Fréttablaðið - 30.10.2002, Page 22
22 30. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
Þetta er nú bara venjulegurmiðvikudagur,“ segir Mörður
Árnason, íslenskufræðingur og
afmælisbarn dagsins, sem verður
49 ára í dag. „Ég reikna ekki með
að um mikinn gleðskap verði að
ræða – ekki fyrr en að ári.“
Mörður segist hafa haldið eft-
irminnilega upp á fertugsafmælið
sitt fyrir níu árum og það hafi
dugað sér fram að þessu. „Þá var
til bar sem hét Bíóbarinn og þang-
að stefndi ég öllum sem ég þekkti.
Páll Baldvin Baldvinsson vinur
minn var veislustjóri og fékk þær
„ordrur“ helstar að takmarka
ræðuhöldin. Menn eru enn að
kvarta yfir að hafa ekki fengið að
halda ræðurnar sínar, sem sýnir
vel skyldurækni og einurð Páls
Baldvins. Ég held að mönnum sé
veislustjórinn eftirminnilegri en
afmælisbarnið í þessu partýi.“
Mörður segir Guðmund Árna
Thorsson og Árna Björnsson hafa
farið á kostum sem söngmenn
kvöldsins. „Þeir stjórnuðu fjölda-
söng, Öxar við ána og fleira í
þeim dúr. Ég lifi enn á þessu af-
mæli.“
Mörður segist ekki reikna
með að menn séu að springa inni
með ræðurnar sínar, en tækifær-
ið gefst þá kannski á næsta ári.
„Það er með ræður eins og góð
vín, þær batna með árunum,“
segir hann.
Annars eru tveir stórviðburð-
ir framundan hjá Merði. Í fyrsta
lagi er það 1. nóvember, þegar
þriðja útgáfan af Íslenskri orða-
bók kemur út, og hins vegar 9.
nóvember, sem er prófkjörsdag-
ur. „Ég er ritstjóri þriðju útgáfu
Orðabókarinnar sem Árni Böðv-
arsson ritstýrði fyrst árið 1963 og
síðan aftur árið 1983. Nú, nítján
árum seinna, kemur hún út í þrið-
ja sinn og að sjálfsögðu með við-
eigandi bumbuslætti. Þetta er
mikið verkefni sem hefur staðið í
fimm ár, við höfum endurbætt og
aukið, og nú er bókin í tveimur
bindum og síðum hefur fjölgað úr
1.260 í 1.900. Hinn 9. nóvember er
svo prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík þar sem Mörður býður
sig fram. „Ef ég stjórnaði alman-
akinu sjálfur hefði ég sjálfsagt
skipulagt þetta öðruvísi. En
stundum er skammt milli stórvið-
burða og það verður bara að hafa
það,“ segir Mörður, sem er hver-
gi banginn við framtíðina og
hlakkar til að takast á við verk-
efnin framundan.
FÓLK Í FRÉTTUM
Egill Arnar Sigurþórsson var ákjördæmisþingi framsóknar-
manna í suðvesturkjördæmi kos-
inn í 4. sæti á framboðslista flokks-
ins í kjördæminu. Hann er tvítug-
ur og stundar ná í Fjölbrautarskól-
anum í Garðabæ. Hann segist telja
ungt fólk eiga fullt erindi í stjórn-
mál og þá ekki síst í nafni Fram-
sóknarflokksins. „Það er nauðsyn-
legt að ungt fólk eigi sína málsvara
á þessum vettvangi. Námsfólk er
þarna engin undantekning og ég
blæs á allt tal um að ég sé of ungur
til að taka sæti á lista.“
Stjórnmálaferill Egils hófst um
síðustu áramót og hann var í fram-
boði til sveitastjórnarkosninga í
Garðabæ í vor. „Ég hef alltaf að-
hyllst stefnu Framsóknarflokksins
en var áður meiri framsóknarmað-
ur í orði en á borði.“
Egill útskrifast af hagfræði-
braut Fjölbrautarskólans í Garða-
bæ um áramótin. Hann er á föstu
en er barnlaus og hefur ekki hafið
búskap. Egill hefur mikinn áhuga á
íþróttum og þar er fótboltinn efst-
ur á blaði og hann er meðal annars
héraðsdómari hjá KSÍ. „Ég æfði
með Stjörnunni í 11 ár og hætti um
það leyti sem ég hellti mér í póli-
tíkina. Önnur áhugamál mín eru
útivera og ferðalög og svo auðvitað
allt sem snýr að ungu fólki. Ég vil
að við látum heyra í okkur og að á
okkur verði hlustað. Það er nú
markmiðið með þessu öllu saman.“
Egill er borinn og barnfæddur
Garðbæingur. „Ég er þriðja kyn-
slóðin en afar mínir og ömmur í
báðar ættir voru frumbyggjar í
Garðabænum“. Hann segist ekki
hafa orðið fyrir aðkasti í skólanum
fyrir framsóknarmennskuna. „En
skoðanaskiptin eru mikil og lífleg,
enda kemur pólitíkin okkur unga
fólkinu líka við og við erum líkleg
til að koma með aðra vídd inn í um-
ræðuna.“
Egill Arnar Sigurþórsson skipar 4. sæti á
lista Framsóknarflokksins í suðvesturkjör-
dæmi. Hann segir flest mál koma ungu fólki
við. „Það sem er að gerast í pólitíkinni
snertir okkur auðvitað sem þjóðfélags-
þegna þó viðhorf okkar séu oft öðruvísi en
hjá þeim eldri.“
Persónan
Rödd unga fólksins
AFMÆLI
Mörður Árnason íslenskufræðingur er
49 ára í dag.
ANDLÁT
Bragi Guðnason, Suðurgötu 25, Sand-
gerði, er látinn.
Guðmundur Kjartan Runólfsson lést í
Los Alamitos, Kaliforníu, 27. október.
Olufine K. Thorsen, Öldugötu 4D, Ár-
skógssandi, lést 27. október,
Sverrir Haraldsson, Hamraborg 28, lést
24. október.
TÍMAMÓT
MÖRÐUR ÁRNASON
Hélt upp á fertugsafmælið með stæl fyrir níu árum og býst við að bíða í ár með næsta stórpartý.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
• Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
EGILL ARNAR SIGURÞÓRSSON
„Við unnum vel á í vor og skoðanir okkar
eiga hljómgrunn hér í bænum“.
Fimmti hver maður er kín-verskur. Það eru fimm með-
limir í fjölskyldunni minni, svo
það hlýtur einn að vera kínversk-
ur. Það er annað hvort mamma
eða pabbi, eða ég eða eldri bróðir
minn Brynjólfur Trausti. Eða
yngri bróðir minn Ho-Cha-Chu.
Ég er samt viss um að það sé
Brynjólfur Trausti.
Mörður Árnason hefur í nógu að snúast nú þegar líður á haustið.
Hann á afmæli í dag, gefur út orðabók í næstu viku og er í miðri próf-
kjörsbaráttu, en hann býður sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík.
AFMÆLI
Eftirminnilegur
veislustjóri
Bjarma BA
Lula
Helsinki
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Vegna útgáfu bókar um Jón Sigurðsson for-
seta skal tekið fram að blettirnir á styttu
hans við Austurvöll eru spanskgræna.
Leiðrétting
Heimasíður stjórnmálamannahalda áfram að spretta upp.
Einar Oddur Kristjánsson hefur
opnað vef á slóð-
inni einarodd-
ur.is. Flokksbróð-
ir hans Ingvi
Hrafn Óskarsson
opnar innan
skamms vef á
slóðinni ingvi-
hrafn.is. Sam-
fylkingarfólk í
Reykjavík lætur
sitt ekki eftir lig-
gja. Jakob Frí-
mann Magnússon
hefur opnað vef-
inn jakobfri-
mann.is og vef
Sigrúnar Grendal
er að finna á sigrungrendal.is.
Áhugi hefur kviknað innanveggja Háskóla Íslands að
fá Jónas Kristjánsson ritstjóra
til að flytja gestafyrirlestra á
námsbraut í hagnýtri fjölmiðl-
un. Þar sem námið er skipulagt
langt fram í tímann hefur enn
ekki gefist færi á að bjóða
Jónasi að mæta nemendum.
Draumur Guðbjargar Hildar
Kolbeins, sem veitir fjölmiðla-
brautinni forstöðu, er að fá að
kenna hagnýta fjölmiðlun til BA
- náms. Ef af því yrði mætti
gera ráð fyrir að Jónas yrði
einn af kennurum deildarinnar.
Fáir hafa sýnt mennta - og upp-
eldismálum fjölmiðlamanna
meiri áhuga á undanförnum
áratugum en einmitt Jónas sem
að auki hefur með starfi sínu
alið af sér flesta þá fréttamenn
hér á landi sem að einhverju
marki hafa látið að sér kveða.
Það gekk ekki áfallalaust að fáþingmenn til að greiða at-
kvæði um aðild að Atlantshafs-
túnfiskveiðiráðinu í gær. Fresta
þurfti fyrri atkvæðagreiðslu um
málið vegna þess að of fáir þing-
menn mættu í þingsal til að
greiða atkvæði. Atkvæðagreiðsl-
an fór fram nokkru síðar. Síðar
um daginn var efnt til síðari at-
kvæðagreiðslu um málið sem var
drifið í gegnum
þingið. Þá gekk
ekki betur að fá
þingmenn til að
mæta og skipti
engu þótt Árni
Steinar Jóhanns-
son hefði tekið
við þingstjórn af
Guðmundi Árna Stefánssyni. Aft-
ur þurfti að fresta atkvæða-
greiðslu þar sem þingmenn
mættu ekki. Á endanum mættu
þó nógu margir til að hægt væri
að ganga til atkvæða. Svo er auð-
vitað spurning hvort nemendur
úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja
sem fylgdust með störfum Al-
þingis geti ekki vísað í þetta næst
þegar þeir mæta of seint í tíma.