Tíminn - 20.05.1971, Blaðsíða 12

Tíminn - 20.05.1971, Blaðsíða 12
Fimmtudagur 20. maí 1971. ■ DRIFA VIÐAR LATIN FB—Reykjavík, miðvikudag. í morgun lézt í Reykjavík Drífa Viðar Thoroddsen. Hún var fœdd 5. marz 1920, dóttir hjón anna Katrínar Viðar fæddrar Nor mann og Einars Indriðasonar Viðar. Drífa varð stúdent frá Monntaskólanum í Reykjavík 1938. Eftir það lagði hún stund á málaralist í Frakklandi og Banda ríkjunum. Hún var gift Skúla Thoroddsen lækni, og áttu þau fjögur börn. Iðunn fullvinnur pelsaskinn EB—Reykjavík, miðvikudag. Fram kemur í fréttabréfi frá Sambandi ísl. samvinnufélaga, að það háir talsvert framleiðslu pelsa hér á landi, liversu tilfinn anleg vöntun er á feldskcrum í landinu, og sama gildir um tæknimcnn í leðursútun. í Iðunni hefur frá því í maí í fyrra verið unnið við sútun, jafnhliða því sem byggð var upp verksmiðja til full- vinnslu pelsaskinna. Rekstur- inn er nú kominn á það stig, að þegar hefux verið hafizt handa um þessa vinnslu, en skinnin verða að hluta flutt út og að hluta saumuð í pelsa hjá Fataverksmiðjunni Hcklu. Þá er nýlega tekin til starfa verksmiðja í Borgarnesi, til framleiðslu á kuldahúfum úr pelsaskinnum frá Iðunni. Þar verða framleiddar kven- karla-, unglinga- og barnahúfur. í fyrsta áfanga er áætlað að framleiða 15—20 þús. húfur á ári fyrir innlendan og erlend an markað. Björgvin Óskar Bjarnason er verksmiðjustjóri, en hann dvaldi um hríð í S-Þýzkalandi og kynnti sér þessa framlciðslu. Alls vinna 10 manns í verksmiðjunni nú sem stendur. S FRAMBOÐSFUNDIR í REYKJANESKJÖRDÆMI Sameiginlegir framboðsfundir frambjóðenda í Rcykjaneskjör- dæmi fyrir Alþingiskosningarnar 13. júní næstkomandi, verða lialdnir á eftirtöldum stöðum í kjördæminu: Mánudaginn 24. maí í Félagshcimilinu Seltjarnarnesi, kl. 20:30. Fimmtudaginn 27. maí í Hlégarði, Mosfellssveit, kl. 20:30. Miðvikudaginn 2. júní í Slapa, Njarðvíkum, kl. 20:30. Laugardaginn 5. júní í Bæjarbíói, Hafnarfirði, kl. 14:00. Miðvikudaginn 9. júní í Víghólaskóla, Kópavogi, kl. 20:30. Frambjóðendur. ísfirðingar - Vestfirðingar Framsóknarfélögin á fsafirði boða til almcnns stjórnmálafundar í kvöld, fimmtudaginn 20. maí, kl. 8,30 að Uppsölum, ísafirði. Frambjóðendur flokksins, Steingrímur Hermannsson, Bjarni Guð- björnsson, Halldór Kristjánsson og Ólafur Þórðarson, flytja stuttar framsöguræður. Að þeim loknum hefjast almennar um- ræður. Steingrímur Bjarnl Haildór Ólafor Kosningadag- skrá útvarps EJ—Reykjavík, miðvikudag. í gær gekk útvarpsráð frá kosningadagskrá liljóðvarps og sjónvarps fyrir alþingiskosning- arnar 13. júní. f sjónvarpinu verður sérstök flokkakynning, framboðsfundur og liringborðs- umræður formanna flokkanna, en í hljóðvarpinu sérstakar út- varpsumræður. Fyrir fundi útvarpsráös lá beiðni frá Framboðsflokknum, sem býður fram í þremur kjör- dæmum, um að hann fengi að taka þátt í öllum kosningadag- skrám útvarpsins til jafns við aðra flokka. Tveir útvarpsráðsmenn, Þór- arinn Þórarinsson og Þorsteinn Hannesson, fulltrúar framsókn- armanna, lögðu til að ráðið féll- ist á þessa bciðni. Meirihluti útvarpsráðs, fjórir fulltrúar stjórnarflokkanna, sam þykktu hins vegar að Framboðs- flokkurinn fengi þátttöku í öd- um kosningadagskrám nema hringborðsfundi formanna flokk anna í sjónvarpinu. Þórarinn og Þorsteinn greiddu atkvæði gegn því, en Björn Th. Björnsson sat hjá. Björn hafði áður flutt til- lögu um að hringborðsfundur yrði bundinn við þingflokka og útiloka þannig Framboðsflokk- inn frá þátttökú í þeim sjón- varpsfundi, en sú tillaga var felld með öllum atkvæðum gegn einu. Kona fyrir bíl á^gang- braut á Hringbraut OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Hringbraut í dag. Þar var ekið á konu, sem var á leiö yfir götuna og gekk á merktri gangbraut, sem er rétt á móts við Umferðarmiðstöð- ina og er margoft búið að aka á fójk á þessari gangbraut og beggja vegna í námunda við hana. Konan sem ekið var á í dag er 26 ára gömul. Hlaut hún mikið höfuðhögg og er mikið slösuð. f kvöld var hún enn í rannsókn og aðgerð á Borgarsjúkrahúsinu. Þegar lög reglan atliugaði bílinn, sem. er jeppi, eftir slysið, var hann hemlalaus og var hann tckinn af skrá. Konan var á gangi suður yfir Stuðningsfólk B-listans á Vestfjörðum I HITASTIG HVITAR ER 6-7 GRÁÐUR Kosningaskrifstofan á ísafirði er að Hafnarstræti 7 — 4. hæð sími: 3690. Skrifstofan er opin frá kl. 9—19. Norðurlandskjördæmi vestra Frambjóðendur Framsóknarflokksins boða til almenns kjósenda- fundar á Hvammstanga, næstkomandi sunnudag kl. 3 síðdegis. Frambjóðcndur Ólafur Björn Magnús Stefán — og útlitið því gott fyrir netaveiðimenn Meirihluti útvarpsráðs rök- studdi útilokun Framboðsflokks ins frá hringborðsfundinum með því, að flokkurinn byði aðeins fram í nokkrum kjördæmum. Svipað hafi verið 1967, þegar flokkur Áka Jakobssonar bauð fram í tveimur kjördæmum og hafi hann verið útilokaður frá hringborðsfundi formannanna með sömu rökum. Vert er að geta þess, að við afgreiðslu þess máls í útvarpsráði 1967 létu full trúar Framsóknarflokksins bóka það, að þeir teldu rétt að flokk- ur Áka fengi að taka þátt í öll- um kosningadagskrám til jafns við aðra flokka, sem þá buðu fram. Dagskráin í útvarpinu verður annars sem hér segir: Flokkakynning í sjónvarpinu 25. og 26. maí nk. Hver flokkur fær 20 mínútur og verða þætt- irnir teknir upp í sjónvarpssal á laugardaginn. Þrír flokkar verða kynntir hvort kvöldið og verður dregið um röð flokkanna. Framboðsfundur í sjónvarps- sal 1. júní. Umferðir verða fjór- ar, 7 — 5 — 5 — 5 mínútur. Hringborðsfundur formanna flokkanna í sjónvarpinu 8. júní. Formenn flokkanna eða fulltrú- ar, sem þcir tilnefna, taka þátt í fundinum — nema formaður Framboðsflokksins. Útvarpsumræður í hljóðvarp- inu 10. júní. Þrjár umræður verða, 15 — 10 — 5 mínútur. Hringbraut í átt að Umferðar miðstöðinni er hún varð fyrir bílnum. Lenti hún á öðru fram brettinu og kom brot í það á tveim stöðum við áreksturinn — og kastaðist upp á bílinn og lenti með höfuðið á framrúð unni, sem brotnaði. Kastaðist konan með bílnum inn á mið gatnamót Laufásvegar. Bíllinn var á vesturleið. Eftir áreksturinn sveigði bílstjórinn til vinstri, yfir á vinstri ak- brautina, og ók þar á móti umferðinni og upp á graseyj una milli akbrautanna og stöðv aðist um 100 metra frá gang- brautinni þar sem áreksturinn varð. Engin hemlaför sáust eft ir bílinn. Framhald á bls. 22 HEILDARVELTA IÐNAÐARDEILD AR SÍS JÚKST 45% S.L. ÁR EB—Reykjavík, miðvikudag. I nýútkomnum Sambandsfrétt um kemur fram að heildarvelta Iðnaðardeildar Sambandsins jókst um rúmlega 45% 1970, borið sam an við 1969. Þá er afkoma deild arinnar ennfremur mjög góð á árinu, að því er Harry Frederik sen framkvæmdastjóri dcildarinn ar segir. Þá kemur fram að í hinni end- urbyggðu skóverksmiðju Iðunnar er framleiðsla nú hafin með full- um afköstum. Þar eru framleidd 7—8 þús. pör á mánuði. Er hér um að ræða kven-, karla- og ungl inga- og barnaskó. Þá hefur fram leiðsla á kuldaskóm farið mjög vaxandi og sérstaklega á það við um skinnfóðraða kuldaskó, sem cru mjög eftirsóttir. f Gcfjun voru settar upp tvær nýjar vélar í fyrra, spunavél og kembivél. Gefjun framleiðir eink um, eins og kuniiugt er, fataefni, gluggatjaldaefni, ullargarn, ullar lopa og ullarteppi, sem seld eru til Sovétríkjanna. 1970 voru seld þangað 60,800 teppi, en um fjórði hluti framlciðslunnar fer til út- flutnings. ÞOTAN KEM- UR I DAG — lendir í Rvík kl. 14,00 ET—Reykjavík, miðvikudag. Hin nýja þota Flugfélags fs- lands er væntanleg til Reykjavík ur á morgun, fimmtudag, og mun lenda á Reykjavíkurflugvelli kl. 14, þar sem móttökuathöfn fer fram. Þotunni verður gefið nafn og Ingólfur Jónsson, samgöngu málaráðherra og Birgir Kjaran, stjórnarformaður Flugfélagsins flytja ávörp. Flugfélagið býður alla vclkomna til móttökuatliafnar innar, sem fer fram við afgreiðslu félagsins á Reykjavíkurflugvelli. Þotan, sem hlotið hefur ein- kennisstafina TF-FIA, var afhent Flugfélaginu í gær kl. 15 að ísl. tíma og veitti Sigurður Matthías son, fulltrúi, þotunni viðtöku f.h. félagsins. Þotan er nú í Middle ton í Pennsylvaníu-fylki í Banda ríkjunum og mun leggja af stað til Reykjavíkur í fyrramálið, þ. e. á fimmtudagsmorgun. Flug- stjóri þotunnar verður Anton Axelsson, en eins og áður sagði lendir þotan á Reykjavíkurflug- velli kl. 14 á fimmtudag. EB-Reykjavík, miðvikudag. Kristján Fjcldsted, bóndi í Fcrjukoti í Borgarfirði, kvað útlit gott fyrir netaveiði í Hvítá, er Tíminn ræddi við liann í dag. Sagði liann að þcgar hitastig vatns ins í ánni liefði verið mælt s.l. sunnudag, hcfði það reynzt 6—7 stiga heitt, og er það óvcnju- legt miðað við árstíma, t.d. var hitastigið í ánni 4—5 stig á sama tíma í fyrra. Vatnið í ánni er rétt yfir meðallag og er það sæmilega hreint. l.axveiði í net hófst í dag, og lýkur 2U. ágúst að venju. Þegar hitastig ánna er orðið 6—7 stig fer laxinn að ganga í þær fyrir alvöru, þannig að ef ekki breytist til hins verra, geng- ur laxinn óvenju snemma í árn- ar. — í fyrra var hitastig Hvítár á þessum tíma 4—5 stig eins og fyrr segir og veiðin því treg fyrir nctaveiðibændur framan af. Um mánaðamótin maí—júní fór svo nð hlýna. IJrðu þá mikil flóð 1 nnni svo að veiðimenn áttu í erfið leikum með að athafna sig um tíma. Netaveiðin i Hvítá var hins vegar fyrir ofan meðallag í fyrra. TVO BORN FYRIR BÍL OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Ekið var á tvö börn, sem voru á sama reiðhjólinu, á Hringbraut í gærkvöldi. Er drengurinn átta ára og telp an yngri. Óku þau á hjólinu þvert yfir á akbraut og lentu þar fyrir bíl. Drengurinn er lærbrotinn og með áverka á andliti og telp- an er með mikla áverka á and- liti, og er sennilega kinnbeins- brotin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.