Tíminn - 10.07.1971, Side 3
LAUGARDAGUR 10. júlí 1971
TÍMINN
Fólk streymir á Lands-
mótið á Sauðárkróki
— útlit er fyrir gott veður á
ET—Sauðárkróki, föstudag.
Eftir öllu að dæma, þá virðast veðurguðirnir ætla að verða Lands-
mótsfólki hliðhollir nú yfir helgina. Veðrið hér á Sauðárkróki er
þurrt og hlýtt, reyndar komu nokkrir dropar úr lofti í dag, en það var
ekki nóg til að binda rykið. Forráðamenn mótsins eru mjög bjartsýnir
með aðsókn, og er fólk farið að streyma hingað, bæði keppendur og
ferðafólk. Fyrstir keppenda voru HSK menn, komu þeir kl. 19.30 í
gærkvöldi, næstir voru Austfirðingarnir (UÍA), síðan komu koll af
kolli HSH, UMSE, og UMSK, og bætast sífellt fleiri héraðssambönd við.
Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari Tímans, komu til Sauðárkróks
bjuggust þeir við, að allt væri á
síðustu stundu, en svo var ekki.
Menn voru að ditta að hlutunum
og hreinsa til á mótsvæðinu, allt
annað var tilbúið. Hafsteinn Þor-
valdsson, form. UMFÍ tjáði blaða-
manni Tímans, að þar sem hann
hefði verið á Landsmótum, hefði
undirbúningur aldrei verið jafn
góður. Hér er allt tilbúið í tíma
sagði Hafsteinn.
Aðstaða hér er mjög góð til
íþróttahalds, sérstaklega til að
halda svona fjölmennt mót. Þessi
aðstaða er líklega ein sú bezta á
landinu. Tveir stórir íþróttavellir
eru hér, annar malarvöllur og verð-
ur einn knattsp.leikur háður þar,
Landsmótinu, sem hefst
og að auki fer þar fram dráttar-
vélaakstur. Hinn völlurinn er gras-
völlur og á honum fer fram knatt-
spyrna, og allar frjálsar íþróttir,
sérstakur handknattleiksvöllur er
hér. Eini gallinn, sem hægt er að
finna á mannvirkjunum hér, er sá
að hlaupið er á grasbrautum. Þá
hefur verið reistur stór og mikill
pallur, þar sem keppt verður í
körfuknattleik og þar fer hátíða-
dagskráin fram, sem hefst kl. 13.30
á sunnudag. Mjög góð sundlaug er
hér á staðnum og ættu keppendur
ekki að þurfa að kvíða fyrir að
synda í henni, en sundlaugarnar
hafa oft háð Landsmótunum. Allt
keppnissvæðið er vel merkt 50 til
60 skilti, standa hér og þar, sölu-
skálar eru margir og snyrting virð-
ist vera í bezta lagi. Slysavarnar-
í dag
deildin á Sauðárkróki og Slysa-
varnardeildin í Njarðvíkum, hafa
slysavakt mótsdagana, einnig annast
þær gæzlu á tjaldbúðarsvæðinu.
í kvöld verður fundur með flokk
stjórum og starfsmönnum mótsins.
Hefst þá einnig keppni í vélsaumi
og tefld verður 1. umf. í skákkenpn
inni. A morgun kl. 8.30 hefst hóp-
ganga íþróttafólks, og verða í
henni 600 til 700 manns, en kl.
9.15 verður mótið sett af formanni
UMFI, Hafsteini Þorvaldssyni.
Fjöldi heiðursgesta mun verða á
mótinu, einnig mun Forseti íslands
og forsetafrú heimsækja mótið.
Verð aðgöngumiða er kr. 400
fyrir báða dagana, en 250 fyrir
annan daginn.
Árekstrar
og slys
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Fjölmargir árekstrar urðu í
Reykjavík í dag og virðist það
orðin regla, að eftir því sem
veðrið er betra og akstursskil-
yrði eins góð og bezt verður á
kosið, fjölgar bílaárekstrum. Auk
minni háttar árekstra, sem sam-
anlagt kosta tryggingafélög stór-
fé og færa réttingarverkstæðum
verkefni, urðu nokkrir árekstrar
þar sem slys urðu á fólki.
Kl. 9 í morgun slasaðist kona
er hún ók bíl á ljósastaur á horni
Lömguhlíðar og Blönduhlíðar.
Hlaut hún skurð á andliti og bíll
inn, sem er af Taunus gerð er
talinn ónýtur.
í hádeginu varð kona fyrir bíl
í Lækjargötu, rétt við Lækjar-
torg. Meiddist hún ekki alvarlega.
Rétt fyrir kl. 4 varð 17 ára
piltur fyrir leigubíl í Stórholti.
Meiddist hann aðallega á fæti og
liggur á Borgarsjúkrahúsinu.
Nokkru síðar varð mjög harð-
ur árekstur á Skúlagötu. Jeppa
var ekið niður Barónsstíg og út
á Skúlagötu í veg fyrir vörubíl.
Er talið að hemlar jeppans hafi
bilað. Einn maður var í jeppan-
um. Auk annarra meiðsla fótbrotn
aði hann. Eru báðir bílarnir mik
ið skemmdir, sérstaklega jeppinn.
Um kl. 5 valt svo bíll á Njáls-
götu. Einhver meiðsli urðu þar á
fólki.
Kaupfélag Rangæinga
opnar nýtt útibú
I dag, laugardag, opnar Kaup-
félag Rangæinga nýja verzlun á
Rauðalæk. Nýja verzlunarhúsið
verður með kjörbúðarsniði, og er
það mjög rúmgott. Um leið og
nýja verzlunarhúsið verður tekið
í notkun, verður í gamla verzlun-
arhúsinu á Rauðalæk lokað
Starfsfólk í verzluninni verður
þrennt og verzlunarstjóri Eiríkur
Isaksson.
BÍLASÝNING
Nýir og notaðir GM bílar
Opið til kl. S e. h.
Bílasalurinn í Ármúla 3, verður opinn til kl. 6 e.h. í dag,
laugardag. — Sýnclar verða nýjustu gerðir af:
VAUXHALL VIVA: Standard
- : De luxe
OPEL
Kadett
Rekord
Gerið góð kaup í notuðum General Motors bifreiðum.
Hagstæð greiðslukjör. —
Samband tsl. samvtnnufélaga
Véladeild
Ármúla 3, Rvík. stmí 38900
3
IKrafa íhalds-
andstæðinga
í forustugrein Dags 7. þ.m.
er rætt um stjórnarmyndunar-
tilraun stjórnarandstöðuflokk-
anna. í upphafi greinarinnar
segir á þessa leið:
„Fundur stjórnarandstöðu-
flokkanna hófst um það leyti,
er blaðið var fullbúið til prent-
unar, og var fram haldið at-
liugunum á stjórnarmyndun,
sein staðið hafa um sinn. Hlýt-
ur nú að draga til úrslita um
myndun „vinstri“ stjórnar, eft-
1 ir að kannað hefur verið ástand
stærri mála, svo sem efnahags-
mála og fclld hafa verið saman
í eina heild álitsgerðir flokk-
i anna og stefnumál. Þá hafa og
I farið fram umræður um skipt-
1 ingu ráðuneyta milli flokka. Ef
! svo heldur sem horfir um
i stjórnarmyndunarviðræður,
d ætti það að liggja fyrir innan
1 fárra daga, hvort ný vinstri
] stjórn tekur við völdum í land
| inu eða ekki og hvemig skipt
verður ráðuneytum ef sam-
komulag næst og auðvitað
stefna nýrrar stjórnar."
| Dregur til úrslita
„Hvar sem tveir menn eða
flciri taka tai saman, er stjóm
armyndun umræðuefni. Af öll-
um íhaldsandstæðingum virð-
ist til þess ætlazt af stjórnar-
andstöðuflokkunum þrem, að
þeir myndi stjórn og taki við
forsjá þjóðarbúsins. Hins veg-
ar era sum málgögn Sjálfstæð
ismanna full óróleika og æs-
inga yfir því, að völd flokks
þeirra eru í hættu eftir ósigur
stjórnarfiokkanna í kosningun-
um. Alþýðuflokkurinn hefur
verið settur upp að vegg til
gegnumlýsingar, og er hans
hlutur öðrum verri. f flokkn-
um togast á þjónustulundin við
íhaldið í landinu, sem rækt
Ihefur verið af mikilli alúð f
meira en tug ára, og hins veg-
ar hinir gömlu hugsjónir flokks
ins, sem upphaflega var stofn-
aður til að berjast við íhald og
auðvald í þessu landi."
Erfltt að taka við
Að Iokum segir Dagur:
„Öllum er ljóst, að það er
erfitt að taka við stjórnartaum-
um eftir langa valdasetu nú-
verandi stjómarflokka, en
5 bæði skylt og rétt að stjórnar-
andstæðingar taki þá forystu
f sínar hendur — og til þess
er ætlazt. — Hörmulegt skip-
brot „viðreisnar“, „hrollvekj-
an“ í haust, óréttlát og lág
launakjör, flóttinn úr dreifbýl
inu vegna þess hve þrengdur
er kostur fólksins þar, skatta-,
skóla-, heilbrigðis og sain-
göngumál eru öll í ólestri og
óviðunandi, og í framkvæmd-
um hefur handahóf, gróðasjón-
armið fárra og algert skipu-
lagsleysi verið látið ráða fram-
vindunni.
Svo að segja öll meginmál
þ.jóðarinar kalla á nýja stefnu
og nýja, óþreytta forystu, svo
sem þjóðin óskaði eftir í kosn-
ingunum.“
Vissulega er það rétt hjá
Degi, að erfitt er að taka við
Framhald á bls. 14.