Morgunblaðið - 02.12.2005, Síða 26
daglegtlíf
ídesember
JÓLIN
KOMA
SYSTKININ
ELLEN OG
KRISTJÁN
BAKA
EPLAKÖKU
HVAÐ KOSTAR
LAUFABRAUÐIÐ?
„OKKUR langaði að gera
eitthvað fyrir krakka sem
eru veikir,“ segja þeir vin-
irnir Andri Steinn Hilm-
arsson, Mímir Hafliðason
og Benedikt Sigurðsson,
sem hönnuðu merki á boli
sem þeir svo selja til styrkt-
ar hjartveikum börnum.
Þessir framtakssömu strákar segja
hönnunina á merkinu hafa orðið til í
samvinnu þeirra allra. „Benedikt
fann upp á slagorðinu „Ég fylgi hjart-
anu“ og við Andri gerðum hjartað,“
segir Mímir. Þeir fóru síðan í fyr-
irtækið Tanna til að láta prenta
merkið á boli. „Fólkið hjá Tanna var
svo hrifið af framtaki okkar að við
fengum tíu prósenta afslátt af kostn-
aðinum við að prenta á bolina,“ segja
þeir félagar ánægðir. Þeir ganga í
hús og selja bolina og segjast nú þeg-
ar hafa selt fyrir kostnaðinum. „Vinir
okkar og ættingjar hafa
líka verið duglegir að kaupa
af okkur og við seldum
marga boli í skólanum þeg-
ar þar var laufabrauðs-
bakstur,“ segja þremenn-
ingarnir sem eru í Linda-
skóla í Kópavogi. Þeir ætla
að ganga í hús í desember
og selja boli og fara svo með afrakst-
urinn í Neistann, styrktarfélag hjart-
veikra barna. „Af því við vitum að
mörg börn sem eru hjartveik þurfa að
fara í mjög dýrar skurðaðgerðir til
útlanda.“
Bolirnir kosta 1.500 krónur.
Morgunblaðið/Ásdís
Andri, Benedikt og Mímir, allir komnir í réttu bolina.
JÓLAANDINN | selja boli til styrktar hjartveikum börnum
Bolirnir fást á börn og fullorðna.
Kvenbolirnir eru svolítið aðsniðnir.
Þeir sem vilja kaupa boli geta
hringt í síma 823-3026 eða sent
tölvupóst ávk@simnet.is
Vinir með hjartað
á réttum stað
SAGT er frá því á vef Neytenda-
samtakanna að bréf hafi borist frá
neytanda þar sem spurt sé um
reglur um tilboðsverð. Viðkom-
andi benti á að í Nóatúni hefði
verið auglýst tilboð á mandarínum
í kassa, 498 kr. Í kassanum voru
2,3 kg. Mandarínur í lausasölu
kostuðu 189 kr. kg. og þar af leið-
andi kostuðu 2,3 kg. 435 kr.
Þetta fannst neytandanum dýrt
tilboð.
Bréf þetta var sent Neyt-
endastofu og í svari hennar kem-
ur fram að tilboð og útsölur eigi
að auglýsa með sama hætti, þ.e.
að fyrra verð komi fram svo að
neytendur geti séð í hverju til-
boðið felist.
„Þá hefði Nóatún jafnframt átt
að gefa upp mælieiningaverð
þannig að neytendur gætu séð að
kílóverð í lausu væri lægra en til-
boðsverð á kassa.“
Jafnframt kemur fram á vefn-
um að Neytendasamtökin munu
kæra brot á settum reglum til yf-
irvalda, í þessu tilviki til Neyt-
endastofu.
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tilboðsverð
reyndist
hærra
NÝ lágvöruverðsverslun með íþrótta-
vörur verður opnuð í dag við Funa-
lind 2 í Kópavogi undir heitinu sport-
net.is. Eigendur eru hjónin Lýður B.
Skarphéðinsson, íþróttafræðingur og
sérfræðingur í göngugreiningum, og
Elva Björk Sveinsdóttir íþróttafræð-
ingur sem jafnframt munu veita fag-
lega ráðgjöf við val á skóbúnaði.
Að sögn Lýðs verða svokallaðar
eftirársvörur í boði í versluninni á 30–
60% afslætti og eins glænýjar vörur á
10–15% lægra verði en samkeppn-
isaðilarnir bjóða. „Ég veit hver álagn-
ingin er í þessum bransa því það er
alltaf gefið út svokallað leiðbeinandi
smásöluverð. Svo verður maður bara
að vera duglegur að fylgjast með
samkeppnisaðilunum.“ Lýður segir
að galdurinn að baki því að geta boðið
fólki íþróttavörur á lágu verði sé að
kaupa inn í miklu magni og stað-
greiða birgjum auk þess að vera í
ódýru húsnæði með enga yfirbygg-
ingu. „Við stílum inn á mikið og breitt
vöruúrval og erum með helstu
íþróttamerkin. Við erum að kaupa
beint af íslenskum birgjum og flytj-
um auk þess íþróttafatnað inn, að-
allega frá Danmörku. Ég get svo út-
vegað íþróttafélögum allt til alls,
fatnað sem og bolta og annan búnað.
Ég hef lengi unnið í íþróttabrans-
anum, meðal annars við göngugrein-
ingar hjá Össuri og stoðtækni Gísla
Ferdinandssonar. Auk þess hef ég
undanfarin tvö ár verið að þvælast
um land í þeim tilgangi að selja
íþróttavörur. Þar hef ég fyllt heilu fé-
lagsheimilin af vörum sem fengið
hafa frábær viðbrögð. Það í raun og
veru rak á eftir mér að opna lág-
vöruverðsverslun á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Lýður.
NEYTENDUR | Lág-
vöruverðsverslun
með íþróttavörur
Morgunblaðið/ÞÖK
Eigendur Sportnet.is Elva Björk
Sveinsdóttir, Skarphéðinn Haukur
Lýðsson (sonur þeirra) og Lýður
Skarphéðinsson.
Nýjar og
eldri vörur
í boði