Morgunblaðið - 30.06.2005, Side 16

Morgunblaðið - 30.06.2005, Side 16
16 ÁSTIN TÍSKAN egja má að íslenski „Bachelor“-þátturinn sem væntanlegur er í loftið á Skjá einum í september sé fyrsta alvöru veruleikasjónvarpið á Íslandi. Stefnt er að því að gera útlit og innihald þáttanna mjög glæsilegt og vandað og því verð- ur spennandi að fylgjast með gangi mála á skjánum í haust. Leitin að íslenska piparsveininum stendur sem hæst þessa dagana og verður farið víða um landið til að finna rétta fólkið í þættina. Leitin hófst um síðustu helgi á Akureyri og segir Jón Ingi Há- konarson, sá sem mun fara með hlutverk þáttastjórnandans, leit- ina hafa farið fram úr björtustu vonum. En hverju munum við eiga von á með haustinu? „Við munum annars vegar sýna fjóra leitarþætti um miðjan sept- ember þar sem áhorfendur fá að fylgjast með þeirri leit sem nú er hafin. Svo um miðjan október hefst hinn eiginlegi þáttur þar sem ég mun þá draga mig meira í hlé og framvinda þáttanna verð- ur meira undir þátttakendunum sjálfum komið,“ segir Jón. Hvað getur þú sagt okkur frá leit- inni á Akureyri um síðustu helgi? „Við renndum blint í sjóinn á laugardaginn og vissum ekki al- veg við hverju var að búast. En þetta fór framar öllum vonum og kom til okkar fjöldinn allur af mjög frambærilegu fólki, bæði stelpur og strákar. Leitin er fólgin í að finna einn strák og 25 stelp- ur. Ég er mjög ánægður og glað- ur með hvernig til tókst um helgina og ef Akureyri gaf tóninn í þessari leit þá munum við eiga í stökustu vandræðum með að velja úr.“ Á hvaða aldri eiga þátttakendur að vera? ,,Á aldrinum 21 til 35 ára. Einu kröfurnar sem gerðar eru til þátt- takenda eru að þeir séu þeir sjálf- ir og fólk komi til dyranna eins og það er klætt.“ Hvað ef fólk hefur ekki tækifæri til að hitta ykkur? Hvernig getur það sótt um þátttöku? ,,Inni á heimaslóð Skjás eins (www.skjar1.is) er umsóknarform sem hægt er að senda inn og verður farið vel yfir hverja um- sókn fyrir sig.“ Eru þetta ítarlegar upplýsingar sem þið viljið fá um hvern þátt- takanda? ,,Já, ég mundi segja það. Við vilj- um vita að hverju við göngum og í leitinni að piparsveininum höf- um við sniðið honum þröngan stakk.“ Nú, hvernig þá? ,,Við erum að leita að tengdasyni íslensku þjóðarinnar. Hann þarf að höfða til sem flestra, vera skemmtilegur og fallegur jafnt að innan sem utan. Auk þess þarf hann að vera fjárhagslega sjálf- stæður og hafa þannig sjarma að sem flestar konur gætu fallið fyrir honum.“ Þetta verður sem sagt leitin ei- lífa? „Nei, við erum fullviss um að finna hinn eina sanna íslenska piparsvein á næstu mánuðum.“ Hvað með kvenþátttakendurna, hvernig eiga þær að vera? ,,Við viljum fá sem flestar gerðir kvenna. Þær þurfa að rísa undir væntingum piparsveinsins en við viljum hafa þær ólíkar.“ En af hverju ætti fólk að vilja fara í svona raunveruleikaþátt? ,,Það eru fjölmargar ástæður fyrir því, svo ekki sé minnst á þá skemmtun sem er fólgin í að næra Gróu á leiti. Allir þátttak- endur eiga eftir að fá sínar fimm- tán mínútur af frægð. Svo verða ýmis verðlaun í boði fyrir þátttak- endur, s.s. fatnaður og snyrtivör- ur. En dýrmætustu verðlaunin að mínu mati eru að við verðum með fjölda fólks í vinnu við að upphugsa stefnumót, sem ég held að engin venjuleg mann- eskja muni upplifa yfir ævina. Þar spila sterkt inn í áhugaverðir staðir og farartæki sem fáir geta leyft sér að dreyma um. Minning- arnar verða fjársjóður sem vert er að geyma til æviloka.“ Þið stefnið sem sagt í svipaða þætti og við höfum séð á skján- um frá Bandaríkjunum? „Já, ekki spurning. En við munum aðlaga þáttinn íslenskum að- stæðum. Sumt þarf að tóna niður, annað að skerpa í íslensku útgáf- unni. Við ætlum að finna íslensk- an milliveg sem mun falla fólki í geð. Þátt sem verður spegill á ís- lenskt samfélag.“ ERT ÞÚ PIPARSVEINNINN SEM LEITAÐ ER AÐ? 1 1. Jón Ingi Hákonarson- stjórnandi nýja ís- lenska „Bachelor“- þáttarins. Texti Elínrós Líndal Í Mílanó hinn 26. júní síðastlið- inn sýndu helstu tískuhúsin hvað koma skal í herratískunni á næsta ári. Fatnaðurinn frá Dolce & Gabbana var flottur að vanda og áberandi sú stefna að hafa karlana bera að ofan þetta sum- arið. Jil Sander var stílhrein eins og hefð þykir fyrir þar sem mikið var lagt upp úr ljósum fötum og skóm í stíl. Burberry Prosum kom ekki verulega á óvart og virðist sem rykfrakkarnir verði inni að ári liðnu. Mesti broddurinn var ef til vill í línu Gianni Versace, þar sem mikið skein í bert hold og litríkan fatnaðinn. VERTU ÁRI Á UNDAN Í TÍSKUNNI 2. Fatnaður frá Burberry Prosum. 3 3 og 4. Fatnaður frá Dolce & Gabbana. Myndir Getty Images 42 Við erum að leita að tengdasyni íslensku þjóðarinnar S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.