Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 24
Játningar Davíðs Oddssonar for-sætisráðherra á því að hann hafi haft þann sið meðan hann fékkst við kennslu og uppeldisstörf í Verslun- arskólanum að nota leiftursnögg höfuðhögg sem kennsluaðferð hafa vakið mikla athygli. Og fleiri og fleiri koma nú fram í dagsljósið og vitna um reynslu sína. BORGARFULLTRÚI einn sem sat í borgarstjórn Reykjavíkur bæði fyrir og eftir að Davíð varð borgar- stjóri segir svo frá: „Áður fyrr var hver höndin uppi á móti annarri. Við í borgarstjórnarflokknum vorum ráðvillt, sundruð og ósammála um alla hluti. Á fyrsta borgarstjórnar- fundinum eftir að Davíð tók við man ég að hann reis á fætur – ég hélt hann þyrfti að skreppa á kló- settið – en hann gekk hratt framhjá okkur og barði hvert okkar eitt leiftursnöggt högg í höfuðið, að ég held nákvæmlega í hvirfilinn. VIÐ HÖGGIÐ fannst mér skyndi- lega að ég sæi mikið ljós, ótrúlega skæra bláa birtu, og ég upplifði mikla sælukennd. Ég skildi í einu vetfangi að ég þyrfti aldrei framar að óttast neitt eða efast - ef ég gæfi mig þessu bláa ljósi á vald.“ SÖMU SÖGU segja margir al- þingismenn sem hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa fengið að upplifa bláa ljósið. Sumir þeirra tala um kraftaverk, en fræðimenn við Háskóla Íslands hafa ekki næga reynslu af stjórnmálum til að úr- skurða hvort hér sé um kraftaverk að ræða eða einungis dáleiðslu eins og hjá dávaldinum Frisinette sáluga sem svo oft kom hingað til lands á æskuárum Davíðs og skemmti í Austurbæjarbíói. Í RÍKISSTJÓRNINNI eru skiptar skoðanir um þessi höfuðhögg. „Ég þjáðist af miklum höfuðverkjum, einkum þegar ég var innan um kjós- endur,“ segir Guðni Ágústsson. „Ég minntist á þetta við forsætisráð- herra og hann strauk mér blíðlega um kollinn og síðan hef ég ekki fundið fyrir höfuðverk – utan einusinni þegar ég fór norður á Hólahátíð.“ Aðrir hafa þó upplifað „bláa ljósið“ án þess að hafa orðið fyrir barsmíðum. „Davíð hefur aldrei slegið til mín,“ segir prófess- or Hannes H. „Hins vegar datt ég einu sinni mjög illa á höfuðið þegar ég var barn.“  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Heimsljós! Bakþankar Þráins Bertelssonar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.