Fréttablaðið - 09.10.2002, Qupperneq 21
21MIÐVIKUDAGUR 9. október 2002
S
n
a
ig
é
:
G
æ
ð
a
g
ri
p
u
r
á
g
ó
ð
u
v
e
rð
i.
..
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Stórglæsilegir kæli- og
frystiskápar á ótrúlegu
kynningarverði!
OPIÐ: Mán.–föstud. 9–18Laugard. 10–15
Gerð Mál í cm Rými í ltr. Litur Kynningar-
HxBxD kælir + frystir verð, stgr.
C-140 85x56x60 127 hvítur 32.130,-
C-290 145x60x60 275 hvítur 40.230,-
R-130 85x56x60 81 + 17 hvítur 34.560,-
RF-270 145x60x60 170 + 61 hvítur 52.920,-
RF-310 173x60x60 192 + 92 hvítur 63.450,-
RF-310 173x60x60 192 + 92 stál 80.730,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 hvítur 58.050,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 metalic 61.830,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 stál 75.330,-
RF-360 191x60x60 225 + 90 hvítur 69.930,-
F-100 85x56x60 85 hvítur 37.530,-
F-245 145x60x60 196 hvítur 49.680,-
Kælimiðill R600a - Kælivél Danfoss, Electrolux, fl.
Frystihólf - Orkuflokkur “A“
2ja ára ábyrgð.
Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Snaigé er nýr á Íslandi, kominn til að vera vegna
vandaðrar nútíma framleiðsluaðferðar, hagkvæmni í
rekstri og hagstæðs verðs.
Enn ein Hollywood-stjarnan á leiksvið í London:
Glenn Close
í Sporvagnin-
um Girnd
FÓLK Leikkonan Glenn
Close hefur tekið að sér
hlutverk í uppfærslu leik-
ritsins „A Streetcar named
Desire“ í West End-hverf-
inu í London. Leikritið
verður frumsýnt á morg-
un.
Close bætist nú í vax-
andi hóp þeirra Hollywood-
leikara sem hafa reynt fyr-
ir sér á sviði í London. Þar
má nefna Nicole Kidman,
Madonnu, Kevin Spacey,
Matt Damon, Woody
Harrelson, Kyle MacLachl-
an og Gwyneth Paltrow.
Close, sem er þekktust
fyrir hlutverk sín í myndunum
„Fatal Attraction“, „Dangerous
Liaisons“ og „101 Dalamatíuhund-
ar“, fer með hlutverk Blanche
DuBois í leikritinu. Hún er, eins
og þeir muna sem hafa séð leikrit-
ið eða kvikmyndina með Marlon
Brando í aðalhlutverki, afar við-
kvæm kona sem er systir eigin-
konu hins ofbeldisfulla Stanley
Kowalski.
Breski leikarinn Iain Glen fer
með hlutverk Kowalski, sem
Brando gerði ódauðlegan með
stórkostlegum leik sínum í kvik-
myndaútgáfunni frá 1951.
Straumur Hollywood-leikara á
leiksvið London er slíkur að sam-
tök leikara þar í borg hafa lagt
inn kvörtun til leikhúsanna og
gagnrýnt þá ákvörðun þeirra að
ráða Hollywood-leikara í stað
þess að styðjast við breskt hæfi-
leikafólk.
GLENN CLOSE
Bætist í hóp Hollywood-leikara sem reyna
fyrir sér á leiksviði í London.
KVIKMYNDIR Í gær voru
Hollywood-kvikmyndaverðlaunin
afhent í sjötta skiptið. Þau eru af-
hent í lok Hollywood-kvikmynda-
hátíðarinnar.
Það var framtíðarspennumynd
Steven Spielberg, „Minority
Report“, sem var valin besta
myndin í ár. Leikkonan Jennifer
Aniston er nýlega byrjuð að leika
í kvikmyndum og þykir standa sig
með prýði í myndinni „The Good
Girl“. Hún virtist afar undrandi
þegar henni voru afhent verðlaun-
in sem „besta leikkonan“. Tom
Hanks hlaut svo leikaraverðlaun-
in fyrir frammistöðu sína í mynd-
inni „The Road to Perdition“.
Leikkonan unga Naomi Watts
fékk nýliðaverðlaunin fyrir leik
sinn í David Lynch-myndinni
„Mulholland Drive“. Jeffrey
Katzenberg fékk verðlaunin fyrir
teikni- eða hreyfimyndina „Spirit:
Stallion of the Cimarron“. Hann
er líklega þekktastur fyrir að hafa
gert teiknimyndina Shrek.
Leikkonan Jodie Foster tók á
móti heiðursverðlaunum fyrir
leiksigra á ferli sínum. Leikstjór-
inn Martin Scorsese fékk heið-
ursverðlaun fyrir leikstjórnar-
sigra sína í gegnum árin. Leik-
stjórinn ungi McG fékk nýliða-
verðlaunin fyrir framhaldsmynd
Charlie’s Angels.
STEVEN SPIELBERG
„Minority Report“ var verðlaunuð
sem „besta myndin“.
Hollywood-kvikmyndaverðlaunin afhent:
Minority Report besta myndin
JENNIFER ANISTON
Hefur hlotið óskabyrjun á kvikmyndaleik-
ferli sínum. Tók á móti verðlaunum sem
besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir mynd-
ina „The good girl“.
NÝJAR BÆKUR JPV Útgáfa hefur
gefið út bókina Umkomulausi
drengurinn, sem er sjálfstætt
framhald metsölubókarinnar
Hann var kallaður „þetta“. Dave
Pelzer átti ekkert heimili sem
barn. Aleiga hans voru fatalarfar
sem rúmuðust í einum bréfpoka.
Hann bjó í veröld einangrunar og
ótta. Þó að drengnum hafi verið
bjargað frá móður sinni, sem var
drykkfelld ofstopamanneskja,
var líðan hans skelfileg, hann var
einn og átti í engin hús að venda.
Í Umkomulausa drengnum lýsir
Dave ferli sínum inn og út af
fimm ólíkum heimilum. Á vegi
hans varð fólk sem áleit öll fóst-
urbörn vandræðagemlinga sem
ekki verðskulduðu neina vænt-
umþykju. Það vildi ekki vita af
honum nálægt sér og varð þess
valdandi að hann skammaðist sín
og fannst hann niðurlægður. Sorg
og gleði, örvænting og von ein-
kenna leit þessa drengs að ást og
öryggi.
UMKOMULAUSI DRENGURINN
Þegar kerfið tók við sér þótti mál Daves
eitt það versta sinnar tegundar.
Framhald af Hann var kallaður „þetta“:
Umkomulausi
drengurinn