Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 1
Sturla Böðvarsson samgöngu-ráðherra er enn þögull um
skýrslu breskra sérfræðinga um
Skerjafjarðarslysið. Hann sat eft-
ir hjá forsætisráðherra að loknum
ríkisstjórnarfundi í gær. bls. 2
Forseti Alþingis segir nauðsyn-legt að ráðast í talsverðar
endurbætur á Alþingishúsinu til
að forða því frá skemmdum. bls. 2
Hægagangur og lítill hagvöxt-ur einkenna næsta ár að mati
Fjármálaráðuneytis. Þjóðin
minnkar neyslu og eykur sparn-
að. bls. 7
Minnihluti hreppsnefndarBessastaðahrepps sakar
oddvita hreppsnefndar um mis-
beitingu valds og bókaði vítur á
hann. bls. 8
bls. 16
FÓLK
Til í allt sem
er heiðarlegt
bls. 22
MIÐVIKUDAGUR
bls. 4
190. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 2. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Sjónvarpsumræður
á Alþingi í kvöld
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra flytur stefnuræðu sína á
Alþingi í kvöld og að því loknu fara
fram umræður um hana. Menn bíða
ræðunnar með nokkurri eftirvænt-
ingu, kosningavetur að ganga í
garð og líklegt að pólitískar línur
skerpist nokkuð þegar líður á vet-
urinn. Að venju verður útvarpað og
sjónvarpað frá umræðum sem
hefjast klukkan 19:50.
Vímulaus æska
FORVARNIR Foreldrasamtökin Vímu-
laus æska opna formlega vefsíðu í
dag á slóðinni www.foreldrahus.is.
Vefsíðunni er ætlað að veita aðstoð
foreldrum sem hafa áhyggjur af
hugsanlegri vímuefnaneyslu barna
sinna. Þá verða á síðunni fréttir af
starfi samtakanna, upplýsingar um
námskeið og umræða um málefni
sem snerta uppeldi eða fíkniefna-
heiminn, svo sem um handrukkara
og útihátíðir. Athöfnin fer fram í
Foreldrahúsinu og hefst klukkan 10.
Männerpension
KVIKMYNDIR Goethe-Zentrum sýnir í
kvöld þýsku kvikmyndina „Männ-
erpension“ frá 1996. Þetta er ljón-
fjörug gamanmynd og segir frá
tukthúslimum sem notaðir eru sem
tilraunakanínur í hálfhæpinni fé-
lagslegri tilraun fangelsisstjóra.
Myndin var tilnefnd til Þýsku kvik-
myndaverðlaunanna 1996. Myndin
verður sýnd að Laugavegi 18 og
hefst sýning hennar klukkan 20:30
BÆKUR
Morð en
engin hneyksli
FJÁRLÖG
Stefnt
að afgangi
LÖGREGLA Lögreglan í Kópavogi
hefur sent ríkissaksóknara gögn í
máli er varðar mannslát í Hamra-
borg aðfararnótt sunnudagsins
10. mars. Kona á sextugsaldri og
karlmaður á fertugsaldri, sem
lögreglan grunar um að hafa orð-
ið manninum að bana, ganga enn
laus. Þann 11. apríl synjaði Hér-
aðsdómur Reykjaness lögregl-
unni í Kópavogi um áframhald-
andi gæsluvarðhaldskröfu yfir
fólkinu.
Þrátt fyrir gæsluvarðhalds-
synjunina hefur lögreglan áfram
rannsakað málið sem manndráps-
mál. Að sögn lögreglu liggur fólk-
ið enn undir grun og hefur rann-
sóknin að mestu snúist um þátt
þess í dauða mannsins. Rannsókn-
in miðaði við 218. grein almennu
hegningarlaganna. Í henni segir
að ef stórfellt líkams- eða
heilsutjón hljótist af árás varði
það allt að 16 ára fangelsi.
Krufning leiddi í ljós að mað-
urinn lést af völdum innvortis
áverka sem benda til þess að hann
hafi fengið þungt högg á lifrina.
Að sögn lögreglu þurfti talsvert
högg til að valda áverkanum og
sagðist hún hvorki getað útilokað
að áverkinn hafi verið af völdum
höggs frá öðrum manni eða falls
mannsins sjálfs.
Ríkissaksóknari mun nú skoða
gögn í málinu og í framhaldinu
ákveða hvort gefin verði út
ákæra.
Manndrápsmál komið til ríkissaksóknara:
Grunuð um manndráp en ganga laus
REYKJAVÍK Í dag verður hæg
suðvestanátt með skúrum.
Hiti 7 til 10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-5 Skúrir 12
Akureyri 8-15 Rigning 13
Egilsstaðir 8-15 Rigning 13
Vestmannaeyjar 8-15 Skúrir 10
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
ÞETTA HELST
Í GÓÐUM HÖNDUM Forseta Íslands var vel gætt af lögreglumönnum þegar hann gekk til þingsetningar, ásamt biskupum, þingmönn-
um og ráðherrum. Andstæðingar stóriðjuáforma ríkisstjórnarinnar stóðu vaktina á Austurvelli í gær, sjöttu vikuna í röð og mótmæltu
meðan hersingin gekk til þinghússins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
LEIKHÚS Rekstrarvandi Leikfélags
Reykjavíkur er mikill og að
óbreyttu stefnir reksturinn í þrot
samkvæmt greinagerð Hjörleifs
B. Kvaran borgarlögmanns
sem lögð var fyrir borgar-
ráð Reykjavíkur í gær. Til
þess að mæta bráðum
vanda í Borgarleikhúsinu
hafa borgaryfirvöld sam-
þykkt að veita 25 milljóna
króna aukafjárveitingu til
að tryggja áframhaldandi
leikstarfsemi.
„Miðað við þann tap-
rekstur sem verið hefur að
meðaltali á mánuði tímabilið 2001
til 2002, 4,1 milljón króna, þá verð-
ur eigið fé LR uppurið í október-
mánuði,“ segir í greinagerðinni.
Guðjón Pedersen, leikhús-
stjóri, segist ekki hafa mikla trú á
að reksturinn fari í þrot eins og
borgarlögmaður bendir á.
„Það hefur aldrei staðið til
að reksturinn fari í þrot.
Við myndum þá frekar
minnka ennþá meira við
okkur til að vera innan þess
fjárhagsramma sem við
erum bundin.“
Fyrir tæpum tveimur
árum keypti Reykjavíkur-
borg eignarhluta Leikfé-
lagsins í Borgarleikhúsinu
á 195 milljónir króna. Þar af voru
50 milljónir greiddar með yfir-
töku skulda. Þrátt fyrir þetta og
uppsagnir sem Leikfélagið hefur
gripið til er rekstrarvandi þess
enn mikill.
Í greinagerðinni segir að þegar
samningurinn hafi verið gerður
hafi þáverandi forráðamenn Leik-
félagsins gert ráð fyrir að hluti
kaupverðsins færi til að greiða
upp lán og vanskil en eftirstöðv-
arnar yrðu varðveittar í sjóði sem
ávaxtaður yrði eins og best gerð-
ist á hverjum tíma. Þetta hafi ekki
gengið eftir og ljóst að þeir fjár-
munir sem Leikfélagið hafi fengið
fyrir eignarhluta sinn í Borgar-
leikhúsinu hafi fyrst og fremst
gengið til að reka félagið og fjár-
magna tapið.
„Við erum búin að fara ofan í
reksturinn og höfum leitast við að
hagræða eftir megni,“ segir Guð-
jón Pedersen, leikhússtjóri. Hann
segir að þó aðgerðir til hagræð-
ingar skili aldrei árangri á fyrsta
degi hafi ýmislegt áunnist. „Við
höfum losað okkur við megnið af
skuldahalanum.“
Samkvæmt greinagerð borgar-
lögmanns kemur fram að félagið
stefni að því að fækka enn stöðu-
gildum og ná fram 42 milljóna
króna sparnaði. Á móti komi að á
árinu 2001 hafi grunnlaun leikara
hækkað um 65% vegna nýrra
kjarasamninga og sú hækkun hafi
reynst félaginu erfið.
Meira bls. 7
trausti@frettabladid.is
brynjolfur@frettabladid.is
Rekstur LR stefnir
í þrot að óbreyttu
Borgarráð ákvað í gær að veita Leikfélagi Reykjavíkur 25 milljóna króna aukafjárveitingu til
mæta bráðum vanda þess. Fyrir tveimur árum keypti borgin eignarhluta Leikfélagsins í
Borgarleikhúsinu á 195 milljónir króna. Það hefur ekki dugað.
„Það hefur
aldrei staðið
til að rekstur-
inn fari í þrot.
Við myndum
þá frekar
minnka ennþá
meira við
okkur.“
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
46%
75%