Tíminn - 14.03.1971, Blaðsíða 5

Tíminn - 14.03.1971, Blaðsíða 5
MEÐ MORGUN KAFFINU ir mcð stjórnmálafréttum frá Þýzkalandi, komu á hverjum degi og öll mikilvægustu bréfin voru send honum i hraðpósti að heiman. Allt útlit er nú fyrir, að kanslarinn þurfi að fara í annað frí, til að hvíla sig eftir hitt friið. Björn var að láta taka mynd af sér og syni sínum, í tilefni af því, að sonurinn hafði nýlok- ið stúdentsprófi. — Ég held, að myndin verði •ðlilegri, ef stúdentinn styddi •nnarri hendinni á öxl föður síns, sagði ljósmyndarinn. — Eðlilegast held ég væri, að hann hefði hendina í vasa «rfnum, varð Birni að orði. — Martin, geturðu ekki kom- ið og sótt mig? Það standa þrír illilegir ntenn hérna fyrir utan og ég þori ekki út. Þetta er Bíbí, sem einu sinni hét Birgit Skousen og var þekkt fyrirsæta. Nú er hún leik kona og heitir Bíbi. Hún breytti þessu, af því allt of margar leikkonur heita Birgit. Annars er hún þýzk að hálfu og alin þar upp, en fyrir þremur árum flutti hún til föður síns í Dan- mörku, fór að læra dönsku og ganga í leikskóla og er svo upp- tekin af þessu öllu, að hún seg ist ekki mega vera að því, að verða ástfangin og eiginlega ekki kæra sig um það, því hún vilji eiga sig alla sjálf. Hún vill fara til Parísar og New York og reyna, hvað hún geti og það er ekki hægt, ef maður á kærasta eða eitthvað svoleiðis í Kaupmannahöfn. Hóla-Bjarni var maður nefnd- ur. Hann var Þingeyingur að ætt og hinn mesti óknyttamað- ur, stundum naumast með réttu ráði, en gat oft verið meinlegur í tilsvörum. Einu sinni var hann spurður, hvers vegna Langnesingar, sveit ungar hans, heyjuðu svo lítið sem raun bæri vitni. Þá sagði Bjarni: — Það er löstur á Langanesi, kunningi, að slráin eru föst á öðrum endanum. — En hvað ég hlakka til að sjá menninguna eftir öll þessi ár. Ég skal svei mér fara í bíó og sjá Mary Pickford og fara svo og dansa Charleston og skemmta mér heila nótt fyrir tfu krónur. Nýlega var hringt á veitinga- húsið Röðul og spurt, hvort ekki væri hægt að fá eitthvað þar um kvöldið. sér til tilbreýting- ar. — Lambasteik með grænum baúnum <?g ís'á eftir, var svarað. — Ekkert fleira? sagði sá er hringdi. — Ja, jú, Magnús Ingimars- son og Þuríði Sigurðardóttur. Bílstjóri hjá Steindóri og hót- elstúlka í Valhöll voru eitt sinn á skemmtigöngu á Þingvöllum. Bílstjórinn segir: — Hérna hitti Gunnar Hall- gerði fyrst. Stúlkan: — Er hann bílstjóri hjá Stein dóri, þessi Gunnar. Húsfreyjan: „Hvað má bjóða þér, Pétur, brennivínsstaup, bjór eða toddý?“ Pétur: „Ég held það væri bezt að fá staupið strax, svo get ég dundað við bjórinn á meðan þú hitar toddýið." Þessi ljóshærða fagurskinna er 23 ára og heitir Mette Krupse. Hún hefur veriið með ólæknandi bíladellu svo lengi sem hún man, og er nú eina stúlkan á Norðurlöndum, sem hefur kappakstursökuskírteini. Hún starfar sem reynsluökumað ur hjá Ford, þegar þess þarf, en er annars bifvélavirki í Gautaborg. Það er sagt, að borg- arstjórinn í Gautaborg hafi orð- ið anzi heimskulegur í framan og vart mátt mæla fyrir undrun, þegar hann var að afhenda nýútskrifuðum bifvélavirkjum sveinsbréfin og sá allt í einu unga, glæsilega stúlku í karla- hópnum. Mette er ólofuð og ségir ,að karlmönnuð líki það ekki, þegar hún bjóði þeim í bíltúr og er komin upp í 150 km hraða áður en hún veit af, og er búin að steingleyma, að hún hafi farþega. — A mynd- inni er Mette við iðju sína, sem bæði er atvinna hennar og tóm- stundagaman Rolling Stones hinn fyrrver andi aðalkeppinautur Beatles sáluga ku nú gera góða lukku á hljómleikaferðalagi sínu um Bretlandseyjar. Að sögn kunn ugra munu þeir hafa breytt nokkuð um tónlistarstcfnu og virðast ekki lengur vera eins hrifnir af tækninni og áður. og eru það ef til vill áhrif frá nýjustu LP-plötu John Lenn- ons. Ekki hefur frétzt af nýrri plötu fi-á Roiling Stones og ef til vill gcra þeir ekki nýja fvrr cn þeir eru fluttir til Frakklands, en það munu peir gera á næstunni. Willy Brandt, kanslari, er ný- kominn heim úr vetrarfríi frá Afríku. Þar kom hann m. a. við í Nyeri í Kenýa. Með honum í fríinu voru Rut, kona hans, og börnin tvö. Þetta hefði allt get- að verið gott og blessað og kansl arinn hefpi sennilega getað slappað svplítið af, ef fylgdar- lið hans hefði ekki verið svona afskaplega fjölmennt. Öryggis- venðir, ritarar og fjöldi tækni- manna, scm settu upp fjarrita í hótelinu. svo kanslarinn gætj verið i stöðugu sambandi við stjórn sína, voru alltaf á hæl- unum á honum. Sex stórar ark- DENNI DÆMALAUSl — Þurftirðu endilega að skamma mig fyrir framan mesta „töffann" í hverfinu? SCNNUDAGUR 14. marz 1971 TIMINN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.