Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 2
2 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR Guðjón A. Kristjánsson er mikill áhugamaður um hvalveiðar, en þær voru til umræðu á Alþingi fyrr í vikunni. Já, hvalur er afbragðsmatur. SPURNING DAGSINS Guðjón, finnst þér góður hvalur? PALESTÍNA „Þegar ég kom til Nazlat Issa mætti mér fullt af hlaupandi fólki sem var að flýja táragas,“ segir Eva Einarsdóttir, sem er stödd í Palestínu á vegum samtak- anna Ísland Palestína. Hún kom til þorpsins Nazlat Issa þegar Ísra- elsmenn voru að rífa niður versl- anir og sölubása á markaðssvæði þorpsins, sem þeir segja að hafi verið reist í heimildarleysi. Eva segir hana og aðra sjálf- boðaliða frá útlöndum sem voru þarna hafa tekið sér stöðu milli Ísraela og Palestínumanna og staðið fremst, þar sem fólk fylgd- ist með aðförunum. „Það var hræðilegt að sjá konurnar grát- andi og karlana haldandi aftur af grátinum. Ísraelar eru búnir að skemma flesta markaði á svæðinu þannig að þetta hefur gífurleg efnahagsleg áhrif.“ Nazlat Issa er nálægt miklum vegg sem Ísraelar eru að byggja til að skilja að svæði Ísraela og Palestínumanna og segja það bestu leiðina til að tryggja varnir gegn hryðjuverkum. Eva segir það fjarstæðu og helstu áhrifin verði á afkomu Palestínumanna, sem komist margir ekki til starfa sinna eftir að veggurinn rís auk þess sem landsvæðið undir hann sé tekið af Palestínumönnum. ■ EVA EINARS- DÓTTIR Segir aðstæð- urnar víða hörmulegar eftir átök og hernám Ísraela. Íslendingur varð vitni að niðurrifinu í Nazlat Issa: Mætti fólki flýjandi táragas RÚSTIRNAR SKOÐAÐAR Niðurrif Ísraelsmanna á búðum og sölubásum í Nazlat Issa er meðal mestu aðgerða þeir- ra af þessu tagi sem þeir hafa ráðist í. AP /R O N EN L ID O R VIÐSKIPTI Philip Green hefur þegar greitt niður rúma 25 milljarða af skuldum sem hann stofnaði til við yfirtöku Arcadia. „Við greiðum skuldina 18 mánuðum fyrir gjald- daga. Við kunnum því alltaf vel að borga snemma,“ segir Green í samtali við Financial Times. Green reiknar með að greiða tæpa tuttugu milljarða fyrir lok þessa mánaðar. Sala Arcadia óx um 2,4%, sem er lægra en vöxturinn hjá Marks og Spencer, sem var 6,7%. Baugur var með í kaupum Green á Arcadia allt til þess að slitnaði upp úr í kjölfar húsrannsóknar efnahagsbrotadeildar lögreglunn- ar hjá Baugi. Hugmynd þeirra var að Baugur tæki til sín vörumerki sem höfðuðu til ungs fólks. Það er einmitt velta þessara vörumerkja sem veldur því að hægt er að greiða skuldir hraðar niður. Meðal þeirra eru Top Shop og Top Man, sem juku sölu sína um 10,4% og 13,5%. Leitað var eftir viðtali við Phil- ip Green vegna þáttar lögreglu- rannsóknar í því að upp úr samn- ingum við Baug slitnaði. Green var upptekinn og gat ekki svarað spurningum í gær. ■ BORGAR HRATT Vörumerkin sem Baugur ásældist við yfir- töku Arcadia skiluðu Philip Green góðri af- komu. Svo góðri að hann greiðir skuldir átján mánuðum fyrr en hann þarf. Vörumerkin sem Baugur vildi: Skila Green bestu afkomunni Lech Walesa: Aftur í framboð VARSJÁ, AP Lech Walesa, fyrrum for- seti Póllands og leiðtogi Samstöðu, segist ætla að gefa kost á sér í emb- ætti forseta á nýjan leik. Hann er þó ekki bjartsýnn á að bera sigur úr býtum. Walesa var fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Póllands eftir fall kommúnismans. Hann féll fyrir Aleksander Kwasniewski þegar hann leitaði endurkjörs 1995. Í kosningunum árið 2000 fékk Walesa einungis eitt prósent at- kvæða. Næstu forsetakosningar í Póllandi fara fram árið 2005. ■ Flugmaður handtekinn: Byssa í hand- farangri NEW YORK, AP Flugmaður hjá flugfé- laginu Northwest Airlines var handtekinn á LaGuardia-flugvelli eftir að hlaðin byssa fannst í far- angri hans. Maðurinn var á leið um borð í flugvél sem hann átti sjálfur að fljúga frá New York til Detriot. Að sögn flugvallaryfirvalda komu eftirlitsmenn auga á byssuna þegar taska flugmannsins var sett í gegnumlýsingartæki. Um var að ræða hálfsjálfvirka byssu og hafði maðurinn leyfi til að bera hana í Michigan-ríki. Flugmaðurinn, sem er í haldi lögreglu, hefur verið ákærður fyrir ólöglega meðferð vopna og á yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsis- vist. ■ INNLENT STÆRRA HÓTEL ÓÐINSVÉ Sótt hefur verið um leyfi fyrir bygg- ingu fimmtu hæðarinnar ofan á húsið sem hýsir Hótel Óðinsvé á Óðinstorgi. Einnig er sótt um leyfi fyrir viðbyggingu að þriðju og fjórðu hæð hússins. Stækkun- in nemur samtals 160 fermetrum. ATVINNUÁSTAND „Ríkisstjórnin vill flýta útboðum og koma verkleg- um framkvæmdum á vegum rík- isins í gang. Samgönguráðherra hefur sérstaklega sent sínum und- irstofnunum tilmæli þar um. At- vinnuleysistryggingasjóður er til- búinn að styrkja átaksverkefni sem sveitarfélög eða fyrirtæki vilja leggja í, hann hef- ur auglýst og mun kynna þetta úr- ræði á næstu vik- um,“ sagði Páll Pétursson félags- málaráðherra í utandagskrárum- ræðu um atvinnuástandið. Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi. Hann sagði ástandið alvarlegt og ekki annað að sjá en að það versnaði enn, yrði ekkert að gert. Guðmundur Árni sagði ríkisstjórnina bera tals- verða ábyrgð, vextir væru of háir, hátt gengi krónunnar ylli erfið- leikum og skattastefna ríkis- stjórnarinnar hefði reynst fyrir- tækjum þungbær. „Ég tel brýnt að ríkisvaldið horfist í augu við þennan veru- leika. Því spyr ég einfaldlega, hvað hyggst ríkisstjórnin gera núna, ekki á næsta ári eða þar næsta ári, ekki árið 2005. Hvernig hyggst hún svara spurningum atvinnu- lausra Íslendinga sem spyrja; hverjir eru mínir möguleikar, hvenær fæ ég atvinnu,“ spurði Guðmundur Árni og bætti við að atvinnuleysi væri mun meira en opinberar tölur segðu til um. Sam- kvæmt skráningu eru nú tæplega 5.800 manns án atvinnu en fram kom í máli Guðmundar Árna að líklega væri það meira þar sem margir drægju að skrá sig. Stjórnarandstæðingar sem þátt tóku í umræðum tóku í sama streng en stjórnarliðar sögðu á móti að svartsýnisraus sem þetta drægi úr mönnum kjarkinn. Félagsmálaráðherra sagði að þrátt fyrir allt væri ljós í myrkr- inu, langtímaatvinnuleysi hefði ekki verið minna síðan 1993. Þar er átt við þá sem hafa verið án at- vinnu í sex mánuði eða lengur. Þá upplýsti félagsmálaráðherra að verulega hefði dregið úr veitingu atvinnuleyfa til útlendinga, enda hefðu stjórnvöld reynt að stýra veitingu þeirra. Í fyrra hefðu 500 leyfi verið veitt, 1.400 árið 2001 og 2.300 leyfi árið 2000. Málshefj- andi fagnaði yfirlýsingum ráð- herra um flýtingu framkvæmda en sagði dapurlegt að hann reyndi með öllum tiltækum ráðum að tala niður ástandið. the@frettabladid.is PÁLL PÉTURSSON Upplýsti í utandagskrárumræðum að ríkisstjórnin hygðist flýta opinberum framkvæmdum vegna atvinnuástandsins. Sagði atvinnuleysi ótvírætt fara vaxandi en bað menn að vera raunsæja og tala ekki kjarkinn úr sjálfum sér. Opinberum fram- kvæmdum flýtt Ríkisstjórnin hyggst flýta útboðum á vegum samgönguráðherra vegna erfiðs atvinnuástands. Máið var rætt utan dagskrár á Alþingi í gær. Fé- lagsmálaráðherra sagði að langtímaatvinnuleysi hefði ekki verið minna hér á landi síðan 1993. „Hvað hyggst ríkisstjórnin gera núna, ekki á næsta ári eða þar næsta ári, ekki árið 2005.“ Nú er fyrirtækið orðið 60 ára Af því tilefni höldum við veglega útsöluveislu. Siffonkápur, kjólar, dragtir, buxur, pils, flauels- og gallafatnaður o.fl. o.fl. Mikill afsláttur Opið 10-18, lau. 11-15, Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 KANNABISRÆKTUN Í BÍLSKÚR Við húsleit lögreglunnar kom í ljós mikil ræktun, en alls fundust 330 kannabis- plöntur og 10 skotvopn. Húsleit lögreglunnar á Blönduósi: Fundu 330 kannabis- plöntur og skotvopn LÖGREGLA Lögreglan á Blönduósi lagði hald á 330 kannabisplöntur í fyrradag og 10 skotvopn. Tveir menn voru handteknir og hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim á meðan rannsókn máls- ins stendur yfir. Plönturnar fundust við húsleit lögreglunnar á tveimur stöðum. Tilefni leitarinnar voru upplýs- ingar sem lögreglan hafði fengið, en samkvæmt þeim var sterkur grunur um að verið væri að rækta kannabis á báðum stöðunum. Við húsleit kom í ljós mikil ræktun og á öðrum staðnum voru haldlagðar um 160 kannabisplönt- ur, ljósabúnaður sem notaður var við ræktunina, nokkuð magn af efni sem var í vinnslu, þrjú skot- vopn og skotfæri. Á hinum staðnum voru hald- lagðar um 170 kannabisplöntur, ljósabúnaður sem notaður var við ræktunina, nokkur kíló af kanna- bisefni á ýmsum vinnslustigum, 7 skotvopn og töluvert af skotfær- um. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.