Morgunblaðið - 30.06.2005, Síða 10
10
VIÐTALIÐ
á er þetta ritar hitti síðast á Henrik
Björnsson, söngvara og höfuðpaur
rokksveitarinnar Singapore Sling,
fyrir réttu ári síðan, er hin ágæta Life is Kill-
ing my Rock n Roll var í þann mund að koma
fyrir hlustir almennings. Eftirvæntingin var
nokkur í loftinu, enda einkenndist sumarið
2004 af mikilli rokklykt (Dead-hauskúpan
tók eftirminnilega við hlutverki trukkarahúf-
unnar sem ríkjandi tískuyfirlýsingar og goð-
sagnir á borð við Lou Reed og Pixies heim-
sóttu landið) og Singapore Sling hafði vakið
á sér nokkra athygli hérlendis sem erlendis,
virtist hreinlega vera svarið við kalli sumars-
ins á hressilega subbulega rokkhljómsveit.
Platan hlaut nokkra umfjöllun og athygli
(Dead-verslunin sérprentaði m.a.s. boli henni
til heiðurs) og fékk í heildina afar jákvæðar
viðtökur gagnrýnenda (og sæmilega já-
kvæðar hjá hinum plötukaupandi-almenn-
ingi; þeir eru þó engin Sálin hans Jóns míns,
enn). Þá um haustið átti Life is Killing My
Rock n Roll eftir að koma út hjá bandaríska
plötufyrirtækinu Stinky Records og sveitin
ráðgerði að fylgja henni – og jákvæðri um-
fjöllun í fjölmiðlum á borð við Rolling Stone
og The O.C. – eftir með tónleikaferðalagi um
Norður-Ameríku. Þegar við hittumst var hug-
ur í Henrik, hann var öruggur með sig, stolt-
ur af nýjustu afurð sinni og hafði greinilega
til að bera mikinn metnað til þess að fara
með hana eins langt og komist yrði.
Framtíð sveitarinnar óljós – endurkoma
Shakersins
Ekki gekk þó allt eftir sem skyldi hjá Singa-
pore Sling það sumarið og veturinn sem í
kjölfarið fylgdi. Life is Killing my Rock n Roll
hlaut frekar litla umfjöllun við útkomu
hennar ytra og tónleikaferðalagið sem farið
var henni til kynningar gekk nánast af
hljómsveitinni dauðri. Sling lifði, en að
ferðalaginu loknu höfðu þrír meðlimir sagt
skilið við sveitina, að því er virtist í illu. Dag-
ana fyrir Iceland Airwaves-hátíðina var talið
útséð með spilamennsku þeirra þar og fram-
tíð sveitarinnar virtist óljós. Henrik og fé-
lagar komu hins vegar flestum á óvart með
því að halda ótrauðir áfram, standa við sitt
og leika á tónleikunum með aðstoð vina og
vandamanna (t.d. Örvars Þóreyjarsonar
múmíu og Þóris trúbadúrs), sem höfðu flestir
örfáar klukkustundir til undirbúnings. Þrátt
fyrir að sveitin virtist vængbrotin og við-
kvæm á sviðinu voru skilaboð hennar með
framkomunni ótvíræð; Singapore Sling hef-
ur ekki lagt árar í bát og mun ekki gera að
sinni.
Síðan þá hefur sveitin safnað kröftum sínum,
fundið varanlega meðlimi í stað þeirra sem
frá hurfu og hugað að lagasmíðum og æf-
ingum. Prófíllinn hefur verið lágur og hún
látið lítið fyrir sér fara. Nú horfir hinsvegar
til breytinga. Hinn rómaði hristuleikari Siggi
„Shaker“ Finns hefur snúið aftur frá námi í
Japan, nýafstaðið er vel heppnað tónleika-
ferðalag um Skandinavíu og Bretland og í
smíðum er smáplata sem Henrik hefur dund-
að sér við að smíða með hjálp trommuheila.
Þegar meðbyrinn blés að Singapore Sling
sagði hann „rokk er að reyna – ef maður
reynir ekki að gera eins vel og maður getur
með það sem maður hefur er þetta tilgangs-
laust“ og nú, ári og nokkrum skakkaföllum
síðar, virðast hann og sveitin hafa sýnt fram
1
HRESSILEGA SUBBULEG
ROKKHLJÓMSVEIT
SINGAPORE SLING KEMUR HEIL UNDAN
ERFIÐU ÁRI
S
1.
Ester „Bíbí“ Ásgeirs-
dóttir
Hákon Aðalsteinsson
Björn Viktorsson
Henrik Björnsson
Einar Þór Kristjánsson
„Sonic“
Á myndirnar vantar
Sigurð Magnús
Finnsson„Shaker“
Texti
Haukur S. Magnússon
Myndir
Sigurjón Guðjónsson