Fréttablaðið - 31.08.2002, Side 9
9LAUGARDAGUR 31. ágúst 2002
SKIPULAGSMÁL Steikarstaður sem
stendur til að setja á fót á Lauga-
vegi stefnir í að verða að veruleika
þrátt fyrir mótmæli íbúa í húsinu.
Skipulags- og byggingarnefnd
Reykjavíkur hefur veitt samþykki
fyrir því að staðurinn verði á
annarri hæð hússins númer 53b við
Laugarveg.
Tveir íbúðareigendur í húsinu
mótmæla veitingastaðnum. Þeir
telja að frá honum muni stafa há-
vaði og lyktarmengun. Þess utan sé
gert ráð fyrir verslunarhúsnæði á
annarri hæð hússins samkvæmt
þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu.
Skipulagsnefndin segir hins
vegar að hagnýting húsnæðisins
sæti ekki sérstökum takmörkunum.
Rekstur veitingastaðar sé í sam-
ræmi við gildandi skipulag. Engar
takmarkanir um notkun húsnæðis-
ins séu í þinglýstum gögnum eða
samþykktum.
„Þá þykir ekki hafa verið sýnt
fram á að breytingin hafi í för með
sér verulega meira ónæði, röskun
eða óþægindi fyrir aðra eigendur
en þeir hafa mátt gera ráð fyrir,“
segir skipulagsnefndin sem þannig
telur ekki þörf á samþykki annarra
eigenda hússins fyrir breytingunni.
Steikarhúsaeigandinn væntan-
legi er hins vegar varaður við að
hefja framkvæmdir áður en kæru-
frestur er liðinn og endanleg niður-
staða er fengin. Það muni hann gera
„á eigin ábyrgð og áhættu,“ segir
skipulagsnefndin.
Íbúar á Laugavegi 53b mótmæla fyrirhuguðum steikarstað:
Steikarstaður í trássi
við íbúana í húsinu
LAUGAVEGUR 53B
Deilur með Laugaveg 53b að miðdepli er
hafnar að nýju. Að þessu sinnu eru það
íbúar hússins en ekki nágrannar þess sem
eiga í deilum. Innrétta á nýtt steikhús á
annarri hæð.
Hagnaður hjá Norður-
ljósum:
Miklar
skammtíma-
skuldir
UPPGJÖR Hagnaður Norðurljósa
samskiptafélags nam 145,4 milljón-
um fyrri hluta ársins. Allt árið í
fyrra var tap á rekstri félagsins 2,77
milljarðar króna. Fyrirtækið glímir
við miklar skammtímaskuldir, en
fram kemur í áritun endurskoðenda
að það geti starfað áfram svo fremi
að rekstur batni. Íslenska útvarps-
félagið, dótturfélag Norðurljós skil-
aði rúmlega 4 milljóna hagnaði. Af-
koma félagsins er betri á síðari
hluta ársins, en þeim fyrri.
STJÓRNMÁL „Er því fyrirsjáanlegt
að sparisjóðakerfið muni líða und-
ir lok, ef aðrir aðilar geta án
hindrunar yfirtekið hina stærri og
fjársterkari sparisjóði,“ segir Val-
gerður Sverrisdóttir, viðskipta-
ráðherra, um starfsumhverfi
sparisjóðanna í kjölfar þess að
Búnaðarbankinn reyndi að eign-
ast SPRON með aðstoð nokkurra
stofnfjáreigenda. „Lagaramma
um starfsemi sparisjóða er ætlað
að girða fyrir yfirtöku eins aðila á
sparisjóði, enda hefur dreifð eign-
araðild verið einn af hornsteinum
sparisjóðakerfisins. Þetta þarf að
tryggja,“ bætir Valgerður við í
pistli á heimasíðu sinni.
Valgerður segir að af athuga-
semdum við frumvarp um rekst-
ur sparisjóða og síðari breytingar
á því megi ráða að vilji löggjafans
hafi verið sá að viðskipti með
stofnfjárbréf hafi ekki átt að vera
almenn. „Á hinn bóginn fólu lögin
ekki í sér ótvírætt bann við því að
stofnfjárbréf væru seld á yfir-
verði.“ Valgerður boðar frum-
varp þar sem öll lagaákvæði um
stofnun og starfsemi fjármála-
fyrirtækja er sameinuð í einn
lagabálk.
Viðskiptaráðherra myrkur í orðum:
Segir spari-
sjóðina í hættu
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Fyrst og fremst kapítalistarnir sem koma
slæmu orði á kapítalismann.
BEIRÚT, AP Taha Yassin Ramadan,
varaforseti Íraks, sagði að Írakar
myndu verjast af fullri hörku ef
Bandaríkin létu verða af því að
gera árás á landi. „Írak er ekki
Afganistan og Bandaríkjastjórn er
fullkunnugt um það,“ sagði hann.
Alþjóðlega andstaða við árás
Bandaríkjamanna hefur vaxið.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins sendu frá sér sameigin-
lega yfirlýsingu í Danmörku í
gær, þar sem þeir sögðust andvíg-
ir því að Bandaríkin geri árás á
Írak, þrátt fyrir að þeir væru
sammála þeim kröfum sem
Bandaríkin gera til Íraka.
Utanríkisráðherrarnir sögðu
nauðsynlegt að auka þrýsting á
Íraka um að leyfa vopnaeftirlits-
mönnum Sameinuðu þjóðanna að-
gang að landinu.
Á fimmtudaginn sagðist
Jacques Chirac, forseti Frakka,
einnig vera andvígur því að
Bandaríkin ráðist á Írak. Einungis
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
sé fært um að taka ákvörðun um
árás. Chirac hvatti Bandaríkin til
að sýna stillingu.
Varaforseti Íraks:
„Írak er ekki
Afganistan“
OLÍA FRÁ ÍRAK
Meðan Bandaríkin hugleiða árásir á Írak og önnur ríki vilja auka þrýsting á Íraka um að hleypa vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna inn í
landið, eru Írakar sjálfir önnum kafnir við að flytja út olíu. Meira en 80.000 tunnum er smyglað til Tyrklands á degi hverjum. Þessi mynd
var tekin á landamærum Tyrklands um miðjan mánuðinn
AP/M
YN
D
Loksins leyfilegt á Íslandi!
2JA ÁRA CRANIO - SACRAL - NÁM
A hluti 9 - 14 nov 2002
Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun
C.C.S.T. Collage of Cranio Sacral Therapy
www.cranio.cc - jmsig@simnet.is
Inga 6953612 Gunnar 6998064
Ný námskeið hefjast í næstu viku
Kennt verður í öllum aldursflokkum frá 7 ára aldri.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu Júdofélags Reykjavík-
ur www.judo.is og í símum 588-3200 og 868-8830
www. .is
Meðal kennara er Bjarni Friðriksson verðlaunahafi frá Ólympíuleik-
unum í Los Angeles 1984.
Júdofélag Reykjavíkur, Ármúla 17a.
www.judo.is jr@judo.is 588-3200 868-8830