Fréttablaðið - 31.08.2002, Qupperneq 11
WASHINGTON, AP Ríkisstjórn Banda-
ríkjanna ætlar ekki að styðja til-
lögu varnarmálaráðuneytis lands-
ins, Pentagon, um að meina flug-
vélum frá erlendum flugfélögum
að fljúga til og frá Washington,
New York og Somerset-sýslu í
Pennsylvaniu þann 11. september.
Þó er ljóst að lítilsháttar truflun
verður á flugi til og frá þessum
stöðum þegar Bush heimsækir þá
til að minnast þess að ár verður
liðið frá hryðjuverkaárásunum á
landið.
Þrátt fyrir að almenn flugum-
ferð verði leyfð þennan dag er
talið líklegt að bönnuð verði flug-
umferð lítilla véla á svæðinu í
kringum New York-borg frá 11. til
13. september.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
var tekin eftir að fjölmörg flugfé-
lög höfðu mótmælt tillögunum
auk þess sem ráðamenn töldu að
slíkt bann við flugumferð væri
ólöglegt.
11LAUGARDAGUR 31. ágúst 2002
FRAMBOÐ Gísli S. Einarsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
tilkynnt að hann muni sækjast eft-
ir því að verða í framboði fyrir
Samfylkinguna í hinu nýja Norð-
vesturkjördæmi. Aðspurður um
hvaða sæti hann stefndi á sagðist
hann alltaf stefna á toppinn og í
sínum huga væri ekkert annað
inni í myndinni.
Gísli segist hafa ferðast vítt og
breytt um nýja kjördæmið, sem
er býsna víðfemt, en það samein-
ar Vestfjarðakjördæmi, Norður-
landskjördæmi- vestra og Vestur-
landskjördæmi. Hann hefur rætt
við fjölda einstaklinga í nýja kjör-
dæminu og ákvað í kjölfarið, eftir
að hafa ráðfært sig við vini og
kjósendur, að gefa kost á sér.
Gísli segir nýju kjördæmaskip-
anina vera staðreynd, hvað svo
sem menn kunni að hafa um hana
að segja. Þingmönnum á svæðinu
muni því fækka um fimm til að
jafna vægi atkvæða með tilheyr-
andi fjölgun þingmanna í Reykja-
vík.
Gísli S. Einarsson:
Stefnir alltaf á toppinn
Ríkisstjórn Bandaríkjanna tekur ákvörðun:
Ekkert flugbann
þann 11. september
FLUGVÉL
Erlend flugfélög hafa fengið leyfi til að fljúga til þeirra staða í Bandaríkjunum þar sem
hryðjuverkaárásirnar áttu sér stað þann 11. september.
AP/M
YN
D
GJALDÞROT Brauðframleiðslu hjá
Nýbrauði/brauðsölunni ehf. var
hætt í gær. Fyrirtækið tók við
þrotabúi Nýbrauðs í júní með það
fyrir augum að halda rekstri fyr-
irtækisins gangandi. Það voru
húseigendur og stórir kröfuhafar,
þ. á. m. Kornax, sem yfirtóku
reksturinn þar sem talið var að
reksturinn ætti sér viðreisnar
von.
Margrét Björg Svavarsdóttir,
framkvæmdastjóri, segir það hins
vegar orðið ljóst að búið sé að
kippa fótunum undan starfsemi.
Það hafi endanlega legið fyrir
þegar viðskiptavinir fyrirtækis-
ins ákváðu að snúa sér annað. 16
manns missa vinnuna þegar
Brauðsalan hættir starfsemi.
Kröfur á hendur Nýbrauði voru
við gjaldþrotaskipti um 300 millj-
ónir króna og Margrét segir að í
ljósi aðstæðna sé heiðarlegra að
loka frekar en að reyna að halda
rekstrinum áfram með örfáa við-
skiptavini og sigla í þrot aftur.
Stærstu lánardrottnar fyrir-
tækisins voru Kornax hf., Spari-
sjóður Hafnarfjarðar og Spari-
sjóður Vélstjóra auk annarra en
helstu framleiðsluvörur Ný-
brauða voru Bónusbrauð, Risa-
brauð og Tumabrauð.
NÝBRAUÐ
Viðskiptavinir sneru baki við fyrirtækinu og því var ekki um annað að ræða en að loka.
Nýbrauð lokar:
16 manns
missa vinnuna
Skýrsla SÞ:
Bækistöðvar
al-Qaida í 40
löndum
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Hið alþjóð-
lega stríð sem farið hefur fram
gegn hryðjuverkum undanfarið ár
hefur hrakið liðsmenn al-Qaida
samtakanna í skjól. Stríðið hefur
ekki orðið til þess að stöðva pen-
ingastreymi til samtakanna auk
þess sem nýliðum hefur ekki fækk-
að sem eru tilbúnir til að fremja
fleiri sjálfsmorðsárásir. Þetta kem-
ur fram í nýrri skýrslu frá Samein-
uðu þjóðunum. Tæpu ári eftir árás-
irnar eru al-Qaida með bækistöðvar
í minnsta kosti 40 löndum að því er
kemur fram í skýrslunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI