Fréttablaðið - 23.10.2002, Síða 4

Fréttablaðið - 23.10.2002, Síða 4
4 23. október 2002 MIÐVIKUDAGUR ERLENT KORT Fyrsta Íslandskortið á gagn- virkum geisladiski var kynnt í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær. Þá afhenti Magnús Guð- mundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, Siv Friðleifsdóttur um- hverfisráðherra fyrsta eintakið af kortadisknum. Um er að ræða fyrsta geisla- disk sinnar tegundar. Á honum er að finna fjölda Íslandskorta, bæði nákvæm aðalkort og ferðakort, svo og gróðurkort, gervihnatta- mynd, sveitarfélagakort og stjórnsýslukort. Hægt er að leita að yfir 3.000 örnefnum, svo og hnitum í helstu hnitakerfunum. Ennfremur er hægt að sjá stað- setningu á kortinu af GPS-tæki. Geisladiskurinn er gagnvirkur, þannig að notendur geta skráð sín eigin örnefni, merkt inn göngu- leiðir og ferðaslóðir, mælt vega- lengdir og flatarmál, skráð ferða- sögur og þar fram eftir götunum. Hægt er að prenta kort af diskn- um og einnig afrita þau inn í önn- ur forrit.  Gagnvirkt Íslandskort gefið út á geisladiski: Hægt að merkja gönguleiðir NÝTT ÍSLANDSKORT Hægt er að leita að yfir 3.000 örnefnum, svo og hnitum í helstu hnitakerfunum, á nýja kortadisknum. AÐSTOÐARMENN KENNARA Bresk yfirvöld hafa ákveðið að gera aðstoðarmönnum kennara hærra undir höfði í skólakerfinu. Þeir eiga að taka á sig meiri ábyrgð, létta vinnuálagi af kenn- urum og sjá til þess að hverjum nemanda sé betur sinnt. ÓDÝRT KAFFI VELDUR VANNÆR- INGU Lækkun kaffiverðs á heimsmarkaði veldur því að þús- undir barna í Venesúela eiga á hættu að þjást af næringarskorti. NÝTT DAGBLAÐ Í DANMÖRKU Nýtt dagblað er komið út í Dan- mörku. „Dagen“ heitir það og á að höfða einkum til efnaðs fólks í yngri kantinum. KOMINN Í SÆTIÐ SITT Gerhard Schröder hefur tryggt sér kansl- arasætið á ný. Schröder kosinn kanslari: Stjórnar með naumum meirihluta BERLÍN, AP Gerhard Schröder fékk 305 atkvæði á þýska þinginu í gær þegar kanslari landsins var valinn fyrir næsta kjörtímabil. Schröder sór síðan embættis- eið sinn. Slíkt hið sama gerðu ráð- herrar í nýrri stjórn Jafnaðar- manna og Græningja. Flokkarnir hafa verið við völd í Þýskalandi undanfarin fjögur ár. Í nýju stjórninni er Græningjum þó gert hærra undir höfði vegna þess að þeir unnu verulegan kosningasig- ur í síðasta mánuði. Jafnaðar- menn töpuðu hins vegar miklu fylgi í sömu kosningum, þannig að ríkisstjórnin stendur tæpt á þing- inu. Flokkarnir hafa samtals 306 þingmenn af 603. Schröder hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að hafa ekki náð að minnka atvinnuleysi neitt síð- ustu fjögur ár. Velferðarkerfið í Þýskalandi þykir sömuleiðis þungt í vöfum og þykir Schröder eiga erfitt verkefni fyrir höndum við að stokka upp í því. Schröder kallaði nýju stjórnina saman á fyrsta fund sinn strax í gærkvöld. Hins vegar ætlar hann ekki að flytja fyrstu ræðu sína á þingi fyrr en á þriðjudag í næstu viku.  AP /M AR KU S SC H R EI B ER Samfylkingin Reykjavík: Kjósa raf- rænt í próf- kjörinu PRÓFKJÖR Kosið verður með rafræn- um hætti í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík. Þetta er í fyrsta skipti sem prófkjör stjórnmálaflokks fer fram með rafrænum hætti, áður hefur verið kosið með rafrænum hætti í flugvallarkosningu. Guðmundur Haraldsson, for- maður kjörstjórnar, segir að þetta eigi þó ekki að verða til þess að eyðileggja stemninguna á kosn- ingavöku. Kosið sé til tíu og síðan verði farið í að telja utankjörfund- aratkvæði. Úrslitin verði því ekki kunn alveg um leið.  VEIÐI Eina leiðin fyrir bændur til að losna við ágang skotveiði- manna sem fara í óleyfi um eign- arlönd er að kæra þá til lögreglu, að sögn Indriða Aðalsteinssonar, bónda á Skjaldfönn við Ísafjarðar- djúp. Hann segir að ágangur veiðimanna beggja megin Djúps- ins sé mikill. Þetta sé leiðindamál, enda um að ræða eignarlönd og með hlunnindum. Engum dytti í hug að veiða lax í óþökk jarðareig- enda og því óskiljanlegt að menn telji sig geta veitt önnur dýr í óleyfi þeirra. „Ég veit til þess að bændum, sem hafa reynt að tala við þessa ribbalda, hafi verið hótað hörðu,“ segir Indriði, sem sjálfur er göm- ul skytta. „Þeim hefur verið sagt að þeim komi þetta ekkert við. Þeir eigi ekkert með að banna að- komumönnum að fara um skjót- andi á nánast hvað sem hreyfist. Hér á Vestfjörðum eru öll fjöll og heiðar eignarlönd, en samt telja sumir veiðimenn bændur alveg réttlausa. Það er nákvæmlega ekkert annað að gera en að kæra þessa menn.“ Lögreglan á Ísafirði segir að engin mál hafi borist inn á borð til hennar í ár. Það sé litið alvarleg- um augum ef veiðimenn hegði sér eins og lýst hafi verið, en mál sem þessi komi ekki til kasta lögreglu nema kært sé. Í Fréttablaðinu í gær sagðist Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli í Laugadal, gruna veiði- menn um að hafa skotið búfénað. Hana vantaði 30 af rúmlega 100 fjár. Indriði segist hafa heyrt af þessu þó hann telji þetta ekki al- gengt. Árni Snæbjörnsson, hlunninda- og jarðræktarráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, segir afar sjaldgæft að veiðimenn séu sakaðir um að skjóta á búpening. En hitt sé algengara að bændur telji sig verða fyrir ónæði vegna skotveiðimanna, sem fari um eignalönd í óleyfi. Það sé alvar- legt mál, enda í trássi við vopna- lög, sem kveði skýrt á um að ekki megi hleypa af skoti á annars manns landi eða skjóta yfir ann- ars manns land án leyfis landeig- anda. Árni segir að bændur sem eigi afréttarlönd í Vestur-Skaftafells- sýslu hafi einu sinni kvartað und- an því við Bændasamtökin að veiðimenn hafi verið komnir inn á heiðalönd um leið og gæsaveið- ar hófust 20. ágúst. Skothríð og hundar hafi styggt búpening á beit og verið sé að skoða það hvort ekki sé ástæða til að seinka upphafstíma gæsaveiða vegna þessa. trausti@frettabladid.is Veiðimenn hafa hótað bændum Bóndi við Ísafjarðardjúp segir suma veiðimenn telja bændur réttlausa á eigin eignarlöndum. Ekkert annað að gera en kæra þessa menn. Lög- reglan lítur þetta alvarlegum augum en engar kærur hafa borist. BÆNDUR Á VESTFJÖRÐUM LANGÞREYTTIR Í Fréttablaðinu í gær sagðist Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli í Laugadal, gruna veiðimenn um að hafa skotið búfénað. Árni Snæbjörnsson, hlunninda- og jarðræktarráðu- nautur hjá Bændasamtökum Íslands, segir afar sjaldgæft að veiðimenn séu sakaðir um slíkt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Mörkinni 6, sími 588 5518. Mokkajakkar og kápur, ullarkápur stuttar og síðar. Fallegar úlpur, hattar og húfur. Kanínuskinn kr. 2.900 Nýjar vörur Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. TRYGGINGAR Nokkur bifreiðaverk- stæði hafa sent Samkeppnisstofn- un kvörtun og beðið um athugun á nýju kerfi sem tryggingarfélögin eru að innleiða varðandi mat á viðgerðarkostnaði. Kerfið sem tryggingarfélagið er að taka upp heitir Cabas og mun vera sænskt að uppruna. Það felur í sér samræmt mat á tjóni sem bifreiðar verða fyrir. Bifreiðaverkstæðin sem kvört- uðu telja að með kerfinu séu tryggingarfélögin að þvinga fram óeðlilega samræmda verðlagn- ingu á þjónustu og varahlutum hjá verkstæðunum. Kerfið ákvarðar hversu langan tíma tiltekin verk taka. Það á að byggja á fenginni reynslu. Verkstæðin segja að þess sé krafist að allir setji upp sama verð fyrir hverja tímaeiningu. Kvörtun verkstæðanna var sett fram síðla sumars. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Samkeppnisstofnun óskað upplýs- inga frá tryggingarfélögunum vegna málsins og bíður nú þeirra.  BIFREIÐATJÓN Eigendur nokkurra bifreiðaverkstæða telja tryggingarfélögin vera að þvinga fram sam- ræmda verðskrá. Kvörtun til Samkeppnisstofnunar vegna nýs kerfis tryggingarfélaga: Þvinga fram samræmda verðskrá bílaverkstæða Þingflokksformaður Framsóknar: Hefðbund- inn kosn- ingavetur ALÞINGI „Upphaf þings hefur verið nokkuð hefðbundið miðað við síð- asta vetur fyrir kosningar. Stjórn- arandstöðuflokk- arnir eru að marka sér stöðu og ein- stakir þingmenn að leggja fram sín mál, og það stund- um óskaplega mik- ið af málum. Stjórnarflokkarnir fara seinna af stað, eðli málsins sam- kvæmt, og tala meira fyrir sam- eiginlegum málum sem ríkisstjórnin flytur,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, þing- flokksformaður Framsóknar. Kristinn gerir ráð fyrir miklum deilum þegar úrskurðurinn um Norðlingalón og Þjórsárver verður birtur, sama hver niðurstaðan verð- ur. Eins geti ályktun Starfsgreina- sambandsins um breytta stjórn fiskveiða hleypt lífi í þá umræðu.  KRISTINN H. GUNNARSSON Menn eru byrjaðir að leggja línur, hvar menn geti sótt fram og hvar þeir verði að gæta sín. KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Var rétt að banna sérfræðing- um á ríkisspítölum að reka stofur utan spítalanna ? Spurning dagsins í dag: Telur þú að eldvarnir séu í lagi á þínu heimili? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 30,1% 69,9%Já BANNIÐ RÉTTMÆTT Rúmur meirihluti þjóð- arinnar er sammála ákvörðun stjórnenda ríkisspítala að banna sérfræðingum að reka stofur utan spítalanna. Nei

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.