Fréttablaðið - 23.10.2002, Qupperneq 24
Jóhannes Kristjánsson eftirhermaer nú í haldi lögreglu og hefur
Hæstiréttur staðfest heimild til að
halda honum í gæsluvarðhaldi þar
til eftir alþingiskosningar næsta vor,
eða svo lengi sem þurfa þykir. Það
sem leiddi til handtöku Jóhannesar
var að Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra hafði samband við Öl-
gerð Egils Skallagrímssonar og
undraðist hverju það sætti að sund-
laugin á Selfossi hefði verið barma-
fyllt af malti og appelsíni. Var hon-
um tjáð að þetta hefði verið gert til
að standa við samning milli hans og
Ölgerðarinnar vegna þátttöku hans í
auglýsingaherferð fyrirtækisins.
ÞAR SEM ráðherrann kannaðist
ekki við að starfa við annað en að
auglýsa sjálfan sig var lögreglunni
tilkynnt um málið. Böndin bárust
fljótlega að Jóhannesi og var hann
handtekinn þar sem hann var í gervi
Björgúlfsfeðga að taka við lyklum
að fjárhirslum Landsbankans.
LÖGREGLAN hefur haft augastað
á Jóhannesi um nokkra hríð, en hann
er grunaður um að hafa skvett
áfengi yfir gesti á veitingastað í
Reykjavík síðastliðinn vetur og var
þá klæddur í aðmírálsbúning sem
hann sagði að væri einkennisbúning-
ur ríkislögreglustjóra. Þegar yfir-
heyrslur hófust féll Jóhannes saman
og viðurkenndi að hann ætti að baki
ótrúlegan glæpaferil.
JÓHANNES hefur ferðast víða á
undanförnum árum og lifað hátt,
ýmist í kvenmannsfötum sem borg-
arstjórinn í Reykjavík eða þá í gervi
forseta Íslands. Það var Jóhannes
sem narraði Kínverjann Sjang
Sémín í opinbera heimsókn hingað
til lands í sumar til að syngja í
Perlunni. Jóhannes hefur einnig
brugðið sér í gervi forseta Alþingis
og þóst vera elliær og hefur gert
furðulega verksamninga um fokdýr-
ar byggingaframkvæmdir á kostnað
almennings. Þá hefur Jóhannes við-
urkennt að hafa í gervi frú Margrét-
ar Thatcher stofnað til náinnar vin-
áttu við íslenskan háskólaprófessor
til að láta reyna á trúgirni prófess-
orsins og vina hans. „Það númer
kalla ég „dýrt spaug“,“ sagði Jó-
hannes. „En toppurinn á mínum ferli
var samt þegar ég brá mér í hlut-
verk meirihluta Alþingis og sam-
þykkti tuttugu milljarða ríkisábyrgð
fyrir fyrirtæki sem ég stofnaði til
gamans 1. apríl fyrir nokkrum
árum.“
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
11
9
1
0/
20
02
TOYOTA - LYKILL AÐ AUÐVELDUM OG ÖRUGGUM BÍLAVIÐSKIPTUM.
Við þökkum frábær viðbrögð við „Eigð'ann eða leigð'ann“ tilboði okkar, þar sem einstaklingar geta nú í fyrsta skipti á Íslandi
valið um að taka bíl á rekstrarleigu. Toyota býður nú takmarkað magn bílaleigubíla á frábærum kjörum og þú velur hvort þú
kaupir þér bíl til eignar eða tekur hann á rekstrarleigu, án útborgunar. Þú einfaldlega kvittar undir samninginn og ekur af stað.
Þetta er því einstakt tækifæri til að fá sér betri notaðan bíl frá Toyota með auðveldum og öruggum hætti. Komdu strax í dag,
hringdu í síma 570 5000 eða kíktu á www.toyota.is
EIGÐ'ANN
EÐA LEIGÐ'ANN
Nýjung frá Toyota
sem slær í gegn.
Corolla
Skráður: maí, 01
Rekstarleiga á mán. frá: 24.500 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 16.644 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 1.090.000 kr.
Verð
dæm
iYaris
Skráður: maí, 01
Rekstrarleiga á mán. frá: 19.200 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 12.564 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 820.000 kr.
Verð
dæm
i Toyota Avensis Terra
Skráður: maí, 01
Rekstarleiga á mán. frá: 29.000 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 20.874 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 1.370.000 kr.
Verð
dæm
i
*Bílalán miðast við 30% útborgun af kaupverði og 9% verðtryggða vexti með 3,5% stofngjaldi.
Dýrt spaug
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg . i s