Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 8
8 2. október 2002 MIÐVIKUDAGUR SKEMMTISTAÐIR Súlustaðakóngur- inn Geiri í Maxím hefur selt nekt- arstað sinn í Hafnarstræti, sem hann hefur verið kenndur við, til hollenskrar konu sem hyggst opna þar veitingahús: „Maxím verður nú hollenskur bar þar sem allir ganga um á tré- klossum. Við erum að ganga frá þessu,“ segir Geiri sem leitar nú að nýju húsnæði fyrir vískibar sinn sem var upp í hillum á Maxím. „Ég verð að finna eitt- hvert húsnæði því ég á 400 teg- undir af vískíi og þar af eru 50 yfir 40 ára gamlar,“ segir Geiri sem heldur áfram að reka súlu- stað í Kópavogi undir nafninu Goldfinger. Geiri vill helst ekki fara með vískibarinn sinn langt út fyrir miðbæinn og hefur helst augastað á ýmsum hliðargötum upp með Laugaveginum. Ekki vill hann gefa upp hvar viskíbirgðirn- ar eru geymdar eftir að hann hef- ur þurft að rýma Maxím: „Ég ætti nú ekki annað eftir en fara að aug- lýsa það. Þær eru á vísum stað,“ segir súlu - og vískikóngurinn.  Súlustaður seldur í Hafnarstræti: Maxím verður hollenskur bar GEIRI Í MAXÍM Selur súlustað og leitar að viskíbar. RÍKISÚTVARPIÐ Útsendingarskilyrði úti á landi valda sums staðar gremju. Samkeppnisstofnun: Kannar útsendingar- skilyrði SJÓNVARP Samkeppnisstofnun er með mál til meðferðar þar sem einstaklingur telur Ríkisútvarpið brjóta á rétti sínum vegna lé- legra gæða útvarps- og sjón- varpsútsendinga. „Þeir hjá Ríkisútvarpinu við- urkenndu að skilyrðin væru ekki jafn góð hér á Kópaskeri og þau eru á Akureyri. Þau væru þó tal- in nægileg fyrir dreifbýli,“ segir Guðmundur E. Lárusson. Hann kvartaði undan slæmum gæðum útsendinga eftir að hann flutti til Kópaskers fyrir þremur árum. Málinu vísaði hann til Samkeppn- isstofnunar. Hann taldi brotið á sér þar sem honum væri ætlað að greiða fullt afnotagjald þó gæð- um útsendingar væri ábótavant. Málið hefur verið til meðferð- ar hjá Samkeppnisstofnun í á þriðja ár en engin niðurstaða fengist. Þar fengust þau svör að óljóst væri hvenær málsmeðferð lyki.  Réttarhöld yfir Zacarias Moussaoui: Frestað um hálft ár ALEXANDRIA, VIRGINÍU, AP Ákveðið hefur verið að fresta réttarhöld- unum yfir Zacarias Moussasoui, eina mannsins sem ákærður hefur verið í Bandaríkjunum fyrir aðild að árásunum á landið þann 11. september í fyrra. Réttarhöldin áttu að hefjast þann 6. janúar næstkomandi en var frestað til 30. júní. Bæði verjendur og sækjend- ur í málinu óskuðu eftir frestun- inni til að ná að fara yfir þann mikla fjölda skjala sem tengjast málinu. Moussaoui er 34 ára gamall franskur ríkisborgari en er fædd- ur í Marokkó. Hann er ákærður fyrir samsæri og á yfir höfði sér dauðadóm verði hann fundinn sekur.  MENNTUN Verðandi og starfandi verslunarstjórum er nú boðið upp á háskólanám í verslunar- stjórnun við Viðskiptaháskólann á Bifröst í Borgarfirði og heyrir það til nýmæla. Námið var kynnt í skólanum fyrir skemmstu en það er sett á laggirnar í sam- vinnu við ýmis samtök verslunar- innar í landinu og nokkurra stór- fyrirtækja; svo sem Baugs, Kaupáss og Samkaupa. Námið skiptist í bóklegan hluta sem fer fram í gegnum fjarnámskerfi skólans og svo verklegan hluta sem fer fram á vinnustað. Að auki verja nemend- ur þremur helgum á hverri önn á Bifröst í verkefnavinnu. Námið tekur tvö ár og lýkur með diplómagráðu. Þegar hafa 30 verslunarstjórar skráð sig til náms. Á kynningarfundi sem haldin var af þessu tilefni mætti meðal annarra Jóhannes í Bónus og ræddi um hagnýta, starfsteng- da viðskiptamenntun.  Nýjung í Borgarfirði: Verslunarstjórar í læri VERSLUNARSTJÓRANÁMI HLEYPT AF STOKKUNUM Á BIFRÖST Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, Runólfur Ágústsson rektor, Jóhannes í Bónus, Teitur Lárusson, starfsmannastjóri Kaupáss, Helgi Baldursson, umsjónarmaður námsins og Sig- ríður L. Gunnarsdóttir, skólastjóri Baugsskólans. SVEITARSTJÓRNARMÁL Listi Álftanes- hreyfingarinnar, sem er í minni- hluta í sveitarstjórn Bessastaða- hrepps, bókaði vítur á Guðmund G. Gunnarsson, oddvita hrepps- ins, vegna meintrar valdníðslu á hreppsnefnarfundi fyrir skömmu. Oddvitinn neitaði minnihlutanum um að setja greinagerð og bókun inn í fundargerð og gagnrýnir minni- hlutinn mjög þau vinnubrögð, segir þau ólýðræðisleg. Greinagerðin og bókunin átti að fylgja tillögu minnihlutans um að ráðið yrði í starf byggingarfulltrúa í stað þess að gera samninga við verk- fræðistofur. Tillagan var felld af meirihluta Sjálfstæðisflokksins. Kristján Sveinbjörnsson, fulltrúi Álftaneshreyfingarinnar, sagði að mun hagkvæmara væri fyrir hreppinn að ráða byggingarfull- trúa, því laun hans yrðu langtum lægri en þær fjárhæðir sem hreppurinn væri að borga hinum ýmsu verkfræðistofum fyrir þjónustu. „Í öllum fundargerðum hjá sveitarfélögum hérna í kringum okkur eru greinagerðir teknar inn í fundargerðir,“ segir Kristján. „Þá eru dæmi um það að menn hafi birt hérna áður fyrr greina- gerðir með tillögum. Í þessu til- felli var oddvitinn einfaldlega að misbeita valdinu til að láta vita að það væri hann sem réði hérna og stjórnaði.“ Kristján segir mikil átök í hreppsnefndinni og ljóst að fram- hald verði á þeim. Meirihlutinn hafi meðal annars gert athuga- semdir við að minnihlutinn sé yfir höfuð með tillögur og bókanir. Því megi búast við því að tekist verði á um fundarsköpin á næstu fund- um hreppsnefndar. Guðmundur segir mjög skýrt kveðið á um það í nýjum lögum hvernig meðhöndla eigi bókanir og tillögur. Hann segist ekki telja að hann hafi gert rangt með því að neita að setja greinagerð og bók- un inn í fundargerð. Með því hafi hann ekki farið út fyrir verksvið sitt. „Ég held að það sé nú ekki þeir- ra að bóka vítur á einn eða neinn,“ segir Guðmundur, sem var ekki viðstaddur fundinn þegar víturn- ar voru bókaðar. „Ég hélt að oftast væri reynt að haga málum þannig að sá sem yrði fyrir skothríðinni væri viðstaddur. Mér finnst þetta vera þeim til vansa að gera þetta svona. Ég tel mig ekki hafa gert neitt rangt og mun svara þessu á næsta hreppsnefndarfundi um miðjan október.“ trausti@frettabladid.is Oddviti víttur vegna meintrar valdníðslu Átök í hreppsnefnd Bessastaðahrepps. Minnihlutinn sakar oddvitann um misbeitingu valds. Oddvitinn segist ekki hafa farið út fyrir verksvið sitt og hyggst svara fyrir sig á næsta hreppsnefndarfundi. BESSASTAÐAHREPPUR Kristján Sveinbjörnsson, fulltrúi Álftanes- hreyfingarinnar, segir mikil átök í hrepps- nefndinni og ljóst að framhald verði á þeim. Meirihlutinn hafi til að mynda gert athugasemdir við að minnihlutinn væri yfir höfuð með tillögur og bókanir. „Í öllum fund- argerðum hjá sveitarfélög- um hérna í kringum okkur eru greina- gerðir teknar inn í fundar- gerðir,“ ORÐRÉTT LAUN HEIMSINS Ég hef enga trú á því að þau góðu verk sem við höf- um unnið í heil- b r i g ð i s m á l u m skaði okkur. Guðni Ágústsson um fylgiskönnun. DV, 1. október. VENJAN AÐ BYRGJA EFTIRÁ Ég spyr ekki að leikslokum ef barn dytti ofan í þennan brunn. Halldóra Brandsdóttir vill byrgja brunn á Stokkseyri áður en barn dettur í hann. DV, 1. október. RÖK UNDIRHEIMANNA Hins vega verður þessi starfsemi alltaf til staðar, hvort sem hún er skipulögð sem atvinnustarfsemi eða ekki. Vilhjálmur Egilsson um rekstur spilavíta. DV, 1. október. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T GEIR H. HAARDE Óásættanlegt að daggjaldastofnanir safni skuldum eftir að tekið hafi verið á fjár- hagsvanda þeirra. Daggjaldastofnanir fá vissa úrlausn: Geir furðar sig á skulda- söfnun FJÁRLÖG „Ég hef ekki fallist á að greiða alla þá reikninga sem eru sendir inn í fjármálaráðuneytið, ekki þó svo þeir séu með uppá- skrift annarra ráðuneyta. Ef ég gerði það væri ég ekki starfi mínu vaxinn,“ segir Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, um fjárhagsvanda dvalar- og hjúkr- unarheimila. Hann segir að daggjaldastofnanir fái vissa úr- lausn á vanda sínum á fjárauka- lögum sem verða kynnt innan skamms og hækkunar á dag- gjöldum sem komi fram í fjárlög- um. Fleira þurfi þó að koma til svo leysa megi vandann en að leggja fram meira fé. Geir furðar sig á þeim fjár- hagsvanda sem daggjaldastofn- anir eru komnar í. „Það er mjög stutt síðan þær fengu algjörlega hreint borð,“ segir fjármálaráð- herra. Rekstur þeirra hafi verið gerður upp og settur á núllið fyr- ir fáum árum síðan. Því þyki sér grunsamlegt að vandi þeirra sé nú orðinn svo mikill sem raun ber vitni. Leggjast verði yfir rekstur þeirra og finna út hvern- ig tryggja megi rekstur heimil- anna.  Þrír ökumenn voru stöðvaðir aflögreglunni í Keflavík í fyrra- kvöld og í nótt fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var á 122 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraðinn er 90 km. Að öðru leyti var rólegt hjá lögreglunni. Ekið var á níu ára dreng í Lind-arsmára í Kópavogi um sjöleytið í fyrrakvöld. Drengur- inn fótbrotnaði og hruflaðist. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Ekki er vitað hvernig slysið varð en drengurinn var að leika við vini sína þegar ekið var á hann. LÖGREGLUFRÉTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.