Fréttablaðið - 23.10.2002, Qupperneq 6
6 23. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
ERLENT
SKIPULAGSMÁL Borgaryfirvöld hafa
þegar ákveðið að byggð verði fjöl-
býlishús fyrir aldraða á grænu
svæði austan við skógræktina í
Fossvogi.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður skipulags- og bygging-
arnefndar, segir að sú nýbreytni
verði þó höfð á að samráð verði
haft við íbúa í nærliggjandi hús-
um um útfærslur á nýtingu lóðar-
innar.
Á næstu dögum eiga íbúar í
hverfinu að fá bréf frá skipulags-
yfirvöldum þar sem kynnt eru
áform um nýtingu lóðarinnar, sem
fram til þessa hefur verið skil-
greind sem grænt svæði.
„Við ætlum að kynna okkar
sjónarmið fyrir íbúunum og vænt-
anlega kalla eftir viðbrögðum og
hugsanlega sjónarmiðum sem
snerta útfærslu. Við munum
þannig vinna málinu brautargengi
í samráði við íbúa. Í skipulagsferl-
um höfum við of oft verið að
bregðast við athugasemdum eftir
á. Oft eru þær tilkomnar vegna
þess að byggingaráformin koma
fólki í opna skjöldu. Ef samráð er
haft fyrr er betri möguleiki á að
það skapist skipulagslegur skiln-
ingur á uppbyggingunni,“ segir
Steinunn Valdís.
Að sögn Steinunnar liggur enn
ekkert fyrir um hvernig lóðinni
verður úthlutað eða hvort borgin
muni krefjast endurgjalds fyrir
hana.
Formaður skipulags- og byggingarnefndar um skógræktarlóðina:
Nágrannar hafi áhrif á útfærslu
LÓÐIN Í SKÓGARJAÐRINUM
Þrír hópar aldraðra hafa spurst fyrir um
grænt svæði við Skógrækt Reykjavíkur
með byggingu íbúða í huga. Vigdís Finn-
bogadóttir er í einum hópnum.
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
• Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
FÓLKSFLUTNINGAR Nær 44.000 manns
fluttu búferlum fyrstu níu mánuði
ársins samkvæmt skráningu í þjóð-
skrá. Rúmur helmingur þeirra sem
fluttu búferlum fluttust til innan
sama sveitarfélags, 23.500 manns.
Nær 14.000 fluttu milli sveitarfé-
laga innanlands. Litlu fleiri fluttu
til landsins en frá. Hingað fluttu
3.239 einstaklingar en héðan 3.193.
Leið þeirra sem flytja milli
landshluta liggur á höfuðborgar-
svæðið. Þangað fluttu 525 fleiri en
fluttu burt. Í öðrum landshlutum
eru þeir fleiri sem flytja á brott
heldur en þeir sem flytja í sveitar-
félög á landsbyggðinni. Á Norður-
landi vestra fækkaði um 115, á
Vestfjörðum fækkaði um 106 og 94
á Austurlandi.
Af sveitarfélögum eru það
Kópavogur, með 398 aðflutta um-
fram brottflutta, og Hafnarfjörður,
238, sem vinna mest á. Þeir sem
fluttu frá Reykjavík voru 234 fleiri
en þeir sem fluttu. Í Vestmannaeyj-
um fækkaði um 64 af sömu sökum
og um 51 á Húsavík.
DAGBLAÐ SELT Bandaríska dag-
blaðið Washington Post undirrit-
aði í gær viljayfirlýsingu um að
selja helmingshlut sinn í dag-
blaðinu International Herald
Tribune til New York Times, sem
á fyrir hinn helminginn í blað-
inu.
SLEPPT ÚR FANGELSI Barnshaf-
andi konu í Nígeríu og fyrrver-
andi elskhuga hennar var í gær
sleppt úr fangelsi meðan mál
þeirra bíður áfrýjunar. Bæði
eiga þau yfir höfði sér að verða
grýtt til bana fyrir að hafa
stundað kynlíf utan hjónabands.
KONUNGUR DÆMDUR Dómstóll í
Svasílandi úrskurðaði í gær að
konungur landsins verði að leyfa
átján ára stúlku, sem aðstoðar-
menn hans höfðu valið honum til
konu, að fara heim til móður
sinnar. Mswati III, sem er 34
ára, á fyrir níu eiginkonur.
Nær 44.000 manns fluttu fyrstu níu mánuði ársins:
Fjölgar í Kópavogi
og Hafnarfirði
SKIPULAGSMÁL Hið stóra íþróttahús
Vals, sem tekið var í notkun fyrir
15 árum, verður rifið og nýtt
byggt samkvæmt nýju deiliskipu-
lagi fyrir Hlíðarenda. Þá er ráð-
gert að byggja nýtt knatthús þar
sem núverandi aðalvöllur félags-
ins er og færa aðalvöllinn nær fé-
lagsheimilinu.
Margrét Þormar, hverfisstjóri
hjá skipulagsfulltrúa, segir að
borgaryfirvöld hafi ekki tekið
neina ákvörðun um það hvenær
framkvæmdir hefjist á svæðinu,
enn eigi eftir að staðfesta ákveðn-
ar breytingar á aðalskipulagi
vegna nýja deiliskipulagsins. Hún
segir að framkvæmdirnar haldist
í hendur við færslu Hringbrautar,
en þær hafi upphaflega átt að
hefjast á þessu ári.
Lóð Vals, sem í dag er 8,6 hekt-
arar, mun minnka niður í tæpa 5,9
hektara. Um einn hektari fer und-
ir ný umferðarmannvirki um-
hverfis íþróttasvæðið og 1,7 hekt-
ari á suð-vestur horni lóðarinnar
fer undir atvinnustarfsemi.
Elstu húsin á íþróttasvæðinu fá
að standa, þar sem þau falla undir
svokallað verndað byggðamynst-
ur í samræmi við húsakönnun Ár-
bæjarsafns. Íþróttahúsið, sem
vígt var 1987, verður hins vegar
rifið og nýtt og stærra íþróttahús
byggt. Nýja húsið verður með
áfastri stúku fyrir aðalvöllinn,
sem mun taka 1.200 til 1.500
manns, auk 1.000 fermetra tengi-
byggingar. Undir stúkunni er gert
ráð fyrir búningsaðstöðu fyrir
bæði aðalleikvang og íþróttahús-
ið.
Fyrirhugað er að reisa um
9.000 fermetra knatthús þar sem
núverandi aðalleikvangur er stað-
settur. Um er að ræða gervigras-
völl í fullri stærð og verður loft-
hæð um 12 metrar, en til saman-
burðar er hún 20 metrar í Egils-
höllinni.
Á um 6,5 hektara lóð fyrir utan
Valsvöllinn er gert ráð fyrir at-
vinnustarfsemi og þremur fjöl-
býlishúsum með samtals um 100
íbúðum. Margrét segir að íbúðirn-
ar séu einkum hugsaðar sem
námsmannaíbúðir. Atvinnulóðirn-
ar séu hugsaðar fyrir fjármála-,
hátækni- og þekkingarfyrirtæki,
sem og rannsóknarstarfsemi í
tengslum við Landspítalann. Þá er
einnig heimilt að byggja hótel á
svæðinu.
trausti@frettabladid.is
Fimmtán ára íþrótta-
hús Vals verður rifið
Breytingar eru fyrirhugaðar á Hlíðarenda. Valur fær nýtt íþróttahús, knatthús og aðalvöll með
stórri stúku. Ráðgert að byggja þrjú fjölbýlishús og byggingar fyrir atvinnustarfsemi.
NÝTT SKIPULAG Á HLÍÐARENDA
Á um 6,5 hektara lóð fyrir utan Valsvöllinn er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi og þremur fjölbýlishúsum með samtals um 100 íbúðum
fyrir námsmenn.
KÓPAVOGUR
Búferlaflutningar skila Kópavogi mestri
fólksfjölgun allra sveitarfélaga.
Framsókn í Suðvestri:
Barist um
sex sæti
PRÓFKJÖR Tíu tilkynntu þátttöku í
prófkjöri Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Fimm karlar og fimm konur bítast
um efstu sætin. Þau eru Egill Arnar
Sigurþórsson, Gestur Valgarðsson,
Guðrún Hjörleifsdóttir, Hildur H.
Gísladóttir, Ingibjörg Ingadóttir,
Páll Magnússon, Sigurður P. Sig-
mundsson, Siv Friðleifsdóttir, Una
María Óskarsdóttir og Þröstur
Karlsson.
Kosið verður um röð sex efstu
sæta á tvöföldu kjördæmisþingi
sem haldið verður næstkomandi
laugardag. Kosið verður í eitt sæti í
senn og er kosning bindandi.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 88,6 +0,07%
Sterlingspund 136,94 -0,08%
Dönsk króna 11,63 +0,07%
Evra 86,41 +0,08%
Gengisvísitala króna 130,29 -0,01%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 288
Velta 5.761,6 milljónir
ICEX-15 1.320,7 -0,08%
Mestu viðskipti
Pharmaco 193.019.276
Þormóður rammi-Sæberg 149.650.424
Íslandsbanki 37.010.090
Mesta hækkun
Sjóvá Almennar 2,37%
Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn 2,13%
Skýrr 1,89%
Mesta lækkun
SR-Mjöl 10,00%
Opin kerfi 3,31%
Vinnslustöðin 3,31%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
Dow Jones 8.424,3 -1,3%
Nsdaq 1.295,5 -1,1%
FTSE 4.118,9 -0,4%
DAX 3.191,3 -2,8%
Nikkei 98.689,4 -3,2%
S&P 889,2 -1,2%
TÖ
LV
U
M
YN
D
/O
N
N
O
E
H
F.
VEISTU SVARIÐ?
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra hefur verið mikið í
fjölmiðlum að undanförnu.
Úr hvaða kjördæmi kemur
hann?
Feðgarnir Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur
Thor eru tveir af þremur eig-
endum Samson, hver er
þriðji maðurinn?
Hvað heitir hinn ungi leik-
maður Everton sem skoraði
sigurmarkið gegn Arsenal?
Svörin eru á bls. 22.
1.
2.
3.