðhald fasteigna
skráningarinnar og matsins í
heild.
Til grundvallar á mati mann-
virkja liggur hin ítarlega skoðun
þeirra, sem leiðir í ljós áætlaðan
byggingarkostnað og hafandi hlið
sjón af aldri, byggingarefni og
notkun þeirra er fundin stærð
sem nefnd er grunnverð einingar
innar. (Endurbyggingarkostnaður
að frádregnum afskriftum).
Við áætlun á byggingakostnaði
hinna margbreytilegu húsngerða
og húsastærða var stuðzt við rann-
sókmr sem sérfræðingar nefndar
innar önnuðust auk markvíslegra
annarra upplýsinga. Jafnhliða
þessu starfi var framkvæmd ítar
leg könnun á gangverði fasteigna
á fasteignamarkaðnum og er nið
urstaða matsins á grundvelli
ailra þessarar rannsóknar.
og vinarhug vi8 andlát og jarSarför
Kristínar Jónsdóttur.
F.h. aðstandonda
Guðvcig Stefánsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Leifs GuSmundssonar,
Hoffelll.
Ragnhildur Gísladóttir,
Valgerður Leifsdóttir, Hólmfríður Leifsdóttir,
Gelr Bjarnason, Þrúðmar Sigurðsson
og barnabörn.
Útför
Sigursteins Steinþórssonar,
Sandvík, Eyrarbakka,
fer fram laugardaginn 24. október, frá Eyrarbakkakirkju, kl. 2 e. h.
Vandamenn.
Heildarniðurstöður við fram
lagningu matsins eru sem hér
segir:
Heildarmat lóða og I'ands
9.26 milljarðar
Heildarmat húsa og annarra
mannvirkja
30.62 miljarðar
Samtals kr. 39.88 milljarðar
Ofangreindar tölur miðast við
líklegt gangverð 1. janúar 1970
Seðlar í hvert hús
Matið liggur frammi almenningi
til sýnis að Lindangötu 46, II.
hæð H. 10—12 og 13,30—16 alla
virka daga frá mánudegi tij föstu
dags á tímabilinu 22. október til
26. nóvember 1970. Til þess að
kynna forráðamönnum fasteigna
niðurstöður matsins, hefur fast-
eignamatsnefnd Reykjavíkur látið
prenta tilkynningarseðla með
matsniðurstöðu hverrar sérgreindr
ar eignar og sent í viðkomandi hús
í borginni. Óframkvæmanlegt var
fyrir nefndina að tryggja rétta
eigendaskráningu á framlagningar
degi, og þar af leiðandi eru það
vinsamleg tilmæli hennar, að að-
ilar sem verða varir vi'ð slíkar
veilur komi þeim upplýsingum til
nefndarinnar. Ennfremur óskar
nefndin sérstaklega eftir ábend
ingum forráðamanna fasteigna á
hugsanlegum villum er leynast
kunna í matinu.
Að sögn Valdimars Öskars-
sonar skrifstofustjóra þá var
fyrsta fasteignamat sem vitað
er um á fslandi gert árið 1096
í tíð Gissurar biskups ísleifs-
sonar, og var nefnt Tíundalögin
Háaleitshverfi — Árbæjar-
hverfi
Blaðamönnum voru gefnar þær
upplýsingai að matsverð væri yfir
leitt lægra en gangverð fasteigna,
og kemur það til af því að mats
verð er miðað við staðgreiðslu,
sem mun ekki vera algengasti
greiðslumátinn á fasteignum. Verð
á fasteignum í borginni á hvar-
vetna að vera það sama, sé sami
grundvöllur fyrir verðinu, en það
sem gerir að fasteignir eru dýrari
á öðrum stað en hinum, er lóða
matið. Svo tekið sé dæmi, um
iafnstórar íbúðir með eins frá-
gangi í Háaleitishverfi í Reykja-
vík (en það virðist vera ázku
hverfi um þessar mundir) og íbúð
í Áirbæjarhverfi, þá er lóðamatið
sem veldur mismunandi matsverði
á íbúðunum. Hefur verið farið
í gegn um kaupsamninga á íbúð-
um, og þeir reiknaðir miðað við
staðgreiðslu, og verðið þannig
fundið. Einn matsseðill verður
sendur fyrir hvern matshluta, og
þannig kemur aðeins einn seðill
í hús þótt í því séu margar íbúð
ir. Eignaprósenta ræður bá um
matsupphæð fyrir hverja íbúð.
Matið hefur kostað 88.7
milljónir
Fasteignamatið er kostað af
ríkinu, og hafa fjölmargir lagt þar
hönd að verki. Er talið að um
25 manns að meðaltali hafi unnið
við matið, en starfsmannafjöldi
hefur verið mjög mismunandi ár
frá ári og frá árstíð til árstíðar.
Kostnaðurinn við matið (og er
þá miðað við landið allt) er 1.16
pro mille af niðurstöðutölum þess.
í Reykjavík tók bað fjögur ár að
skoða allar fasteignir innan borg
arinnar, er, sem dæmi um ná-
kvæmni matsins þá hefur hver
íbúð verið skoðuð og reiknuð út
sér, og mejra að segja mun í
gögnum fasteignamatsnefndar
mega finna hve verðmætt baðher
bergið og eldhúsinnréttingin í
hverri íbúð er. Þess ber þá að
gæta að verðmætið er miðað við
þann dag sem skoðun fór fram,
og þannig er t. d. um íbúðir sem
ekkj voru fullfrágengnar þegar
skoðun fór fram, en eru það nú.
að fasteignamatið á í raun og
veru að vera hærra.
RIDG
Spil nr. 13 í feik íslands og
Frakklands var þannig.
S Á-10-9-6-5
H K-9-4
T K-6
L 7-4-2
S G-8-3 S K-7-2
H D-G-10-7-5-2 H Á-6-3
T 4 T G-10-9-8
L K-D-10 L Á-8-6
S D-4
H 8
T Á-D-7-5-3-2
L G-9-5-3
Á borði 1 opnaði Desrousseaux
í V í fjórðu hendi á 1 hj.!! N
sagði 1 Sp. A 2 Sp. S pass og V
3 Hj., sem A hækkaði í fjögur.
Út kom L og Frakkinn gaf aðeins
2 slagi á Sp. og 1 á T. 620 til
Frakklands. Hart game það, en á
borði 2 opnaði Símon í A á 1 L
og þeir Þorgeir og Símon náðu einn
ig 4 Hj. Spilið fé.l því. Staðan
eftir 13 spil. ísland 21 — Frakk-
land 8.
Ekki endanlegt
Þrátt fyrir að matið er nú lagt
fram, þá er ekki þar með sagt að
bað sé endanlegt, þar sem það
hefur ekki hloti'ð staðfestingu fjár
málaráðherra, og búast má við að
það takj einhverjum breytingum
að loknum kærufresti. Þá skal
það tekið fram, a'ð þótt ekki sé
kært innan þess ákveðna frests
sem auglýstur hefur veri'ð, þá
hefur fólk engan veginn glatað
rétti sínum til að kæra, þar sem
fasteignamat þarf stöðugt að end
urnýja ef vel á að vera og helzt
þarf að tilkynna ef skipt er um
eldhúsinnréttingu eða hurðir.
Framkvæmd matsins
Ef tekið er dæmi um hvernig
nýlegt hús er metið, há er fyrst
um að ræða grunnvirðingu, sem
er byggingarkostnaður að frá-
dregjnni fyrningu, þá fer næst
fram markaðsvirðing, en sú virð
ing er byggð á almennu markaðs
verði fasteigna, og í þriðja Iagi
er um að ræða arðgjafarvirðingu,
því stór og mikil fasteign getur
verið jafnvel baggj á eiganda sín
um ef hún stendur ónotuð um
langant íma. Og að lokum er
farið yfir helztu bætti í fasteigna
matinu, þá er þar fyrst um að
ræða ýmis frumgögn, sem fengin
voru hjá aðilum er nefndir voru
hér að framan s.s. teikningar.
ski’áningar o. fl., þá fer fram
skráning fasteignarinnar, há skoð
un hennar og að þessum gögnum
fengnum er loks hægt að meta
fasteignina. Fasteignamatið hefði
getað verið fyrr á ferðinni, en
þá hefði það líka verið minna
virði. Eins og það er í dag, má
segja a'ð grundvöljur fyrir fram-
tíðarfasteignamati á íslandi sé
fenginn, og upplýsingar um allt
sem lýtur að viðkomandi fast
eign komnar inn á gataspjöld og
segulbandsspólum, og út úr bess
um gögnum má fá ótrúlegan fróð
leik, og aðeins lítill hluti hans
hefur enn séð dagsins Ijós.
Fasteignamatið stendur ekki í
beinu sambandi við fasteignaskatta
eða eignaskatta, og hað er alls
ekki framkvæmt með þau tvö
atriði í huga, heldur er þarna
samankominn fróðleikur og nyt-
samar upplýsingar um fasteignir
landsmanna, sem sjálfsagt verður
notaður á margvíslegan hátt í
, framtíðinni.