Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 9. október 2002
Dróttskátamótið Saman 2002:
Skátar
kynnast björg-
unarstörfum
SKÁTAMÓT Dróttskátamótið Saman
2002 var haldið á Gufuskálum um
síðustu helgi. Skátar og björgun-
arsveitir frá Reykjavík, Kópa-
vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og
Hveragerði tóku þátt en mótið
heitir einmitt saman af því að frá
hverju bæjarfélagi verða að
koma saman björgunarsveit og
dróttskátar. Tilgangur mótsins
var að kynna hópana og gefa
skátunum kost á að fá innsýn í
störf björgunarsveita svo þeir
geti ákveðið hvort þeir gangi í
björgunarsveit þegar þeir hafa
aldur til, en vel þjálfaðir drótt-
skátar þykja besti efniviðurinn í
björgunarsveitir.
Þetta er í fjórða sinn sem mót-
ið er haldið en þau hafa hingað til
verið haldin í Þórsmörk. Um 80
unglingar og 25 björgunarsveitar-
menn og -konur tóku þátt í mótinu
að þessu sinni.
Þrautþjálfað björgunarsveitar-
fólk stjórnaði öllum póstum í
dróttskátamaraþoni, enda um
krefjandi pósta að ræða og mikil-
vægt að gæta öryggis. Þannig
kynnast skátarnir störfum björg-
unarsveita á öruggan en skemmti-
legan hátt.
RÚSTABJÖRGUN
Á Gufuskálum eru þjálfunarbúðir Slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar. Þar er mjög
fullkomið æfingarsvæði fyrir rústabjörgun
og aðstaða öll til fyrirmyndar.
FRÆGA FÓLKIÐ Ofurskutlan Angel-
ina Jolie sagði sem kunnugt er
skilið við heittelskaðan eiginmann
sinn, leikarann Billy Bob Thornt-
on, eftir gengdarlaust framhjá-
hald kappans. Hún gerir sér nú
góðar vonir um að hún geti krækt
aftur í fyrsta eiginmann sinn,
leikarann stórfína Jonny Lee Mill-
er, sem gerði garðinn einna
frægastan sem Sick Boy í hinni
miður geðslegu kvikmynd Train-
spotting. Jolie segist gera sér góð-
ar vonir um að hún og Miller geti
fundið ástina á ný. Miller er ný-
hættur með kærustunni sinni,
Lísu Faulkner, og staðfestir að
hann heyri reglulega í Jolie.
„Henni líður mjög vel og hún er
alls ekkert geðbiluð. Hún er sjálf-
sagt misskildasta manneskja í
heimi.“ Jolie er enn með nafn
Millers flúrað í húð sína en þau
gengu í það heilaga árið 1996 eftir
að þau kynntust við gerð tölvu-
þrjótamyndarinnar Hackers.
Jolie hneykslaði vini og kunningja
í brúðkaupi þeirra þegar hún
mætti að altarinu í stuttermabol
sem hún hafði skrifað nafn
unnustans á með blóði.
KÓNGAFÓLKIÐ Karl Bretaprins hyg-
gst gera óperu sem byggir á lífi
ömmu hans, hinar dáðu drottning-
armóður. Fregnir herma að prins-
inn hafi sett sig í samband við Pat-
rick Doyle, sem sá um tónlistina í
Dagbók Bridgetar Jones, og beðið
hann um að semja verkið. Doyle
er enginn viðvaningur og hefur
meðal annars unnið mikið með
Kenneth Branagh, til að mynda
við Hamlet og Ys og þys út af
engu. Þeir Karl hafa einnig unnið
saman áður en prinsinn fékk
Doyle til að semja kórsönginn The
Thistle And The Rose í tilefni af
90 ára afmæli drottningarmóður-
innar árið 1990.
Karl hefur oft lýst því yfir að
amma hans hafi tendrað hjá sér
áhuga á listum en hún fór með
hann, þá sjö ára gamlan, á fyrsta
ballettinn sem hann sá og hann
telur því rökrétt að minnast henn-
ar með óperu. Amma hans upp-
lifði ýmsa stórviðburði í mann-
kynssögunni eins og til dæmis
báðar heimsstyrjaldirnar og óper-
an gæti því hæglega sagt sögu
allrar 20. aldarinnar.
KARL PRINS
Vill gera óperu um líf ömmu sinnar.
Karl Bretaprins:
Vill minnast ömmu
sinnar með óperu
ANGELINA JOLIE OG THORNTON
Hér virðist allt í góðum gír hjá þeim
hjónkornum en Billy reyndist laus í rásinni
og nú vill Jolie endurheimta fyrsta eigin-
mann sinn aftur.
Angelina Jolie:
Vill fá Jonny Lee aftur