Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 20
FUNDIR 8.30 Verkefnastjórnunarfélag Íslands efnir til námstefnu um verkefna- stjórnun í heilbrigðis- og lífvís- indum í Smárabíói, sal 5. Ráð- stefnunni lýkur kl. 12.00. 12.00 Alþjóðadagur Háskóla Íslands verður haldinn í Háskólabíói. Þar verður kynning á stúdentaskipt- um, starfsþjálfun og öðru námi erlendis og stendur hún til kl. 16.00. 15.15 Michael T. Corgan stjórnmála- fræðingur mun á almennum opn- um fundi í Háskólanum á Akur- eyri fjalla um stöðuna í málefn- um Íraks og yfirvofandi árásar á landið. Fyrirlesturinn verður hald- inn á Sólborg, stofu 201. 16.30 Landvernd og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands boða til málstofu í Norræna húsinu í Reykjavík um Þjórsárver og mat á umhverfis- áhrifum. Spurt verður hvaða lær- dóm megi af málinu draga. Frum- mælendur verða Aðalheiður Jó- hannsdóttir lögfræðingur, Guð- mundur G. Þórarinsson verkfræð- ingur og Þorvarður Árnason, nátt- úrufræðingur og heimspekingur. 20.00 Foreldrafræðsla um vímuefni verður í Fellaskóla í kvöld fyrir for- eldra nemenda í 9. bekk. Fræðsluverkefnið „Hættu áður en þú byrjar“ er samstarfsverkefni lögreglunnar, félagsþjónustunnar og Marita, forvarna- og hjálpar- starfs. 20.00 Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, efna til fyrsta fundar síns á nýju ári. Er fundar- efnið: Að syrgja saman - Börn og fullorðnir í sorg. Framsögu hefur María Ágústsdóttir, formað- ur samtakanna. Fundarstaður er Safnaðarheimili Háteigskirkju, 2. hæð. 20.00 EGG-leikhúsið og málstofa í praktískri guðfræði við Háskóla Íslands efna til málþings um leik- ritið Dýrlingagengið eftir Neil LaBute. Það verður haldið í Lista- safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. 20.30 Sandgerðislistinn boðar til opins fundar um atvinnumál í Sand- gerði á Veitingahúsinu Vitanum við Vitatorg í Sandgerði. 20.30 Annar fræðslufundur Fugla- verndarfélagsins verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi, húsi Laga- deildar Háskólans. Þar mun Ólaf- ur Einarsson fuglafræðingur fjalla um garðfuglakönnun Fugla- verndarfélagsins. TÓNLEIKAR 19.30 Hermann Stefánsson, fyrsti klar- inettleikari Konunglegu Stokk- hólmsfílharmoníunnar, þreytir frumraun sína með Sinfóníu- hljómsveit Íslands í kvöld. Á efn- isskránni eru meðal annars tvö helstu verk klarinettusögunnar, Klarinettkonsert nr. 2 eftir Weber og Premiére rapsodie eftir De- bussy. Stjórnandi tónleikanna er Alexander Vedernikov. 20.30 Ríó tríó heldur vegna fjölda áskorana enn eina aukatónleika í tilefni af heildarútgáfu á hljóðrit- unum tríósins frá 1967-2002. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi. OPNANIR 17.00 Sýning á nýjum verkum Haraldar Jónssonar verður opnuð í gallerí i8 við Klapparstíg. Á sýningunni eru ljósmyndaverk sem öll bera heitið Stjörnuhverfi og þrívíðu verkin Svarthol fyrir heimili, en tvö þeirra eru fyrir fullorðna og eitt fyrir barn. 20.00 Sýningin „Young Nordic Design“ verður opnuð í Norræna húsinu. Þetta er metnaðarfull sýning á verkum fjölmargra íslenskra, norskra, danskra, sænskra og finnskra hönnuða. Sýningin var opnuð í nóvember 2000 í Scand- inavia House í New York og hefur síðan farið víða um heim (m.a. um Norður-Ameríku, Washington, Mexíkóborg, Berlín, Montréal, Vancouver og Ottawa). LEIKHÚS 19.00 Grettissaga - saga Grettis eftir Hilmar Jónsson í Hafnarfjarðar- leikhúsinu. Allra síðasta sýning. 20.00 Halti Billi eftir Martin McDonagh á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 20.00 Veislan eftir Thomas Vinterberg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins. 20.00 Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare í þýðingu Hallgríms Helgasonar á Litla sviði Borgar- leikhússins. VERÐLAUNAAFHENDING 20.00 Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Borgarleikhúsinu. SKEMMTANIR 21.00 Alþjóðlegt kvöld í Stúdentakjall- aranum í tengslum við Alþjóða- dag Háskóla Íslands. 16 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR ...ljómandi skemmtileg barnasýning! Hafliði Helgason, Fréttablaðið. Útfærsla Ólafs Gunnars er ágætlega frumleg og skemmtileg ... Benedik búálfur er afar skemmtilegur söngleikur og stuðla margir þættir að því, eins og ætíð þegar góð leiklist er á ferðinni! Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið. Miðapantanir í síma 552 3000 eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson Næstu sýningar: Sun. 12. jan. kl. 14. laus sæti Sun. 19. jan. kl. 14. örfá sæti Sun. 26. jan. kl. 14. laus sæti Sun. 2. feb. kl. 14. laus sæti Sun. 9. feb. kl. 14. laus sæti Hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda meira enn3000sýningargestir Okkar maður Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR Hermann Stefánsson er fyrsti klarínettleikari í Konunglegu Stokkhólmsfílharmoníunni. Sem er býsna góður árangur. Hermann þreytir frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fimmtudaginn í tveimur af meginverkum klarínettsögunnar. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Tónleikar í rauðu röðinni í Háskólabíói í kvöld kl. 19:30 Hljómsveitarstjóri: Alexander Vedernikov Einleikari: Hermann Stefánsson Mikhaíl Glinka: Lífið fyrir keisarann, forleikur Carl Maria von Weber: Klarínettkonsert nr. 2 Claude Debussy: Première rapsodie Maurice Ravel: Valses nobles et sentimentales Paul Dukas: Lærisveinn galdrameistarans FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR hvað? hvar? hvenær? Haraldur Jónsson opnar sýningu í i8: Útlensk ljósadýrð og íslenska kol- svarta tómið MYNDLIST Haraldur Jónsson myndlistarmaður opnar í kvöld sýningu í galleríinu i8 við Klapparstíg. Þar sýnir hann ljósmyndir, sem hann kallar Stjörnuhverfi og Svarthol fyrir heimili, en tvö þeirra eru fyrir fullorðna og eitt fyrir barn. Stjörnuhverfin eru ljós- myndir af hvers kyns ljósum og lömpum í einum hnapp. „Þetta eru myndir teknar af ljósabúðum,“ segir Haraldur. „Þær eru teknar að næturlagi í gegnum gluggana. Það er þokkaleg rómantík í þessu, létt gotneskt andrúmsloft.“ Haraldur minnir á að þetta eru allt saman útlenskt ljós. „Hver einasta ljósapera sem við notum hér á landi í myrkrinu er innflutt. Þótt rafmagnið sé vissulega íslenskt, þá er þessi birta alltaf jafn útlensk og for- vitnileg.“ „Svarthol fyrir heimili“ eru þrívíð verk, gerð úr texi, efni sem annars er venjulega notað í veggi til hljóðeinangrunar. „Ef þú horfir ofan í þessi svarthol, þá geturðu séð kol- svart tómið. Þarna er bæði myrkur og svo líka algjör þögn. Alveg eins og úti í geimnum eða bara uppi á hálendi Ís- lands.“ En skyldu heimili á Íslandi hafa þörf fyrir svarthol? „Já, engin spurning. Við höf- um öll þörf fyrir að horfast í augu við og vera í náinni snert- ingu við það sem er hluti af okkar innri og ytri heimi.“ ■ HARALDUR JÓNSSON MYNDLISTARMAÐUR Hann hefur fært okkur „himingeiminn heim“ á sýningu sinni, þar sem hann sýnir verk sem nefnast Stjörnuhverfi og Svarthol fyrir heimili. lau. 25.1. uppselt fös. 31.1. aukasýn lau. 1.2. uppselt fös. 7.2. örfá sæti lau. 8.2. nokkur sæti fim. 13.2. nokkur sæti „Björk er hin nýja Bridget Jones“ morgunsjónvarpið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.