Fréttablaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 30. október 2002 HÚSIÐ Laugarneskirkja er ein af feg-urstu kirkjum borgarinnar þótt hún láti fremur lítið yfir sér inni í miðju íbúðahverfi. Kirkjan er á torgi þannig að stemningin í kringum hana er nánast eins og suður í álfu þar sem kirkjan myndar kjarna hverfisins. Guð- jón Samúelsson teiknaði kirkjuna sem var vígð árið 1949. Hún er einstaklega stílhrein og afar ís- lensk í útliti, steinuð að utan og með ferköntuðum formum. Þegar inn er komið taka á móti manni látlausar og innréttingar og litir. Fríður hópur sótti um frétta-stjórastarf hjá Ríkissjónvarp- inu eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu. Ráðningarstofan Mannafl sá um að taka á móti um- sóknum og sendi þær síðan frá sér með skýringum á menntun og starfsreynslu um- sækjenda. Þar sagði að Elín Hirst hefði lokið MA - námi í sagnfræði. Það er ekki alls kostar rétt og vill Elín að það komi fram að hún stundi MA - nám í sagn- fræði við Háskóla Íslands en hafi ekki lokið því enn. FÓLK Í FRÉTTUM FÓLK Í FRÉTTUM Föstudagur 1. nóvember Höfuðborgarsvæðið: Kvennahátíð á Kaffi Reykjavík efri hæð kl. 18.00 – 22.00 Létt sögustund: Dagbjört Hákonardóttir nemi, Dóra Hlín Ingólfsdóttir rannsóknarlögreglukona, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfr., Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri, Hlín Daníelsdóttir fulltrúi, Linda Vilhjálmsdóttir skáld, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi og fulltrúi Bríeta. Málið mitt: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Hólmfríður Garðarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Katrín Júlíusdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Grendal og Þórunn Sveinbjarnardóttir. Aðgangseyrir kr. 1.990. Hlaðborð innifalið. Þátttaka tilkynnist: samfylking@samfylking.is. Ölfus og Árborg: Kvennahátíð í Félagsheimili hestamanna Þorlákshöfn kl. 20.00 Smáréttir á boðstólum, skemmtan með pólitísku ívafi fram eftir kvöldi. Ísafjörður: Kvennahátíð í Faktorshúsinu Hæstakaupstað kl. 20.30 Léttar veitingar á boðstólum sungið og spjallað fram eftir kvöldi. Laugardagur 2. nóvember Vestmannaeyjar: Kvennakaffi á veitingahúsinu Lanternu, efri hæð kl. 10.30 Morgunverður og umræður um konur og pólitík. Akureyri: Kvennaganga um Oddeyrina kl. 11.30 Mæting við Gránufélagshúsin (við Pollinn). Súpufundur á Greifanum í lok göngu. Konur stíga á stokk: Oktavía Jóhannesdóttir og Sigrún Stefánsdóttir. Málið mitt: Lára Stefánsdóttir og Þorgerður Þorgilsdóttir. Kópavogur: Kvennaganga með leiðsögn um söguslóðir kvenna kl. 11.00 Mæting við Gerðarsafn. Súpa í Gerðarsafni í lok göngu, kynning á Gerði Helgadóttur. Konur í suðvesturkjördæmi hvattar til að mæta. Reykjanesbær: Kvennaganga kl. 11.00 Mæting við Kaffi Duus við smábátahöfnina. Kaffi og meðlæti í lok göngu. Margrét Frímannsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir og Unnur Kristjánsdóttir verða með í för. Reykjavík: Kvennaganga með leiðsögn um söguslóðir kvenna í Kvosinni kl. 15.00 Mæting í andyri Ráðhússins. Reyðarfjörður: Kvennakaffi í Verkalýðshúsinu kl.15.00 – 17.00 Leynigestur – óvæntar uppákomur. Konur á Austurlandi hvattar til að mæta. Sunnudagur 3. nóvember Akranes: Kvennahátíð í Maríukaffi í Byggðarsafninu Görðum, kl. 11.00 Konur stíga á stokk: Bjarnfríður Leósdóttir segir frá baráttu kvenna. Svanborg Eyþórsdóttir alþýðukona segir frá veru sinni í Menntasmiðju kvenna og fl. Konur á Akranesi og nágrenni hvattar til að mæta. Allar konur velkomnar Nánari upplýsingar á heimasíðu Samfylkingarinnar: www.samfylking.is SAMFYLKINGARKONUR Galvaskar og glaðar um allt land Það var kátt á hjalla hjá bókaút-gáfunni Bjarti þegar Kanada- maðurinn Yann Martell hreppti Bookerverðlaunin eftirsóttu enda hafði félagið fal- ast eftir íslenska þýðingarréttinum á verðlaunabók- inni, Life of Pi, áður en úrslitin voru tilkynnt. Eft- ir að bókin varð Bookerverðlauna- bók fóru fleiri íslenskar bókaút- gáfur að gefa henni gaum og Bjartur því skyndilega kominn með keppinaut. Bjartur vann þó slaginn og hefur látið þau boð út ganga að þessi djarfa bók muni koma út hjá Neonklúbbi Bjarts í byrjun næsta árs. S E N D U M Í P Ó S T K R Ö F U NICKERBOX KNICKERBOX Kringlunni Mán. - Laug. opið 10-18.30 KNICKERBOX Laugavegi 62 Mán. - Fös. opið 10-18 Lau. 10-17 dagana 30. okt. - 3. nóv. af öllum nýjum vörum. Við erum 7 ára 20% afsláttur Fullar búðir af nýjum vörum!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.