Fréttablaðið - 22.11.2002, Síða 1
TÓNLIST
Komið að
gjalddaga
bls. 20
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 22. nóvember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 14
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
KOSNINGAR Prófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjavík hefst í Valhöll í
dag og stendur frá klukkan 12 til
21. Sautján frambjóðendur hafa
boðið sig fram. Atkvæðisrétt eiga
allir félagsbundnir sjálfstæðis-
menn sem búsettir eru í Reykjavík
og hafa náð 16 ára aldri síðari próf-
kjörsdaginn. Einnig þeir sem skrá
sig í Sjálfstæðisflokkinn prófkjörs-
dagana en þeir þurfa að hafa náð
18 ára aldri við alþingiskosningarn-
ar 10. maí 2003. Á morgun verður
kosið á sex stöðum í sjö kjörhverf-
um.
Sjálfstæðismenn
kjósa
FYRIRLESTUR Dr. Sverrir Ólafsson
heldur fyrirlestur um stýringu
óvissu í Lögbergi kl. 13. Fyrirlest-
urinn er sérstaklega ætlaður fyrir
stjórnendur og fjármálastjóra fyr-
irtækja. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn án endurgjalds en þeir sem
hyggjast mæta þurfa að skrá sig.
Stýring óvissu
Heil umferð í
handboltanum
HANDBOLTI Heil umferð verður í
Essó-deild karla í handbolta í
kvöld. ÍBV mætir KA klukkan 19 í
Vestmannaeyjum. Sex leikir hefj-
ast síðan klukkan 20: ÍR - Haukar,
HK - Selfoss, Fram - Víkingur, Þór -
Stjarnan, FH - Grótta/KR og UMFA
- Valur.
PERSÓNAN
Líkur
Kastró
FÖSTUDAGUR
234. tölublað – 2. árgangur
bls. 32
ÍÞRÓTTIR
Stórleikur
í Breiðholti
bls. 14
SNJÓMOKSTURSFÓLK VIÐ KATRÍNARHÖLLINA George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimir Putin, forseti Rússlands, mætast í dag
á fundi í Katrínarhöllinni í Tsarskoye Selo, rétt fyrir utan St. Pétursborg. Að mörgu er að huga fyrir fund þeirra, meðal annars þarf að
moka snjóinn í umhverfi hallarinnar og var þetta fólk á leið til þeirra starfa.
REYKJAVÍK Austlæg átt 3-8
m/s. Skýjað og dálítil rigning
öðru hverju. Hiti 3 til 9 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 6
Akureyri 5-10 Skýjað 5
Egilsstaðir 8-13 Súld 6
Vestmannaeyjar 3-10 Skýjað 10
➜
➜
➜
➜ +
+
+
+
RÍKISFJÁRMÁL Útlit er fyrir að út-
gjaldaliðir fjárlagafrumvarpsins
muni hækka um fimm milljarða
króna frá því sem lagt var upp
með þegar Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra kynnti frumvarpið
1. október síðastliðinn. Þá var gert
ráð fyrir 2,2 milljarða króna
rekstrarafgangi ef eignasala er
ekki tekin með í reikninginn og
því ljóst að tekjur þurfa að aukast
ef ríkissjóður á ekki að koma út í
halla.
Fjárlaganefnd hefur fundað
stíft undanfarið og farið yfir við-
bótartillögur ráðuneyta og ríkis-
stofnana. Sú vinna er nú að kom-
ast á endapunkt og gæti lokið í
dag. Gert er ráð fyrir að önnur
umræða um fjárlagafrumvarpið
fari fram í næstu viku. Meirihluti
fjárlaganefndar mun því leggja
tillögur sínar fram ekki síðar en á
mánudag.
Ljóst er að útgjaldaliðir fjár-
lagafrumvarpsins hækka talsvert
á milli fyrstu og annarrar um-
ræðu um frumvarpið. Samkomu-
lag ríkisstjórnarinnar við Lands-
samband eldri borgara um hækk-
un bóta í almannatryggingakerf-
inu leiðir til hækkunar á útgjalda-
liðum frumvarpsins. Kostnaður
við samkomulagið á næsta ári er
áætlaður 1,6 milljarðar króna.
Heilbrigðismál og menntamál
vega einnig þungt þegar kemur að
útgjaldaaukningu. Rætt er um
auknar fjárveitingar til Landspít-
ala - Háskólasjúkrahúss og dag-
gjaldastofnana. Hækkun útgjalda-
liða í heilbrigðismálum stefnir á
annan milljarðinn.
Í fjárlagafrumvarpinu var gert
ráð fyrir að rekstrarafgangur rík-
issjóðs yrði 2,2 milljarðar ef
eignasala er ekki talin með. Fimm
milljarða útgjaldahækkun myndi
því að óbreyttu leiða til þess að
ríkissjóður yrði rekinn með halla.
Endurskoðuð tekjuáætlun ríkis-
sjóðs verður kynnt fyrir 3. um-
ræðu og má gera ráð fyrir tekju-
aukningu þar. Að öðrum kosti þarf
að skera aðra útgjaldaliði niður.
Tillögur um hækkun útgjalda-
liða fyrir aðra umræðu um fjár-
lagafrumvarpið verða meiri en
undanfarin ár. Í fyrra var lögð til
2,3 milljarða hækkun en tæp fjög-
urra milljarða hækkun árin tvö á
undan.
brynjolfur@frettabladid.is
Fimm milljarða
útgjaldahækkun
Gert er ráð fyrir að útgjaldaliðir fjárlagafrumvarpsins hækki um fimm milljarða króna frá því
sem lagt var upp með. Stærstur hluti fer í almannatryggingar, heilbrigðismál og menntamál.
DÓMSMÁL Ellefu ára gamalli stúlku
hafa verið dæmdar rúmar 16
milljónir króna í skaðabætur
vegna læknamistaka við fæðingu
hennar árið 1991.
Meðgöngueitrun móður hennar
olli því að stúlkan er mjög skert
andlega og hefur læknisfræðileg
örorka hennar verið metin 90% og
fjárhagsleg örorka 100%.
Móðir stúlkunnar greindist
með meðgöngueitrun við mæðra-
skoðun í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur síðdegis í febrúar
1991. Hún fór heim að lokinni
skoðun. Um kvöldið varð skyndi-
lega mikil blæðing hjá henni og
var hún flutt á sjúkrahúsið með
sjúkrabíl. Kom í ljós að um fylgju-
los var að ræða. Stúlkan fæddist
síðan skömmu fyrir miðnætti.
Í málinu var deilt um það hver
bæri ábyrgð á því að móðirin fór
heim eftir mæðraskoðunina. Móð-
irin hélt því fram að henni hefði
ekki verið gert að leggjast strax
inn á kvennadeildina. Læknirinn
taldi hins vegar að hún hefði ekki
viljað leggjast inn þrátt fyrir
sjúkdómsgreiningu og ráðlegg-
ingar hans.
Hæstiréttur staðfesti dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur, en ríkið
hafði áfrýjað málinu. Einn hæsta-
réttardómaranna skilaði séráliti.
Hann vildi sýkna ríkið. ■
Ríkið greiðir ellefu ára stúlku rúmar 16 milljónir vegna læknamistaka:
Meðgöngueitrun olli 90% örorku
Skrautleg
jól
Áreiti í sjúkrabíl:
Sleikti brjóst
sjúklings
DÓMSMÁL Sjúkraflutningamaður,
sem þuklaði kynfæri og sleikti
brjóst konu sem hann var að flyt-
ja í sjúkrabíl, á að sæta níu mán-
aða fangelsi. Hann á að greiða
konunni 400 þúsund króna bætur.
Maðurinn neitaði sök en eins
og sagði í Fréttablaðinu í maí
reyndist sýni af brjóstum konunn-
ar vera munnvatn úr manninum.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi
því sekt mannsins hafna yfir allan
vafa. Hann hefði sem sjúkraflutn-
ingamaður brugðist miklu trausti.
Konan sagðist hafa verið stjörf á
meðan á atlögu mannsins stóð. Hann
taldi hana undir áhrifum lyfja. ■
ALÞINGI
Það styttist í að fjárlagafrumvarpið verði tek-
ið til annarar umræðu. Fjárlaganefnd mun
gera tillögur um aukin útgjöld byggð á til-
lögum frá ráðuneytum og ríkisstofnunum.
AP
/M
YN
D
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
66%
71%