Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 6
6
TÍSKA
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir hafa mikil áhrif á
fólk, umhverfi þess og einnig tísku. Eftir að Sex
and the City-þættirnir urðu vinsælir vildu allar
stelpur kaupa sér föt frægra hönnuða og Man-
olo-skór urðu gríðarlega vinsælir. The Lord of the
Rings hafði mikil áhrif á hár stráka og út um allt
sáust strákar með „Fróða“-klippingu. En myndir
hafa ekki bara áhrif á fata- og hártísku heldur
líka gæludýratísku. Þá er ekki átt við fatatísku
gæludýra heldur gæludýrin sjálf.
Það fyrsta sem manni dettur í hug er stærsta
gæludýrið af þeim öllum – Keikó – sem Íslend-
ingar sjálfir „áttu“. En það er fullt af öðrum
gæludýrum þarna úti sem hafa orðið vinsæl
vegna sjónvarpsþátta og kvikmynda.
Ákveðnar tegundir gæludýra hafa orðið vinsælar
vegna þessara áhrifa. Eins og eftir að Frasier varð
vinsæll varð hundategundin Jack Russell Terrier í
hávegum höfð þar sem Eddie, hundurinn í þátt-
unum, var af þeirri tegund. 101 dalmatíuhundur
hafði þau áhrif að allir vildu fá sér einn dopp-
óttan og eftir að Paris Hilton fór að sjást um allt
með chihuahua-hundinn sinn í alls lags fatnaði
hlupu margir til og fengu sér einn svoleiðis. Það
má segja að þetta séu svona eðlileg gæludýr en
mörg dýr sem hafa áður ekki verið þekkt sem
gæludýr hafa orðið vinsæl fyrir tilvist kvikmynda.
Svín
Í mörg ár hafa svín ekki bara verið húsdýr heldur
líka gæludýr. Eftir kvikmyndirnar um hið gríð-
arlega klára svín Babe urðu svín enn vinsælli
gæludýr. Allir vildu eiga einn gölt og geta kennt
honum alls lags kúnstir. Svín, sem hafa vanalega
átt heima í stíum, voru komin inn á heimili fólks
og farin að sofa uppi í rúmi eins og hundar og
kettir.
Asnar
Eftir að Shrek kom í kvikmyndahús urðu asnar
gríðarlega vinsælir sem gæludýr. Allir vildu eiga
asna þar sem þeir virtust svo sniðugir og skemmti-
legir. Allt í einu voru asnar bestu gæludýrin í
heiminum. En asnaeigendurnir brenndu sig marg-
ir hverjir og hafa gæludýraasnar verið að finnast
á víðavangi í vestrænum heimi þar sem það er
ekki beint auðvelt að hafa þá á heimilinu. Það er
dýrt að eiga asna, þeir þurfa mikla athygli frá eig-
endum og þar að auki geta þeir lifað í 50 ár. Svo
það er ekkert grín.
Rottur og uglur
Hverjum hefði dottið það í hug fyrir nokkrum ár-
um að fá sér rottu inn á heimilið. Rottur eru mein-
dýr sem flestir hafa litið á sem plágur en eftir að
Harry Potter steig á svið hafa æ fleiri fengið sér
rottu sem gæludýr og það eru meira að segja
settar upp fegurðarsamkeppnir fyrir rottur. Eftir
Harry Potter eru uglur líka orðnar vinsælar sem
gæludýr. Eftir hverja sýningu af Harry Potter hafa
gæludýraverslanir um heim allan fengið fyr-
irspurnir um uglur en mikilvægt er að muna að
uglur eru ekki eins og Hedwig hans Potters og
koma fljúgandi með póstinn til þín heldur getur
verið mjög erfitt að annast uglur enda eru þær í
flokki spörfugla sem eru skaðræðisrándýr.
Íkornar
Eitt atriði í Charlie and the Chocolate Factory hef-
ur gert íkorna að vinsælu gæludýri. Allir vilja eiga
íkorna því þeir eru svo sætir og hnoðlegir. En það
er bara alls ekki raunin. Íkornar geta verið af-
skaplega grimmir og því hreinlega ekki sniðugt
að hafa einn svoleiðis á heimilinu. Hugsið út í hús-
gögnin, allt dótið ykkar og jafnvel ykkur sjálf og
hvernig það getur farið ef þessar svakalegu klær
og tennur komast í ham.
Fiskar
Svona í lokin er vert að minnast á að skrautlegir
gullfiskar og þá sérstaklega trúðfiskar hafa orðið
svakalega vinsælir eftir Finding Nemo. Nemo litli
hafði þau áhrif að allir krakkar vildu eignast gull-
fiska. Flott fyrir foreldra sem vilja ekki hafa loðið
dýr á heimilinu eða eitthvað fyrirferðarmikið. En
miðað við boðskapinn í sögunni um Nemo væri
vert að leyfa þessum fiskum að vera frjálsir í sjón-
um.
HVAÐA GÆLUDÝR ERU
Í TÍSKU?
OG ÁHRIF BÍÓMYNDA Á TÍSKUNA
1.
Hið gríðarlega klára
svín Baddi.
2.
Eftir Shrek þóttu asnar
sniðugir og skemmti-
legir.
3.
Harry Potter gerði ugl-
ur og rottur vinsælar.
4.
Íkornar komu við sögu í
Charlie and the
Chocolate Factory.
5.
Gullfiskurinn Nemo.
Umsjón
Laila Pétursdóttir
Mikið úrval er af alls kyns fylgi-
hlutum, hversdagsklæðum, kjólum,
pilsum, barnafötum, nærbuxum og
áfram mætti telja.
Framkvæmdagleðin í fyrirrúmi
Þær Elín, Hildur, Kolbrún og Íris, eig-
endur verslunarinnar, eru svona
venjulegar íslenskar kjarnakonur, að
sögn Hildar. Því auk þess að reka
Pjúru eru þær á kafi í öðrum verk-
efnum og barnauppeldi. Það er því
lítið um svefn á þeirra heimabæjum
því saumaskapurinn krefst mikillar
vinnu sem og auðvitað sjálf hug-
myndavinnan.
„Það er unnið frá átta til fimm, reynt
að kenna börnunum mannasiði milli
fimm og átta, saumað á kvöldin og
svo upp úr miðnætti beinist athyglin
að eiginmanninum,“ segir Hildur
hlæjandi og geispandi á sama tíma.
Því, eins og hún útskýrir, tekur alltaf
ákveðinn tíma að koma sjálfstæðum
atvinnurekstri á kortið áður en bolt-
inn fer að rúlla.
Gestir og glögg
Hinn 8. desember næstkomandi, á
milli klukkan 19–21, ætla þær stöllur
að slá upp jólagleðskap í húsakynn-
um sínum. Umræðuefni kvöldsins
verður án efa hönnunin í hillunum en
gestir geta losað um málbeinið með
jólaglögginu sem gestgjafarnir ætla
að veita. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem gestir eru boðnir í heimsókn í
Pjúru eftir venjulegan afgreiðslutíma
en hefð hefur skapast fyrir dömu-
kvöldum sem vakið hafa mikla lukku.
Þar sem jólin nálgast óðum var þó
ákveðið að hafa heimsóknarkvöldið
að þessu sinni opið fyrir bæði kynin
svona til þess að gefa karlkyninu
hugmyndir að spennandi jólagjöfum
fyrir spúsur sínar. Vonandi að valkvíð-
inn víki með glögginu því af nógu er
að taka.
Í Ingólfsstræti 8 er verslunin Pjúra til
húsa en þar hafa fjórar athafnakonur
hreiðrað um sig í litlu og huggulegu
kjallararými. Þar bjóða þær eigin
hönnun til sölu undir merkjunum El-
ina, Hin design, Kow og Krúsilíus.
Hönnunin er jafn fjölbreytt og hönn-
uðirnir eru margir en heildarmyndin
er engu að síður mjög heildstæð.
PJÚRA JÓLA-
STEMNING
Í INGÓLFSSTRÆTI
1.
Merki: Elína
Jakkapeysa: 9.900
Belti: 3.500
Pils: 14.800
2.
Merki: Krúsilíus
Kjóll: 15.000
Belti: 4.500
Skinnkragi: 9.500
3.
Merki: Hin disign
Pils: 8.900
Hálsmen: 3.000
Merki: Elina
Bolur: 5.900
4.
Merki: Kow
Kjóll: 15.600
Kragi: 4.900
Texti
Berglind Häsler
Myndir
Golli
1 2 3 4
543
21