Fréttablaðið - 23.01.2003, Page 29
FIMMTUDAGUR 23. janúar 2003
K
O
R
T
E
R
allt að
afsláttur
ÞINGVELLIR
Loks hillir undir að Ísland eignist svæði á
heimsminjaskrá UNESCO. Svíar eiga 12
svæði á skránni en Þingvellir verða fyrsta
íslenska svæðið á heimsminjaskrá.
Heimsminjaskrá
UNESCO:
Þingvellir
á listann
2004
ÞINGVELLIR „Í mínum huga er alveg
ljóst að Þingvellir ættu fyrir
löngu að vera komnir á
heimsminjaskrá UNESCO. Í því
fælist í senn viðurkenning fyrir
staðinn en ekki síður okkur sem
þjóð,“ sagði Rannveig Guðmunds-
dóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar, og spurði í kjölfarið forsæt-
isráðherra hvað liði umsókn þar
um.
Ráðherra upplýsti að verið
væri að leggja lokahönd á málið.
Umsókn um skráningu Þingvalla
sem menningarminjastaðar yrði
send UNESCO fyrir 1. febrúar
næstkomandi. Þingvellir kæmust
því að líkindum á alþjóðlegan lista
UNESCO um helstu menningar-
og náttúruminjar heims fyrir 60
ára afmæli Lýðveldisins Íslands á
næsta ári. Í ársbyrjun 2004 er svo
stefnt að því að sækja um skrán-
ingu Skaftafells sem náttúru-
minjastaðar hjá UNESCO. ■
Ekkert gerist – án afláts:
Beðið í 50 ár
LEIKRIT Leikritið Beðið eftir Godot
eftir Samuel Beckett var frum-
sýnt í París árið 1953 og hefur því
verið á sýningarskrám leikhúsa
um allan heim í hálfa öld. Grein
Soffíu Auðar Birgisdóttur, Ekkert
gerist – án afláts, um Beckett og
Godot hefur af þessu tilefni verið
uppfærð og birtist nú á menning-
arvefritinu www.kistan.is.
Beckett var kominn hátt á
fimmtugsaldur þegar verkið var
frumsýnt en hann hafði fengist
við ritstörf allt frá því hann lauk
prófi frá Trinity College í Dublin
árið 1927. Frægðin hafði hins veg-
ar látið á sér standa þar til Godot
lét ekki sjá sig á fjölunum. ■
VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN
Það er í ýmsu að snúast er skip eru í höfn.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM