Tíminn - 06.12.1970, Qupperneq 13
SUNNUDAGUR 6. desember 1970
TIMINN
Þörfu máli hreyft
Enda þótt handknattleikur
hafi cneira en 30 ára sögu að
baki sem keppnisíþrótt á ís-
landi, býr þessi íþróttagrein
enn þá við frumbýlishætti, sem
•flaust myndu koma erlendum
mönnum spánskt fyrir sjónir.
Til að mynda er það óskiljan-
fegt, að það skuli ekki vera
orðin föst regia að hafa lækni
til taks á cneiriháttar ieikjum,
eins harðir og margir leikjanna
eru, en það mun vera mjög al-
gengt, að handknattleiksfólk
slasist.
Sá, sem þetta ritar, vakti máls
á þessu fyrir fáeinum árum,
og brá þá svo við, að fenginn
var læknakandídat til að vera
á meistaraflokksleikjum í Laug
ardalshöllinni. Gerði hann að
mörgum meiðslum, stnáum sem
stórum, og voru allir sammála
um nauðsyn þess a'ð hafa læknis
fróðan mann til staðar. En af
einhverjum ástæðum, sem mér
eru ekki kunnar, lagðist þessi
háttur niður. E.t.v. hefur for-
ustumönnum handknattleiks-
mála þótt of dýrt að greiða
nokkur hundruð króna í hvert
Skipti fyrir þessa þjónustu alla
vega hefur ekki sézt læknir
síðan.
Nú hefur íþróttafréttaritari
Tímans hreyft þessu þarfa
máli á nýjan leik. Verður fróð
legt að vita, hver viðbrögð
handknattleiksforustunnar eru.
Fjárhagsörðugleikarnir eru
miklir, en ekki meiri en það,
að ekki séu efni á að greiða
tiltölulega lítið fé fyrir heilsu
gæzlu handknattleiksfólks. —
Hvað finnst stjóm HSÍ, sem
á að hafa yfirutnsjón með hand
knattleiksmálum á íslandi,
enda þótt HKER sé fram-
kvæmdaaðili mótanna í Reykja
vík?
Að gefa og taka
Eins og flestum mun vera
kunnugt, eru .geysiháir tollar
af innfluttum íþróttavörum, og
eru þær í flokki með ýmsum
„lu3cus-vörum“. Vel má vera,
að ýmsir álíti íþróttir vera
„lúxus“, sem þær eru kannski
að einhverju leyti. En varla
er hægt að líta á svokallaðar
almenningsfþróttir sem „lúx-
us“. Miklu fremur ber að líta
á þær sem tæki til að við-
halda líkamshreysti.
Ein vinsælasta almennings-
íþrótt á íslandi mun vera borð-
tennis, sem á sívaxandi vin-
sældum að fagna. Er borðtenn
is víða á vinnustöðvum hér í
borg, svo og í heimahúsum,
auk þess, sem búið er að koma
upp sérstökum borðtennissal í
Laugardalshöll fyrir þá, sem
vilja æfa þessa viusælu íþrótt.
í nýju tollalögunum, sem
liggja fyrir Alþingi, er gert
ráð fyrir, að tollar af borð-
tennisvörum hækki úr 60% í
90%. Er vart við því að búast,
að slík hækkun ýti undir áhuga
fólks. Og óneitanlega stingur
það dálítið í stúf við fyrirætl-
un Alþingis, sem hefur í undir
búningi að hækka fjárveiting-
ar til íþróttamála, að hækka
svona tolla af íþróttavörum.
Með öðrum orðum, það á að
gefa með vinstrj hendinni, en
taka aftur með þeirri hægri!
Sigur skapar vandamál
Það er víst að bera í bakka
fullan lækinn að minnast enn
einu sinni á fjárhagsörðugleika
íþróttahreyfingarinnar ,en hér
er ein lítil saga um það, að
glæstustu sigrar geta skapað
mikið vandamál.
Ég var staddur í Laugardals
höllinni í fyrrakvöld, þegar
stúlknaflokkur Fratn lék gegn
ísraelsku meisturunum í Ev-
rópubikarkeppni kvenna í hand
knattleik. Til að byrja með
gekk Fram-stúlkunum mjög
illa. Á tímabili stóðu leikar
1:5 þeim í óhag. Mér til mikill-
ar furðu hlakkaði í einum for-
ustumanna Fram, sem var nær
staddur. „Alltaf lagast það“,
sagði hann, þegar ísraelsstúlk
urnar skoruðu.
Raunar sagði hann þetta í
gamni, en þó var dálítil alvara
á bak við. Staðreyndin í málinu
var sú, að ynni Fram leikinn,
þýddi það ,að Fram-stúlkurnar
Frá Evrópubikarkeppni Fram. Framstúlkurnar unnu síSari ieikinn 15:10
og halda því áfram á samanlagðri markatölu 34:21.
kæmust í 2. umferð keppninn
ar. Það mundi kosta félagið
ný útgjöld, e.t.v. 100—200 þús.
króna skuldabagga ofan á þær
skuldir, sem félagið steypti sér
í með því að taka þátt í 1.
umferð keppninnar.
Fram-stúlkurnar sigruðu
glæsilega í þessum síðari leik
og eru komnar í 2. umferð Ev-
rópubikarkeppninnar, sem er
ágætt afrek út af fyrir sig,
þótt mótstaða ísraelsku stúlkn-
anna hafi ekki verið mikil. En
þó að Fram hafi tryggt sér
rétt til þátttöku í 2. umferð,
er engan veginn víst, að úr
frekari þátttöku verði. Félagið
á erfitt með að axla meiri fjár
hagslegar byrðar — og einfald
ast væri að gefa næstu leiki
— eins einfalt og það nú er!
— alf.
Íi;l
i-'-'l
11
1
Hi
I
II-
II
FÓÐRID, SEM HENTAR
SIS FOÐUR 150
með um 15% melt. hráprótíni og 100 FE í 100 kg.
SÍS FÓÐUR 110
með um 11% melt. hráprótíni og 100 FE í 100 kg.
SÍS FÓÐUR 90
með um 9% melt. hráprótíni og 97.5 FE í 100 kg.
SÍS FÓÐUR 50
með um 6 melt. hráprótíni og 95 FE í 100 kg.
(Ætlað nautgripum í geldstöðu til fósturmyndunar).
VÍTAMÍN- 0G STEINEFNABÆTTAR
SÍS úrvalsfóður við allar aðstæður.
Fæst hjá kaupfélögum.
INNFLUTNINGSDEILD SÍS
11
■