Fréttablaðið - 30.10.2002, Side 8
8 30. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
Mannréttindasamtökin Amnesty
International efna til kyrrðar-
stundar fram við rússneska sendi-
ráðið í kvöld til að minnast fórnar-
lamba gíslatökunnar í Moskvu og
fórnarlamba mannréttindabrota.
Í ákalli til Vladímír Pútíns
Rússlandsforseta skora samtökin
á forsetann að standa vörð um
mannréttindi. „Í rússneska sam-
bandsríkinu viðgangast mannrétt-
indabrot og réttlæti til handa
þeim sem þola slík brot er formið
eitt. Ríkisvaldið er sjaldan dregið
til ábyrgðar fyrir slík afbrot og þá
úrræði sem einstaklingum standa
til boða eru haldlítil,“ segir Am-
nesty í ákalli sínu til Pútíns.
Amnesty samtökin segja enn-
fremur að almenningur í Rúss-
landi hafi litla trú á að dómstólar
eða ríkisvald komi þeim til hjálp-
ar. „Þeir sem fremja mannrétt-
indabrot gera það í fullvissu þess
að þeir komist upp með brot sín,“
segja samtökin og lýsa því um leið
yfir að þau séu að hefja alþjóðlega
herferð gegn því „refsileysi“ sem
ríki vegna mannréttindabrota í
Rússlandi.
Amnesty International hefur alþjóðlega herferð:
Rússar stöðvi stöðug
brot á mannréttindum
VLADÍMÍR PÚTÍN
Forseti Rússlands hefur fengið ákall um að
koma í veg fyrir landlæg mannréttindabrot.
ÞRÍR AFGANAR LAUSIR ÚR HALDI
Þrír Afganar, sem sleppt var
lausum úr haldi Bandaríkja-
manna í Guantanamo-herstöðinni
á Kúbu, segjast oft hafa verið
teknir í yfirheyrslur á meðan á
nokkurra mánaða dvöl þeirra
stóð. Bandaríkjamenn hafi hins
vegar komið vel fram við þá all-
an tímann.
KOSNINGAR Í KENÝA Þingkosn-
ingar verða haldnar í Kenýa þann
27. desember næstkomandi. Um
10,5 milljónir manna munu taka
þátt í kosningunum. Daniel arap
Moi, forseti landsins sem orðinn
er 78 ára gamall, lætur þá af
völdum í landinu eftir 24 ára
starf.
ERLENT
FOLEY
Laurence Foley, sem myrtur var í Jórdaníu,
var heiðraður fyrir hjálparstarf sitt í landinu
aðeins einum sólarhring áður en hann var
skotinn til bana fyrir utan heimili sitt.
Bandaríkjamenn
í Jórdaníu:
Hvattir til
að vera á
varðbergi
WASHINGTON,AP Bandaríska sendi-
ráðið í Jórdaníu hefur hvatt alla
Bandaríkjamenn í landinu til að
vera á varðbergi eftir að banda-
rískur erindreki var myrtur í höf-
uðborg landsins, Amman, í fyrra-
dag. Talsmaður Hvíta hússins seg-
ir að ekki sé útilokað að um
hryðjuverk hafi verið að ræða.
Aukin andstaða er nú í Jórdaníu
gagnvart Bandaríkjunum, sér í
lagi vegna hugsanlegra hernaðar-
aðgerða landsins gegn Írak.
KATANÍA, AP Eldfjallið Etna heldur
áfram að spúa eldi og ösku.
Hraunstraumarnir úr fjallinu
vaxa stöðugt og eru komnir hálfa
leið niður hlíðarnar. Vegna ösku-
falls var flugvöllurinn í bænum
Kataníu enn lokaður og skólahald
liggur niðri.
Nokkrir jarðskjálftar urðu ein-
nig á Sikiley í gær. Sá sterkasti
mældist 4,3 stig á Richterkvarða.
Skjálftarnir hafa skotið íbúum
eyjarinnar skelk í bringu. Margir
hlupu óttaslegnir út á götu þegar
stærstu skjálftarnir riðu yfir.
Á gervihnattarmyndum mátti
sjá að askan úr Etnu hafði borist
alla leið til Líbíu á norðurströnd
Afríku. Askan hafði því borist
meira en 600 kílómetra.
Etna er stærsta og virkasta
eldfjall Evrópu, um það bil 3.300
metrar á hæð. Lítil gos verða í
fjallinu á nokkurra mánaða fresti.
Síðast varð nokkuð stórt gos í
Etnu árið 1992. Gífurlegt sprengi-
gos varð árið 1669, sem gereyði-
lagði borg á austurströnd eyjunn-
ar.
Gosið í Etnu sækir í sig veðrið:
Ekkert túristagos lengur
UNDIR ELDFJALLINU
Leigubílstjórinn Luigi Giuffrida ver sjálfan
sig fyrir öskufalli meðan hann fylgist með
gosinu í Etnu.
Hátíð vegna 50 ára af-
mælis Norðurlandaráðs:
50 Íslend-
ingar í
Helsinki
NORÐURLANDARÁÐ Lunginn af ís-
lensku ríkisstjórninni, þingmenn
embættismenn og aðstoðarmenn
eru í Helsinki vegna þings Norð-
urlandaráðs. Í ár fagnar Norður-
landaráð fimmtíu ára afmæli sínu
og verður þingið því óvenju hátíð-
legt af þeim sökum. Fullskipuð Ís-
landsdeild Norðurlandaráðs sæk-
ir þingið en í henni sitja Ísólfur
Gylfi Pálmason formaður, Sigríð-
ur Jóhannesdóttir varaformaður,
Sigríður Anna Þórðardóttir, Rann-
veig Guðmundsdóttir, Arnbjörg
Sveinsdóttir, Drífa Hjartardóttir
og Steingrímur J. Sigfússon. For-
seti Íslands er í Helsinki og sjö af
tólf ráðherrum í ríkisstjórn Ís-
lands sækja þingið. Þá hittist svo
vel á að opinber heimsókn forseta
Alþingis til Finnlands, hefst í dag.
Það er því enginn hörgull á fyrir-
mennum í Finnlandi þessa dagana
en hátt í sextíu íslendingar sækja
þing Norðurlandaráðs fyrir ÍsI-
ands hönd. Þingið var sett í gær
en sjálf afmælishátíð Norður-
landaráðs var í Finnsku þjóðaróp-
erunni í gærkvöld. Henni var
sjónvarpað til allra norrænu ríkj-
anna. Ólíkt grönnum sínum sáu
danir og norðmenn þó ekki
ástæðu til að senda herlegheitin
beint út.
AP/M
YN
D
AP
/L
U
C
A
B
R
U
N
O
SKIPULAGSMÁL „Ég er auðvitað súr
yfir þessari afgreiðslu. Staðurinn
verður lokaður í tvo mánuð,“
sagði Gunnlaugur Páll Pálsson,
framkvæmdastjóri Kaupfélagsins
við Laugaveg.
Staðnum var lokað í gær, þrátt
fyrir að viljayfirlýsing borgaryf-
irvalda lægi fyrir þess efnis að
Félagsbústaðir hyggist kaupa
þrjár íbúðir iðnnema í húsi áföstu
Kaupfélaginu. Iðnnemar segjast
ekki hafa haft not af íbúðunum
síðan í janúar vegna hávaða.
Borgin hefur því leigt íbúðirnar
og hyggst nú kaupa þær. Það
dugir þó ekki til því samkomulag
hefur ekki tekist við einstakling
sem á íbúð við Laugaveg 5. Sá hef-
ur ítrekað kvartað undan hávaða
frá Kaupfélaginu og neitar að
selja. Því var ekki um annað að
ræða fyrir borgina en að loka
kaupfélaginu.
„Við erum að skila vörum til
birgja og aðstoða starfsfólk við að
finna aðra vinnu. Það eru 20
manns í vinnu hjá okkur, stór hluti
skólakrakkar í hlutastarfi. Ég er
mjög svekktur vegna starfsfólks-
ins,“ sagði Gunnlaugur Páll Páls-
son.
Kaupverð iðnnemaíbúðanna
liggur ekki fyrir en ætlunin er að
meta þær í dag. Kaupfélagsmenn
velta því nú fyrir sér hvort kaup-
samningi sem undirritaður var í
september, verður rift. Skipulags-
yfirvöld auglýsa á næstunni nýja
deiliskipulagstillögu að því svæði
sem Kaupfélagið er á. Auglýs-
ingatími og athugasemdafrestur
er sex vikur. Kaupfélagsmenn
geta sótt um leyfi að tillögunni
samþykktri en þurfa þó að ráðast
í verulegar úrbætur á húsnæðinu,
meðal annars hljóðeinangrun.
the@frettabladid.is
Íbúðirnar keyptar og
Kaupfélaginu lokað
Félagsbústaðir lofast til að kaupa þrjár íbúðir iðnnema. Kaupfélaginu
lokað í gær. 20 starfsmenn á launaskrá missa vinnu sína. Ekki opnað aft-
ur fyrr enn nýtt deiliskipulag hefur verið samþykkt.
GUNNLAUGUR PÁLL PÁLSSON
Svekktur yfir klúðrinu. Sér fram á lokun í tvo mánuði og atvinnuleysi 20 starfsmanna
veitingastaðarins
ORÐRÉTT
SÝND MEÐ ÍSLENSKU BÚKTALI
Ég var nefnilega svo óheppin að
deila bíósal með þrem strákbján-
um sem ropuðu, hrópuðu og
prumpuðu alla myndina út í gegn.
Sif Gunnarsdóttir í kvikmyndagagnrýni.
DV, 29. október.
FRAMSÓKN Í
LAPPLANDI
Sjálfsagt erum
við búin að
missa sérstöðuna
varðandi jóla-
sveininn.
Valgerður Sverris-
dóttir heimsækir
Lappland. Morgun-
blaðið 29. október.
NÆSTUR Á TEPPIÐ?
Engan mann hefur þjóðin dýrkað
jafn mikið og Jón Sigurðsson
Kynningartexti með ævisögu Jóns
Sigurðsonar. 28. október.
Pantaðu jólamyndatökuna tímanlega.
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur
eru allar myndirnar sem þú færð í
myndatökunni stækkaðar og full-
unnar.
Innifalið í myndatökunni: 12
stækkanir, 13x18cmn 2 stækkanir
20x25 cm og ein stækkun 30x40
cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd
sími 565 4207
www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími : 554 3020
Passamyndatökur
alla virka daga
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI