Fréttablaðið - 31.08.2002, Side 7
7LAUGARDAGUR 31. ágúst 2002
STUTT
Leynist ferð til LEGOlands
í þinni fötu
Það er 1-1000 að þú getur unnið glæsilega ferð fyrir 4.
í Smáralind
1.499kr
Tilboðin gilda á meðan birgðir endast.
Í 50 fötum eru
skemmtilegir vinnin
gar:
Glæsileg ferð til LEGOlands fyrir fj
óra.
Flug með Plúsferðum og gisting á
hótel LEGOlands í 2 nætur.
50 LEGO öskjur að verðmæti 2.000-10
.000 kr.
STOKKHÓLMUR, SVÍÞJÓÐ, AP 29 ára
gamall karlmaður var í gær
ákærður fyrir tilraun til flugráns
eftir að byssa fannst í handfar-
angri hans er hann var á leið um
borð í flugvél á leið frá Stokk-
hólmi til Lundúna. Maðurinn, sem
er sænskur ríkisborgari en á ræt-
ur að rekja til Túnis, var hluti af
20 manna hópi sem var á leið á
múslimaráðstefnu sem halda átti í
borginni Birmingham á Englandi.
„Við teljum að hann hafi ætlað
að ræna vélinni,“ sagði Ulf Palm,
talsmaður lögreglunnar í gær.
Ekki gat hann sagt nánar til um
tilefni hugsanlegs flugráns eða
hvers konar byssu var um að
ræða. Sagði hann að verið væri að
rannsaka hvort maðurinn tengist
hryðjuverkasamtökum.
Hópurinn sem ferðaðist með
manninum var yfirheyrður í
þónokkrar klukkustundir eftir
handtökuna. Um var að ræða 18
fullorðna og tvö börn. Fólkinu hef-
ur verið sleppt og er það ekki
grunað um aðild að flugráninu.
Öllum þeim 189 farþegum sem
um borð voru í flugvélinni var
gert að yfirgefa hana á meðan sér-
sveit lögreglunnar gerði
sprengjuleit í vélinni, sem var af
gerðinni Boeing 737 frá flugfélag-
inu Ryanair.
Hinn handtekni á yfir höfði sér
allt frá sex mánaða fangelsi til
lífstíðarfangelsis verði hann
fundinn sekur. Að söng lögregl-
unnar hefur hann áður verið
dæmdur fyrir þjófnað og líkams-
árás.
Karlmaður handtekinn í Svíþjóð:
Ákærður fyrir
tilraun til flugráns
FLUGVÉLIN
Sænskir lögreglumenn standa við flugvélina frá Ryanair flugfélaginu á Västerås - flugvell-
inum í Svíþjóð..
AP
/M
YN
D
FER AF MARKAÐI
Húsasmiðjan skilaði hagnaði á fyrstu sex
mánuðum ársins. Fyrirtækið mun verða af-
skráð í Kauphöll Íslands.
Yfirtaka og uppgjör:
Húsasmiðj-
an gerir
upp í Kaup-
höllinni
VIÐSKIPTI Húsasmiðjan hefur sent
frá sér 6 mánaða uppgjör. Fyrir-
tækið verður fljótlega skráð af að-
allista Kauphallarinnar. Nýir eig-
endur hafa eignast yfir 90% hluta-
fjár og samkvæmt reglum er nú-
verandi hluthöfum skylt að taka
yfirtökutilboði þeirra. Nái ein-
stakur eigandi yfir 50% er honum
skylt að bjóða í restina af hluta-
fénu. Fari hluturinn yfir 90% er
afgangi hlutahafa ætlað að taka
tilboðinu. Hefur þeim hluthöfum
sem eftir eru verið sent bréf þar
sem farið er fram á kaup á geng-
inu 19. Húsasmiðjan fór á markað
árið 2000 og var útboðsgengið
18,35. Bréfin hafa því hækkað á
tímabilinu um 3,5%.
Afkoma Húsasmiðjunnar var
betri fyrstu sex mánuði ársins en
á sama tíma í fyrra. Munar þar
mestu um mikinn viðsnúning fjár-
magnsliða. Rekstrartekjur fyrir-
tækisins jukust lítillega, en
rekstrargjöld lækkuðu. Afkoman
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
batnaði því örlítið milli ára.
Meirihluti sveitarstjórnarSkagafjarðar ætlar að selja
hlutabréf sín í Norðlenskri orku
ehf. Tilgangur fyrirtækisins er
að vinna að uppbyggingu og rek-
stri orkuvera á Norðurlandi ves-
tra. Fyrirhuguð sala tengist á
vissan hátt andstöðu meirihlutans
við Villinganesvirkjun að sögn
forseta Byggðarráðs. Málið var
rætt á fundi Byggðarráðs Skaga-
fjarðar í fimmtudag en af-
greiðslu frestað.
Bæjarstjórnarkosningar farafram í Borgarbyggð laugar-
daginn 2. nóvember. Bæjarstjórn
samþykkti að höfðu samráði við
yfirskjörstjórn að efna á ný til
kosninga þennan dag vegna
ógildingar félagsmálaráðuneytis-
ins. Búist er við að niðurstaða
geti fengist fyrir þann tíma, í
kærumáli Óðins Sigþórssonar.
Hann kærði úrskurð ráðuneytis-
ins um ógildingu kosninganna og
fékk málið flýtimeðferð.
Síamstvíburarnir frá
Guatemala:
Önnur
stúlkan fór
í aðgerð
LOS ANGELES, AP Maria de Jesus,
önnur síamstvíburastúlknanna frá
Guatemala sem aðskildar voru á
höfði í byrjun ágúst, fór í tveggja
tíma aðgerð þar sem skurður á
höfði hennar var hreinsaður auk
þess sem rannsakað var hvernig
höfuðið hefði jafnað sig. Þetta var
fyrsta aðgerðin sem Jesus fer í eft-
ir aðskilnaðinn. Systir hennar hef-
ur þegar farið í þrjár aðgerðir.
Læknarnir eru bjartsýnir á bata
en segja fleiri aðgerða þörf.