Morgunblaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 2
2 RITSTJÓRATAL UM MÁLIÐ HVAÐ ER AÐ SKE Nú er gúrkutíð! Hriiikaleg gúrkutíð. Ekkert að frétta eða gerast á inn- lendum vettvangi; nema jú, Eiríkur ritstjóri Hér og Nú á tali við kollega sína á Stöð 2. Spyrillinn: Sérðu eftir einhverju? Eiríkur: Ja, ég sé eftir því að hafa komið í þáttinn, því þið eruð hlutdrægir! Spyrillinn: En, þú, ert þú ekki hlutdrægur? … Eiríkur: Hún las yfir viðtalið og tók meira að segja út nokkur atriði. Spyrillinn: Nú, Eins og hvað? Eiríkur: Eins og til dæmis að Brynja hefði … Fín markaðssetning þetta hjá 365 Ljós- vakamiðlum, þeir mega nú eiga það! Ég hef mikinn áhuga á flestu því sem snýr að fræga fólkinu, en finn lítið bitastætt í blöðum sem byggja á ágiskunum blaðamanna. Eins og í fyrsta og eina Hér og Nú-blaðinu sem ég skoðaði eins og litabók: ,,Son- ur Egils hættur með kærustunni???“ Svaka sorglegt, ef þau eru þá hætt saman, það virtist ekki alveg komið á hreint. ,,Mikil sorg ríkir yfir Skóla- vörðuholti…“ Orðalag sem minnti á rauðu ástarsögurnar frekar en harðsoðnar kjaftasögur. Þess vegna hef ég ákveðið að halda mig við al- vöru stöffið; og vil benda þeim á sem ekki vita að Vanity Fair er ein besta uppspretta gróu á leiti enda flest látið flakka um fræga fólkið í burðarviðtölum þess blaðs. Rifrildi, blótsyrði, grátur og hlátur beint í æð … En á meðan eftirspurn ríkir á markaðnum eftir íslenskum litabók- um þýðir lítið að kvarta og kveina um ógnun við friðhelgi einkalífsins. HÚN SEGIR: ELÍNRÓS LÍNDAL Kópavogur er að verða nafli alheimsins. Ég er búinn að búa í Reykjavík hér um bil alla ævi og hef haft illan bifur á nágrannasveitarfélögunum (Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosó, Nesinu) og sagt þau vera þykj- ustu Reykjavík og ættu bara að sameinast okkur í eitt stórt aðalpleis. Reykjavík hefur alltaf verið aðalpleisið en ég er byrjaður að fá bakþanka hvað varðar þá staðreynd. Einu sinni vorum við bara með verslunarmið- stöð, Kringluna, en núna er Kópavogur kominn með Smáralind. Kópa- vogur er líka kominn með Subway og KFC og Domino’s og Nings. Síðan eru þeir með Salinn sem er orðið aðaltónlistarsalurinn og þeir eru líka með bíó. Ég er búinn að komast að því af hverju Kópavogur er að verða aðalpleisið áður en langt um líður. Það er stjórnskipulagið. Á meðan Reykjavíkurborg er búin að vera að í fleiri fleiri ár að reyna að komast að einhverri lausn um tónlistarhús á Miðbakkanum þá tók það Gunnar I. Birgisson 27 daga að rissa upp eitt óperuhús. Bæng. Og vill fá íslenzku óp- eruna til sín og ekkert múður. Ef stjórnsýslan væri í lagi í Reykjavík þá væri borgin að blómstra í takt við nágrannann. En svo er því miður ekki. HANN SEGIR: SIGURÐUR PÁLMI Kringlunni 1, 103 Reykjavík, 569 1100, malid@mbl.is Útgefandi: Árvakur hf. í samstarfi Morgunblaðsins,- Símans og Skjás 1 Ábyrgðamaður: Margrét Kr. Sigurðardóttir Umsjón: Elínrós Líndal, 569 1141 - elinros@mbl.is Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, 569 1141 - siggip@mbl.is Auglýsingar: Jóhanna Bóel, 569 1111 - jboel@mbl.is Hönnun: Hörður Lárusson, Siggi Orri Thorhannesson og Sól Hrafnsdóttir Umbrot: Kristín Björk Einarsdóttir og Björn Arnar Ólafsson Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Pappír: Nornews 45g Letur: Frutiger og Tjypan Stærð: 280x420mm UM MÁLIÐ Fimmtudagurinn 30. júní Duran Duran Tónleikar í Egilshöll. Föstudagurinn 1. júlí Áttalíf Hópur íslenskra listamanna sem nefna sig Áttalíf stendur fyrir tónleikum í Hljómskálagarði frá klukkan 20:30 til 23:00 í kvöld. Fram koma m.a. Bubbi, Singa- pore Sling, Papar og Mínus svo einhverjir séu nefndir. Gaukurinn Addi Exos og Co. á Gauknum. Laugardagurinn 2. júlí Sirkus Stærstu tónleikum allra tíma verður sjónvarpað beint á Sirkus í dag og sitja þau Andrea Jóns dagskrárkona, Skarphéðinn Guðmundsson frá Mogganum og Ragnar Már útvarpsmaður í brúnni og lýsa tónleikunum beint af sinni góðkunnu snilld. www.live8live.is Wig Wam Hljómsveitin norska Wig Wam mun spila í Smáralind í dag klukkan 16.30 fyrir gesti og gangandi. Þeir Auddi, Sveppi og Pétur munu kynna tónleikana sem eru í boði Símans. Seinna um kvöldið spilar hljómsveitin svo á Gauknum. Á móti sól Hljómsveitin Á móti sól leggur land undir fót þessa helgi og er förinni heitið austur á land, þar sem hald- inn verður dansleikur í Egilsbúð í Neskaupstað. Hljóm- sveitin er að fylgja eftir nýútkomnum geisladiski, HIN 12 TOPPLÖGIN. HVAÐ ER AÐ SKE? FJÓRÐA MÁLIÐ RITSTJÓRATAL Hljómsveitin norska Wig Wam mun spila í Smáralind laugardaginn kl. 16.30 fyrir gesti og gangandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.