Tíminn - 09.05.1971, Side 3
SUNNUDAGUR 9. maí 1971
TÍMINN
3
„VIÐ ERUM ÖLL FALLEG
BLÓM í SAMA GARÐINUM"
Ný útgáfa með plötu
eftir nýjan lagasmið
Á mánudagskvöldið í liðinni
viku, komu nokkrir meðlimir
popphljómsveita í Reykjavík,
saman niður í Ríkisútvarpi
ásamt nokkrum öðrum, til þess
að spila inn á hljómplötu tvö
lög eftir Óttar Felix Hauksson,
MUF skýrði frá því í vetur að
Óttar hefði farið til Kanaríeyja
til lagasmíðá og er hér um
tvö lög að ræða er hann full-
gerði þar suðurfrá. Óttar mun
syngja lögin, en ekki er búið
að taka upp sönginn. Verður
það gert bráðlega, að því er
Óttar sagði MUF. Sá sem
stendur fyrir útgáfu plötunn-
ar heitir Friðrik Brekkan og
hefur hann stofnað eigið
hljómplötuútgáfufyrirtæki.
Ekki mun vera fullákveðið
hvenær umrædd plata kemur
út, en eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma, er hér um plötu
að ræða, sem á eftir að vekja
athygli.
Rætt við tvo Bahá'ía á íslandi, Margréti Bárðardóttur
og Gisbert Schaal
„..LIFUN“ VÆNTANLEGT k
PLÖTU í ÞESSUM MÁNUÐi
f Breiðfirðingabúð hér í
Reykjavík hafa nokkur kvöld
viku hverrar nú undanfarið,
safnazt saman hópur ung-
menna. Þar hafa þau setið,
stundum langt fram yfir mið-
nætti, böðuð rauðum ljósum,
undir rólegri tónlist og rætt
saman. Oft hefur verið fjöl-
mennt þar á þingi og umræð-
ur orðið fjörugar. Það sem
einkum hefur verið rætt um
er björgun mannkynsins úr
þeim háska, sem það hefur
stefnt sér L
Ljóst var að Reykjavíkurlög
reglan hafði augastað á þess-
um samkomum ungmennanna.
Föstudagskvöld eitt fyrir
skömmu lét hún til skarar
skríða. Tveir einkennisklædd
ir lögregluþjónar héldu inn-
reið sína á staðinn og spurðust
íyrir um það, hvað um væri
að vera. Augljóst er að þessir
lögregluþjónar — að minnsta
feosö yfirmenn þeirra — álitu
a® þama væru um annað að
nrSa, en raun bar vitni. Ef til
vfll var það eðlilegt eftir þeim
ftegmnn, sem stundum berast
af ungu fðlki, hvort sem þær
eru réttar eða rangar.' Hins
vegar er það þessum tveim lög
regluþjónum til lofs, að þegar
þeir höfðu kannað andrúms-
loftið, sem á samkomunni
ríkti, hurfu þeir á braut.
Það eru nokkur ungmenni,
sem að þessum kvöldvökum
standa í Breiðfirðingabúð.
Þessi ungmenni hafa lagt
traust sitt á perskneskan
mann, að nafni Bahá ú lláh
(dýrð guðs), 1817—1892, er
kom fram með guðlegar kenn
ingar um sameiningu mann-
kyns og alheimsfrið. Af kenn-
ingum hans hefur sprottið trú-
arhreyfingu, Baháí, sem breiðzt
hefur út um allan heim. Hér
á landi voru til skamms tíma
nokkrir fslendingar í Baháí
trúarbrögðunum, en núna virð
ist sem ungt fólk hér, eins og
í öðrum löndum heims, hafi
fundið leið gegn um kenning-
ar Bha‘ ul ‘lah til þess að
byggja upp nýjan og betri
heim. Það sem einkum hefur
vakið athygli á Bah ‘hí trúar-
brögðunum, eru hljómleikar
með bandarískum piltum, sem
kalla sig Seals & Crofts, er
haldnir -voru fyrir skömmu í
Háskólabíói, gestum að kostn-
aðarlausu. Þessir piltar eru ein
dregnir fylgendur Baha'aí trú-
arbragðanna. Háskólabíó fyllt-
ist af ungu fólki, sem hlýddi
með hrifningu á hljóðfæra-
leik piitanna. Frá hljómleikun
um hefur ungt fólk hér í
Reykjavík mikið rætt um
Bah'aí trúnna. ■ ' ‘>ci
Af þessurp ástæðum fékk
ég, fyrir nokkru, til viðtals við
mig, 26 ára pilt frá Stuttgard
í Þýzkalandi, Gisbert Schaal,
en hann hefur frá blautu
barnsbeini verið í Bah'aí trú-
arbragðaflokknum. Gisbert
kom hingað til lands fyrir
skömmu og vinnur sem tré-
smiður í Kópavogi. Um leið
átti ég einnig tal við unga
stúlku, Margréti Bárðardóttur,
er stundar nám við Mennta-
skólann í Hamrahlíð, en hún
mun vera einn áhugasamasti
Bah'aíinn hér á landi og hélt
um daginn til Kanada til að
taka þátt í ráðstefnu Bah'afa.
— Hver er trú ykkar, spurði
ég Gisbert.
— Bha'íar trúa, að eðli trú-
arbragða sé eitt og hið sama
og allir miklir spámenn séu
sendir frá einum og sama
Guði, t.d. Kristur, Búddah,
^lúhamed o.fl. til að fræða
kynslóðir þeirra tíma. Fyrir
hundrað árum kom svo
Bahá'u'lláh. Hann kom með
guðlegt alheimsskipulag.
— Við erum öll ávextir á
einu og sama trénu, lauf af
einni grein, sagði hann. í dag
þarf að sameina heiminn,
Bahá'u'lláh kom með kerfið til
að byggja á.
— Og hvernig er kerfið?
Gisbert sagði, að ef ætti að
útskýra það út í yztu æsar,
þyrfti eðlilega mikinn tíma og
mikið rúm í blaðinu, en í
stuttu máli útskýrði hann kerf
ið þannig:
— Bahá‘u‘lláh segir við okk
ur að til þess að gefa byggt
upp réttlátan heim þurfum
við að byrja á okkur sjálfum,
gera okkur sjálf að betri
manneskjum. Síðan getum við
farið út í þjóðfélagið og reynt
að hafa áhrif .
■8 Margrét skýtur inn í, að um
léið og-1 ‘við1 byrjutn á’1 því11 að
byggja upp það góða í okkur,
höfum við strax góð áhrif á
aðra — það er staðreynd.
— Hvers vegna ert þú
Bah'aí Gisbert?
— Til þess að hjálpa við að
byggja upp sameiningu í heim
inum, stuðla að alheimsfriði.
Ég spurði Gisbert og Mar-
gréti margra spurninga til
þess að fræðast betur. Það sem
fram kom var, að ef ég gengi
í Bah‘í trúarbrögðin, væri ég
ekki þar með að afneita fyrri
trú minni, því að gerist t.d.
kristinn maður Baha‘1, afneit-
ar hann ekki Kristi, Hann leit-
ar frekari gnóttar, áframhaldi
þess, er Kristur kenndi. Stefna
Bah'aía í umgengni við aðra
manneskju er að dæma hana
eftir góðu eiginleikum hennar.
Abdul Bahaá, sonur spámanns
ins, sagði að ef einhver ein-
staklingur hefur 9 slæma eig-
inleika og 1 góðan, þá eigi
maður að gleyma þeim 9, ein-
ungis að muna þann eina
góða. — Ég spurði um áróð-
urstækni Bah'aía við að koma
fólki inn á þeirra stefnu.
— Þar sem við höfum enga
prestastétt, hafa allir Bah'aíar
jafna ábyrgð til að kenna
Bah'aí trúna eftir getu hvers
og eins. Eitt af aðal lögmálum
Bah'aí trúarbragðanna er sjálf
stæð leit að sannleikanum.
Það eina sem Bah’aíar gera er
að boða einstakl. kenningar
Bahau’llah. Bah’aíar mega ekki
þröngva þeim upp á neinn.
— Ég spurði Gisbert hvað
hljómleikarnir með Seals &
Crofts í Háskólabíói hefðu ver
ið.
— Það var fyrst og fremst
gjöf til íslands. Seals & Crofts
langaði til að koma hingað,
gefa ykkur kost á að hlýða á
tónlist þeirra, svaraði Bisbei-t.
Um útbreiðslu trúarbragð-
anna sögðu Margrét og Gis-
bert, að Bah‘aí trúarbrögðin
Framhald á bls. 10.
Þá getum við bráðlega lilust-
að á „ . .lifun“ Trúbrots af
hljómplötu, en Tónaútgáfan
stefnir að því að koma plöt-
unni á markað síðar í þessum
mánuði. Jón Ármannsson hjá
Tónaútgáfunni hafði 20. maí í
huga í því sambandi, er MUF
ræddi við hann fyrir tveim
dögum, en tók fram, að eðli-
lega væri ekki hægt að binda
útgáfuna við ákveðinn dag.
Jón sagði, að stöðugt væri
unnið við væntanlega LP-plötu
með Björgvini Halldórssyni,
þar sem m.a. verða lög eftir
Björgvin sjálfan. Þá eru Jón-
as R. Jónsson, Magnús Eiríks-
son og Jón Cortes að vinna
saman að lagagerð og var á
Jóni Ármannssyni að heyra,
að hann hefði áhuga á því sem
þeir þremenningar væru að
gera.
Margrét Bárðardóttir og Gisbert Schaal
— Til þess að byggja upp réttlátan heim, þurfum við að byrja á okkur
siálfum. (Tímamynd Gunnar)
BIFREIÐASTJÓRAR
Við kaupum slitna sólningarhæfa NYLONHJÓLBARÐA,
kr. 200,00
- 250,00
- 300,00
- 800,00
- 1000,00
- 1200,00
1400,00
ÚTBOÐ
Kópavogskaupstaður óskar eftir tilboðum í hol-
ræsalögn í Nýbýlaveg og nágrenni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu minni að
Melgerði 10, gagn 2.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 17. maí kl.
11 f.h.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
Jarðir
Hefi kaupendur að jörðum og landsspildum,
einnig kaupanda að jörð með jarðhita.
Bókhaldsskrifstofa Suðurlands
Hveragerði. Sími 99-4290.
á verði, sem hér segir:
Fólksbiladekk:
flestar stærðir
Jeppadekk:
600—650
700—750
Vörubíiadekk:
825X20
900X20
1000X20
1100X20
BARÐINN H.F.
Ármúla 7, Reykjavik, sími 30501