Fréttablaðið - 02.10.2002, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 2. október 2002
www.hagkaup.is
Kringlan - Skeifan - Smáralind
Loksins á Íslandi
Útsölu-
marka›ur
Topshop
í fullum gangi
Ótrúlegt ver›
LÆKJARGATA
TOPSHOP
Dæmi:
Dömu bolir 500 kr.
Peysur 1.000 kr.
Herra skyrtur 1.200 kr.
Buxur 1.200 kr.
Dömujakkar 1.800 kr.
Herrajakkar 3.500 kr.
Opi› kl. 13.00-18.00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
P
18
64
1
MYNDLIST Um þessar mundir eru
liðin 70 ár frá vígslu Fossvogs-
kirkjugarðs og í tilefni af því fer
í dag fram opnunarathöfn í tjaldi
við sýningarreit í Fossvogs-
kirkjugarði. Þar hefur verið kom-
ið fyrir frummyndum tíu lista-
verka úr samkeppni um gerð
minningarmarka. Minningar-
mörk eru samheiti yfir krossa,
legsteina og jafnvel grindur eða
legsteinaumgjarðir. Kirkjugarða-
samband Íslands, í samvinnu við
Skipulagsnefnd kirkjugarða, stóð
fyrir samkeppni um gerð minn-
ingarmarka árið 2000. Áhugi
listamanna var mikill og voru tólf
listamenn valdir til að skila inn
tillögum í keppnina. Tillögurnar
voru kynntar á kirkjudögum í
júní á síðasta ári og síðan hefur
undirbúningur að gerð sýningar-
svæðis og frummynda verið í
deiglunni.
Þórsteinn Ragnarsson, for-
maður Kirkjugarðasambands Ís-
lands, segir mikinn áhuga al-
mennings á að fá meiri fjöl-
breytni í kirkjugarðana. „Fólk
hefur hreinlega beðið eftir að sjá
þessar niðurstöður.“ Þórsteinn
segir hugmyndina að nokkru leyti
frá Skandinavíu, en þar hafi
menn gert hliðstæða hluti til að
örva listaflóruna í görðunum.
„Við ákváðum að prófa þetta hér
heima og þetta er afraksturinn.“
Þórsteinn segir að mikið af lista-
verkum sé í gamla kirkjugarðin-
um við Suðurgötu. „Margir hafa
sagt að gamli kirkjugarðurinn sé
stærsta listasafn á Íslands. En
þau verk eru öll frá gamalli tíð og
í raun tók við tímabil á seinni
hluta tuttugustu aldar þar sem
mest var um að ræða fjöldafram-
leidda legsteina á leiðum. Nú
gefst almenningi kostur á að
skoða þessi tíu verk og panta eft-
ir frummyndunum,“ segir Þór-
steinn. Við athöfnina í dag flytja
ávörp Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up yfir Íslandi, Jóhannes Pálma-
son, formaður stjórnar KGRP,
Ólafur Jónsson, trúnaðarmaður
listamanna, og Þórsteinn Ragn-
arsson. Kvartett Björns Thorodd-
sen leikur. Sýningarreiturinn
verðu opinn almenningi frá og
með morgundeginum.
SÝNINGARREITURINN Í FOSSVOGKIRKJUGARÐI
Tíu listamenn eiga verk í sýningarreitnum: Helgi Gíslason, Inga Elín Kristinsdóttir, Jónína Guðnadóttir, Magdalena M. Kjartansdóttir, Þór
Sigmundsson, Ólöf Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rósa Gísladóttir, Þórður Hall og Örn Þorsteinsson.
Mikill áhugi fyrir fjölbreytt-
ari list í kirkjugörðum
Reglur um legsteina eru nokkuð rúmar í kirkjugörðum Reykjavíkur, en
lítið hefur verið um nýjungar minningarmarka undanfarin 50 ár. Í dag
verða afhjúpaðar tíu frummyndir listaverka til notkunar á leiðum.
FÓLK Gráhærða kyntröllið Richard
Gere og gamanleikkonan Goldie
Hawn fóru til norður-Indlands
fyrr í vikunni til fundar við búd-
díska heimspekinga og Nóbels-
verðlaunahafa í höfuðstöðvum
hins útlæga Dalai Lama. Hugsuð-
irnir eru samankomnir til að ræða
vísindi og siðfræðileg vandamál
samtímans. Gere og Hawn taka
ekki þátt í umræðunum og eru á
staðnum sem nokkurs konar
áheyrnarfulltrúar. Þau eru bæði
ötulir stuðningsmenn hins andlega
leiðtoga Tíbeta sem hefur verið í
útlegð frá árinu 1959. Hollywood-
stjörnurnar munu hitta eðlisfræð-
inginn og Nóbelsverðlaunahafann
Steven Chu og fleiri vísindamenn í
málstofu sem nefnist The Nature
of Matter, The Nature of Life. Til-
gangur ráðstefnunnar er að efla
tengsl vestrænnar vísindalegrar
hugsunar og hinnar fornu rök-
greiningar búddismans.
Hollywoodstjörnur:
Hitta
Dalai Lama
í Indlandi
RICHARD GERE
Ræðir við blaðamenn í Tókýó áður en
hann hélt til fundar við Dalai Lama.
FÓLK Söngkonan Alicia Keys segir
að sér verði óglatt af þeim þrýst-
ingi sem hún er beitt til að reyna
vera kynþokkafull. Hún segist
eiga í mikilli baráttu við stílista
sinn um fötin sem hún klæðist og
að fólk eigi að skammast sín fyr-
ir að taka útlit fram yfir hæfi-
leika.
„Ég segi mitt álit á hlutunum
og neita að klæðast fötum til að
sýnast kynþokkafull,“ segir Keys.
„Ég þarf líklega að berjast fyrir
þessu áfram því fólk er að reyna
fá mig til að líta út eins og það
vill.“ Hún viðurkennir þó að fram-
koma hennar hafi spilað stórt
hlutverk í velgegni hennar. „Ef ég
væri of þung, með reytt hár
myndi fólk líklega ekki hlusta á
það sem ég hef að segja. Það er
satt að fólk dæmir mann fyrst eft-
ir útlitinu. Mér finnst það mikil
skömm.“
Alicia Keys:
Kýs hæfileika fram
yfir kynþokka
ALICIA KEYS
Hefur notið mikilla vinsælda á síðasta ári
fyrir tónlist sína og útlit.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T