Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 21
SÝNINGAR
Óboðnir gestir er heiti málverkasýning-
ar Þuríðar Sigurðardóttur á Galleríi
Hlemmi. Sýningin er opin frá miðviku-
degi til sunnudags kl. 14-18. Sýningunni
lýkur 2. febrúar.
Pétur Pétursson sýnir 12 landslagsmál-
verk á Caffé Kúlture í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu 18. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 26. janúar næstkomandi.
Hitler og hommarnir nefnist sýning
þeirra David McDermott og Peter Mc-
Gough í Listasafni Akureyrar. Sýning
þeirra fjallar um útrýmingu samkyn-
hneigðra á nasistatímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Lista-
safni Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir
Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda ára-
tugnum.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs-
efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir
fanga, sem teknir hafa verið af lífi í
Bandaríkjunum.
20.00 Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
samsýning ungra íslenskra og breskra
listamanna. Sýningin ber heitið „then
...hluti 4 - minni forma“. Sýningin stend-
ur til 2. mars.
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, 21 árs
útskriftarnemi af myndlistabraut í Fjöl-
braut í Breiðholti, sýnir ljósmyndir og
skúlptúr í Gallerí Tukt. Sýningin stendur
yfir í tvær vikur.
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú-
ar.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir
sex ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna
kallar hann Blátt og rautt. Hún stendur
til 15. febrúar og er opin á opnunartíma
kaffihússins.
Arnar Herbertsson sýnir málverk í Gall-
eríi Sævars Karls. Myndefni listamanns-
ins er fengið úr bókinni ‘Handan góðs
og ills’ eftir Friedrich Nietzsche.
Í Ketilshúsinu á Akureyri stendur yfir
sýningin Veiðimenning í Útnorðri.
Myndlistarmaðurinn Díana Hrafnsdóttir
sýnir leirverk í Gallerý Hár og list - Hjá
Halla rakara, Strandgötu 39, Hafnarfirði.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd-
um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar-
arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að-
hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem
fólst í því að myndlist og iðnhönnun
ættu að sameinast í byggingarlistinni.
Bandaríska myndlistarkonan Joan
Backes er með myndlistarsýningu í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Á þessari sýningu beitir
Joan ýmsum miðlum til að koma til
skila vangaveltum sínum um tré og
skóga og það sjónræna viðhorf sem þar
kviknar. Safnið er opið alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Sýningunni
lýkur 27. janúar.
Sýningin BókList stendur yfir í anddyri
Norræna hússins. Þar sýnir finnska
listakonan Senja Vellonen 22 handunn-
ar bækur. Sýningin stendur til 9. febrúar
og er opin frá kl. 9-17 alla daga nema
sunnudaga frá kl. 12-17.
Í Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, var um helgina opnuð
sýning á verkum átta færeyskra lista-
manna. Þetta er sumarsýning Norður-
landahússins í Þórshöfn og nefnist ‘Atl-
antic Visions’ eða HAFSÝN. Safnið er
opið alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17. Sýningunni lýkur 27. janúar.
FIMMTUDAGUR 23. janúar 2003
Ævafornar spurning-
ar vakna til lífsins
Býr illskan hið innra með okkur öllum? Er alltaf jafn grunnt á
ofbeldinu? Er okkur alveg sama? Um þetta verður fjallað á mál-
þingi um sýningar EGG-leikhússins á Dýrlingagenginu.
SIÐFRÆÐI Sýningar EGG-leikhúss-
ins á Dýrlingagenginu eftir Neil
LaBute hafa vakið upp ævagaml-
ar og ögrandi spurningar um
illsku mannsins og hræsni í sið-
ferðisefnum. Í kvöld efna EGG-
leikhúsið og málstofa í praktískri
guðfræði við Háskóla Íslands til
málþings um þetta óvægna leikrit
og spurningarnar sem það vekur.
Málþingið fer fram í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu og hefst klukkan
átta.
„Þetta er mjög sláandi sýn-
ing,“ segir Sólveig Anna Bóas-
dóttir guðfræðingur, sem er einn
frummælenda á málþinginu.
„Þetta vekur mann til íhugunar
um það hvort það sé í raun og
veru svona grunnt á ofbeldinu í
okkur.“
Sólveg Anna er doktor í guð-
fræðilegri siðfræði. Hún segir að
til séu ótalmargar skýringar á of-
beldinu, en þær skýringar skiptist
í tvo meginflokka. Annars vegar
er litið svo á að ofbeldið eða illsk-
an sé í eðli okkar. Hins vegar eru
svo alls konar félagslegar og sál-
fræðilegar skýringar á því af
hverju maður beitir ofbeldi.
„Þetta eru sígildar spurningar.
Þær eru ævagamlar en um leið
eiga þær fullkomlega við í nútím-
anum. Þetta nær alveg inn í stofu
hjá manni.“
Hún tekur dæmi af manninum
í fyrsta þætti leikritsins, ungum
fjölskylduföður sem er á frama-
braut en á yfir höfði sér að missa
vinnuna. Málin þróast þannig að
hann drepur barnið sitt til þess að
fá samúð. Hann veit að það verð-
ur miklu erfiðara að segja honum
upp ef hann er rétt nýbúinn að
missa barnið sitt.“
„Þarna verður ofbeldið að
tæki hans til þess að ná fram
markmiðum sínum. Hann sér
þarna ákveðið tækifæri, eins og
hann segir, sem hann getur ekki
gengið framhjá.“
„Það sem mér finnst sitja eft-
ir er að persónurnar í þessu leik-
riti upplifa ekki ofbeldið sem
slíkt. Þetta verður allt svo létt og
leikandi. Þetta fólk sér ekkert
hvað það er að gera. Ofbeldið
truflar ekki þessar persónur
neitt mikið.“
Í þessu leikriti er þannig
dregin upp sú mynd af fólki í
nútímanum að það sé siðblint
með öllu. „Við sjáum ofbeldið
ekki sem ofbeldi, heldur sjáum
við það bara sem tækifæri.“
Auk Sólveigar Önnu eru
frummælendur á málþinginu
þeir Viðar Eggertsson leik-
stjóri, Pétur Pétursson prófess-
or, Bjarni Jónsson leikskáld og
dramatúrg og Gunnar Jóhann-
esson guðfræðingur. Auk þess
verða valdir kaflar úr verkinu
fluttir á málþinginu.
gudsteinn@frettabladid.is
SÓLVEIG ANNA BÓASDÓTTIR GUÐFRÆÐINGUR
Hún er einn frummælenda á málþingi um Dýrlingagengið, sem haldið verður
í Hafnarhúsinu í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
HÁLENDI ÍSLANDS
Siðfræðilegar og lögfræðilegar hliðar
á deilunni um umhverfismat vegna
Norðlingaölduveitu verða ræddar á
málþingi í Norræna húsinu í dag.
Málþing um Þjórsár-
ver og umhverfismat:
Hvaða lær-
dóm má
draga?
UMHVERFISMÁL Áleitnar spurning-
ar vöknuðu í kjölfar þess að
nokkrir vísindamenn gagn-
rýndu notkun rannsókna sinna í
matsskýrslu um umhverfisá-
hrif framkvæmda vegna Norð-
lingaölduveitu.
Landvernd og Siðfræðistofn-
un Háskóla Íslands ætla að
ræða þessar spurningar á mál-
stofu í Norræna húsinu í dag
klukkan fjögur síðdegis. Þarna
verða meðal annars ræddar sið-
fræðilegar og lögfræðilegar
hliðar málsins.
„Það þýðir svo sem ekki fyr-
ir neinn að ætla að setja sig í
dómarasæti í þessari deilu,“
segir Tryggvi Felixson hjá
Landvernd. „En okkur þótti
gagnlegt að ræða hvað við gæt-
um lært af þessu, hvort það
þyrfti að skerpa vinnubrögð og
starfshætti við matið og jafnvel
hvort ástæða væri til að endur-
skoða lögin til þess að draga úr
líkum á því að svona gerist aft-
ur, því þetta dregur óneitanlega
úr trúverðugleika og setur leið-
indablæ á málið.“
Frummælendur verða þau
Aðalheiður Jóhannsdóttir lög-
fræðingur, sem meðal annars
starfaði hjá umhverfisráðu-
neytinu þegar lög um umhverf-
ismat voru samin, Guðmundur
G. Þórarinsson verkfræðingur,
sem unnið hefur að mörgum
stórum matsverkefnum, og Þor-
varður Árnason náttúrufræð-
ingur og heimspekingur, sem
starfar hjá Siðfræðistofnun. ■ Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
5. sýn. fös. 24/1 20 kl. 20 blá kort
Lau. 25/1 kl. 20 UPPSELT
Fös. 31/1 kl. 20
Lau. 1/2 kl. 20
Fim. 6/2 kl. 20
Fös. 7/2 kl. 20
Lau. 8/2 kl. 20
Fös. 14/2 kl. 20
Lau. 15/2 kl. 19
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Sun. 26/1 kl. 20
Fim. 30/1 kl. 20
Sun. 2/2 kl. 20
Sun. 9/2 kl. 20
Sun. 16/2 kl. 20
Fim. 20/2 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Sun. 26/1 kl. 14
Sun. 2/2 kl. 14
Sun. 9/2 kl. 14
FÁAR SÝNINGAR EFTIR
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Fim. 23/1 kl. 20 UPPSELT
NÝJA SVIÐ
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN SÍN VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Frumsýning lau 1/2 kl 20 UPPSELT
Sun. 2/2 kl. 20 UPPSELT
Fös. 7/2 kl. 20
Lau. 8/2 kl. 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Lau. 25/1 kl. 20
Fös. 31/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Sun. 26/1 kl. 21 UPPSELT
Fim. 30/1 kl. 20
Sun. 9/2 kl. 20
Ath. breyttan sýningartíma
ÞRIÐJA HÆÐIN
GINUSÖGUR-VAGINA MONOLOGER-PÍKUSÖGUR
á færeysku, dönsku og íslensku – Birita Mohr, Charlotte
Böving, Kristbjörg Kjeld og María Ellingsen
Leiksýning, kaffi, tónleikar: Eivör Pálsdóttir syngur.
Lau. 25/1 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Fim. 23/1 kl. 20
Fös. 31/1 kl. 20 UPPSELT
Lau. 1/2 kl. 20 AUKASÝNING
Fim. 6/2 kl. 20
Fös. 14/2 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
(Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.)
Föstudag 24/1 kl. 21.00 UPPSELT
Föstudag 31/1 kl. 21.00
Miðasalan er opin
virka daga á milli 10.00 og 16.00
og laugardaga 14.00-17.00
og frá kl. 19.00 sýningardaga,
en síminn er 562 9700.
Ósóttar pantanir eru seldar
4 dögum fyrir sýningar.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
Reykjavík í hers höndum.
Sýning á skjölum og ljósmyndum
af Reykjavík á stríðstímum.
Opin alla daga kl. 12-17
á 6. hæð, Tryggvagötu 15.
________________________________________________________
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Langar þig í mynd af Reykjavík
t.d. frá árinu 1910, 1930 eða 1950?
Verð frá 1000 kr.
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Opið mán.-fös. kl. 10-16
________________________________________________________
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
HAFNARHÚS
Hugarleiftur (opnuð 24.1.), Erró.
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
then... hluti 4, Odd Nerdrum, Kjarval
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
Tumi Magnússon,
Ásmundur Sveinsson
________________________________________________________
Minjasafn Reykjavíkur -
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð
en boðið er upp á leiðsögn alla
mánud., miðvikud. og föstudaga kl. 13.
Einnig er tekið á móti hópum eftir
samkomulagi. Nánari upplýsingar
í síma 577 1111.
Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
________________________________________________________
www.gerduberg.is
Gerðubergi 3-5, s. 575 7700
Opnunartími sýninga frá kl.11-19
mán.-fös., kl.13-17 lau.-sun.
Ókeypis aðgangur.
Sýning: Bauhaus ljósmyndasýning.
Sýningin stendur til 23. febrúar. Í fé-
lagsstarfi: Árni Sighvatsson.
________________________________________________________
www.borgarbokasafn.is
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545
Nýtt á vef Borgarbókasafns
Lesið um jólabækurnar
og sendið ykkar álit á
www.bokmenntir.is
________________________________________________________
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal
er opið sun. 15-17 og eftir samkomu-
lagi í s. 567-9009