Fréttablaðið - 31.08.2002, Qupperneq 4
4 31. ágúst 2002 LAUGARDAGURSVONA ERUM VIÐ
GISTINÆTUR Í JÚNÍ
Gistinóttum í júní fjölgar og þá sérstaklega
á landsbyggðinni. Í júní voru gistinæturnar
94.346 miðað við 88.328 árið 2001 og
fjölgar þar með um 6,8% milli ára. Þar af
fjölgar gistinóttum um 9,8% á landsbyggð-
inni og um 5% á höfuðborgarsvæðinu.
Gistinóttum útlendinga fjölgar um 7,3%.
Meðaldvalarlengd gesta eru 2 nætur bæði
árin.
GISTINÓTTUM Í JÚNÍ
FJÖLGAR MILLI ÁRA
2001 2002
88.328 94.346
UMHVERFISMÁL Óhætt er að segja
að þátttakendur á tíu daga ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í Jó-
hannesarborg um sjálfbæra þró-
un ráðist ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur. Til umfjöllunar
eru flest þau erfiðustu vandamál
sem mannkynið þarf að glíma við
næstu árin og áratugina.
Gagnrýnisraddir beinast ein-
mitt ekki síst að því, hve háleit
markmiðin eru. Þarna hafi Sam-
einuðu þjóðirnar skotið svo langt
yfir markið að engin von sé til
þess að árangur náist. Ráðstefna
sem þessi hafi í rauninni ekki ann-
an tilgang en að friða samvisku
leiðtoga og almennings í velmeg-
unarríkjunum.
Aðrir benda svo á, að einhvers
staðar þurfi að byrja og kannski
sé nauðsynlegt að skjóta yfir
markið. Skárra sé að komast
nokkur skref áleiðis heldur en að
bíða þess sem verða vill aðgerðar-
laus. Hugsanlega sé rétt að láta
ráðstefnur af þessu tagi njóta
vafans í staðinn fyrir að skjóta
umsvifalaust þær í kaf.
Að hluta til er ráðstefnan í Jó-
hannesarborg framhald af ráð-
stefnunni í Rio. Á þeirri ráðstefnu
var samþykkt Dagskrá 21, sem er
viðamikil áætlun um aðgerðir í
umhverfismálum.
Sjálfbær þróun er yfirskrift
þessarar ráðstefnu, eins og ráð-
stefnunnar í Rio de Janeiro í Bras-
ilíu fyrir tíu árum. Meginmark-
mið, sem sett hefur verið, er að
stuðla að því að efnahagslegar
framfarir geti orðið í senn sjálf-
bærar og sanngjarnar. Að alþjóða-
væðing viðskipta og efnahagsleg
þróun geti sem sagt komið öllum
jarðarbúum til góða án þess að
umhverfistjón hljótist af.
Þessi markmið verða öll sett
fram með almennum orðum í
lokayfirlýsingu ráðstefnunnar á
miðvikudaginn. Hinn raunveru-
lega árangur ráðstefnunnar má þó
væntanlega frekar merkja af
stórum sem smáum samstarfs-
verkefnum, sem sett verða af stað
víða um heim í framhaldi af
henni.
Samstarfsverkefnin verða
væntanlega frekar raunhæf flest
hver, enda beinast þau að afmörk-
uðum þáttum sem glíma þarf við í
hverju landi.
Fyrirfram mátti hins vegar
gefa sér að allsherjarsamkoma
allra ríkja heims um þessi stóru
mál verði margklofin eftir því
hvaða hagsmuna hvert ríki og
hver heimshluti á að gæta. Megin-
ágreiningurinn er á milli fátæku
ríkjanna í suðri og velmegunar-
ríkjanna í norðri. Fátæku ríkin
vilja meiri þróunaraðstoð og að-
gang að mörkuðum Vesturlanda.
Velmegunarríkin leggja meiri
áherslu á að draga úr mengun og
koma á frjálsu markaðskerfi í
þróunarríkjunum.
Alþjóðabankinn segir einkum
tvennt vera nauðsynlegt, ef ár-
angur eigi að náðst í tvíhliða bar-
áttu þjóðanna gegn fátækt og um-
hverfisspjöllum. Annars vegar
verði velmegunarríkin að opna
markaði sína fyrir vörum frá þró-
unarlöndum. Hins vegar þurfi fá-
tæku ríkin óhjákvæmilega einnig
að styrkja lýðræðislega stjórnar-
hætti heima fyrir.
Hins vegar er einnig mikill
ágreiningur á milli Evrópusam-
bandsins og Bandaríkjanna. Sá
ágreiningur kristallast ekki síst í
fjarveru Bandaríkjaforseta, sem
hefur sett sterkan svip á ráðstefn-
una.
Bandaríkin hafa verið gagn-
rýnd harðlega fyrir að vera treg í
taumi í umhverfismálum. Þau
hafa neitað með öllu að taka þátt í
því að setja ný markmið í um-
hverfis- og velferðarmálum með
ákveðnum tímamörkum. Háleit-
um markmiðum á borð við það, að
árið 2015 búi helmingi færri jarð-
arbúar við ófullnægjandi hrein-
lætisaðstæður heldur en nú gera.
Bandaríkin segjast leggja áherslu
á að verkin tali, innantóm orð dugi
skammt.
Þessi afstaða þeirra hefur hins
vegar verið skilin sem svo að þau
vilji alls ekki gangast undir nein-
ar ákveðnar skuldbindingar í um-
hverfismálum. Bandaríkin hafa
skapað sér illt orð á alþjóðavett-
vangi fyrir að vilja helst vera
stikkfrí í alþjóðlegu samstarfi.
Þau neituðu að samþykkja Kyoto-
bókunina um losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Þau neita einnig að
taka þátt í alþjóðlega sakadóm-
stólnum, sem stofnaður var í sum-
ar. George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur einnig orð á sér fyr-
ir að vera svarinn andstæðingur
allra framfara í umhverfismálum.
Bandaríkjunum er þó engan
veginn alls varnað. Þau flytja inn
meira af vörum frá þróunarlönd-
unum en nokkurt annað ríki. Þau
veita einnig meiri þróunaraðstoð
til fátæku ríkjanna en nokkurt
annað ríki.
gudsteinn@frettabladid.is
Háleit markmið og
endalausar þrætur
Í Jóhannesarborg í Suður-Afríku glíma þúsundir fulltrúa Sameinuðu þjóðanna við mörg erfið-
ustu vandamál mannkynsins. Stefnt er að því að útrýma fátækt án þess að ganga á náttúruna.
Fjarvera Bandaríkjaforseta hefur verið mjög áberandi.
FÁTÆKTIN Á NÆSTU GRÖSUM
Skammt frá fundarstað Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg er fátækrahverfið Alex-
andra, þar sem þessi drengur býr. Þar býr fjöldi fólks í hrörlegum húsakynnum. Margir
þeirra hafa hvorki aðgang að rafmagni né rennandi vatni.
FUNDARSALURINN Í JÓHANNESARBORG
Ráðstefnusalurinn í Jóhannesarborg Ráðstefnan í Jóhannesarborg er sú stærsta sinnar
tegundar sem haldin hefur verið. Hana sækja 65.000 fulltrúar frá 185 löndum. Herlegheit-
in kosta 25 milljarða króna.
HVAR ER GEORGE BUSH?
Fjarvera Bush Bandaríkjaforseta hefur
verið afar áberandi á ráðstefnunni í Jó-
hannesarborg.
FRÉTTASKÝRING
AP
/M
YN
D
Utanríkisráðherrar
Evrópusambandsins:
Stækkun í
desember
HELSINGJAEYRI, AP Utanríkisráðherr-
ar Evrópusambandsins sögðust á
fundi sínum í Danmörku í gær hafa
fulla trú á því að tíu ríki fái leyfi til
þess að ganga í Evrópusambandið
strax í desember næstkomandi,
þrátt fyrir innbyrðis deilur um
kostnaðinn af því. Nýju aðildarríkin
verða Kýpur og Malta ásamt átta
Austur-Evrópuríkjum: Eistland,
Lettland, Litháen, Pólland, Slóven-
ía, Slóvakía, Tékkland og Ungverja-
land. Per Stig Möller, utanríkisráð-
herra Danmerkur, sagði inngöngu
ríkjanna ekki spurning um kostnað,
heldur um sagnfræði.
Guðlaugur Þór
Þórðarson:
Spyr um
verkkaup
borgar-
skipulags
SVEITARSTJÓRNIR Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks og nefndarmaður í
skipulags- og byggingarnefnd,
hefur óskað eftir upplýsingum um
aðkeypta þjónustu borgarskipu-
lags á tímabilinu 1994-2002. Guð-
laugur biður um að í sundurliðun
komi fram um hvaða verkefni er
að ræða, hverjir unnu verkið,
fjárhæðir greiðslna og hvernig
viðkomandi aðili var valinn.
„Það er mjög mikið af verkefn-
um sem falin öðrum en borgar-
skipulaginu. Ég er með minni fyr-
irspurn að kanna hvernig það er
gert og í hvaða mæli,“ segir Guð-
laugur.
Reiknað er með að Guðlaugur
fá svar við fyrirspurn sinni innan
tíðar.
Á BANDARÍSKA
VERÐBRÉFAMARKAÐNUM
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna svaraði
gagnrýni í gær.
Alan Greenspan:
Minni
þensla
hefði kostað
kreppu
WASHINGTON, AP Alan Greenspan,
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
sagði í gær á ársfundi Seðlabank-
ans að stjórnvöld hefðu ekki getað
dregið úr þenslunni sem varð á
verðbréfamarkaði undir lok síð-
ustu aldar án þess að hækka vexti
svo mjög að alvarleg fjár-
málakreppa hefði orðið í Banda-
ríkjunum.
Greenspan svaraði með þess-
um hætti gagnrýni um að Seðla-
bankinn hefði á sínum tíma ekki
gripið til þeirra ráðstafana, sem
nauðsynlegar hefðu verið til að
koma í veg fyrir þensluna.
AP/M
YN
D
KVÓTI Stöðvarfjörður fær einungis
þriðjung aflaheimilda á næsta ári
miðað við þann kvóta sem úthlutað
var á skip í byggðarlaginu á þessu
fiskveiðiári. Útgerðir á Stöðvar-
firði fá tæp 709 tonn á næsta
fiskveiðiári en fengu á þessu 2.990
tonn. Samdrátturinn er 2.300 tonn
eða 76%. Mestu munar að togarinn
Kambaröst SU-200 var seldur fyrir
nokkru og hurfu með honum tæp
2.500 þorskígildistonn. Kvóti króka-
aflamarksbáta eykst hins vegar um
200 tonn milli fiskveiðiára.
Kvótinn minnkar líka umtals-
vert milli fiskveiðiára á Rifi. Á
þessu fiskveiðiári var 11.274 tonn-
um úthlutað til útgerða á Rifi en á
nýju fiskveiðiári fara ríflega 5.600
tona heimildir til útgerða á Rifi.
Samdrátturinn er rúm 5.600 tonn
eða um 50%.
Djúpivogur verður líka fyrir
kvótaskerðingu. Þaðan hverfa tæp
800 þorskígildistonn eða 37,5%
aflaheimilda síðast árs. Og litlu
minni skerðing verður í Hnífsdal,
rúm 1.500 tonn burt eða tæplega
30% af heimildum síðasta árs.
Heldur minni skerðing verður á
Þingeyri, Tálknafirði og Bíldudal.
Úthlutun kvóta
á næsta ári:
Stöðfirðing-
ar missa 76%
kvóta síns
KVÓTAMISSIR:
Breiðdalsvík 58.902 308.451 ( 249.549) - 80,90 %
Stöðvarfjörður 708.615 2.990.927 (2.282.312) - 76,00 %
Rif 5.645.204 11.274.066 (5.628.863) - 49,90 %
Djúpivogur 1.329.043 2.121.522 ( 792.479) - 37,35 %
Hnífsdalur 3.802.515 5.363.999 (1.561.484) - 29,11%
Þingeyri 1.630.229 1.902.123 ( 271.894) - 14,30 %
Tálknafjörður 2.383.006 2.634.763 ( 251.757) - 9,50 %
Bíldudalur 921.249 1.012.505 ( 91.256) - 9,00 %
Sveitarfélag 2002/2003 2001/2002 mismunur
tonn
Samdráttur
hlutfall