Fréttablaðið - 02.10.2002, Síða 16
16 2. október 2002 MIÐVIKUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
HVERNIG FANNST ÞÉR?
FUNDIR
12.00 Dr. Rannveig Traustadóttir held-
ur erindi sem hún nefnir Hvað er
fötlunarfræði? í stofu 101 í
Odda.
12.30 Ámundi Sigurðsson flytur fyrir-
lesturinn Lógótýpur og aðrar
týpur eða: Sögur af nýslátruðu.
Farið verður yfir lógotýpur og ann-
að þeim tengt. Hvernig hugmynd-
irnar verða til, ferlið, mistökin,
áhrifavalda. Fyrirlesturinn verður í
Listaháskóla Íslands í Skipholti.
12.10 Ráðstefnan Vinna - Vellíðan -
Velgengni verður hadin að Grand
Hótel. Á ráðstefnunni verður heil-
brigði á vinnustöðum tekið fyrir.
16.00 Gunnlaug Hjaltadóttir mun gang-
ast undir meistarapróf við Lækna-
deild Háskóla Íslands og halda
fyrirlestur um verkefni sitt: Rann-
sókn á arfgerðum lípóprótein líp-
asa í íslensku þýði. Umsjónakenn-
ari er Gunnar Sigurðsson prófess-
or enÝleiðbeinandi Ísleifur Ólafs-
son yfirlæknir. Prófið verður í
kennslustofu á 3. hæð í Lækna-
garði.
16.15 Dr. Sandra Acker prófessor við
Ontario Institute for Studies in Ed-
ucation heldur fyrirlestur sem
nefnist Háski og gáski í háskóla-
starfi á vegum Rannsóknarstofn-
unar KHÍ. Fyrirlesturinn verður
haldinn í sal 2 í nýbyggingu
Kennaraháskóla Íslands við
Stakkahlíð og er öllum opinn.
17.00 Dagur hjúkrunarfræðideildar
verður haldin hátíðlegur í Háskóla
Íslands. Hátíðardagskrá verður í
Hátíðarsal Háskólans.
TÓNLEIKAR
20.30 Tríó B3
spilar á
Jazzhátíð
Reykjavíkur.
Tónleikarnir
eru á Kaffi
Reykjavík.
22.00 Kvintett Sunnu Gunnlaugsdóttur
spilar á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Tónleikarnir eru á Kaffi Reykjavík.
UPPÁKOMUR
20.30 Tíu ár eru liðinn frá andláti Steinars
Sigurjónssonar rithöfundar. Vinir
hans og kunningjar koma því saman
á Gauki á Stöng, efri hæð og
Blanda aftur í svartan dauðann
með frásögnum, leiklestri, og hljóð-
myndum. Þeir sem rifja upp kynni
sínu af Steinari og verkum hans eru
meðal annars: Bjarni Þórarinsson ,
Gylfi Gíslason, Guðbergur Bergs-
son, Einar Kárason, Eyvindur Er-
lendsson, Jón Proppé, Karl Guð-
mundsson, Kristbjörg Kjeld, María
Kristjánsdóttir, Megas og fleiri.
Opinn fónn verður á Café 22. Gestir
geta komið með gömlu vínylplöturnar
og spilað uppáhaldslögin sín. Hver gest-
ur spilar í 30 - 60 mínútur.
KVIKMYNDIR
20.30 Goethe-Zentrum sýnir þýsku kvik-
myndina Männerpension frá
1996, á Laugavegi 18. Leikstjóri er
Detlev Buck Tukthúslimirnir Stein-
bock og Hamars-Gerd eru notaðir
sem tilraunakanínur í hálfhæpinni
félagslegri tilraun Fazettis fangelsis-
stjóra. Hann býður konum utan
múranna að koma í heimsókn..
LEIKSÝNINGAR
20.00 Viktoría og Georg eftir Ólaf Hauk
Símonarson er sýnt á Litla sviði
Þjóðleikhússins.
SÝNINGAR
Óli G. Jóhansson sýnir í galleríi Sævars
Karls.
Harpa Karls sýnir á Kaffi Sólon. Sýningin
stendur til 18. október.
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er, Hugmyndir um Frelsi /
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20 október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur stendur fyrir
sýningunni Aenne Biermann Preis: þýsk
samtímaljósmyndun í Grófarsal, Grófar-
húsinu, Tryggvagötu 15. .
MIÐVIKUDAGURINN
2. OKTÓBER
BÆKUR Fjölmiðlamaðurinn Ævar
Örn Jósepsson sendir frá sér
tvær bækur í haust. Annars veg-
ar hefur hann safnað saman 101
sögu úr sagnabrunni 31 leigubíl-
stjóra og hins vegar kemur frá
honum glæpasaga úr eigin upp-
sprettu. Leigubílstjórar sjá
margt undarlegt í starfi sínu og
Ævar setti sig í stellingar
Grimms bræðra, gekk á milli
þeirra og safnaði sögum í bókina
sem heitir einfaldlega Taxi.
„Ég kannast við nokkra bíl-
stjóra og byrjaði á þeim og rakti
mig svo áfram.“ Flestir myndu
ætla að það væri hægur vandi að
fá leigubílstjóra til að tjá sig en
Ævar hefur aðra sögu að segja.
„Þeir voru eins mismunandi og
þeir eru margir og þótt sumir
þeirra séu sagnaglaðir með ein-
dæmum þá er stéttinni gert rangt
til þegar talað er um að þeir séu
allir síkjaftandi. Margir þögðu
sem fastast og vísuðu frekar á
næsta bílstjóra sem var svo jafn-
fámáll þegar á reyndi. En sem
betur fer átti það ekki við um þá
alla.“
Ævar segir sögurnar af öllum
gerðum og greina frá hvunndags-
legum atvikum jafnt sem óbeisl-
uðum ástríðum, lífshættu og
furðufyrirbærum af ýmsu tagi.
„Það virðist allt geta gerst í leigu-
bíl,“ segir Ævar, „enda taka allir
taxa einhverntímann, háir sem
lágir, og í ansi misjöfnu ástandi.
Það eru samt engir skandalar í
þessu og þeir sem eru að leita að
hneykslisögum um nafngreinda
samborgara fá ekkert fyrir sinn
snúð. Enda hefði ég ekki fengið
neitt slíkt frá bílstjórunum sem
eru þögulir sem gröfin þegar það
kemur að viðkvæmum málum.“
Glæpasaga Ævars heitir Skíta-
djobb. „Þetta er saga sem ég
byrjaði á haustið 2000 en hún
hafði verið í gerjun nokkuð leng-
ur.“ Skítadjobb er löggusaga um
tvo rannsóknarlögreglumenn
sem rannsaka voveiflegt dauðs-
fall. Annar er byrjandi og hálf-
gerð gufa, allavega til að byrja
með, segir Ævar, en hinn er gam-
alreyndur og þeim mun öflugri.
Ævar reiknar með því að það
komi fimm eða sex íslenskar
glæpasögur út fyrir jólin en hef-
ur engar áhyggjur af samkeppn-
inni við aðra höfunda. „Ég held
það sé bara betra að sakamála-
sögum fari fjölgandi. Það getur
vel verið að einhverjir hafi
áhyggjur af þessu vegna stærðar
markaðarins en þetta er fyrst og
fremst góð þróun. Svo vonar
maður auðvitað það besta.“
Ævar er þegar byrjaður á
næstu bók og sér enga ástæðu til
að blása úr nös eftir þessa tvegg-
ja bóka törn. „Ég er þegar búinn
að drepa einn til, konu í þetta
skiptið, og er svona að velta því
fyrir mér hvort ég eigi að drepa
annan“.
thorarinn@frettabladid.is
Morð en engin hneyksli
Ævar Örn Jósepsson mætir til leiks með tvær bækur í vetur. Önnur
greinir frá sönnum ævintýrum íslenskra leigubílstjóra og óvæntum
uppákomum í aftursætum. Hin er morðsaga í anda skandinavískra
og enskra glæpasagna.
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
„Það má segja að þetta sé morðgáta í anda klassískra skandinavískra glæpasagna, en
þær bera af í glæpasagnaflórunni ásamt þeim ensku að mínu mati.“
Bjarni Þór Theódórsson. 12 ára. Nemi.
Ég er hálfnaður með þrillerinn Killer’s gone.
Hún er mjög spennandi.
Leikfélag Akureyrar frumsýndiHamlet eftir William
Shakespeare á föstudaginn. Helgi
Hálfdanarson þýddi leikritið en
Sveinn Einarsson leikstýrir.
Fimmtán leikarar taka þátt í upp-
setningunni en með hlutverk
Hamlets og Ófelíu fara Ívar Örn
Sverrisson og Arnbjörg Valsdóttir.
Fallegur
Hamlet
Mér fannst sýningin hreint út sagt
frábær. Hún er falleg, spennandi
og heldur manni
allan tíman. Leik-
myndin er fín,
sem og lýsingin,
búningarnir og
á h r i f s h l j ó ð i n .
Þýðing Helga
Hálfdanarsonar
er þannig að það
er ævintýri að
hlusta á hana. Þetta er stórmögn-
uð sýning. Ég fer mikið í leikhús
og þetta er það besta sem ég hef
séð langa lengi. Ívar Örn Sverris-
son er að öðrum leikurum ólöstuð-
um alveg stórkostlegur í hlut-
verki Hamlets. Það er svo gaman
að sjá gutta á þeim aldri sem
Hamlet á að vera gera þetta svona
ofsalega fallega.
Kraftaverk
Þetta er afbragðssýning og þetta
er fyrsta skipti sem ég hef orðið
vitni af standandi
lófaklappi áhorf-
enda sem öskruðu
bókstaflega af
fögnuði. Þetta er
mikill sigur og
það er kraftaverk
að þetta gamla
leikfélag sem býr
við þrönga að-
stöðu skuli gera
þetta með slíkum
glæsibrag. Leik-
myndin er afar einföld en flott.
Sviðsmyndin er bara ein trjábútur
en hans stendur fyllilega fyrir
sínu. Ég get ekki sagt annað en að
sýningin sé stórkostlegt afrek.
Frábær
Við vorum afskaplega ánægð með
þessa sýningu sem var hreint út
sagt frábær. Þetta er allt mjög
fagmannlegt og snyrtilegt. Leik-
myndin er einföld og truflar ekki
neitt, heldur tekur
hún þvert á móti
þátt í sýningunni.
Leikararnir stan-
da sig allir mjög
vel. Hamlet er al-
veg frábær. Hann
gerir þetta svo
skemmtilegt og
trúverðugt. Ófelía
var svo bara þan-
nig að þegar hún
var brjáluð var
maður hreint út sagt hræddur við
hana. Verkið er tímalaust og
þarna tekst sérstaklega vel að láta
það höfða til nútímafólks.
GESTUR EINAR
JÓNASSON, ÚT-
VARPSMAÐUR.
SIGRÚN BJÖRK
JAKOBSDÓTTIR,
FORMAÐUR
MENNINGAR-
MÁLANEFNDAR
AKUREYRAR.
DAVÍÐ
SCHEVING
THORSTEINS-
SON, FYRRV.
FORSTJÓRI
SÓLAR HF.
SAMKOMA Í dag, þann annan októ-
ber, eru liðin tíu ár frá andláti
Steinars Sigurjónssonar, rithöf-
undar, og af því tilefni munu vinir
hans og kunningjar safnast saman
í kvöld, klukkan 20.30, á efri hæð-
inni á Gauki á Stöng og blanda aft-
ur í svartan dauðann með frásögn-
um, leiklestri og hljóð-myndum.
Sigurður A. Magnússon, rithöf-
undur er einn þeirra sem rifja upp
kynni sín af Steinari. „Ég tel víst
að ég hafi verið fyrstur til að skri-
fa um Steinar en árið 1959 birtist
eftir mig umfjöllun um fyrstu bók
hans, Ástarsögu, sem kom út árið
áður. Mér þótti bókin með merki-
legri hlutum sem höfðu komið út
um nokkurt skeið, þó að ég fyndi
að stafsetningu og öðru slíku.
Hann kunni vel að meta þetta og
við urðum góðir vinir í kjölfarið.
Það var svo rétt áður en hann dó
sem ég komst að því að við vorum
frændur.“
Meðal annarra sem minnast
munu Steinars í kvöld eru: Bjarni
Þórarinsson, Gylfi Gíslason, Guð-
bergur Bergsson, Einar Kárason,
Eyvindur Erlendsson, Jón Proppé,
Karl Guðmundsson, Kristbjörg
Kjeld, María Kristjánsdóttir, Me-
gas, Ólafur Gunnarsson, Þorri Jó-
hannsson, Þorsteinn Antonsson,
Þorsteinn frá Hamri og Þröstur
Helgason.
Vinir Steinars Sigurjónssonar:
Blanda aftur í
svartan dauðann
SIGURÐUR A.
MAGNÚSSON
„Steinar var erfiður
maður, dulur og alls
ekki allra en þegar
maður kynntist hon-
um var hann gull af
manni.“
BÆKUR Ef marka má höfunda tvegg-
ja nýrra bóka sem komu út í Banda-
ríkjunum í gær, þjást milljónir
kvenna í hljóði, sannfærðar um að
þær séu þær einu sem ekki tekst að
höndla flækjur nútímalífsins. „Þær
eru eins og hamstrar sem hamast á
hjólum í búrum sínum og hlaupa
hraðar og hraðar í von um að ná tök-
um á kaótísku lífi sínu,“ segir Deir-
dre Donahue, blaðakona hjá USA
Today.
Í gær kom út fyrsta skáldsaga
breskrar blaðakonu, Allison Pear-
son, I Don’t Know How She Does It,
eða í lauslegri þýðingu Ég veit ekki
hvernig hún fer að. Bókin fjallar um
nútímakonuna Kate sem strögglar
við halda sönsum meðan hún vinnur
sig í álit hjá fjármálafyrirtækinu
sem hún vinnur hjá, elur upp tvö
börn, reynir að róa barnfóstruna,
þjáist af krónískri sektarkennd,
reynir við lítinn orðstír að að búa til
Teletubbies-fígúru á afmælistertu
og stillir sig með naumindum um að
reka slátrarahníf á kaf í brjóstið á
eiginmanninum.
Og ofan úr fjöllum Norður-Kar-
ólínu kemur ný bók frá Mörlu
Cilley, Sink Reflections, sem fjallar
um C.H.A.O.S.-einkennið, eða Can’t
Have Anyone Over Syndrome. Að
sögn Mörlu er óviðráðanlegt drasl
og óreiða á heimilum ein af ástæð-
unum fyrir því að konur eru undnar
bæði á líkama og sál. Hún ætti að
vita um hvað hún er að tala. Ein-
hverntíma, þegar Marla var í lægð í
lífi sínu, lenti hún í árekstri sem
varð til þess að lögreglan bankaði
upp á hjá henni. Þegar laganna
verðir sáu draslið heima hjá Mörlu
tóku þeir upp byssur og kröfðust
þess að fá að rannsaka húsið. Marla
neyddist til að segja þeim að svona
liti heimilið út á hverjum einasta
drottins degi.
Nýjar bækur í Bandaríkjunum:
Vonlaus barátta kvenna við nútíma lifnaðarhætti
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T