Tíminn - 09.07.1971, Side 2
TIMINN
FÖSTUDAGUR 9. júlí 1971
Tónabær breytir um svip
Leiktækjasalur opnaður i kjaElara hússins
ET-Reykjavík, fimmtudag.
Starfsemi sú, er Æskulýðsráð
Reykjavíkur hefur rekið í Tóna-
bæ, er nú hafin aftur af fullum
krafti eftir margvíslegar breyting
ar í húsnæðinu. Danssalurinn á
efri hæð hússins hefur verið inn-
réttaður á mjög nýstárlegan og
skemmtilegan hátt. f kjallara húss
ins hefur svo verið opnaður leik-
tækjasalur og í ráði er að opna
annan sal í kjallaranum til funda-
halda og ýmisssar annarrar starf-
semi.
Þetta kom fram á fundi forráða-
manna hússins með blaðamönnum
í gær. Þar var kynnt föst viku-
dagskrá, sem farið verður eftir í
sumar. Skv. henni verður opið
hús fyrir 14 ára og eldri á þriðju
dögum og fimmtudögum, opið hús
fyrir 16 ára og eldri á miðviku-
dögum, og svo dansleikir fyrir
16 ára og eldri á föstudögum og
14 ára og eldri á laugardögum.
Sunnudags- og mánudagskvöld
verður húsið leigt út.
Leiktækjasalurinn verður opinn
alla daga frá kl. 4 á daginn, og
eins á kvöldin, þegar eitthvað er
um að vera í húsinu. Á opnu húsi
er diskótek starfandi, en á dans-
leikjunum spila þekktar hljóm-
sveitir. Bananð er að neyta áfongis
f húsinu og drukknum unglingum
er ekki hleypt inn. Aðspurður
sagði Kolbeinn Pálsson, framkv-
stjóri hússins, (fflð yfirleitt væri
ekki vandamál ,f samþandi við
víndrykkju unglinga á skemmtun
um í Tónabæ. Unglingarnir
skemmtu sér flestir án áfengis
og mjög fáir reyndu að koma víni
inn í húsið.
Danssalurinn er mjög smekk-
lega innréttaður; hljómsveitarpall
Framhaíd á bls. 14.
Mynd úr hinum nýja leiktækjasal í Tónabæ.
A8 deyja drottni
sínum í dreifbýlinu.
Læknaskorturinn í dreifbýli tekur
á sig undarlegustu myndir. Fólk i
heilum byggðarlögum sér etoki lækni
svo mánuðum skiptlr, og verður að
treysta á að gott heilsufar bregðist
ekki. A sama tíma er veinað og
kveinað út af hörmungum erlendis
og öllum minnstu frávikum í þétt-
býli, því þar verður allt að standa
eins og stafur á bók um heiisugæzlu
og hreinlœti og úrbætur þegar þján-
ingar herja. Mitt í öllu þessu stranga
almenningsáliti heyra-st svo fréttir
af því að loks eftir níu mánuði birt-
ist læknir í einni eða annarri sveit-
inni, alveg eins og hann hafi reikizt
þangað af tilviljun. Gott ef heil-
brigðu fólki í slikri læknislausri
sveit liggur kiki við yfirliðum út af
gestakomunni. Að minnsta kosti verð
ur það ámóta hissa og þeir sem yrðu
fyrir því að horfa á dinos-ár þramrna
niður Laugaveginn.
Hvort sem það er nú af tilviljun
eða ekki, þá vekur það athygli þeg-
ar læknir lætur líða ndu mánuði á
milli heimsókna — og þó einkum
spurningar. Eiga menn a^ binda
vonir um fjöl-gun þjóðarinnar við
(Slíikar heimsóknir? Er þetta ábend-
mg um að sv-o bezt verði öryggi við
ba-rnsfæðingar trygg-t að fóltk hafi í
huga að fyrst læknirinn sé kominn
megi reikna með, að hann komi aft-
ur eftir níu mánuði, og því sé ein-
slkis að bíða að gera tilraun til erf-
in-gja. Með þessu móti væri kannski
hægt að auðvelda læknisaðstoðina að
einu leyti. Hins vegar mundi svona
fyrirkomulag ekki gilda, og gildir
ekki um bráða sjúkdóma. Fóiki gengi
erfiðlega að bíða með botnlangann
sinn í slíku níu mánaða kerfi eða þá
lungnabélguna. Um smás-kítleg veik-
indi eins og kvef og flenzu og ígerð-
ir ýmiskonar, tannpínu og beinbrot
þarf ekki að tala. Þá dettur þetta af-
skipta fólk umsvifailaust út úr tutt-
ugustu öldinni og aftur til þeirra
tíma, þegar gott þótti að leggja volga
mykju við bólgum og skúm við opn-
um ígerðum.
Nei, við ættum elkki a-ð vera að
hafa áhyggjur af sjúkdómum og á-
föllum vítt um heim9byggðina á með
an fól-k í þessu litla 1-andi nýtur ekki
frumatriða læknislegrar umhyggju.
Hinar mikl-u og fjársöfnunarglöðu
hjálparstofnanir obkar ýmsar ættu
að snúa sér að lön-dum sínum, og
freista þess að 1-étta af þeim neyðar-
ástandinu í heilbrigðismálum, í stað
þess að flytja mannkærleikann úr
landi, þótt fal-legt sé. Farandlæknar
geta ekki meö nokkru móti bjargað
málinu. Öumbreytt er að allir þegnar
lan-dsins eiga jafnan rétt til læknis.
Það er bara þegjandi og hljóðal-aust
verlð að svíkja þennan rétt á mönn-
um, konum og börnum, sem dreift
búa, án þess að þeir sem eiga að
ráða bót á vand-inum fái svo mikið
sem hnerra.
Svarthöfði.
Forráðamenn Tónabæja-r: (frá
vlnstri) Kolbeinn Pálsson, framkv.-
stjórl, Pétur Sveinbjarnarson, Henný
Hermannsdóttir og Sigurjón Sig-
hvatsson.
SYNING
FRAMLENGD
SB-Reykjavík, fimmtudag.
Undanfarið hefur Árni Finn-
bogason frá Vestmannaeyjum sýnt
teikningar í sýningarsalnum að
Ingólfsstræti 3. Sýningunni átti að
ljúka á þriðjudag, en hún hefur
verið framlengd til sunnudags-
kvölds.
Myndirnar, sem eru 50 að tölu,
eru manna- og landslagsmyndir
og eru allar til sölu. Þegar hafa
10 myndir selzt og aðsökn að sýn-
ingunni hefar verið góð.
Mikil vinna
á Húsavík
ÞÓ-Reykjavík, fimmtudag,
Á Húsavík hafa verið ágæt afla
brögð í vor og í sumar og þar
af leiðandi hefur mikil vinna verið
hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
Einng hefur mikið verið unnið
að byggingaframkvæmdum á
staðnum.
Afli færa- og nótabáta hefur
verið með miklum ágætum á Húsa
vík í sumar. Færabátamir sækja
stutt út á Skjálfanda, en nóta-
bátarnir sækja austur í Þistilfjörð,
en þó að afli færabátanna sé góð-
ur, er uppistaðan í aflanum neta
fiskur og er það sæmilegur fisk-
ur, eftir því sem Tryggvi Finns-
son hjá Fiskiðjusamlagi Húsavík-
ur tjáði Tímanum í dag. Tryggvi
sagði ennfremur að nú væri unnið
á vöktum hjá Fiskiðjusamlaginu
og alls ynnu þar um 200 manns.
Tryggvi sagði ennfremur. að ekki
væri gott að segja um, hve lengi
netafiskurinn entist, hann væri
eins og síldin, færi jafn skjótt og
hann kæmi. 1. uðjusamlag Húsa-
víkur hefur framleitt 23000 kassa
af freðfiski á þessu ári, einnig
hefur verið saltað hjá því 160
til 170 tonn af fullsöltuðum fiski.
Tíminn hafði einnig samband
við fréttaritara sinn á Húsavík,
Þormóð Jónsson, og spurði hann
um byggingaframkvæmdir á staðn
um. Þormóður sagði, að nokkuð
mikið væri byggt þar í sumar, unn
ið væri að byggingu margra íbúð-
arhúsa, einnig væru í byggingu
sláturhús sem kaupfélagið ætti,
bankaútibú í eign Landsbankans
og svo væri verið ac, byggja hótel.
En sem kunnugt er brann hótelið
á Hú__.vík eigi alls fyrir löngu.
Að lokum sagði Þormóður, að
bændur þar í kring væru að hefja
slátt, nokkrir væru byrjaðir, og
fleiri hefðu vafalaust byrjað í
dag og á morgun, ef það
hefði ekki byrjað að rigna af
miklum krafti í morgun, en nú
er eitthvað að létta til, og við
skulum vona að tíðin lagist þann
ig að hún verði ens og hún hefur
verið undanfarna daga, sagði hann
að lokum.
Aksturinn
hækkar
ekki
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Einhver illkvittinn maður setti
í dag auglýsingu í Vísi þess efnis
að ökugjald hjá Bæjarleiðum
hækkaði um 6%. Samkvæmt upp-
lýsingum Bæjarleiða á þetta ekki
við nein rök að styðjast, og er
eftir sem áður, sama ökugjald hjá
þeim, og öðrum bifreiðastöðvum
í Reykjavík.
SÆMILEGUR ARI
A GRAtllDUNNI
ÞÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Fyrstu grálúðubátarnir munu
hafa hafið veiðar ’skömmu eftir
sjómannadaginn, og voru það Vest
fjarðabátar. En eftir miðjan júní-
mánuð fór bátunum að fjölga, og
eru þeir nú úr öllum landsfjórð-
ungum. Alls munu nú vera komn
ir yfir 20 bátar á grálúðuveiðar og
bátarnir sem voru á línuveiðum
við Grænland munu nú allir vera
komnir á grálúðu. Afli grálúðu-
bátanna mun vera alveg sæmileg
ur, þetta frá 50 til 70 lestir í róðri,
en bátarnir eru 7—10 daga í veiði
ferðinni.
Tíðarfar hefur verið sæmilegt
á miðunum nen. í síðustu viku,
þá var norðan bræla mestan hluta
vikunnar, og gekk þá illa að
draga, en sem kunnugt er þá
tollir grálúðan iila á önglinum,
þegar leiðinlegt er í sjóir.n. Ef
veður helzt sæmilegt í sumar, eru
útgerðarmenn og sjómenn bjart-
sýnir á grálúðuveiðina, en sem
kunnugt er, var grálúðuvertíðin
í fyaca frekar léleg, að minnsta
kosti ef miðað er við árið áður.
Verð á grálúðu í sumar er 12,75
kr. fyrir 1. flokk og fyrir annan
flokk er verðið kr. 9.35 pr. kg.
Aflinn, sem grálúðubátarnir hafa
komið með, hefur farið að mestu
í fyrsta flokk, eða 75 til 80%.
pn
uu
lli
L angá á Mýrum
Þegar Veiðihornið hafði sam-
band við Veiðihúsið við Langá
á Mýrum, voru komnir 195 laxar
á 1-nd á neðra svæðinu en haldið
var, að um það bil 250 laxar væru
komnir á ...nd úr allri ánni.
Laxinn sem veiðist á Langá er
frekar lítill, meðalvigtin er þetta
4 til 5 pund, en sá stærsti er 14
pund. í gær komu 40 laxar úr
Langá, og eftir því að dæma virð
ist vera góð ganga í ánni.
Laxinn úr Langá er ýmist
veiddur á maðk eða flugu.
Vatnsdalsá
Við höfðum samband við veiði-
húsið Flóðvar.g í Vatnsdal í dag,
cg spurðumst fyrir um veiði. Sá
sem varð fyrir svörum vissi ekki
nákvæmlega um hve margir lax-
ar væru komnir þar á lnnd. en
sagði samt, að þeir myndu vera
farpir að nálf.a.st hundrað, t.d.
komu 19 laxar par á land í gær.
Ekki vissi heimildarmaður okkar
um meðalvigtina, en sagði að lax-
inn væri mjög jafn, ekki til smá-
lax. Laxinn í Vatnsdal er bæði
fenginn á flugu og spún.
í dag lauk veiðitímabili íslend
inganna í ánni , og munu nú út-
lendingn'-nir hefja veiði þar, og
verður það svo yfir bezta veiðitím-
ann. — Þ.Ó.