Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 32
Það er flókið líf að vera barn árið2003. Ég held að minnsta kosti að það sé talsvert flóknara en það var fyrir nokkrum áratugum. Þess vegna þurfa börn samtímans að eiga skipulagsbækur og GSM-síma frá ótrúlega ungum aldri. Líf þeirra er í mörgum tilvikum hreint ekki ein- faldara en líf stjórnanda í stóru fyr- irtæki. ALLT ÞAR TIL fyrir um það bil 15 árum var líf barns í stórum dráttum þannig að það var í skólanum tvo til fjóra klukkutíma á dag, annað hvort fyrir eða eftir hádegi. Hinn hluta dagsins þurfti það stundum, ekki nema stundum, að fara í svokallaða aukatíma. Stöku barn fór einu sinni í viku í tónlistarskóla eða stundaði einhverja íþrótt. Flestar mæður voru heima, að minnsta kosti þann hluta dagsins sem barnið var heima, höfðu mat í hádeginu og svokallaða drekkutíma. ÞETTA er ótrúlega fjarlægt þótt ekki sé lengra síðan. Þá þótti skrýtið að mæður unnu úti, sem þær fóru hver á fætur annarri að gera og til varð til hugtakið „lyklabarn“ um þau börn sem svo illa var komið fyrir að þau þurftu að hafa lykla að eigin heimilum. Og ég skil ekki núna hvers vegna lyklarnir þurftu að vera í bandi um hálsinn. NÚ HEYRIR TIL undantekninga að foreldrar séu heima við á daginn og sjálfsagt þykir að barn fái lykil (í lyklakippu) þegar ákveðnum aldri er náð. Skóladagurinn er aldrei minna en sex klukkutímar. Mörg börn æfa íþróttir, iðulega oft í viku. Ofan á þetta bætist svo tónlistarskóli, ball- ett, fimleikar og þannig mætti áfram lengi telja. OG það er býsna flókið að halda utan um þetta allt og samræma og mörg börn eru allt of stressuð. Nú er ég alls ekki að segja að við ættum að leita aftur til baka til ýsunnar heima við eldhúsborðið í hádeginu og drekkutímanna góðu. Þetta er lið- in tíð. Það er vissulega gott fyrir börn að hafa nóg fyrir stafni og hollt að temja sér ungur að skipuleggja tímann. Börn verða samt líka að fá að hvíla sig, leika sér, hanga og gera ekki neitt. Það er nefnilega liður í uppvextinum líka. ■ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Steinunnar Stefánsdóttur Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk STABILO SWING áherslupenni Verð 70 kt/stk Ljósritunarpappír 400 kr/pakkningin Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum NOVUS B 425 4ra gata, gatar 25 síður. Verð 2.925 kr TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Ljósritunarglærur, 100 stk í pakka. Verð 1.599 kr/pk Bleksprautu 50 stk í pakka 2.990 kr/pk STABILO BOSS Verð 78 kr/stk Lítið fólk á hlaupum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.