Fréttablaðið - 09.10.2002, Page 7

Fréttablaðið - 09.10.2002, Page 7
INNLENT VERKNÁMSHÚS Á AKUREYRI Nýtt verknámshús heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri var form- lega tekið í notkun á mánudaginn. Húsið verður einkum nýtt til starfsþjálfunar nemenda í hjúkr- unarfræði og iðjuþjálfum. AKUREYRI EIGNAST VINABÆ Í FÆREYJUM Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri Akureyrar, og Jógvan Krosslá, bæjarstjóri Vágs í Færeyjum, hafa undirritað sam- komulag um tengsl og samskipti bæjanna tveggja. Stefnt er að því að taka upp formlegt vinabæja- samband innan þriggja ára. FUNDAÐ Á FIMM STÖÐUM Ráð- stefna um ferðaþjónustu á Ís- landi verður haldin á föstudaginn á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Vík í Mýrdal með samtengingu í gegnum fjarfunda- búnað. bb.is 7MIÐVIKUDAGUR 9. október 2002 INNLENT STJÓRNARRÁÐIÐ Dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórninni frumvarp um breytt lög um ríkisborgararétt. Lögum breytt: Tvöfaldur rík- isborgararétt- ur staðfestur STJÓRNMÁL „Það er lagt til að tekin verði upp viðurkenning á tvöföld- um ríkisborgararétti. Þeir sem hingað flytja og fá ríkisborgara- rétt geta þá einnig haldið fyrri ríkisborgararétti,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Dómsmála- ráðherra kynnti ríkisstjórn frum- varp um breytingar á lögum um ríkisborgararétt. Ingvi Hrafn segir að í raun hafi ekki verið gengið eftir því að þeir sem fái íslenskan ríkisborgara- rétt afsali sér eldri ríkisborgara- rétt. Ástæða hafi þótt til að breyta lögum þannig að staðfest væri að menn gætu verið með tvöfaldan ríkisborgararétt. Það sé algeng- ara en áður að fólk tengist tveim- ur löndum. Því sé mikilvægt fyrir fólk að halda ríkisborgararétti í báðum löndum svo það glati ekki ýmsum réttindum. Svipaðar breytingar standa yfir víðar á Norðurlöndum. Svíar hafa staðfest tvöfaldan ríkisborg- ararétt. Málið er í vinnslu í Finn- landi. Í Noregi og Danmörku er þetta í skoðun.  VIÐSKIPTI Kaupþing er orðið stærsti einstaki eigandi Skeljungs hf. með eignarhlut á milli 22 og 24% í fyrirtækinu. Kaupþings- menn munu hafa farið fram á við- ræður við Shell Petroleum Co. um kaup á 20% hlut í Skeljungi. Kristinn Björnsson, for- stjóri Skeljungs, segist hafa fengið fregnir af því úr h ö f u ð s t ö ð v u m Shell að Kaupþing hafi farið fram á viðræður. Hvort eða hvenær af slík- um fundi verði hefur hann ekki heyrt um. Mikil viðskipti hafa verið með bréf Skeljungs að undanförnu. Hluthöfum hefur verið að fækka í kjölfar þess að Kaupþing hefur aukið hlut sinn. Þriðji stærsti hlutafinn er Burðarás, eignar- haldsfélag Eimskipafélagsins. Burðarás jók hlut sinn á dögunum með kaupum á bréfum sem voru í eigu Skeljungs. Greining Íslandsbanka telur bréf Skeljungs hátt metin miðað við önnur fyrirtæki í olíudreif- ingu. Bæði Burðarás og Kaupþing eru því að kaupa bréfin frekar háu verði. Það bendir svo til, að mati sérfræðinga, að tilgangurinn sé annar en hrein fjárfesting. Miðað við tilraunir Kaupþings til að funda með Shell Petroleum má ætla að fyrirtækið hyggist ná yf- irráðum yfir félaginu. Kaupþing er fjárfestingarbanki og áhugi þess beinist að væntum hagnaði af slíkum viðskiptum en ekki að því að reka slík fyrirtæki. Líkleg- ast er því að ráðandi staða, náist hún, verði til sölu. Úti á markaðn- um velta menn vöngum yfir því hver sá kaupandi gæti verið og hefur nafn Baugs verið nefnt. Ekkert hefur þó fengist staðfest um það. Ekki náðist í stjórnendur Kaupþings vegna málsins. Kristinn Björnsson segir Skelj- ung hafa verið í viðskiptum við Shell Petroleum í 70 ár og ánægja sé í höfuðstöðvunum með árangur fyrirtækisins hér á landi. „Ég á því ekki von á öðru en að samstarf núverandi stjórnar og félagsins verði áfram eins og það hefur ver- ið.“ Í ljósi langrar viðskiptasögu er ólíklegt að Shell Petroleum selji hlut sinn án samráðs við núver- andi stjórn fyrirtækisins. Hverjir ráða fyrirtækinu er undir því komið hvort og hverjum þeir selja. haflidi@frettabladid.is ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON Vill að Sementsverksmiðjan taki að sér förgun spilliefna í ríkari mæli en nú er. Gæti rennt frekari stoðum undir rekstur verksmiðjunnar. VG um Sementsverk- smiðju: Lykilhlut- verk í förgun spilliefna ALÞINGI „Við viljum ganga úr skug- ga um hvernig Sementsverk- smiðjan getur í enn ríkari mæli unnið að förgun spilliefna. Nú fargar verksmiðjan um 5.000 tonnum af fljótandi efnum, nær eingöngu úrgangsolíum. Við telj- um að hún geti gegnt lykilhlut- verki hvað varðar förgun spilli- efna og notkun á iðnaðarúrgangi,“ segir Árni Steinar Jóhannsson, þingflokki Vinstri grænna. Hann flytur ásamt Jóni Bjarna- syni þingsályktunartillögu sem felur í sér að iðnaðarráðherra láti gera úttekt á framtíðarhlutverki Sementsverksmiðjunnar á Akra- nesi við förgun spilliefna. Flutn- ingsmenn segja að nú þegar hafi verksmiðjan unnið brautryðj- endastarf á því sviði með brennslu úrgangsolíu. Forráða- menn verksmiðjunnar segjast hæglega geta tekið að sér förgun aukins hluta spilliefna. Pappaúrgangur sem til fellur í landinu ár hvert er um 15 til 20 þúsund tonn, timbur 14 til 15 þús- und tonn, dagblöð 1.500 til 2.000 tonn og annað eins af hjólbörðum. Sum þessara spilliefna eru flutt til útlanda en vegna eðlis Sements- verksmiðjunnar, þar sem unnin er vara við mjög hátt brennslustig, gæti hún auðveldlega sinnt spilli- efnaförgun í ríkari mæli, sem aft- ur gæti styrkt reksturinn. KYNNING Tæplega 1.200 auglýs- ingaveggspjöld frá Flugleiðum voru sett upp í morgun í öllum neðanjarðarbrautarstöðvum í miðborg Parísar. Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, sagði að veggspjöldin væru 2 sinnum 1,5 metri að stærð og markaðsherferðin stæði til 5. nóvember. „Þessi markaðsherferð miðar að því að fá Frakka til að koma til landsins í stuttar helgarferðir,“ sagði Guðjón. „Algengt er að á þessum árstíma taki Frakkar sér stutt frí. Flugleiðir hafa notað þessa kynningaraðferð með góð- um árangri í London og í fyrsta sinn í fyrra í París. Þá tóku, sam- kvæmt könnunum, um sjö millj- ónir manna eftir auglýsingunni og er herferðin nú enn umfangs- meiri en þá. Geysileg aukning, eða um 40%, hefur verið á ferða- mönnum frá Frakklandi á þessu ári.“ Á veggspjöldunum er lögð áhersla á haust- og vetrarstemn- ingu með myndum úr Bláa Lón- inu, jeppaferð á jökli og Hall- grímskirkjuturni á nýársnótt. Þriggja nátta pakki kostar frá 39.000 krónum, en meðalverð er frá 43.000 upp í 52.000. Ferða- málaráð stendur að herferðinni með Flugleiðum.  UMHVERFISVÆN FERÐAÞJÓNUSTA Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum og Markaðs- og atvinnu- málaskrifstofa Reykjanesbæjar munu standa fyrir ráðstefnu um umhverfisvæna ferðaþjónustu á Hótel Keflavík þann 16. október kl. 14. Fjallað verður um um- hverfisvæna ferðaþjónustu og hvert sé hlutverk sveitastjórna og fyrirtækja, hvað sé hægt að gera til þess að gera fyrirtæki umhverfisvænni og hver ávining- urinn af því kann að vera. vf.is HJÓLABRETTAAÐSTAÐA Í GARÐA- BÆ Ný hjólabrettaaðstaða hefur verið hönnuð í Búðakinn í Garða- bæ og eru „skötur“ bæjarins þeg- ar farnar að hópast þangað. Einn pallur hefur verið smíðaður og komið fyrir á miðju svæðinu en auk hans verða þrír stórir pallar á svæðinu. UMFERÐ Framkvæmdir við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Stekkjarbakka hefjast á næsta ári. Ólafur Bjarnason, yfirverk- fræðingur hjá borgarverkfræð- ingi, segir áætlaðan kostnað við framkvæmdir vera um 850 millj- ónir króna og stefnt sé að því að ljúka framkvæmdunum að mestu á næsta ári. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir að Stekkjarbakkinn svei- gi til norðurs í átt að Fossvogi og segir Ólafur ekki útilokað að hann gæti tengst hugsanlegri Foss- vogsbraut. Þegar ný gatnamót verða tekin í notkun mun ekki verða hægt að beygja í vestur frá Reykjanesbraut og inn á Álfa- bakka. Upphaflega voru mislæg gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar á undan í for- gangsröðinni. Ólafur segir að gatnamótin á Reykjanesbrautinni hafi verið sett á undan í forgangs- röðinni, þar sem borgaryfirvöld- um þyki liggja meira á þeim. Þung umferð sé úr Breiðholtinu og nið- ur í bæ og ný gatnamót myndu liðka mikið fyrir henni. Ólafur segir að framkvæmdir við mislæg gatnamót Suðurlands- vegar og Vesturlandsvegar frest- ist um tvö ár. Vegagerðin hafi for- ræði í þessum málum og því fari það eftir fjárveitingum frá ríkinu hvenær hægt verði að ráðast í framkvæmdirnar. Hugsanlega hefjist þær árið 2004.  EFTA og ESB: Samhæfing fjármála- markaða STJÓRNMÁL Fjármálaráðherrar að- ildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Evrópusambandsins ræddu nauðsyn þess að samhæfa fjármálamarkaði ríkjanna á ár- legum fundi sínum. Einnig að- gerðir á sviði fjármála og skatta til að ná tilteknum markmiðum í umhverfismálum. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra sagði mikilvægt að fjár- málaaðgerðir á sviði umhverfis- mála hefðu ekki neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu atvinnulífsins. Umhverfisgjöld yrðu notuð til að lækka aðra skatta.  Ísland kynnt á neðanjarðarbrautarstöðvum Parísar: Frakkar tældir til Íslands NÝ GATNAMÓT Þung umferð er úr Breiðholtinu og niður í bæ og því voru mislæg gatnamót við Reykja- nesbraut og Stekkjarbakka færð fram í forgangsröðinni. Ný 850 milljóna mislæg gatnamót á Reykjanesbraut: Gætu tengst hugsan- legri Fossvogsbraut KAPPHLAUP Kaupþing hefur leitað hófanna hjá móðurfyrirtæki Skeljungs, Shell Petroleum Co, sem á rúm 20% í fyrirtækinu. Hlutur sem ræður úrslitum um hverjir stjórna félaginu. Kaupþing stefnir á yfirráð í Skeljungi Kaupþing hefur óskað eftir fundi með Shell Petroleum sem á 20% í Skelj- ungi. Kaupþing ásælist hlut fyrirtækisins og þar með yfirráð yfir fyrir- tækinu. Burðarás, dótturfélag Eimskipafélagsins reynir að verja stöðuna með kaupum á bréfum. Valdahlutföllin ráðast af vilja Shell Petroleum. Í ljósi langrar viðskiptasögu er ólíklegt að Shell Petrole- um selji hlut sinn án sam- ráðs við nú- verandi stjórn fyrirtækisins. LÁTIÐ ÍSLAND KOMA YKKUR Á ÓVART Tæplega 2.000 veggspjöld hafa verið sett upp í neðjanjarðarbrautarstöðvum í miðborg Parísar. Auglýsingaherferðin stendur til 5. nóvember. N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.