Tíminn - 14.03.1971, Síða 2
2
Astro - Sjónvarpsloftnet
FYRIRLIGGJANDI LOFTNET FYRIR RÁSIR:
3., 4., 5., 6., 7., 8., 9., 10., 11.
RAFKAUP H.F. - LAUGAVEGI 96
SÍMAR 1 72 50 — 3 60 39.
Payer-Lux rakválin
PAYER-LUX rakvélin fyrirliggjandi
með eða án kamba, 3 ára ábyrgð.
RAFKAUP H.F. - LAUGAVEGI 96
SÍMAR 172 50 — 3 60 39.
TAKIÐ EFTIR - TAKIÐ EFTIR
Höfum opnað verzlun að Klapparstíg 29, undir nafninu
Húsmunaslcálinn. — Tilgangur verzlunarinnar er að kaupa
og selja eldri gerðir húsgagna og húsmuna, svo sem buffet-
skápa, fataskápa, bókaskápa og -hillur, skatthol, skrifborð,
borðstofuborð og -stóla, blómasúlur útvörp, gömul mál-
verk og myndir, klukkur, rokka, spegla og margt fleira. —
Það erum við, sem staðgreiðum munina. — Hringið; við
komum strax. Peningarnir á borðið.
HÚSMUNASKÁLINN, Klapparstíg 29, sími 10099.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJÖLASTILLINGAR
MOTOHSTILLINGAH LJÚSASTILLIHGAH
Látið stilla í tíma. 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0
EFLUM OKKAR
HEIMABYGGÐ
■*-
SKIPTUM VIÐ
SPARISJÓÐINN
SAMBANÐ ÍSL. SPARISJOÐA
Magnús E. Baldvlnsson
laugavegi 12 - Slmi 22804
VERÐLAUNACRIPIR
FÉLACSMERKl
WTTUR KIRKJUNNAR
Hrifnæmi hjartans
í einu af ævintýnum sínum
segir H. C. Andersen í lok frá
sagnarinnar það lykilorð, sem
leysir alla gátuna. Og þau eru
oft notuð, þegar enginn þorir
að segja sitt og allir í vanda.
Þau orð eru í ævintýrinu
„Nýju fötin keisarans“ og
hvarfla oft í huga sem andóf
gagnvart þeirri múgsefjan, sem
nú gagntekur fjöldann einkum
gagnvart ýmiss konar verkum
og framikvæmdum. sem nefnast
einu nafni list eða listaverk.
í þessu ævintýri var keis-
arinn svo hrifinn af nýjum
tízkuklæ'ðnaði, að svo var, að
„eins og sagt er um konung"
hann er í ríkisráðinu, þá
var sagt um þennan: „Keis-
arinn er í klæðaskápnum.“
En svo munum við, hvem-
ig nokkrir vefarar komu hon-
um í skilning um, ao‘ til væri
efni í föt, sem þeir gætu fram
leitt, en hefði þann kostlega
eiginleika, að það væri ósýni
legt öllum, sem ekki væri hæf
ir til embættis síns eða þá
svo heimskur að ekki tæki
neinu tali.
Og þess vegna dirðist auð-
vitað enginn að viðurkenna, að
hann sæi ekki fatnaðinn og
fínu fötin keisarans. þar sem
hann spásseraði alls nakinn
undir hásætishimni sínum á
sýningunni.
En þá kvað lítið barn upp
úr með sannleikann og sagði
hin frægu og fleygu orð: „Hann
er ekki í neinu.“
Við megum satt að segja
oft gæta þess vel, að hafa
mec/ okikur og týna ekki þessu
hrifnæmi hjartans, sem barn-
ið er gætt og raunar allar sál-
ir í upphafi jarðvistar og Krist
ur nefnir hjartahreinleika og
segir um: „Sælir eru hjarta-
hreinir, því að þeir munu Guð
sjá.“
En ekki megum við þó held
Skólavörðustíg 3A, ÍL hæð.
Símar 22911 19255
FASTEIGN AK A UPENDUR
Vanti yður fasteign, þá hafið
samband við skrifstofu vora
Fasteignir af öllum stærðum
og gerðum. fullbúnar og í
smfðum
F ASTEIGN ASEL JENDTIK
Vinsamlegast látiS skrá fast-
eignir yðar hjá okkur Áherzla
";gð a góða oa öruasa þión
ustu. Leitið uppl. um verð oe
skilmála Makaskiftasamn. oft
mögulegir. Önnumst hvers
konar samnirv’saerð fvrir vður
Jón Arason, hdl.
Málflutningur fastcignasala
ur faUa í hina gröfina, sem
kemur fram í því að setja sig
alltaf gegn öllu sem fjöldinn
viðurkennir.
Hin barnslega sjón ein-
kennist af því, að hún skynj-
ar sannleika og fegurð jafnvel
án orða til ábendingar, og
þetta gerist nær ósjálfrátt eins
og bam skynjar góðleika og heil
indi og laðast af því til trausts
og fylgdar. en aftur á móti
skynjar það óheilindi, grimmd
og andúð af sama næmleika,
þótt slíkt sé vandlega falið og
dulið og hið sama má segja
um ófrýnileika, sem börn ótt-
ast, þótt hann sé búinn í for-
vitnilegar flíkur afkáraskapar-
ins.
Listamaður nokkur af eldri
kynslócíinni var á fundi meðal
ungra listamanna, sem flestir
eða allir dáðu „abstrakt“ list
svo nefnda.
Þeir töluðu margt og fátt
af jiinú'éldrá fann náð í þeirra
augum. Einar Jónsson og Thor
valdsen fengu þennan dóm:
„Ja, þeir geta verið góðir,
en list þeirra og tjáningarform
hæfir ekki okkar tíma.“ Og ým-
islegt fleira létu þeir fjúka í
þessum dúr, þangað til gamli
listamaðurinn þaut á fætur, sló
í borðið og sagði með ákafa:
Ekkert vil ég segja um ykk-
ar tíðbundnu list, en eitt er
víst, Einar Jónsson og Thor-
valdsen verða tignaðir, þegar
hún er öll komin á haugana.
af því að þeir eru í snertingu
við hina eilífu opinberum íeg
urðar, hið sígilda, eilífa, lífió'
sjálft Guð, sem verður aðeins
skynjað, með hrifnæmi hjart-
ans.
Það sló þögn á samkomuna,
þegar gamli maðurinn að mælt
um þessum orðum gekk snúð-
ugt til dyra.
En það eru ekki einungis
Einar og Thorvaldsen sem eiga
að víkja. Sama listaskynjun,
sem dæmir þá úr leik telur
Göthe „leiðindasnobbara". og
Beethoven fjarri því að stand-
ast samanburð við nútíma tmeist
ara.“
VIPFU - BllSKÚRSHURBIN
Lagerstærðir miðað við múróp:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - X - 270sm
Aðrar stærðir. smiSaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síáumúla 12 - Sími 38220
SUNNUDAGUR 14. marz 1971
En eitt er víst, a& eftir 50
ár verður það flestallt gleymt,
en þeir hylltir enn sem fyrri,
ef mannkynið meingast ekki að
innstu hjartarótum.
Vel má kirkjan gæta sín á
þessum vegum. Svo mikil nauð
syn sem henni er þó að fylgj-
ast með öllum lífshræringuum
fólks í blíðu og stríðu, illu og
góðu, því til verndar og leið-
beiningar, þá má hún aldrei
verða af fljót á sér. né stíga yf
ir takmörk, sem samrýmzt geta
hinu sanna og fagra, sem er í
snertingu við eilífðina.
Þess ber ekki sízt að minn-
ast nú þegar æskunni er helg
aður tíminn í fermingum og
æskulýðsmessum á ýmsan hátt.
Það er tæpast til bóta og
varla á Guc/s vegum þegar sam
komur erlendis þar sem þús-
undir unglinga koma saman ein
kennast af öskrandi hávaða og
flestir missa öll tök á sjálfum
sér, öskra, æpa, trampa, grenja,
flissa, þasta skóm og klæðnaði,
froðufella og falla í yfirlið,
standandi á bekkjum, liggjandi
á gólfi eða stormandi upp á
hljómsveitarpall með æðisgegn
um ofsa.
Vart gæti kirkjunni orðið
þént með slíku hugarfari, þótt
þar væri sérhver bekkur set-
inn.
Helzt mætti halda að þessi
lýsing ætti við í Afrí'ku, en
þetta og þessu líkt hefur orðið
víða í Evrópu og meira að
segja í stórum kirkjum hin síð
ustu ár.
En eitt er víst, þama er leik-
W á ljúfustu strengi, við-
kvæmra hjartna, með taktsprota
hins illa, múgæsinga og mar-
traðar.
í kirkjúnum þarf að ríkja
friður og fegurð. Þær eru oft-
ast t. d. í stórborgunum einu
staðirnir sem þögn og forsæla
sveipast um þreyttan ferðalang,
pílagrím í friðarleit.
Þar ætti hreinleiki hjartans
að fá svar við sitt hæfi. Ný-
tízkulist, með allan sinn há-
vaða, glamur og krjábull, hvort
sem það er á sýningum eða
í sönghöllum hefur auðvitað
sinn rétt, meðan hún svarar
einhverri þörf í sálum fólks-
ins.
„En það er ekki allt gulL
sem glóir,“ ekki allt list, sem
nefnt er því nafni.
Þess vegna skulum vic? hlusta
og horfa með hugarfari barns-
inis og hrifnæmi þess hjarta,
sem sér gegnum blekkingam-
ar. sem Andersen varar við í
ævintýrinu um „nýju fötin keis
arans.
Hann átti einmitt þetta hrif
næma hjarta, þessa hreinu sál,
sem varðveitti heila sjón, sem
sá gegnum grímubúning blekk-
in-ganna.
Árelíus Níelsson.
Skákkeppnin
Svart: Taflfélag Akureyrar:
Jóhann SnorrasoD og
Margeir Steingrimsson.
vaaaaaoB
ABCDEFGB
Hvitt: Taflfélag Reykjavfknr:
Gunnar Gunnarsson
og Traustl Björnsson.
29. leikur svarts: b7—b5.