Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 2. október 2002
KVIKMYNDIR Kvikmynd Stanleys
Kubrick’s, Clock Work Orange
frá árinu 1972, hefur nú verið
leyfð til sýninga í bresku sjón-
varpi. Kvikmyndin fjallar um
táninginn Alex, leikinn af
Malcolm McDowell, sem er
sendur í meðferð eftir að hafa
framið hvern glæpinn á fætur
öðrum. Lögregluyfirvöld í Bret-
landi vildu meina að ofbeldis-
glæpir hefðu aukist mjög í kjöl-
far myndarinnar og að
hópnauðgunarsena í myndinni,
sem fer fram undir tónlist Ross-
inis, hafi orðið til þess að hrinda
af stað svipuðum nauðgunum í
Bretlandi. Kubric tók myndina,
sem hafði verið sýnd í kvik-
myndahúsum, úr dreifingu í
Bretlandi ári eftir að hún var
frumsýnd. Myndin var þó sýnd í
öðrum löndum og var tilnefnd til
fjögurra Óskarsverðlauna, með-
al annars sem besta myndin.
Kubric mun hafa fengið hótanir
þar sem honum og fjölskyldu
hans var hótað morði, en hann
hélt því þó alltaf fram að mynd-
in væri viðvörun þeim sem
hygðust fremja glæpi frekar en
hvatning. Þegar leikstjórinn lést
árið 1999 var ákveðið að leyfa
myndina aftur í breskum kvik-
myndahúsum. Þá hefur hún ver-
ið sýnd í bresku gervihnatta-
sjónvarpi, en breska sjónvarps-
stöðin Cannel 4 ætlar að sýna
hana í fyrsta skipti 13. október
næstkomandi.
MALCOLM
MCDOWELL
Lék vandræðapé-
sann Alex DeLar-
ge í A Clockwork
Orange. Myndin
var bönnuð í
Bretlandi fyrir 30
árum er verður
nú sýnd í bresku
sjónvarpi.
VERÐHRUN
Rýmum verslunina
fyrir nýjum vörum
50% AF ÖLLU Í BÚÐINNI.
Tilvalið tækifæri til að kaupa jólagjafir.
Ekta pelsar og leður.
Handunnin sófasett, innskotsborð,
speglar, barir, stakir stólar.
Handunnin rúmteppi, dúkar, púðaver.
Handmálaðar styttur og lampar.
Samkvæmiskjólar, og margt fleira.
Útsalan hófst 1. okt.
Opið virka daga 11 - 18.
Laugardaga 11 -15.
Sunnudaginn 6. okt 13 - 16.
Hvergi betri kaup. Verið velkomin.
Sigurstjarna (Bláu húsin Fákafeni)
Sími 5884545
FÓLK Söng- og leikkonan Liza Minn-
elli ætlar sér að ættleiða þrjú börn
til viðbótar við barn sem hún hefur
nýlega ættleitt. Hún og eiginmaður
hennar, framleiðandinn David
Gest, ættleiddu á dögunum þriggja
ára stúlku sem flytur inn á heimili
þeirra í janúar.
Minnelli greindi frá þessum
áætlunum sínum í viðtali við dæg-
urmenningarþáttinn Liquid News
sem er á dagskrá BBC sjónvarps-
stöðvanna.
Minnelli, sem er 56 ára gömul,
giftist Gest í mars. Hann er átta
árum yngri en hún. Almennings-
augað mun fylgja þeim hvert fót-
mál því þau hafa samþykkt að leyfa
sjónvarpsstöðinni VH1 að gera
raunveruleikasjónvarpsþátt um líf
sitt. Hann á einfaldlega að heita
„Liza and David“ og fer í loftið síð-
ar á þessu ári. Þess má geta að Gest
er sjálfur framleiðandi þáttanna.
LIZA MINNELLI
Verður mikið í sviðsljósinu næstu
mánuði. Eftir það á að planta sér
niður og fylla íbúðina af börnum.
Liza Minnelli:
Ætlar að ættleiða
þrjú börn til viðbótar
A Clockwork Orange:
Sýnd í bresku sjón-
varpi í fyrsta sinn
Full búð af nýjum vörum.
Stuttermapeysur m/standkraga, bómull-hör.
Vestin komin. Tvískipt dress st. 36-50
Gervipelsar, gallabuxur
Opið 10.30-18.00 virka daga
Opið 11.00-15.00 laugadaga
Kíkið endilega við.
Konungur Svasílands:
Fær ekki
flugvél
KÓNGAFÓLK Ríkisstjórn Svasílands
hefur hætt við að kaupa einkaþotu
sem kostar 45 milljónir punda fyr-
ir konung landsins en það sam-
svarar um sex milljörðum ís-
lenskra króna. Mikið hungursneyð
ríkir í landinu og hefur ríkisstjórn-
in verið harðlega gagnrýnd fyrir
að eyða peningum í konungsveldið
í stað þess að sjá þegnum landsins
fyrir mat. Sibuisio Dlamini, utan-
ríkisráðherra landsins, sagði að
ríkisstjórnin hefði sannfært Evr-
ópusambandið um að þeir hefðu
hætt við flugvélakaupin. Talið er
að um 270.000 manns búi við hung-
ursneyð í Svasílandi en þar býr um
ein milljón manna. Landið er eina
sanna konungsveldið sem er enn
við lýði í Afríku.
HEFUR ENGU GLEYMT
Mick Jagger, söngvari Rolling Stones, hefur
augljóslega engu gleymt þrátt fyrir aldur-
inn. Hér sést hann á tónleikum í New York
síðastliðinn mánudag.