Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 19
FÓTBOLTI Neil Warnock,
k n a t t s p y r n u s t j ó r i
Sheffield United, segir
að Stephane Henchoz,
varnarmaður Liverpool,
hafi hrækt á sig eftir
leik liðanna í undanúr-
slitum deildarbikarsins í
fyrrakvöld. Leikurinn
endaði 2:0 fyrir Liver-
pool, sem þar með komst
í úrslit keppninnar.
Henchoz segist hafa
hrækt á jörðina en ekki á
Warnock. Á myndbands-
upptöku má sjá Sammy
Lee, aðstoðarstjóra Liver-
pool, draga Henchoz í
burtu frá Warnock eftir at-
vikið.
Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri Liverpool,
varði Henchoz og sagði
hann ekki hafa hrækt á
Warnock. „Ég á ekki von á
að enska knattspyrnusam-
bandið hafi afskipti af mál-
inu. Leikmenn eru alltaf að
hrækja á jörðina.“ ■
15FIMMTUDAGUR 23. janúar 2003
ÍÞRÓTTIR Í DAG
Reglum breytt í Formúlu 1:
Banna gripstýringu
og sjálfvirka gírkassa
KAPPAKSTUR Forráðamenn For-
múlu 1 kappakstursins hafa
ákveðið að banna notkun grip-
stýringar og sjálfvirks gírkassa
í keppnisbílum frá og með
breska Grand Prix-kappakstrin-
um sem hefst þann 20. júlí.
Leyfilegt verður fyrir öku-
menn að eiga samskipti við liðið
sitt en hugmyndir höfðu verið
uppi um að banna öll samskipti á
milli viðgerðarstöðvarinnar og
ökumanna á meðan á keppni
stæði. ■
Brasilíska liðið Palmeirashefur gefið markverði sín-
um Marcos leyfi til að hefja
viðræður við Arsenal. Marcos,
sem er 29 ára gamall, varð
heimsmeistari með Brasilíu-
mönnum á HM síðastliðið sum-
ar.
Bobby Robson, knattspyrnu-stjóri Newcastle, hefur stað-
fest áhuga sinn á Jonathan
Woodgate, leikmanni Leeds, og
Brasilíumanninum Kleberson,
sem leikur með brasilíska liðinu
Atletico Paranaense. Leeds hef-
ur einnig verið á höttunum eftir
Kleberson.
HVÍLD
Þjóðverjinn Michael Schumacher hjá Ferr-
ari hvílir sig á milli æfinga fyrir Formúlu 1
keppnina í Barcelona á Spáni. Keppnin
hefst 9. mars.
AP/M
YN
D
16.45 Sjónvarpið
Handboltakvöld
18.00 Sýn
Sportið með Olís
18.30 Sjónvarpið
HM í handbolta
(Ísland-Portúgal)
18.30 Sýn
Western World Soccer Show
19.00 Egilshöll
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
(Valur-KR)
19.15 Borgarnes
Úrvalsdeild karla körfubolti
(Skallagrímur-Tindastóll)
19.15 Grindavík
Úrvalsdeild karla körfubolti
(UMFG-Snæfell)
19.15 Njarðvík
Úrvalsdeild karla körfubolti
(UMFN-Haukar)
19.15 Smárinn
Úrvalsdeild karla körfubolti
(Breiðablik-Valur)
20.00 Keflavík
Úrvalsdeild karla körfubolti
(Keflavík-Haukar)
20.00 Ásgarður
Handbolti kvenna
(Stjarnan-Valur)
20.00 Framhús
Handbolti kvenna
(Fram-Fylkir/ÍR)
20.00 Kaplakriki
Handbolti kvenna
(FH-Haukar)
20.00 KA-heimilið
Handbolti kvenna
(KA/Þór-Grótta KR)
20.00 Vestmannaeyjar
Handbolti kvenna
(ÍBV-Víkingur)
21.00 Egilshöll
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
(Leiknir R.-Þróttur R.)
22.00 Sýn
Football Week UK
22.30 Sýn
Sportið með Olís
23.00 Sýn
HM 2002
(Frakkland - Úrúgvæ)
0.20 Sjónvarpið
HM í handbolta
(Ísland-Portúgal endurs.)
FÓTBOLTI
Knattspyrnustjóri Sheffield United:
Segir Henchoz hafa
hrækt á sig
HOULLIER
Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri Liverpool,
á ekki von á því að
enska knattspyrnusam-
bandið aðhafist eitt-
hvað í málinu.
Í UNDANÚRSLIT
Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick er
kominn í undanúrslit Opna ástralska
meistaramótsins í tennis eftir sigur á You-
nes El Aynaoui í gær. Roddick vann fimm-
tu lotuna 21:19 og tryggði sér þar með
sigur í afar löngum og ströngum leik sem
stóð yfir í fimm klukkustundir. Roddick
mætir Þjóðverjanum Rainer Schuettler í
undanúrslitum.
AP
/M
YN
D