Fréttablaðið - 30.10.2002, Page 16
16 30. október 2002 MIÐVIKUDAGURHVERJU MÆLIRÐU MEÐ?
FUNDIR
12.00 Guðrún V. Stefánsdóttir flytur er-
indið Lífssögur fólks með
þroskahömlun. Fyrirlesturinn er í
stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands
og er öllum opin.
12.05 Iðunn Magnúsdóttir, cand.psych.,
sálfræðingur hjá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur flytur erindið Tengsl
hugsana um ábyrgð og ein-
kenna áráttu- og þráhyggju hjá
börnum. Málstofan er haldin í
Odda, stofu 201 og er öllum
opin.
12.15 Yuri Reshetov flytur fyrirlestur um
Rússland og Sameinuðu Þjóðirnar
í stofu L-101 í Lögbergi á vegum
lagadeildar Háskóla Íslands. Yuri
MIÐVIKUDAGURINN
30. OKTÓBER
ENDURMENNTUN Læknar og
grínistar fjalla um tengsl
húmors og heilsu á námskeiði
hjá Endurmenntun Háskóla Ís-
lands föstudaginn 1. nóvember.
Námskeiðið er óbeint framhald
af námskeiði um sama efni sem
haldið var árið 2001. Bjarni
Jónasson, læknir, hefur umsjón
með námskeiðinu en auk hans
halda þeir Pétur Ingvi Péturs-
son, yfirlæknir á Akureyri,
Stein Tyrdal og Karl Ágúst
Úlfsson leikari og rithöfundur
fyrirlestra.
Bjarni segir námskeiðið ætl-
að starfsfólki og neytendum
heilbrigðisþjónustunnar. „Við
beindum sjónum okkar upphaf-
lega að læknum en lækninga-
húmor getur hentað öllum í
starfi. Húmorinn gegnir stóru
hlutverki í samskiptum fólks og
það hafa fleiri en heilbrigðis-
starfsmenn sýnt námskeiðinu
áhuga.“ Lækningahúmor fjallar
meðal annars um jákvæð áhrif
skopskynsins á heilsu og bata
sjúklinga og á námskeiðinu er
rætt um áhrif húmors á sam-
skipti sjúklinga og heilbrigðis-
starfsfólks, áhrif húmors á
streitu og hvernig nota má
húmor í daglegu starfi heil-
brigðisstétta. Rætt er um lækn-
ingahúmor í fjölmiðlum og
þjóðlegan húmor í dagsins önn.
„Það hafa ekki verið gerðar
neinar strangar vísindalegar
rannsóknir á því hvort húmor
hafi áhrif á batahorfur sjúk-
linga en það hafa komið fram
margar vísbendingar um
heilsubætandi áhrif húmors og
hann styrkir meðal annars
ónæmiskerfið og svo líður fólki
sem er létt í lund almennt bet-
ur.“ Bjarni bendir á að tónninn í
samskiptum heilbrigðisstétta
og sjúklinga sé oftast alvarleg-
ur og segir námskeiðinu ætlað
að vekja athygli á því að víða sé
tilefni til að koma með meiri
léttleika inn í þessi samskipti.
„Sjúklinga kvíðir oftast fyrir
samskiptum sínum við heil-
brigðiskerfið og húmorinn get-
ur losað heilmikið um þessa
spennu. Í könnun sem gerð var
á heilsugæslustöðvunum á Ak-
ureyri og í Garðabæ árið 1999
kom til dæmis fram að 61%
sjúklinga töldu húmor í sam-
skiptum við lækna geta haft já-
kvæð áhrif.“
thorarinn@frettabladid.is
Hláturinn lengir lífið
Bjarni Jónasson, læknir, hefur fengið eðalhúmorista til að fjalla um sam-
band heilsu og húmors á námskeiði hjá Endurmenntun Háskólans.
Mikill fengur í dr. Stein Tyrdal, frá Noregi, sem er leiftrandi húmoristi.
BJARNI JÓNASSON
„Ég mun fjalla um hvernig húmorinn hefur nýst mér í starfi. Karl Ágúst kemur með inn-
legg frá sjónarhorni sjúklingsins og Pétur fjallar um húmor á þjóðlegum nótum. Mein-
ingin er að fólk fari heim með gott nesti til að moða úr og njóta.“
Sólveig Kr. Bergmann. Ritstjórnarfulltrúi
Mannlífs.
Ég fór á Sölumaður deyr um daginn. Þetta er
stórkostleg sýning og með því betra sem ég
hef séð í íslensku leikhúsi síðustu misserin.
– Tungumálið er lyki l l inn að samskiptum!
La clé dela communication!
B A N K A S T R Æ T I 10 • 101 R E Y K J AV Í K • S Í M I 5 6 2 2 3 6 2 • I N F O @ V I S TA S K I P T I . I S
vistaskipti.is
vista change
S T U D E N T A F E R D I R
Lykillinn að því að læra tungumál, er að dvelja í því landi sem
málið er talað, vera meðal innfæddra og í beinu sambandi við
þá. Það nægir ekki að læra málfræði og orðaforða, heldur verður
þú að kynnast samfélaginu og menningunni sem er samofin
tungumálinu. Þegar þú nærð tökum á tungumálinu opnast ný
vídd og þú kynnist um leið nýjum menningarheimi.
Stúdentaferðir bjóða tungumálanámskeið víða um heim.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og finnum nám
við þitt hæfi, óháð aldri eða menntun.
Ellefta ljóðabók Baldurs Ósk-arssonar, Dagheimili stjarna,
er komin út hjá Ormstungu.
Fyrsta ljóða-
bók Baldurs
kom út árið
1966 og er
hann talinn til
þeirra ljóð-
skálda sem
hafa sett
einna mestan
svip á íslenska
ljóðagerð á 20.
öld með
myndauðug-
um og knöppum ljóðum sínum.
Ljóðin í Dagheimili stjarna eru
hundrað og eitt talsins.
NÝJAR BÆKUR
Reshetov er varaformaður Félags
Sameinuðu þjóðanna í Rússlandi
og fyrrverandi sendiherra Rúss-
lands á Íslandi.
13.00 Ráðstefna um nýjar leiðir í ís-
lensku atvinnulífi verður haldin á
vegum Viðskipta- og hagfræði-
deildar Háskóla Íslands. Dr. Bo
Carlsson heldur fyrirlestur á ráð-
stefnunni um nýsköpun og tækni-
kerfi. Ráðstefnan verður í stofu
101 í Odda. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
13.30 Kærleiksþjónustusvið Biskups-
stofu stendur fyrir fræðslu- og
umræðufundi í Hallgrímskirkju
um atvinnumissi - áhrif hans á
líðan fólks og hvernig skynsam-
legt er að bregðast við. Allir sem
eiga erindi eru velkomnir.
16.00 Ágúst Einars-
son flytur erind-
ið Heilsuhag-
fræði á Íslandi í
málstofu við-
skipta- og hag-
fræðideildar H.Í.
Málstofan fer
fram í húsnæði
Hagfræðistofnunar að Aragötu 14.
16.15 Jón Reykdal aðjúnkt við Kennara-
háskóla Íslands heldur kynningu á
eigin verkum á vegum Rannsókn-
arstofnunar KHÍ. Kynningin verður
haldin í sal 2 í nýbyggingu Kenn-
araháskóla Íslands við Stakkahlíð
og er öllum opin.
17.00 Stuðningshópur kvenna sem
fengið hafa krabbamein í eggja-
stokka halda rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógar-
hlíð 8 í Reykjavík.
TÓNLEIKAR
20.00 Draumatónar flautunemandans
nefnist tónleikar sem Guðrún S.
Birgisdóttir flauta og Peter Máté
píanó standa fyrir í Salnum, Kópa-
vogi.
KVIKMYNDIR
20.30 Goethe-Zentrum á Laugavegi 18
sýnir þýsku kvikmyndina Tatort:
Die Kampagne“ (The Campaign)
frá 1994. Tatort er ein elsta og
vinsælasta sakamálasyrpan í
þýsku sjónvarpi.
SÝNINGAR
Erla S. Haraldsdóttir stendur fyrir sýn-
ingunni Það sem þú raunverulega sást
í Gallerí Hlemmur. Sýningin er opin frá
miðvikudegi til sunnudags frá 14-18.
Sýningin stendur til 10. nóvember.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
yfir sýning á portrettmyndum Augusts
Sanders. Sýningin er í Grófarsal, Grófar-
húsi, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík og
stendur til 1. desember 2002. Opnunar-
tími er 12-18 virka daga en 13-17 um
helgar.
Ari Svavarsson listmálari og grafískur
hönnuður sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Sýningin stendur til 14. nóvember.
Anna Þóra Karlsdóttir heldur sýninguna
Rjóður/Clear-cuts, í Listasafni ASÍ, við
Freyjugötu. Sýningin verður opin daglega
frá 14 - 18 nema mánudaga og henni
lýkur sunnudaginn 17. nóvember.
Í listasalnum Man heldur Jóhannesar
Geirs sýningu á verkum sínum. Sýningin
stendur til 16. nóvember.
Tengi (All about ties) er heiti á samsýn-
ingu sjö myndlistarmanna sem stendur
yfir í Gallerí Skugga á Hverfisgötu 39. Þrír
íslenskir listamenn og fjórir japanskir
listamenn eiga verk á sýningunni. Sýning-
in er opin alla daga nema mánudaga frá
13-17. Sýningunni lýkur 10. nóvember.
Jón Sæmundur Auðarson sýnir í versl-
uninni Japis við Laugaveg. Verk Jóns Sæ-
mundar nefnist Íslenskt málbein. Sýn-
ingin er opin á opnunartíma verslunar-
innar
Kakklamyndir hughrif úr íslenskri nátt-
úru nefnist sýning sem Bjarni Sigurðs-
son heldur í Gallerí Fold, Rauðarárstíg
14-16. Sýningin stendur til 4. nóvember.
Marisa Navarro Arason sýnir ljósmyndir
í Ljósfold, Gallerí Fold, Rauðarárstíg.
Sýninguna nefnir hún Quo Vadis? Sýn-
ingunni lýkur 4. nóvember.
Listmálarinn Steinn Sigurðsson sýnir á
Kaffi Sólon. Sýningin er opin á opnunar-
tíma Sólon og stendur til 8. nóvember.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“.
ÁRSHÁTÍÐ GRASKERJANNA
Vígtennt og skælbrosandi grasker verða heldur betur í sviðsljósinu á morgun þegar
Hrekkjavaka eða Halloween verður haldin hátíðleg. Þessi öskudagur með hryllingsívafi
hefur ekki náð að skjóta rótum á Íslandi en þeir sem vilja fá alvöru gæsahúð á fimmtu-
daginn geta leitað á náðir CartoonNetwork þar sem Scooby-Doo, Fred Flintstone og
Tommi og Jenni takast á við drauga og forynjur daglangt í sérstakri hrekkjavökudagskrá.
Óvinurinn eftir EmmanuelCarrère er mögnuð og
óþægileg lesning um virðulegan
lækni, Jean-Claude Romand,
sem byggir allt sitt líf á blekk-
ingum.
Persóna Romands vakti for-
vitni rithöfundarins Carrère
sem lagði í óhuggulegt ferðalag
um sálarfylgsni hans. Þá er ljóst
að hann hálf skammast sín fyrir
að gera sér mat úr málinu og
lesandinn sjálfur hlýtur einnig
að spyrja sig hvaða hvatir ráði
því að hann þyrsti í að lesa þenn-
an raunverulega hrylling.
Sagan er afskaplega læsileg
og lipur í þýðingu Sigurðar Páls-
sonar og það verður enginn
ósnortinn af Óvininum sem
svarar því ekki hvort það séu
menn eða skrímsli sem geta
strokið hár barna sinna, sagst
elska þau og skjóta þau svo með
haglabyssu. Það er engin lausn í
því að stimpla manninn einfald-
lega geðveikan. Lífið er flókn-
ara en svo.
Þórarinn Þórarinsson
Sálarlíf
morðingja
BÆKUR
EMMANUEL CARRÉRE: ÓVINURINN
Íslensk þýðing: Sigurður Pálsson
JPV útgáfa 2002, 173 blaðsíður
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T