Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 12
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætir Skotum á
Laugardalsvelli eftir rúma viku í
undankeppni Evrópumótsins. Atli
Eðvaldsson, landsliðsþjálfari,
mun væntanlega kynna leik-
mannahópinn í dag eða á morgun.
Ljóst er að einhverjar breytingar
verða á hópnum þar sem Ríkharð-
ur Daðason, leikmaður Lil-
leström, meiddist fyrir skömmu
og verður frá knattspyrnuiðkun
næstu vikurnar. Atli segir að Rík-
harður hafi verið mjög mikilvæg-
ur landsliðinu en nú þurfi að
bregðast öðruvísi við. Nefnir
hann leikmenn á borð við Marel
Baldvinsson og Helga Sigurðsson
sem geti leyst Ríkharð af hólmi
þótt þeir hafi ólíkan leikstíl. Atli
vildi ekki upplýsa hvaða breyting-
ar yrðu gerðar á landsliðshópn-
um. Líklegt verður þó að teljast að
hann muni nota einhverja af þeim
leikmönnum sem hann hefur ver-
ið að prófa á undirbúningstímabil-
inu.
Aðspurður um Tryggva Guð-
mundsson, leikmann Stabæk, sem
er næst markahæstur í Noregi,
sagði Atli. „Eins og staðan er nú
hentar Tryggvi ekki í þessa leiki,
en það kemur allt í ljós. Það koma
væntanlega tímar sem Tryggvi
mun nýtast.“
Atli hefur talsvert verið gagn-
rýndur fyrir að velja ekki Guðna
Bergsson, fyrirliða Bolton, sem
hefur staðið sig með stakri prýði í
ensku úrvalsdeildinni. „Við höfum
verið að keyra á föstum mönnum í
síðustu leikjum. Þetta eru strákar
sem við ætlum að spila inn á. Ef
Guðni fer inn verður einhver að
fara út. Innst inni held ég að
Guðni skilji þau rök. Í fyrra og í
ár ætlaði hann að hætta. Ég held
líka að aukið álag á hans feril, á
þessum tíma, geti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir hann. Það er
mikið álag sem fylgir þessu og
það er ótrúlegt hvað hann heldur
þetta út,“ segir landsliðsþjálfar-
inn.
„Guðni er orðinn 38 ára og við
getum ekki vænst til þess af hon-
um að taka þátt. Það er ótrúlegt
hvað hann hefur haldið út en ein-
hversstaðar verðum við að setja
tímamörk. Maður óskar þess að
Guðni nái að klára þetta tímabil
heill.“
Guðni Bergsson vildi ekki láta
hafa neitt eftir sér um málið þeg-
ar Fréttablaðið hafði samband við
hann í gær.
kristjan@frettabladid.is
12 2. október 2002 MIÐVIKUDAGURKÖRFUBOLTI
SHAQ
Shaquelle O’Neil, miðherjinn ógurlegi í
körfuboltaliðinu Los Angeles Lakers, hnykl-
ar vöðvana fyrir kynningarþátt í sjónvarp-
inu. Þátturinn var liður í sérstökum fjöl-
miðladegi sem haldin var í æfingaaðstöðu
Lakers í El Segundo í Kaliforníu. NBA-
deildin hefst með þann 29. október næst-
komandi.
Hermann Hreiðarsson, lands-liðsmaður í knattspyrnu, get-
ur ekki leikið með liði sínu
Ipswich í kvöld þegar liðið mætir
Sartid frá
Júgóslavíu í síðari
leik liðanna í 1.
umferð UEFA-
keppninnar. Her-
mann meiddist í
baki í leik gegn
Derby um síðustu
helgi og varð að
yfirgefa völlinn. Hermann er
væntanlega í landsliðshópunum
sem mætir Skotum og Litháum í
undankeppni Evrópumótsins.
Skarð hans er erfitt að fylla, geti
hann ekki leikið með.
MOLI
LEIÐRÉTTING
ÍÞRÓTTIR Í DAG
14.45 Stöð 2
Íþróttir um allan heim (Trans World
Sport)
18.00 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu (Liverpool -
Spartak)
20.40 Sýn
Meistaradeild Evrópu (Rosenborg -
Ajax)
22.15 RÚV
Handboltakvöld
22.30 Sýn
Sportið Sýn 02. október 22:30
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarliðið
Manchester United hefur ekki
enn fengið fullnaðargreiðslu fyrir
hollenska varnarmanninn Jaap
Stam sem seldur var til ítalska
liðsins Lazio fyrir rúmu ári síðan.
Talið er að enska liðið eigi enn 12
milljónir punda útistandandi sem
áttu að ganga upp í kaupin á varn-
armanninum Rio Ferdinand sem
keyptur var frá Leeds fyrr á
þessu ári.
Manchester United þarf að
greiða Leeds 14 milljónir punda
næsta sumar. Það er lokagreiðsla
fyrir enska landsliðsmanninn sem
kostaði 33 milljónir punda.
Lazio hefur átt í miklum
greiðsluerfiðleikum að undan-
förnu og hefur enska liðið leitað á
náðir Evrópska knattspyrnusam-
bandsins til að gera nýja greiðslu-
áætlun.
Fréttirnar af Stam bárust dag-
inn eftir að Manchester United til-
kynnti um 4,7 milljarða punda
hagnað. Kaupin á Ferdinand voru
ekki hafðar með í þeim tölum.
FÓTBOLTI David Weir, leikmaður
enska úrvalsdeildarliðsins Ev-
erton, gefur ekki kost á sér í
skoska landsliðið sem mætir því
íslenska í undankeppni Evrópu-
mótsins í knattspyrnu á Laugar-
dalsvelli þann 12. október næst
komandi. Weir tilkynnti Skoska
knattspyrnusambandinu, SFA,
þetta í gær. Ástæðan er talin vera
sú að Berti Vogts, þjálfari Skota,
gagnrýndi frammistöðu varnar-
mannanna Weir og Christian
Daily eftir 2-2 jafntefli gegn
Færeyingum í síðasta mánuði.
„Þeir ollu mér miklum vonbrigð-
um. Þeir eiga sök á því að við
fengum mörkin á okkur,“ var
haft eftir Vogts í þýskum fjöl-
miðlum.
Samkvæmt talsmanni SFA
barst sambandinu bréf frá Weir
þar sem hann sagðist ekki gefa
frekari kost á sér í skoska lands-
liðið. „Það er það eina sem við
vitum en við vitum ekki hver
ástæðan er,“ sagði talsmaðurinn.
Landsliðsþjálfarinn á því í
miklum vandræðum fyrir leikinn
gegn Íslandi. David Weir hefur
verið einn besti leikmaður
Skotlands undanfarin ár og Dom-
inic Matteo, leikmaður Leeds, er
frá vegna meiðsla.
AP
/M
YN
D
Enska úrvalsdeildarliðiðManchester United var í gær
sagt hafa skilað 47 milljarða
króna hagnaði. Hið rétta er að fé-
lagið skilaði 4,7 milljarða króna
hagnaði.
JAAP STAM
Var seldur frá Manchester United eftir að
hann gaf út ævisögu sína.
Manchester United:
Hefur ekki fengið
borgað fyrir Stam
ATLI EÐVALDSSON
Aðspurður hvort íslenska landsliðið
hefði efni á því að ganga fram hjá
leikmönnum sem Guðna sagði Atli.
„Þegar ég tek við landsliðinu var
Guðni búinn að vera frá því í tvö ár.
Það er ekkert til í því að ég hafi ýtt
honum út.“
Aukið álag á Guðna gæti
haft alvarlegar afleiðingar
Rúm vika í landsleikinn gegn Skotum. Breytingar verða á hópnum þar sem Ríkharður Daðason
er meiddur. Atli Eðvaldsson segir að aukið álag á Guðna Bergsson gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar í för með sér. Guðni vill ekki tjá sig um málið.
GUÐNI BERGSSON
Hefur staðið sig frábærlega með Bolton Wanderes í ensku úrvalsdeildinni. Hann er þó
ekki inni í myndinni hjá Atla Eðvaldssyni landsliðsþjálfara.
Í BARÁTTUNNI
David Weir, númer 5, á hér í höggi við Alan Shearer hjá Newcastle. Weir hefur verið einn
besti leikmaður skoska landsliðsins undanfarin ár.
David Weir ósáttur við Berti Vogts:
Hættur að leika
fyrir Skotland