Fréttablaðið - 31.08.2002, Side 22
Það er tilvalið að byrja helginaá því að fá sér sundsprett í
Sundlaug Seltjarnarness. Þetta er
ein rólegasta sundlaugin á höfuð-
borgarsvæðinu og
því tilvalin
fyrir hádegi
um helgar.
Krakkarnir
kunna þó að
hreyfa mótmælum vegna þess að
rennibrautina vantar.
Næst gæti leiðin legið niður íListasafn Íslands. Gott að
brúa bilið milli útivistarinnar og
menningarinnar með kaffibolla
og einhverju með’ðí, hollu eða
sætu, eftir smekk. Að því loknu
er um að gera að rölta um salina
og skoða tæplega 100 verk sem
spanna 20. öldina, einkum fram
til 1980 og eru í eigu safnsins en
þeirri sýningu lýkur nú um helg-
ina. (Þeim sem hafa gaman af því
að hitta fólk á myndlistarsýning-
um er bent á að skoða frekar sýn-
inguna á síðasta klukkutímanum,
milli 4 og 5 á morgun.)
Nú er klukk-an líklega
orðin of margt
til að fara á
Laugaveginn.
Því ættu þeir sem hafa gaman af
búðarrölti að skella sér í Kringl-
una og skoða hausttískuna í búð-
unum og kaupa í matinn í leiðinni
- eða kannski Smáralind fyrir þá
sem fara oftar í Kringluna - þá er
það meiri tilbreyting.
Það er svo enginspurning að í
kvöld liggja allir
vegir út á Seltjarn-
arnes því þar er
Stuðmannaball í
íþróttahúsinu. Líka
ákveðið jafnvægi í
því að byrja og enda daginn á
sama stað.
22 31. ágúst 2002 LAUGARDAGUR
HELGARSKOKK
Ég er búinn að vera í þessuverkefni í 13 ár,“ segir Gísli
Sigurðsson, fræðimaður í Árna-
stofnun, sem í dag ver doktors-
ritgerð sína „Túlkun Íslendinga-
sagna í ljósi munnlegrar hefðar:
Tilgáta um aðferð“. Gísli segist
ekki beint kvíða vörninni. „Ég er
auðvitað með tvo andmælendur,
en vona að ég hafi eitthvert for-
skot á þá eftir áralangar rann-
sóknir.“ Sem er trúlegt því Gísli
hefur um árabil fengist við rann-
sóknir á munnlegri hefð eins og
hún birtist í miðaldaverkum og
síðari tíma þjóðsögum.
Gísli er þó ekki bara liðtækur í
miðaldasögunni því sögur fara af
því að hann hafi gert garðinn
frægan með írska landsliðinu í
handbolta í heimsmeistarakeppi á
Ítalíu. „Tja,“ segir Gísli. „Það er
nú heldur orðum aukið en þegar
ég var við nám í háskólanum í
Dyflinni fannst mér ég þurfa ein-
hverja hreyfingu og fór í skólalið-
ið í handbolta. Liðið var skipað af-
spyrnulélegum handknattleiks-
mönnum, Írarnir höfðu ekki séð
handbolta í sjónvarpinu hvað þá
að þeir hefðu einhverja persónu-
lega reynslu af íþróttinni. Við vor-
um beðnir að senda lið í C-riðil
heimsmeistarakeppninnar á Ítal-
íu og slógum til. Ég var reyndar
með íslenskt vegabréf, en við
ákváðum að gera mömmu að Íra
og vona að það slyppi,“ segir Gísli
og hlær. „Við vorum svo kallaðir í
vegabréfsskoðun. Við stórt borð
sátu tólf menn og létu vegabréfin
ganga á milli sín og gerðu enga at-
hugasemd nema sá síðasti sem
var nógu glöggur til að sjá að á
mínu vegabréfi stóð Ísland en
ekki Írland. Það fór því annan
hring og öllum þótti það ágætt
nema þeim síðasta sem gat ekki
fellt sig við þessa óreglu.“ Og
hvað? „Sendiherrann sem ætlaði
að redda málinu guggnaði, því að
með því að skrifa upp á falsað
vegabréf var hann að færa mér á
silfurfati alls kyns borgaraleg
réttindi sameinaðrar Evrópu. Ég
var því sendur fyrir aganefnd og
dæmdur í ævilangt keppisbann
fyrir að villa á mér á heimildir.
Mér er ekki kunnugt um að aðrir
Íslendingar hafi hlotið jafn þung-
an dóm í íþróttum.“ En ertu enn í
boltanum? „Nei, ég er endanlega
búinn að leggja skóna á hilluna.
Nú stunda ég hins vegar laxveiði
þegar efni leyfa og tími gefst til,“
segir doktorinn dæmdi. Vörn
Gísla fer fram í hátíðarsal HÍ
klukkan 14 í dag.
edda@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
31. ÁGÚST
TÍMAMÓT
TÍMAMÓT
Íþróttamaður ársins sundkapp-inn Örn Arnarson fagnar í dag21 árs afmæli sínu. Örn, sem
er fæddur og uppalinn í Hafnar-
firði, segir sundið sannkallaða
ættaríþrótt. „Fjölskyldan er í
raun búin að keppa í sundi í tæp
sextíu ár. Þetta ævintýri byrjaði
með afa mínum, Ólafi Guðmunds-
syni, og systur hans, Hrafnhildi,
sem keppti á Ólympíuleikunum
árið 1964 og 1968. Á eftir þeim
kom síðan pabbi, Örn Ólafsson og
systkini hans. Þá komu börnin
hennar Hrafnhildar, Bryndís og
Magnús Már Ólafsbörn sem bæði
fóru á Ólympíuleikana árið 1988.
Um það leyti sem þau voru að
hætta kom ég og frændsystkin
mín. Þetta virðist því vera ansi
genetískt og því óhætt að kalla
þetta ættaríþrótt.“ Systir Arnar,
sem er 12 ára, er nú orðin nokkuð
efnilegur sundmaður þannig að
ævintýrið heldur áfram.
Örn skipti nýlega um skóla og
stundar nám á nuddbraut Fjöl-
brautaskólans við Ármúla. Þá er
hann nýlega byrjaður að æfa sund
að nýju eftir gott frí. „Framundan
er Evrópumeistaramótið í Þýska-
landi í desember. Þar keppi ég í 25
metra laug. Síðan tekur við Heims-
meistaramótið í Barcelona næsta
sumar. Þar mun ég keppa í 50 metra
laug. Það verður æft að kappi og
ekki síst fyrir Ólympíuleikana sem
hefjast eftir 22 mánuði.“
Örn hefur þrisvar verið kjör-
inn íþróttamaður ársins. Aðspurð-
ur hvort hann ætlaði að taka titil-
inn að nýju segist hann stefna
ótrauður að því, jafnvel tvo eða
þrjá til viðbótar. „Það er nauðsyn-
legt að hafa sjálfsímynd og sjálfs-
traustið í lagi. Þá verður að ríkja
mikill metnaður og vilji hjá þeim
sem keppa í íþróttum til að ná ár-
angri. Það hefst ekki öðruvísi.“
Örn segir flesta sína vini tengj-
ast íþróttum. „Ég hefði aldrei
vilja missa af þessu samfélagi
sem íþróttahreyfingin er,“ segir
sundknappinn knái að lokum.
Örn Arnarson sundmaður er 21 árs í dag.
Hann segist sjá sig tengdan íþróttum á einn
eða annan hátt í framtíðinni
Afmæli
Ævintýrið heldur áfram
Jóhann Sigurjónsson skáld ogrithöfundur lést árið 1919.
Hann bjó lengst af í Danmörku og
samdi leikrit, t. d. Fjalla-Eyvind
og Galdra-Loft, en orti einnig ljóð,
m. a. Sofðu unga ástin mín, Bikar-
inn og Sorg sem er talið fyrsta
óbundna ljóðið í íslensku.
Borgarískjakar sáust á óvenju-legum slóðum, um 100 sjómíl-
ur suðurvestur af Reykjanesi
árið 1955.
Lengstu viðureign íslenskrarskáksögu lauk með jafntefli
eftir 183 leiki árið 1994. Þetta var
skák Jóhanns Hjartarsonar og
Jóns Garðars Viðarssonar á Skák-
þingi Íslands í Vestmannaeyjum.
Díana prinsessa af Wales ogvinur hennar Dodi Fayed, lét-
ust í bílslysi í Place de l’Alma-
undigöngunum í París árið 1997.
Ökumaður bifreiðarinnar beið
einnig bana.
JARÐARFARIR
14.00 Margrét Eyjólfsdóttir, Víkurbraut
20, Höfn. Minningarathöfn fer
fram í dag í Hafnarkirkju. Útför fer
fram á mánudag frá Valþjófsstað-
arkirkju í Fljótsdal kl. 14.00.
14.00 Björn Sigtryggsson, Framnesi,
Skagafirði, verður jarðsunginn frá
Flugumýrarkirkju.
AFMÆLI
Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur er
49 ára í dag.
Örn Arnarson sundmaður er 21 árs í
dag.
ANDLÁT
Grettir Gunnlaugsson byggingarmeist-
ari, Kóngsbakka 13, Reykjavík, lést 28.
ágúst.
Halldór Steingrímsson, Skúlagötu 68,
Reykjavík, lést 28. ágúst.
Elínborg Þórðardóttir húsfreyja á Brúar-
hrauni, Kolbeinsstaðahreppi, lést 28.
ágúst.
FÓLK Í FRÉTTUM
GÍSLI SIGURÐSSON VIÐ ÍÞRÓTTAHÚSIÐ
Lið Gísla í heimsmeistarakeppninni náði ekki góðum árangri. Það tapaði fyrir Ísrael
62-3, en stóð sig „vel“ gegn Færeyingum og skoraði heil átta mörk gegn 42 mörkum
Færeyinganna.
Maddaman heitir vefrit eittkennt Framsóknarmönnum,
og hefur það fengið misjafna
dóma. Maddaman á þó sína spret-
ti. Nú hefur hún til dæmis lagt
það á sig að finna ýmsum þing-
mönnum störf í auglýsinga-
mennsku ef þingmannsferillinn
kynni að fara fyrir lítið. Maddam-
an hefur reiknað út hvaða vörur
eða þjónustu þingmennirnir gætu
auglýst. Þannig þætti Davíð Odds-
son tilvalinn í að lesa inn á megr-
unarmyndbönd, enda sagt að þing-
flokkur Sjálfstæðisflokks skjálfi á
beinunum þegar hann byrstir sig.
Steingrímur J. gæti varað við
fíkniefnum og afleiðingum reyk-
inga. Halldór Ásgrímsson gæti
talað fyrir nýjungum frá Ömmu-
bakstri eða ORA og Össur Skarp-
héðinsson gæti auglýst nýtt sæl-
gæti á markaðnum, orðið Góu-
maðurinn eða Mónu-maðurinn.
Guðjón Sigmundsson beturþekktur sem Gaui litli hyggur
á framboð í komandi kosningum.
Hefur hann látið hafa eftir sér að
besta lausnin til að koma sínum
málefnum á framfæri og veita
þeim brautargengi sé að komast á
þing. Þessir málaflokkar séu frek-
ari rannsóknir á heilsu og þyngd-
arfari barna og unglinga og fjár-
veitingar þeim til handa. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hefur Gaui litli ekki ákveðið
hvaða stjórnmálaflokkur henti
best. Þá sé stór hópur manna sem
myndi flykkjast á bak við hann.
Hefur talan 5000 verið nefnd.
Glöggir gestir á kaffiteríunni áHótel Loftleiðum veittu sér-
staka athygli þremur mönnum
sem þar voru í hádeginu í fyrra-
dag og nutu hlaðborðsins. Var þar
kominn Hannes „Hádegisverður-
inn er aldrei ókeypis“ Hólmsteinn
Gissurarson ásamt áheyrendunum
Sigurði Helgasyni, forstjóra Flug-
leiða, og Herði Sigurgestssyni,
stjórnarformanni Flugleiða og
fyrrverandi forstjóra Eimskips.
Örugglega hefur Hannes sjálfur
greitt uppsett gjald fyrir matinn
sinn á Flugleiðahótelinu.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Vegna frétta af meintum fjársvikum
Bónusmanna skal ítrekað að þeir
munu ekki vera einir á báti.
Leiðrétting
SVANASÖNGUR SUMARSINS Það var heldur óvænt sem birti til á fimmtudaginn og gerði einn auka sumardag upp úr þurru. Hann
var vel sáttur við daginn þessi maður sem vann við lagningu þrýstilagnar á Kjalarnesinu.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
ÖRN ARNARSON
Örn segist byrja afmælisdaginn á því að
fara á sundæfingu. „Ætli ég hjálpi svo
ekki mömmu í eldhúsinu og taki á móti
vinum og frændsystkinum um kvöldið.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Doktor í ævilöngu
keppnisbanni
Gísli Sigurðsson ver í dag doktorsritgerð við Háskóla Íslands. Hann
hefur enn ekki gerst sekur um afglöp í fræðunum, en hins vegar fyrirg-
ert rétti sínum til að taka þátt í heimsmeistarakeppni í handbolta.
Sigga litla var að moka ofan ívæna holu úti í garði þegar ná-
granninn gægðist yfir grindverk-
ið og spurði hvað í ósköpunum
hún væri að gera.
„Ég er að grafa gullfiskinn
minn,“ svaraði Sigga.
Nágranninn var fullur með-
aumkunar en sagði samt: „Þetta
er nú nokkuð stór hola fyrir einn
lítinn gullfisk.“
„Það er vegna þess að hann er
í maganum á kattarskrattanum
þínum,“ svaraði þá Sigga litla.