Tíminn - 14.03.1971, Síða 1
bíkis.qáa
ÖÚÐMUNDAR
Bargþóruqcfct 3
Síman 19032 — 20030
lllllÍt
kæli-
skápar
XJ/uxiío/u^cZre/L h~£
txnmxAUwxu, MHUMmen t\ t»m ium
61. tfaí.
— Sunnudag 14. marz 1971
55. árg.
Almennir íundir Framsóknarflokks-
ins á Norðurlandi og Austurlandi
Framsóknarflokkurinn boffar
til almennra funda á ýmsum
stöðum á Norður- og Austur-
landi á næstu vikum. Fundar-
efnið verður: Atvinnumálin og
landhelgismáiið.
Jafnframt mun Helgi Bergs,
ritari flokksins, sem mætir á
fundum þessum, eiga viðræðu-
fundi með stjórnum kjördæm-
issambandanna, formönnum
flokksfélaga og öðrum trúnaðar
mönnum um flokksmál og und-
irbúning alþingiskosninganna.
Almennu fundirnir um at-
vinnumálin og lanlhelgismálið
verða þéssir:
Á Seyðisfirði mánud. 22. 3.
Á Norðfirði miðvikud. 24. 3.
Á Ólafsfirði föstud. 26. 3.
Á Húsavík sunnud. 28. 3.
Á Sauðárkróki mánud. 29. 3.
Á Siglufirði þriðjud. 30. 3.
Frummælandi á ölluim fund-
unum verður Helgi Bergs, en
auk hans verða Tómas Ámason,
hrl., framsögumaður á fundun-
uin á Seyðisfirði og Norðfirði.
Á fundunum á Ólafsfirði og
Húsavík mæta auk frummæl-
anda Jónas Jónsson og Ingi
Tryggvason, en á Sauðárkróki
og Siglufirði Magnús Gíslason
og Stefán Guðmundsson.
Verða fundir þessir nánar
auglýstir eftir helgina.
HELGI BERGS
Spáir rétt
um hafísinn
Heiðargæsinni smalað til merkinga í Þjórsárverum.
FB—Reykjavík, laugardag.
Niðurstöður úr hafrannsóknar-
leiðangri Bjarna Sæmundssonar
benda til þess að hafís verði ekki
mikill hér vi'ð land, það sem eftir
er vetrar. Samræmist það vel haf-
ísspá Páls Bergþórssonar veður-
fræðings, sem í descmber s.I.
spáði því, að hafís yrði hér við
land 0—1 mánuð í vetur. Þetta
er í þriðja sinn, sem PáU gerir
5 ára alhliða rannsókn á
Þjórsárverum að hefjast
FB—Keykjavík, föstudag.
Á sumri komandi er ráðgert að
hefja allítarlegar rannsóknir í
Þjórsárverum. Hefur Orkustofn-
un fengið Agnar Ingólfsson fugla-
fræðing til þess að skipuleggja og
stjórna þessum rannsóknum, en
þeim er ætlað að leiða í ljós áhrif
þau, sem virkjanir á þessum slóð
um kunna að hafa á umhverfið.
Reyndar hefur Agnari verið falið
að kanna áhrif virkjana á umhverf
ið um land allt, — en ég hef svo
til eingöngu fengizt við að athuga
Þjórsárver til þessa, enda er þar
bersýnilega um mesta hættu að
ræða enn sem komið er, nema
kannski við Laxá og Mývatn, en
ég lief ekki með það máí að gera,
sagði Agnar í viðtali við Tímann.
— Rannsóknirnar hófust að
nokkru leyti í fyrrasulmar, en þá
var aðeins um smávegis undirbún
ingsrannsóknir að ræða, en í sum-
ar á að reyna að byrja af fullum
krafti. Þessar rannsóknir eiga aö
sýna, hvaða verðmæti séu í húfi
þarna í Þjórsárverum, því í raun-
inni er ósköp lítið vitað um Ver-
in fyrir utan það, sem vitað er um
heiðargæsina og varplönd hennnar
þarna. Samt er greinilegt, að þau
eru merkileg að mörgu leyti. Að-
altilgangur rannsóknanna er sem
sé að kynna sér þetta. og í öðru
lagi verður reynt að gera sér grein
fyrir því, hvort hægt sé að draga
úr neikvæðum áhrifum fyrirhug-
aðra eða hugsanlegra framkvæmda
þarna, á þessi verðmæti.
— Ég geri ráð fyrir, að þessar
rannsóknir í Þjórsárverum sjálf-
um taki nokkur ár, sennilega fimm
ár. Fjölmargir sénfræðingar á ýms
um sviðum munu starfa þarna, og
þar á meðal margir erlendir menn.
Ekki er víst, að rannsóknirnar kom
ist í fullan gang nú í surnar, en
væntanlega verða þær hafnar til
fulls sumarið 1972, í sumar verða
þarna allmargir menn, bæði
íslenzkir og erlendir. Hafa erlend-
ir aðilar boðizt til að aðstoða okk-
ur í þessu máli, og vona ég, að
þeir geri það, þó aff ekki sé fast-
ráðið ennþá, að hve mi'klu leyti
það verður. Þess má geta, að UN-
ESCO og félagskapur, sem nefnist
International Waterfowl Research
Bureau hafa látið í Ijós óskir um
að fá að taka þátt í rannsóknun-
um. Um brezka þáttttakendur vit-
um við enn ekki nægilega mikið.
þar sem póstverkfallið hefur taf-
ið bréfaviðskipti um þetta mál
eins og svo mörg önnur að undan-
förnu. I
— Hverjir verða aöallega við
rannsóknirnar?
Framhald á bls. 10.
hafísspá, sem hann byggir á loft-
hita á Jan Mayen frá júni til nóv
emberloka.
— Ég geri reikninga mína eft-
ir lofthitatölunum á Jan Mayen
á áðurnefndu tímabili, ekki vegna
þess að ég álílji, að lofthitinn ráði
þessu, heldur ér hann mælikvarði
á annað, sem maður getur ekki
mælt, en það er sjávarástandið þar
norður frá, sagði Páll, er við spurð
um hann, hvernig spáin hefði
reynzt að þessu sinni.
— Þetta er þriðji veturinn, sem
ég spái. Fyrst spáði ég því, að
ís yrði 3—6 mánuði hér við land,
og þá urðu mánuðirnir 5. Nú hljóð
aði spáin upp á 0—1 mánuð, og
þegar er kominn einn mánuður.
1 Dagarnir eru taldir, þegar hafís
| sést einhvers stao’ar af landi. Ég
hefði ekki orðið hissa, þ.ótt frá
vikin hefðu orðið meiri en raun
ber vitni.
— En nú er raunar kominn
einn mánuður, svo heita má að
kvótinn sé fullur. fsinn mætti ekki
sjást úr landi miklu oftar, til þess
að spáin hitti alveg nákvæmlega í
mark. Hitt er annað mál, að þótt
reyndin verði allt að tveir mánuð
ir, þá er þetta ekki svo alvar-
legt frávik.
— ísinn í vetur hefur verið
Framhald á bls. 10
Annar enskur sjómaður tekinn fyrir eiturlyfjasölu
Islenzki milligöngumaðurinn viður-
kennir að hafa stuðlað að sölunni
EB—Reykjavík, laugardag.
Síðdegis í dag var ekki enn búið að efnagreina þau 16 gr. af efn-
inu, sem blaðamaður Tímans afhenti í gær fíknilyfjadeild lögrcgl-
unnar, sem gerði þegar í stað frumrannsókn á efninu, og svaraði
það til að vera Dex Amfetamín.
Fíknilyfjadeild lögreglunnar
hefur hins vegar frá því í gær
unnið að ranpsókn málsins. Sit*
ur milligöngumaður blaða-
manns enn í varðhaldi, og hef-
ur hann viðurkennt að hafa
stuðlað að sölu á efninu. Þá
var annar Breti handtekinn i
gær um borð í „Ross Valiant".
Leikur grunur á að hann sé
með í sölunni og ennfremur
leikur grunur á að buiff hafi
verið að selja nokkrum ein-
staklingum eiturlyf um borð i
togaranum, áður en lögreglan
komst á sporið. Ekki var i dag
búið að finna eiturlyf í togaran-
um.
Bretinn, sem handtekinn var
í gær, skömmu eftir að toll-
verðir og lögreglan fóru um
borð í togarann, var látinn laus
í gærkvöldi, enda hafði þá ekk-
ert saknæmt sannazt á hann. Þá
hefur blaðið frétt, að búi® sé
að handtaka piltinn, er upphaf-
lega lét „af vangá“ blaðamann
Tímans komast verulega á spor-
ið í umræddu máli.