Fréttablaðið - 30.10.2002, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 30. október 2002
MIÐBÆRINN Stjörnubíó í Reykjavík
er nú óðum að hverfa af yfirborði
jarðar.
Niðurrif bíóhússins hófst fyrir
nokkrum vikum. Starfinu var
haldið áfram í gær. Er svo komið
að nær ekkert er eftir af bygging-
unni annað en neðri hæð framhlið-
arinnar.
Reykjavíkurborg keypti húsið
fyrir nokkru. Ekki hefur verið
ákveðið um framtíðarnotkun lóð-
arinnar. Fyrst um sinn að minnsta
kosti verða þar bílastæði fyrir þá
sem erindi eiga á þessar slóðir.
KAUPMANNAHÖFN, AP Danir hafa
beðið rússnesk stjórnvöld um
sannanir fyrir því að útlægir
Téténar, sem héldu heimsþing sitt
í Kaupmannahöfn í vikunni, séu
hryðjuverkamenn.
„Ef efnislegar sannanir eru
fyrir því að slíkir menn séu í Dan-
mörku, þá mun stjórnin að sjálf-
sögðu grípa strax til ráðstafana til
þess að handtaka þá og sækja til
saka,“ sagði Per Stig Möller, utan-
ríkisráðherra Danmerkur í gær.
Eftir gíslatökuna í Moskvu
hafa rússnesk stjórnvöld harðlega
gagnrýnt Dani fyrir að leyfi tétén-
ska útlagaþinginu að halda fund
sinn í Kaupmannahöfn. Rúss-
neska þingið hyggst slíta öll
tengsl við danska þjóðþingið
vegna þessa máls.
Danir, sem fara með for-
mennsku í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, sáu sig ein-
nig tilneydda að hætta við að
halda leiðtogafund Evrópusam-
bandsins og Rússlands í Kaup-
mannahöfn. Þess í stað verður
fundurinn haldinn í Brussel þann
11. nóvember næstkomandi.
Fulltrúar téténskra aðskilnað-
arsinna á ráðstefnunni í Kaup-
mannahöfn fordæmdu gíslatök-
una í Moskvu og sögðust engin
tengsl hafa við hryðjuverka-
menn.
AP/YVES LO
G
G
H
E
FULLTRÚAR TÉTÉNÍUFORSETA
Akhmed Zakayev og Osman Ferzaouli eru fulltrúar Aslans Maskhadovs, forseta aðskilnað-
arstjórnarinnar í Téténíu. Þeir neita öllum tengslum við gíslatökumennina í Moskvu.
Rússar enn ævareiðir vegna heimsþings Téténa
í Danmörku:
Danir vilja
sannanir frá
Rússum
SALUR B
Sýningum hefur endanlega verið hætt í sal
B í Stjörnubíói.
Niðurrif í miðbænum:
Stjörnubíó að fjara út
BÚBÓT Tekin hefur verið fyrsta
skóflustunga að nýju fjósi sem
rísa mun á Hvanneyri í Borgar-
firði. Fjósið á að rúma 130 naut-
gripi og verður lausagöngufjós
með legubásum og mjaltabás. Þar
verður og komið fyrir mjalta-
róbota. Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra tók fyrstu
skóflustunguna að nýja fjósinu í
síðustu viku með MacCormick
dráttarvél og traktorsskóflu sömu
gerðar sem notuð var til að grafa
fyrir núverandi fjósi á Hvanneyri
sem byggt var 1929. Í nýja fjósinu
verður sérstaklega gert ráð fyrir
góðu aðgengi gesta sem kjósa að
skoða starfsemina sem þar fer
fram.
Landbúnaður:
Nýtt fjós á
Hvanneyri
GUÐNI ÁGÚSTSON
Tók skóflustungu með traktor.
Ert flú me›
handfrjálsan
búna›?
H
an
dfrjáls
b ú n a ›
u
r
H
r-30%afsláttur
Fyrir ári sí›an gengu í gildi lög sem kve›a á um a›
ökumönnum sé óheimilt a› nota farsíma í bílum án
handfrjáls búna›ar.
Síminn og Umfer›arstofa hafa teki› höndum saman
og hvetja ökumenn til a› auka öryggi og flægindi vi›
akstur.
Síminn b‡›ur 30% afslátt af handfrjálsum búna›i í
verslunum sínum til 1. desember 2002.
Förum a› lögum
– aukum öryggi og flægindi
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
0
7
6
8
2
/
s
ia
.i
s
Afslátturinn gildir í öllum verslunum Símans.