Fréttablaðið - 23.10.2002, Page 22
22 23. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
HÚSIÐ
Gamla Kennaraskólahúsið viðLaufásveg var reist sumarið
1908. Húsameistari ríkisins, Einar
Erlendsson, teiknaði húsið, sem
þótti byggt á afskekktum stað í
urðinni austan Skólavörðuholts.
Húsið er tvílyft með kjallara und-
ir. Þar var, auk kennsluaðstöðu,
íbúð fyrir skólastjóra á efstu hæð.
Í húsinu fór fram starfsmenntun
kennara til 1962, þegar starfsem-
in var að mestu flutt í nýbyggingu
skólans við Stakkahlíð. Áfram var
þó kennd handavinna í húsinu.
Árið 1989, þegar 100 ár voru
liðin frá stofnun fyrsta kennara-
félagsins á landinu, ákvað ríkis-
stjórn Steingríms Hermannsson-
ar að gefa kennarsamtökunum í
landinu húsið. Framkvæmdir við
endurbyggingu hússins hófust
árið 1991. Páll V. Bjarnason teikn-
aði breytingarnar.
Gleður börnin
á afmælinu
Ég verð 23 ára þann 23. Það erskemmtileg tilviljun,“ segir
Þóra Karítas Árnadóttir, fyrrum
þáttastjórnandi á Skjá einum,
sem á afmæli í dag. Í tilefni dags-
ins ætlar Þóra Karítas að fara
með köku og ís í vinnuna en hún
vinnur á leikskólanum Öldukoti.
„Það er mesta tilhlökkunar-
efni dagsins að fá köku og ís þeg-
ar einhver á afmæli. Það er ekki
rætt um neitt annað á leikskólan-
um en hvernig köku maður ætlar
að koma með, Batman- eða Bar-
bie.“
Hún segist þó ekki vera búin
að ákveða hvernig köku hún
komi með. „Ég veit ekki hvort ég
nenni að baka, ég gef krökkunum
að minnsta kosti ís.“
Þóra Karítas vinnur á Öldu-
koti í afleysingum en tekur lík-
lega við skriftustarfi í kvikmynd-
inni Kaldaljós, sem Hilmar Odds-
son er að fara að gera. Hún segist
yfirleitt taka því rólega á afmæl-
isdaginn, fer kannski út að borða
með vinum. Þegar hún varð tví-
tug hélt hún þó svakalega veislu.
„Það var eftirminnilegt afmæli
því það var örlagaríkt og hafði
mikil áhrif á líf mitt,“ segir hún
án þess að útskýra það frekar.
„Ég man líka þegar pabbi gaf
mér blátt hjól og grifflur. Ég held
ég hafi verið sex ára,“ segir hún
þegar hún rifjar upp afmælis-
dagana.
Þóra Karítas segist ekki vera
búin að ákveða hvort hún fagni
afmælinu í dag á sérstakan hátt.
„Ég veit ekki hvort ég nenni að
halda upp á það í ár. Afmælisdag-
ar eru þó alltaf góðir dagar því
þá neyðist maður til að vera góð-
ur við sjálfan sig og minnir mann
á að það eru forréttindi að fá að
vera til. En það er fínt að það
komi í Fréttablaðinu. Þá muna
allir eftir því að óska manni til
hamingju.“
FÓLK Í FRÉTTUM
Við gerðum ágætis viðskipti er-lendis á árinu og vorum búnir
að ákveða að ef það gengi eftir
myndum við láta eitthvað af hendi
rakna til góðgerðamála,“ segir Jó-
hannes Jónsson, sem gjarnan er
kenndur við Bónus. Fyrirtæki
hans gaf í gær 25 milljónir til
Mæðrastyrksnefndar. „Við ákváð-
um að Mæðrastyrksnefnd myndi
dreifa þessu. Þær hafa reynslu af
því og hafa gert það vel. Þær hafa
einnig verslað mikið við okkur í
gegnum árin með kaupum á gjafa-
kortum til skjólstæðinga sinna.“
Mæðrastyrksnefnd var þó ekki ein
um hituna því Öryrkjabandalagið
og Hjálparstofnun kirkjunnar
munu njóta gjafarinnar með þeim.
Jóhannes er með lögheimili á
Akureyri og ber norðanmönnum
söguna vel. „Við erum með mikla
starfsemi á Akureyri og mér
finnst gott og nauðsynlegt að vera
í návígi við hana. Við höfum fengið
góðar móttökur á viðskiptum okk-
ar þar og einnig hef ég persónu-
lega fengið góðar móttökur.“
Jóhannes bjó á Seltjarnarnesi í
20 ár áður en hann fluttist til Akur-
eyrar. Hann hefur þó ekki alveg
sagt skilið við Nesið, býr þar á vet-
urna auk þess sem hann kemur að
minnsta kosti einu sinni í viku til
höfuðborgarinnar. Jóhannes er
ekki á lausu. Hann hefur tekið
saman við konu af Nesinu. „Ég bý
með konu sem á tvö börn, fjögurra
og ellefu ára. Ég uni hag mínum
þar vel,“ segir Jóhannes, sem sjálf-
ur á tvö börn.
„Ég hef gaman af börnum. Ég á
fimm barnabörn og kann því vel,“
segir Jóhannes. „Dóttir mín býr í
næsta húsi við okkur úti á Nesi og
ég hitti barnabörn mín eins mikið
og ég get.“
Fyrirtæki Jóhannesar Jónssonar, Bónus,
gaf Mæðrastyrksnefnd 25 milljónir þar
sem viðskipti erlendis gengu vel.
Persónan
Gjafmildur barnakarl
TÍMAMÓT ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR
Vinnur á leikskólanum Öldukoti í afleysingastarfi. Ætlar að gefa krökkunum ís í tilefni dagsins.
Það vakti athygli þegar fréttistað Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri hefði skrifað sig á
meðmæl-
endalista
með fram-
boði Jakobs
Frímanns
Magnússon-
ar í prófkjöri
Samfylking-
arinnar í
Reykjavík.
Töldu ýmsir
að það kynni
að styrkja
stöðu Jakobs að njóta stuðnings
borgarstjóra. Nú hefur hins veg-
ar komið í ljós að Ingibjörg Sól-
rún skrifaði sig á lista allra þeir-
ra sem fóru í framboð og fóru
þess á leit við hana að hún ritaði
nafn sitt á meðmælendalista sem
átti að skila inn með framboðstil-
kynningu.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Þrátt fyrir fjölgun sjúklinga skal tekið
fram að lífslíkur þeirra eru enn meiri
en kjúklinga.
Leiðrétting
Málning
fyrir vandláta
Bindoplast 7 10 lítrar
TILBOÐ
kr. 5.900,-
Þóra Karítas Árnadóttir er afmælisbarn dagsins. Hún lauk guðfræði-
prófi fyrir skömmu en er ekki búin að ákveða hvað tekur við. Starfaði
einu sinni á Skjá einum en vinnur nú á leikskóla.
AFMÆLI
Norðausturkjördæmi.
Magnús Þorsteinsson.
Wayne Rooney.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
AFMÆLI
Þóra Karítas Árnadóttir er 23 ára.
STÖÐUVEITING
Iðnaðarráðherra hefur skipað Ástu
Valdimarsdóttur lögfræðing í starf for-
stjóra Einkaleyfastofu til fimm ára. Ásta
tekur við starfinu 1. nóvember.
ANDLÁT
Ingibjörg Guðrún Bjarnadóttir frá Flat-
ey á Breiðafirði, Sundstræti 26, Ísafirði,
lést 11. október. Útförin hefur farið fram.
Margrét Blöndal McAleer, Shalimar,
Flórida, lést 11. október. Útförin hefur
farið fram.
Gísli Ólafsson, Glæsibæ 4, Reykjavík,
lést 20. október.
Oddný Dóra Halldórsdóttir, Heiðarbóli
9, Keflavík, lést 19. október.
Guðbjörg Jóna Helgadóttir Ólsen,
Ørvadsvej 23, Árósum, Danmörku, lést
18. október.
Guðný G. Sigurrós Guðmundsdóttir
(Rósa), Neðstaleiti 13A, Reykjavík, lést
18. október.
Daníel S. Lárusson, Óðinsgötu 8,
Reykjavík, lést 21, október.
Smáauglýsingar:
Bolabítur til sölu. Étur hvað sem
er. Hefur mjög gaman af börn-
um.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JÓHANNES JÓNSSON
Jóhannes á tvö börn og fimm
barnabörn og er í sambúð með
konu sem á tvö börn.