Fréttablaðið - 22.11.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 22.11.2002, Síða 6
HEILBRIGÐISMÁL Að minnsta kosti fimmtán læknisstöður af 85 eru ósetnar á landsbyggðinni og útlit fyrir að þeim fjölgi á næstunni. Læknar sem í þeim sitja eru margir að hugsa sér til hreyf- ings. Aðeins um helmingur starf- andi lækna hefur sérmenntun á sviði heimilis- lækninga en 12 prósent lands- b y g g ð a r l æ k n a eru með aðra sérmenntun. Ung- læknar eða lækn- ar án sérmenntun- ar eru 10 prósent og 7 prósent eru afleysingalæknar. Á heilsugæslustöðvum á höf- uðborgarsvæðinu og á Akureyri hafa læknar allu jafna verið með sérmenntun í heimilislækningum en nú vantar eitt til tvö stöðugildi lækna á Akureyri en enginn hef- ur sótt um, sem er mjög óvana- legt en lýsandi fyrir ástandið. Unglæknum í stuttum afleys- ingastöðum hefur fjölgað á milli ára úr tveimur í sex. Ágúst Oddsson, heilsugæslu- læknir á Hvammstanga, hefur tek- ið saman upplýsingar um stöðu mála. Hann er ekki bjartsýnn á að takist að manna þær stöður sem lausar eru og skoðun hans er að ástandið eigi eftir að versna til muna á næsta ári. „Við úrskurð Kjaranefndar um daginn versnuðu kjör unglækna mjög í héruðum þannig að sá hópur á trúlega eftir að þynnast. Það sama á við afleysingalækna, sem flestir eru annað hvort læknanem- ar í hvíld frá sínu námi, unglæknar sem eru að bíða eftir að komast í sérnám eða kandídatar sem eru að taka út héraðstíma sinn,“ segir Ágúst. Að hans sögn er niðurstaðan í stuttu máli sú að ekki hafi orðið fækkun á sérmenntuðum heimilis- læknum á landsbyggðinni á milli ára en blikur séu á lofti. „Auk þeirra fimmtán sem vant- ar veit ég um nokkra til viðbótar sem eru á förum. Í Búðardal er heimilislæknir í löngu leyfi og á Húsavík hefur heimilislæknir sagt upp og er að hætta, enda á hann stutt í að geta farið á eftirlaun. Á Selfossi er einn heimilislæknir að hætta og hefur ráðið sig annað. Þetta eru allt sérmenntaðir heimil- islæknar. Á Þingeyri er unglæknir á leið í frí og á Ísafirði er læknir á leið á eftirlaun. Á Höfn og á Kirkju- bæjarklaustri eru unglæknar að störfum og hætta báðir í janúar.“ Ágúst segir að ef fram haldi sem horfir verði, að mati þeirra sem gerst þekkja til, þess ekki langt að bíða að minni læknishér- uð verði alfarið án lækna. Þau verði ekki hægt að manna með unglæknum þar sem allar líkur séu á að þeir vilji ekki ráða sig til starfa á þeim launum sem Kjara- nefnd hefur ákveðið. bergljot@frettabladid.is 6 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR ERLENT Nú vantar eitt til tvö stöðu- gildi lækna á Akureyri en enginn hefur sótt um, sem er mjög óvanalegt en lýsandi fyrir ástandið. Skólabúningar í Áslandsskóla: Liggja enn ónotaðir SKÓLAMÁL Á síðasta ári voru keyptir á öll börn í Áslandsskóla skóla- búningar sem enn hafa ekki verið teknir í notkun. Leifur Garðarsson skólastjóri segir það rétt að búning- arnir séu til en ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvenær börnin klæðist þeim. „Það eru skiptar skoð- anir um hvort teknir verði í notkun skólabúningar. Við höfum ekki enn rætt það hvort af því verði en ég reikna frekar með að það verði nið- urstaðan.“ Leifur bendir á að ýmislegt ann- að hafi haft forgang í málefnum skólans. „Það er eitt og annað sem hefur þurft að endurskipuleggja. Ég býst við að við leitum álits foreldra á skólabúningum og það kemur að því þegar gengið hefur verið frá brýnni málum. Að undanförnu höf- um við verið með skólafærninám- skeið fyrir foreldra, sem hafa geng- ið vel. Allt hefur þetta sinn tíma.“ ■ ÁSLANDSSKÓLI Þar voru í haust keyptir skólabúningar sem enn hafa ekki verið teknir í notkun. Tollhúsið: Ósamið um Kolaportið KOLAPORTIÐ Samningar hafa enn ekki tekist milli Þróunarfélags miðborgarinnar og Markaðs- torgsins ehf. um áframhaldandi rekstur þess á Kolaportinu. Þróunarfélagið er hagsmuna- félag fyrirtækja í miðborginni. Það hefur leigt fyrstu hæð Toll- hússins af ríkinu og framleigt það síðan til Markaðstorgsins, sem hefur leigt smákaupmönn- um aðstöðu í hinu 2.500 fer- metra rými. Markaðstorg skul- da nú yfir 9 milljónir króna í leigu. Greiðsla skuldarinnar mun vera forsenda nýs samn- ings. ■ Heimilislæknum fækkar úti á landi Sérmenntaðir heimilislæknar aðeins helmingur starfandi lækna. Útlit fyrir að ekki fáist læknar í lausar stöður innan tíðar. Hveragerði: Skáld í heitu vatni HITAVEITA Pjetur Hafstein Lárus- son, skáld í Hveragerði, hefur sent bæjarstjórninni á staðnum bréf þar sem hann gagnrýnir harðlega dreifingu á heitu vatni í bænum, en skáldið telur að þar sitji ekki allir við sama borð: „Ég tel að jafnræðisregla stjórnsýslulaga sé brotin,“ segir Pjetur, en bréf hans átti að taka fyrir á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi. Sem kunnugt er af fréttum hefur Veitustofnun Hveragerð- isbæjar sett upp nýtt dreifikerfi fyrir heitt vatn í bænum en hingað til hefur heita vatnið flætt óhindrað í gegnum hús og íbúar greitt eftir flatarmáli eigna sinna. Nú hafa hins vegar verið settir upp mælar í um 40 prósentum byggðarinnar og við það hækkuðu hitareikningar margra um mörg hundruð pró- sent. Bæjaryfirvöld hafa þó leiðrétt það og bakfært óvenju háa reikninga og miðað við fyrri áætlun á nýjum innheimtuseðl- um. Talið er að minnst tíu ár taki að koma upp vatnsmælum í þeim hluta bæjarins sem enn er hitaður upp með gamla laginu og eru því tvö kerfi í gangi. Við það getur Pjetur Hafstein ekki sætt sig: „Ég fékk reyndar aðeins fimm þúsund króna reikning vegna heita vatns- ins nú síðast en nágranni minn 70 þúsund og þó búum við í alveg eins húsum,“ segir skáldið. ■ LÆKNUM MEÐ SÉRMENNTUN FÆKKAR Æ fleiri heimilislæknar hverfa úr starfi á landsbyggðinni. Í staðinn koma afleysingalæknar sem aðeins staldra við í fríum sínum og mynda ekki tengsl við sjúklinga. HEITT Í HVERAGERÐI Konur við þvott í heitu vatni sem flæðir um allt. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 86.05 0.26% Sterlingspund 135.46 0.28% Dönsk króna 11.61 0.37% Evra 86.27 0.40% Gengisvístala krónu 129,01 0,12% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 298 Velta 2.440 milljónir ICEX-15 1.324 0,02% Mestu viðskipti Össur hf. 291.505.127 Pharmaco hf. 196.759.080 Flugleiðir hf. 45.806.040 Mesta hækkun Plastprent hf. 18,00% Þróunarfélag Íslands hf. 6,67% Marel hf. 6,45% Mesta lækkun Nýherji hf. -7,79% Skeljungur hf. -1,37% Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -1,14% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8787,2 1,9% Nsdaq*: 1460,9 2,9% FTSE: 4181,0 2,1% DAX: 3287,7 2,3% Nikkei: 8668,1 2,5% S&P*: 929,7 1,7% VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Formaður Öryrkjabandalags Ís- lands sagði framlag ríkisstjórnar- innar vegna hækkunar almanna- trygginga á næsta ári tölur á blaði. Hvað heitir formaðurinn? Leikskólagjöld í Reykjavík hækka 1. janúar á næsta ári. Hver er prósentutala hækkunarinnar? Í úrtökuprófi læknanema við H.Í. á föstudag var spurt um lit á frægri sögupersónu. Hvaða sögupersóna var það og hvernig er hún á litinn? SKOTÁRÁS Í TRINIDAD 17 ára gamall piltur særði öryggisvörð alvarlega í skóla í Trinidad. Eftir skotárás við lögregluna lést drengurinn. Að sögn skólayfirvalda hafði pilturinn sótt um inngöngu í skólann fyrir ári síðan en var hafnað. PRINSESSA JÁTAR Anna Breta- prinsessa sagðist fyrir dómi í gær vera sek um að hafa sleppt hundi sínum lausum með þeim afleiðingum að hann réðst á tvö börn og beit þau. Dómarinn ákvað samt að þyrma lífi hundsins. Hann þarf hins vegar að gangast undir þjálfun og vera í bandi á almannafæri. KVÆNTI BISKUPINN MESSAR Emmanuel Milingo erkibiskup hélt í gær messu í bænum Casamari á Ítalíu. Þetta er í fyrsta sinn sem hann messar frá því hann komst í heims- fréttir á síðasta ári fyrir að hafa kvænst. Hann afneitaði síðar hjónabandinu að beiðni páfa. ERLENT Jerúsalem: Ellefu farast JERÚSALEM, AP Að minnsta kosti ell- efu manns létu lífið í Jerúsalem í gærmorgun þegar Palestínumaður sprengdi sig í loft upp í strætis- vagni. Maðurinn valdi til þessa verks þann tíma þegar fólk var á leið í vinnu og börn í skóla. Nokkur börn voru meðal þeirra sem létust. Nærri fimmtíu manns slösuðust að auki og þar af voru nokkrir í lífshættu í gær. Hamas, samtök herskárra mús- lima í Palestínu, sögðust bera ábyrgð á þessu voðaverki. Tilræðis- maðurinn var 23 ára. Herskáir múslimar segja að sjálfsmorðsárásunum í Ísrael verði ekki hætt, þrátt fyrir að bæði Palestínustjórn og Egyptalands- stjórn hafi beðið þá um að hætta slíkum árásum, að minnsta kosti fram yfir kosningarnar í Ísrael 28. janúar. Palestínumenn og Egyptar segja að árásirnar auki stuðning Ísraelsmanna við hægriflokka strangtrúarmanna og þjóðernis- sinna, sem vilja ekki gefa neitt eftir í samningum við Palestínumenn. Likud, stjórnmálaflokkur Ariel Sharon, nýtur yfirburðastöðu sam- kvæmt skoðanakönnunum. ■ JERÚSAELEM Í GÆRMORGUN Sjálfboðaliðar unnu að því að fjarlægja lík og líkamsleifar frá vettvangi sprengjuárás- arinnar í Jerúsalem. AP /O D ED B AL IL TY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.