Fréttablaðið - 31.08.2002, Side 10
10 31. ágúst 2002 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili
á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hneykslið
á Landa-
kotsspítala
Velunnari aldraðra skrifar:
Ég get ekki staðist lengur aðleggja orð í belg varðandi
„hneykslið“, sem stjórnendur
Landakotsspítala valda, bara að
láta sér detta í hug að raska ró
heilabilaðra, frekar en að gera
eitthvað raunhæft, þeir kenna
plássleysi um, ég veit ekki betur
en að það séu fleiri en eitt hús lát-
in standa auð og óvirk, aðeins sem
geymslupláss, þar sem áður var
Kópavogshæli, starfsemin sem
var þar áður fyrr var ekkert ólík
þeirri starfsemi sem hjúkrun
heilabilaðra kallar á.
Mér er tjáð að þessi hús séu nú
öll á vegum ríkisspítalanna, en
þeir virðast gleyma eða vilja gley-
ma að hægt væri að nýta þessar
byggingar. Með svona stjórnunar-
aðferðum er ekkert að furða að
ríkisspítalarnir eigi í vanda,
stjórnendur virðast ekki hugsa
lengra en að sínum eigin dyrum.
SJÁVARÚTVEGUR Landsbyggðarkjör-
dæmin þrjú fá lungann af heildar-
kvóta næsta fiskveiðiárs eða 88%.
Norðausturkjördæmið, sem
nær frá Siglufirði að Höfn, fær
mest, tæp 32%, Norðvesturkjör-
dæmið, sem nær frá Siglufirði að
Akranesi fær rúman fjórðung og
Suðurkjördæmið, sem nær frá
Höfn að Ölfushreppi og frá Hafn-
arfirði út á Reykjanestá, fær 30%.
Suðvesturkjördæmið fær lang-
minnst í sinn hlut, 2,5% enda vart
hægt að tala um sjávarútveg í bæj-
um sem innan kjördæmisins eru
nema í Hafnarfirði. Reykjavíkur-
kjördæmin fá 9,5%.
Færri skipta með sér heildar-
kvótanum á næsta fiskveiðiári en
því sem lýkur á laugardag. 1.680
skip fengu veiðileyfi í fyrra en ein-
ungis 1.482 fá úthlutun fyrir næsta
fiskveiðiár. Leyfunum fækkar um
198. Togurum fækkar um 11, skip-
um með aflamark um 36 og smá-
bátum með aflamark fækkar um
138. Rétt er að benda á að margir
smábátasjómenn hafa flutt sig mili
kerfa. Þannig fjölgar sóknardaga-
leyfum milli fiskveiðiára, eru nú
310 en voru 219. Loks eru gefin út
487 krókaflamarksleyfi.
Kvótaúthlutun næsta árs:
12% kvótans í höfuð-
borgarkjördæmin
KVÓTAÚTHLUTUN SAMKVÆMT
NÝRRI KJÖRDÆMASKIPAN
Kjördæmi Tonn Hlutfall
Reykjavíkurkjördæmi
suður og norður 34.718 9,5%
Suðvesturkjördæmi 9.231 2,5%
Suðurkjördæmi 110.717 30,4%
Norðvesturkjördæmi 94.642 25,6%
Norðausturkjördæmi 115.297 31,6%
REYKJAVÍK
Sjávarútvegur er þýðingarmikill í atvinnulífi borgarinnar en lítill hluti kvótans fer til útgerða
þar. Samanlagt fá bæði kjördæmi Reykjavikur innan við 10% kvótans.
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF
ERLENT
FJARSKIPTI Samkvæmt upplýsing-
um frá Landssímanum er Cantat-3
sæstrengurinn ekki slitinn en er
laskaður á milli Færeyja og Bret-
lands. Einangrun strengsins er
rofin og útleiðsla er á rafspennu,
en ljósleiðararnir sjálfir eru
órofnir og strengurinn er afl-
fæddur frá báðum endum, þ. e.
Kanada og Þýskalandi, út að bil-
uninni.
Viðgerðarskip er væntanlegt á
staðinn eftir nokkra daga. Hægt
er að nota strenginn, með skertum
gæðum, þar til viðgerð hefst. Þeg-
ar að viðgerð kemur verður
spennan rofin og detta þá öll sam-
bönd niður um tíma, en þá mun
aflfæðing milli Íslands og Kanada
verða sett upp, þannig að vestur-
leiðin milli Íslands og N-Ameríku
verður í lagi meðan á viðgerð
stendur.
Íslandssími fór fyrr inn á
strenginn en Síminn og beindi
allri internetumferð viðskipta-
vina félagsins um Cantat-3 strax á
miðvikudagskvöld. Um helmingur
af allri símaumferð félagsins fór
um strenginn frá klukkan 10 í
gærmorgun og Íslandssími hefur
notað gervihnattarsamband að
takmörkuðu leiti síðan þá. Verði
vart frekari rekstrartruflanna á
strengnum flytjast öll sambönd
Íslandssíma sjálfkrafa um gervi-
hnött.
HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Landssíminn flutti internetsamband af
gervitungli yfir á venjubundna leið á
strenginn til Bandaríkjanna í gær en tal-
símasamband var áfram flutt yfir gervi-
tungl.
Sæstrengurinn:
Laskaður á milli Fær-
eyja og Bretlands
FJARSKIPTI Íslendingar, Færeying-
ar og Íslensk fjarskiptafyrirtæki
hafa hug á að leggja nýjan sæ-
streng frá Íslandi, í gegnum Fær-
eyjar, til Skotlands. Eignarhalds-
félag um strenginn verður vænt-
anlega stofnað á næstunni og
Landssíminn gerir ráð fyrir að
hann verði kominn í gagnið í lok
næsta árs. Strengurinn mun stór-
auka öryggi fjar-
skipta við útlönd
en nú eru Cantat-3
strengurinn og
gervihnattasam-
band, til vara, einu
leiðirnar til gagna-
flutninga úr landi.
Heiðrún Jóns-
dóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans,
segir fyrirtækið
hafa haft áhyggjur af því að land-
ið hafi aðeins aðgang að einum
sæstreng til útlanda. Vandamálið
muni hins vegar leysast á næsta
ári þegar Færeyjastrengurinn
verður tekinn í gagnið.
Landssíminn hefur komið á
föstu gervihnattarsambandi en
það kom ekki í veg fyrir að það tók
fyrirtækið um níu klukkustundir
að koma á föstu varasambandi.
Síminn telur það algerlega óásætt-
anlegt hversu langan tíma það tók
að koma á fullu gervihnattarsam-
bandi og útilokar ekki að greiðslu-
erfiðleikar hjá Teleglobe, sem rek-
ur Cantat-3, hafi haft eitthvað með
það að gera. Fjarskiptasérfræðing-
ar segjast ekki sjá samhengið milli
tafarinnar og greiðsluerfiðleika
Teleglobe en vilja þó ekki útiloka
neitt í því sambandi.
Pétur Pétursson, kynningar-
stjóri Íslandssíma, segir samn-
inga um fast varasamband Ís-
landssíma um gervihnött standa
yfir og þegar það verði komið á
muni fyrirtækið geta brugðist við
bilunum eins og þeirri sem varð á
miðvikudag á enn skemmri tíma.
Þórólfur Árnason, forstjóri
Tals, tekur undir að það sé
áhyggjuefni hversu slæm staða
Teleglobe sé og bendir á að vegna
minnkandi eftirspurnar eftir
þjónustu Cantat-3 muni engir
nema Íslendingar og Færeyingar
sá sér hag í því að viðhalda honum
eftir nokkur ár. Sú hugmynd hafi
því komið upp að Íslendingar taki
við rekstri strengsins af Teleglo-
be. Færeyjarverkefnið sé svo
annar kostur og Tal hafi haft
frumkvæði að því að önnur fjar-
skiptafyrirtæki en Síminn kæmu
að athugun á hagkvæmni þess að
leggja nýjan sæstreng.
thorarinn@frettabladid.is
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Segir mikilvægt að skoða alla möguleika á því hvernig treysta megi fjarskipti við útlönd þar sem lagning nýs sæstrengs sé mjög dýr.
Menn verði að vera raunsæir og hafa í huga að það hljóti að vera spurning hversu miklu nýir aðilar á markaði kosti til að tryggja fram-
gang mála sem varða þjóðarhagsmuni.
Mikilvægt að treysta
útlandasamband
Einungis Íslendingar og Færeyingar munu þurfa að treysta á Cantat-3 í framtíðinni.
Nýr strengur mun kosta um 7 milljarða. Samgönguráðuneytið heldur utan um
Færeyjaverkefnið enda þjóðarhagsmunir í húfi.
Vandamálið
muni hins
vegar leysast á
næsta ári þeg-
ar Færeyja-
strengurinn
verður tekinn í
gagnið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Spenna vex í Makedóníu:
Skot-
bardagar
og gíslataka
SKOPJE, AP Spenna fer nú vaxandi
á nýjan leik í Makedóníu. Al-
banskir byssumenn stöðvuðu al-
menningsvagn í vesturhluta
landsins í gær og tóku fimm far-
þega í gíslingu. Mennirnir krefj-
ast þess að þrír menn verði látnir
lausir, sem handteknir voru
grunaðir um að hafa myrt tvo
makedónska lögreglumenn fyrr í
vikunni.
Þá féllu tveir Albanir og einn
særðist í skotbardaga við sér-
sveitir lögreglunnar í héraðinu
Gostivar, sem er vestur af höfuð-
borginni Skopje.
Chen Shui-bian, forseti Taívans,varði í gær þá afstöðu sína að
Kína og Taívan væru tvö ríki. Hann
gæti ekki lengur þóst vera heyrnar-
laus þegar kínverskir ráðamenn
tönnlast á því að Taívan sé hluti af
Kína.
Þrír menn fórust þegar sprengingvarð í flugeldaverksmiðju á Ítal-
íu, skammt frá Napolí. Verksmiðj-
unni var lokað á síðasta ári vegna
þess að öryggismál voru í ólagi.
Starfsleyfi var veitt aftur í júlí.
Eigandi rússneska olíuflutninga-skipsins Nakhodka hefur fallist
á að greiða japönskum stjórnvöld-
um um það bil 20 milljarða króna í
skaðabætur vegna olíuleka sem
varð út af Japansströnd árið 1997.